Morgunblaðið - 12.07.1990, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JULI 1990
Akranes:
Tilboði Suðurverks hf.
tekið í gerð brimvam-
ar við hafiiargar ð inn
Akranesi.
BÆJARSTJÓRN Akraness samþykkti á fundi sínum síðastliðinn
þriðjudag að taka tilboði Suðurverks hf., Hvolsvelli, í gerð brim-
varriar við aðalhafhargarðinn á Akranesi, en bæjaryfirvðld voru
harðlega gagnrýnd af Verktakasambandi Islands og Hafiiamálastofh-
un fyrir að auglýsa útboðið eingöngu í Skagablaðinu á Akranesi.
Alls bárust sex tilboð í verkið, og átti íyrirtækið Vélar og kraftur
hf. Blönduósi Iægsta boðið, að upphæð kr. 32,9 milljónir. Ásbjarg
hf. Akranesi bauð 42,5 milljónir kr. og Suðurverk hf. 46,3 milljónir.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 64,7 milljónir, svo þessi boð eru öll
nokkuð undir áætlun.
Hafnarstjórn Akraness stóð ein-
róma að því að taka tiiboði Suður-
verks, en við afgreiðslu bæjarstjórn-
ar greiddi einn fulltrúi atkvæði
gegn því. Ingvar Ingvarsson bæjar-
fulltrúi sagði í samtali við Morgun-
blaðið að bæjarstjórn hefði litið svo
á að með þvf að auglýsa útboðið
aðeins takmarkað hefði hún viljað
stuðla að því að heimamenn, eink-
um bifreiðastjórar, fengju vinnu við
verkið, og þá ekki síður að fyrir-
tæki á Akranesi tækju verkið að
sér. Þegar tilboðin hefðu verið opn-
uð og könnuð rækilega hefði Hafna-
málastofnun mælt eindregið með
því að tilboði Suðurverks yrði tekið,
og hafnarstjórn Akraness verið því
einróma sammála. Niðurstaða bæj-
arstjórnar hefði verið sú sama, og
réðist afstaða hennar af þeim niður-
stöðum sem lagðar hefðu verið fyr-
ir fundinn.
Aðspurður um þann mismun,
sem væri á tilboði Suðurverks og
hinna fyrirtækjanna sem lægri
voru, sagði Ingvar að Hafnamála-
stofnun hefði í gegnum árin sagt
við sveitastjórnir, að ef þær tækju
hærri tilboðum en þeim sem lægst
væru, bæri þeim að greiða mismun
þann sem á því væri. Því væri það
hans persónulega skoðun að í þessu
tilfelli mætti líta svo á að dæmið
snérist við, og því bæri Hafnamál-
stofnun að greiða mismunminn að
þessu sinni.
J.G.
Bandarískum forn-
leifafræðingi neitað
um rannsóknaleyfi
ÞJÓÐMINJARÁÐ hefrir neitað bandaríska fornleifafræðingnum
Thomas McGovern um leyfi til að grafa upp bein á Ströndum, þar
sem hann uppfyllir ekki þau skilyrði nefiidarinnar að þeir, sem
fáist við íslenskar fornminjar verði að kunna góð skil á íslenskri
menningarsögu, að sögn Sveinbjarnar Rafiissonar formanns forn-
leifaneftidar en hann á jafiiframt sæti í þjóðminjaráði. Umsókn
McGoverns var hins vegar samþykkt í fornleifanefnd.
Sveinbjörn Rafnsson sagði að
McGovem væri beinasérfræðingur
og hann væri búinn að fá mikið
af beinum að láni úr Þjóðminja-
safninu og fleiri söfnum. „Hann
hefur farið með mikið af beinum
til útlanda án þess að það hafi
verið nægilega vel skráð hvað
hann hefur undir höndum. Sam-
kvæmt gömlu þjóðminjalögunum
hafði þjóðminjavörður eftirlit með
þessum útflutningi en þjóðminja-
ráð hefur eftirlit með honum
núna,“ sagði Sveinbjörn.
Hann sagði að umsókn Mc-
Governs um leyfi til fornleifarann-
Vestmannaeyjar:
Bæjarfulltrúi
biðst lausnar
sókna á Ströndum hefði verið sam-
þykkt 1 fomleifanefndinni með
þremur atkvæðum gegn tveimur.
