Morgunblaðið - 12.07.1990, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.07.1990, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B 156. tbl. 78. árg. FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 1990 Prentsmiðja Morgunblaðsins Fundur sjö heistu iðnríkja heims: Landbúnaðarstyrkir verði takmarkaðir Houston. Reuter. LEIÐTOGAR sjö helstu iðnríkja heims samþykktu á fundi sínum í Houston í gær að minnka styrki til landbúnaðar og beita sér fyrir því að viðskiptahömlum yrði aflétt. Þeir ákváðu einnig að stefha að því að undirritaður yrði alþjóðlegur samningur um björg- un regnskóga. Þeim tókst þó ekki að jafna ágreining sinn varð- andi þessi mál að fullu og tóku ekki ákvörðun um sameiginlega efhahagsaðstoð við Sovétmenn. George Bush Bandaríkjaforseti kynnti blaðamönnum lokayfirlýs- ingu fundarins eftir að honum var slitið í gær. Þar kom meðal annars fram að leiðtogarnir féllust á mála- miðlun varðandi niðurgreiðslur til landbúnaðar. Þeir samþykktu að minnka niðurgreiðslurnar verulega í áföngum, en komust þó ekki að samkomulagi um hvernig standa ætti að því. Leiðtogarnir skuldbundu sig einnig til að beita sér fyrir því að Námamenn í Vestur-Síberíu ræða saman eftir að þeir höfðu lagt niður vinnu til að krefjast þess að ríkisstjórn Sovétríkjanna segði af sér. Sovétríkin: Frambjóðandi Gorbatsjovs ber signrorð af Lígatsjov Námaverkamenn ögra Sovétforsetanum með verkfalli Moskvu. Reuter, dpa. VLADÍMIR ívashko, fyrrum for- seti Sovétlýðveldisins Úkraínu, var kjörinn í embætti fulltrúa aðalritara, sem er það næst- valdamesta í sovéska kommún- istaflokknum, á flokksþinginu í Moskvu í gær, að því er frétta- stofan TASS hafði eftir áreiðan- legum heimildum í gærkvöldi. ívashko er sagður hófsamur umbótasinni og bar sigurorð af harðlínumanninum Jegor Lígatsjov í kjörinu. Þetta er sig- ur fyrir Míkhaíl Gorbatsjov, Sov- étforseta og aðalritara flokks- ins, en hins vegar tókst honum ekki að koma í veg fyrir sólar- hrings verkfall hundruð þús- Þýskaland: Friðrik mikli jarð- settur í þriðja sinn Bonn. Daily Telegraph. FRIÐRIK mikli, heimspekingurinn og konungurinn sem gerði Prússland að mesta herveldi Þýskalands á átjándu öld, verður jarðaður að nýju við höffina, sem hann lét reisa í Potsdam, suð- vestur af Berlín. Louis Ferd- inand von Ho- henzollern prins, áttræður afkomandi Friðriks mikla, segir að fjöl- skylda sín hafi ákveðið eftir hrun kommún- ismans að virða hinstu ósk kon- ungsins um að fá að hvíla við höllina. Kistur hans og föður hans, Friðriks Vilhjálms I., voru fluttar frá höllinni árið 1944 vegna sprengjuárása og framrásar bandamanna í lok heimsstyijald- arinnar síðari. Hann var jarðsett- ur að nýju árið 1952 við Hohen- zollern-kastala í Hechingen, skammt frá Stuttgart í Vestur- Þýskalandi. Potsdam var höfuðborg Brand- enborgar, sem síðar varð Prúss- land, en er nú í Austur-Þýska- landi. Þar sem sameining þýsku ríkjanna er í nánd geta afkomend- ur hans farið að huga að því að greftra hann — í þriðja og líkleg- ast síðasta sinn — þar sem hann helst vildi hvíla. Friðrik mikli nýtur mikillar virðingar á meðal Þjóðverja þar sem hann gerði Prússland að hernaðarlegu stórveldi og stuðlaði að mikilli grósku í menningu og stjórnmálum landsins á valdatíma