„Ég skaut hins vegar málinu til
þjóðminjaráðs til umfjöllunar og
ráðið gerði „prinsip“-samþykkt um
fornleifarannsóknir útlendinga á
Islandi. Þessi samþykkt er í sam-
ræmi við það, sem tíðkast í ná-
grannalöndum okkar. í henni er
meðal annars bent á að fornleifar
á Islandi séu hluti af menningar-
sögu íslendinga og að þeir, sem
fást við íslenskar fornminjar verða
að kunna góð skil á íslenskri
menningarsögu og vel læsir á hana
en þess sé þó sjaldnast að vænta
um útlendinga. Því sé ekki rétt
að veita útlendingum leyfi til forn-
leifarannsókna hérlendis, nema í
undantekningartilfellum,“ sagði
Sveinbjörn.
Bílslys í Hestfirði
, Morgunblaðið/Sif Pálsdóttir
Bíll Aslaugar í fjörunni í Hestfírði. Eins og sjá má, standa að-
eins afturhjólin upp úr sjónum, en þau, sem á eftir komu, sáu
bílinn fara í loftköstum niður urðina og út í sjó.
Guðslukka með okkur
Hvorugt barnanna var í bílbelt-
um og komst drengurinn af sjálfs-
dáðum út um afturdyr. Bíllinn fór
á hvolf og stóðu aðeins afturhjólin
upp úr. Stúlkunni tókst að halda
höfðinu upp úr vatninu. Áslaug
var í belti og tókst að losa sig en
missti svo meðvitund og á lífgjöf
sína að þakka Páli Zóphoníassyni
byggingatæknifræðingi úr Vest-
mannaeyjum sem var í bílnum á
eftir henni og sá hvað gerðist.
„Ég var að koma af landsmóti
skáta ásamt 16 ára dóttur minni.
Þegar við komum fyrir eitt leitið
sáum við bílinn fara í loftköstum
niður urðina og út í sjó,“ segir
Páll. Hann stöðvaði bílinn, sagði
dóttur sinni að finna sjúkrakassa
en hljóp sjálfur að bílnum. Um
svipað leyti komst drengurinn út
úr bílnum og sagði að_ mamma
sín væri inni í honum. „Ég reyndi
fyrst að komast inn um framdyrn-
ar en hurðin var svo beygluð að
ég varð að ná konunni út um aft-
urdyrnar. Hún var þá meðvitund-
arlaus en ég beygði hana fram
og tókst að fá hana til að hósta.
Við það hresstist hún fljótt og
stakk sér svo sjálf eftir dóttur
sinni sem var enn í bílnum."
Páll er fyrrum félagi í Hjálpar-
sveit skáta og þar sem þau feðgin-
in voru að koma af skátamóti,
voru þau vel útbúin og höfðu föt
til skiptanna. Páll, Aslaug og
börnin komust því fljótt í þurr föt
og óku til ísafjarðar- þar sem þau
höfðu samband við lögreglu. Áður
hafði bílstjóri sem ók fram hjá
slysstaðnum látið vita af slysinu.
Áslaug segir líðanina ekki hafa
verið góða þegar hún gerði sér
grein fyrir hættunni sem hún
hefði verið í. Hún hefði þó ekki
orðið verulega hrædd þar sem
atburðirnir hafi gerst of hratt til
að hún hafi náð að átta sig á því
sem gerðist. En nú væri henni
efst í huga þakklæti til Páls, sem
brá svo skjótt við.
- segir Páll Zóphoníasson, sem
bjargaði konu úr bíl í sjónum
„ÉG HALLAST helst að því að eitthvað hafi bilað í bílnum því
hann varð skyndilega sljórnlaus og valt út í sjó,“ segir Áslaug
Valsdóttir, hjúkrunarfræðingur úr Reykjavík, en henni og dóttur
hennar var giftusamlega bjargað úr bíl sem valt út í sjó í Hestfirði
á mánudagskvöld. Páll Zóphoníasson byggingatæknifræðingur frá
Vestmannaeyjum náði konunni úr bílnum örfáum mínútum eftir
að hánn lenti í sjónum. Segir Páll mikla guðslukku hafa verið
með sér og dóttur sinni sem var með honum í bilnum, þar sem
þeim hafi auðnast að bjarga mannslífum en Áslaug og börn henn-
ar sluppu með skrámur.
Áslaug var á leið frá Reykjavík
til ísafjarðar með sjö ára dóttur
sína og átta ára gamlan son þeg-
ar slysið varð um kvöldmatarleyt-
ið. „Það var ekkert að veðri, ég
ók á beinum malarvegi og var
ekki á mikilli ferð þegar bílinn
varð skyndilega stjórnlaus. Hann
valt út í sjó, mér er sagt að það
séu einir 10-15 metrar niður í
fjöru þar sem bíllinn fór út af,“
segir Áslaug,
Morgunblaðið/Gísli Úlfarsson
Omar og Þórhildur Sigursveinsbörn ásamt móður sinni, Áslaugu
Valsdóttur. Við hlið hennar standa feðginin Sif og Páll Zóphonías-
son en þau björguðu Áslaugu út út bíl hennar eftir að hann hafði
lent í sjónum í Hestfirði.
Yerðkönnun Verðlagsstofiiunar:
427% verðmunur á hárþvotti
VERÐLAGSSTOFNUN kannaði nýlega verð á þjónustu 129 hár-
greiðslu- og rakarastofa á höfuðborgarsvæðinu, og þá kom meðal ann-
ars í ljós að 427% munur var lægsta og hæsta verði á hárþvotti. Lægst
var verðið hjá hárgreiðslustofunni Spörtu við Norðurbrún, þar sem
hárþvotturinn kostaði 100 kr., en hæsta verðið var hjá Salon VEH í
Álfheimum, þar sem þvotturinn kostaði 527 kr.
GEORG Þór Kristjánsson, bæj-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins i
Vestmannaeyjum, sem var bíl-
stjóri á sendibilnum sem tekinn
var með smygl í Þorlákshöfn á
sunnudag hefur játað aðild að
smyglinu. Hann hefur beðist
undan störfum i bæjarstjórn um
óákveðinn tíma og mun vara-
maður taka sæti hans.
Sigurður Einarsson, formaður
bæjarráðs Vestmannaeyja, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær að
í upphafi fundar bæjarstjómar-
flokksVSjálfstæðisflokksins, í há-
deginu í gær, hefði Georg skýrt
frá því að hann hyggðist draga sig
í hlé frá störfum um óákveðinn
tima og kalla inn varamann sinn.
Rakarastofan Hárflikk á Miklu-
braut reyndist hafa lægst verðlag
af hársnyrtistofum á höfuðborgar-
svæðinu á þeim þjónustuliðum sem
kannaðir voru, en verðlag þar var
24% undir meðalverði. Hæst var
verðlagið hjá Jóa og félögum, Rauð-
arárstíg, en þar var það 54% yfir
meðalverði.
Klipping fyrir konur þegar ekki
er klippt ný lína var ódýrust hjá
Hárgreiðslustofunni Þemu,
Reykjavíkurvegi, en þar kostaði
klippingin 800 kr. Hjá Jóa og félög-
um á Rauðarárstíg, sem voru með
hæsta verðið, kostaði þessi þjónusta
2.450 kr., sem er 206% hærra en
lægsta verð. Klipping fyrir konur ef
klippt er ný lína var ódýrust hjá
hárgreiðslustofu Distu Álfhólsvegi,
og Hár Fix Sléttahrauni, þar sem
hún kostaði 850 kr. Hjá Dúdda á
Suðurlandsbraut kostaði þessi þjón-
usta 2.595 kr., sem er 205% hærra
en lægsta verð.
Lægsta verð á herraklippingu var
800 kr. hjá hárgreiðslustofunni
Þemu við Reykjávíkurveg, én dýrust
var klippingin hjá Jóa og félögum á
Rauðarárstíg. Þar kostaði klippingin
1.980 kr., sem er 148% hærra en
lægsta verð.
Hæsta verð á permanenti í stutt
hár var 4.320 kr. hjá Kristu í Kringl-
unni. Lægsta verð á þessari þjónustu
var 2.000 kr. hjá hárgeiðslustofunni
Lilju, Garðastræti, og er hæsta verð-
ið í þessu tilfelli 116% hærra en
lægsta verð.
Sjá niðurstöður verðkönnun-
arinnar bls. 29.