sínum. unda námaverkamanna á helstu kolanámasvæðum landsins. TASS greindi ekki nánar frá úrslitunum. ívashko er 58 ára að aldri og sagði af sér sem forseti Úkraínu í .vikunni. Hann fær nú það verkefni, sem fulltrúi aðalrit- ara, að skipuleggja daglega starf- semi kommúnistaflokksins og fylgjast með henni. Gorbatsjov mælti með ívashko í embættið og sagði það mikilvægt að tveir æðstu embættismenn flokksins hefðu svipaðar skoðanir. Lígatsjov bauð sig fram sem „valkost marx- og lenínista" og Gorbatsjov reyndi að koma í veg fyrir framboð hans. Róttækir umbótasinnar vöruðu við því að ef harðlínumaðurinn næði kjöri segðu tugþúsundir umbóta- sinna skilið við flokkinn. Ekki var búist við að þriðji frambjóðandinn, Anatolíj Dúdyrev, prófessor frá Leníngrad, njAi mikils fylgis. Verkfallsmennirnir í kolanám- unum kröfðust einkum afsagnar Níkolajs Ryzhkovs, forsætisráð- herra Sovétríkjanna, og stjórnar hans. Þeir sökuðu stjórnina um að hafa svikið loforð um kjarabætur, sem hún gaf til að binda enda á verkfall þeirra fyrir ári. Forystumenn verkfallsmanna í Kúzbass í Síberíu sögðu að um 300.000 námamenn í 68 námum hefðu lagt þar niður vinnu. í Don- bass í Ukraínu tóku námamenn í 141 af um 250 námum þátt í ein- hvers konar verkfallsaðgerðum. Þá lagðist vinna niður í tíu af þrett- án námum í Vorkúta, nyrst í Rúss- landi. TASS sagði að námamennirnir í Donbass hefðu miklar áhyggjur af því að harðlínumenn væru að N, Aj,- Vorkúta, Moskva Sovétríkin Donbass Kúzbass Hundruö þúsunda náma- manna efna til verkfalls ná undirtökunum í kommúnista- flokknum. Fréttastofan sagði að aðeins um 40% námamanna á svæðinu hefðu lagt niður vinnu. alþjóðlegur samningur um björgun regnskóga yrði undirritaður fyrir árið 1992. Þeir lofuðu að minnka loftmengun í löndum sínum, einkum af völdum koltvísýrings, sem talin er valda hitabreytingum á jörðunni. Þeir komust hins vegar ekki að samkomulagi um hversu mikil mengunin, mætti verða heldur sögðu þeir að slíkt þyrfti að ákveða á ráð- stefnu um loftmengun, sem ráðgerð er í Bandaríkjunum á næsta ári. I lokayfirlýsingunni segir einnig að leiðtogarnir hafi samþykkt að kanna nánar efnahagsástandið í Sovétríkjunum til að hægt verði að meta hvernig koma megi Sovét- mönnum til hjálpar. Að því loknu verði tekin ákvörðun um sameigin- lega efnahagsaðstoð ríkjanna sjö. Hveiju ríki fyrir sig sé það í sjálfs- vald sett hvort það komi Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseta til bjargar. Albanía: Skip send eftir flóttamönnum Róm. Reuter. UM 2.000 albanskir flóttamenn, seni leituðu liælis í erlendum sendiráðum í Tirana, höfuðborg Albaníu, verða lluttir með skipum til Ítalíu og konia þangað snemma í fyrramálið. Síðar verða farnar fleiri ferðir til að sækja flóttamenn í sendiráðum Vestur-Þýskalands, Ítalíu og nokk- urra annarra landa í albönsku höfuð- borginni. Franskt skip verður sent eftir flóttamönnum í sendiráði Frakklands. Alls leituðu um 4.500 flóttamenn hælis í erlendum sendiráðum í Tir- ana. Votur er vinarkossinn Feðgar í Austur-Berlín virða fyrir sér risastóra mynd af kossaflensi Erichs Honeckers, fyrrum leið- toga austur-þýska kommúnista- flokksins, og Leoníds Breshnevs, fyrrum Sovétleiðtoga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.