Morgunblaðið - 12.07.1990, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 1990
Háir vextir valda hækk-
un sterlingspundsins
Vextirnir í kringnm 13% á pundum en 7-9% af mörkum yenum og dölum
ENSK sterlingspund hafa hækkað mjög í verði á undanförnum vikum
gagnvart íslenskri krónu og Bandaríkjadalur hefiir lækkað talsvert,
en þó ekki í sama mæli og pundið. Gengi annarra gjaldmiðla hefur
breytst mjög lítið í samanburði við þessar tvær myntir, að sögn Sigurð-
ar Arnar Einarssonar, skrifstofustjóra hjá Seðlabanka Islands.
Sem dæmi um gengisbreytingarn-
ar má nefna að sölugengi dals 10.
júií var 58,63 krónur, en var í lok
maí 60,43 krónur og í lok nóvember
var hann í 62,77 kr. Sölugengi sterl-
ingspundsins var 106,79 kr., en var
í lok maí 101,78 krónur, í lok apríl
99,41 króna og í lok nóvember 98,53
krónur.
„Það sem hefur verið að orsaka
þetta upp á síðkastið, að því er
menn segja, er að vextir hafa verið
háir í Bretlandi og ekki útlit fyrir
að þeir lækki. Verðbólga er nú með
því hærra sem gerist í nágranna-
löndum okkar eða í þeim löndum sem
við verslum mest við og þetta hefur
orsakað það að á alþjóðlegum gjald-
eyrismarkaði hafa menn frekar vilj-
að eiga og ávaxta pund, heldur en
til dæmis að eiga dollar," sagði Sig-
urður.
Hann sagði að önnur ástæða fyrir
þessari þróun væri að gert væri ráð
fyrir að vextir af dal lækkuðu og
þetta hefði orsakað flótta þaðn í
pund. Pundið hefði auk þess að
styrkja sig gagnvart dal, einnig
styrkt sig tölvert gagnvart þýska
markinu og öðrum Evrópumyntum.
Ein önnur ástæða sem væri nefnd í
þessu sambandi væri að gert væri
ráð fyrir að Bretar gerðust formleg-
ir aðilar að Evrópumyntbandalaginu,
sem þýddi að gengi pundsins gagn-
vart öðrum myntum í þessu banda-
lagi mætti sveiflast inn mjög fastra
ákveðinna mark. Það hefði lengi
verið rætt um þetta, en nú væri
útlit fyrir að það gerðist fyrr en
upprunalega hefði verið áætlað og
það hefði styrkt pundið.
Sigurður sagði að vextir á Banda-
ríkjadal, mörkum og japönskum jen-
um væru á bilinu 7-9% en sitt hvoru
megin við 13% á sterlingspundum.
Hann sagði að mjög hefði hægt á
þessum gengisbreytingum undan-
fama daga. Mjög erfitt væri að full-
yrða hvort þetta væri varnalegt, en
því væri almennt spáð að það yrðu
engar stórar breytingar til baka.
VEÐURHORFUR í DAG, 12. JÚLÍ
YFIRLIT í GÆR: Milli l'slands og Noregs er 994mb lægð sem hreyfist
austur en hæðarhryggur skammt vestur af landinu fer einnig austur.
Milli Suður-Grænlands og Nýfundnalands er 992 mb lægð á leið norð-
norðaustur.
SPÁ: Norðvestanátt og síðar vestanátt, kaldi um landið austanvert og
sunnanvert, en gola eða hægviðri norðvestan ttl, Súld við norðaustur-
ströndina í fyrstu en annars víða bjart veður. Siðla nætur verður vindur
orðinn suðvestlægur og skýjað vestanlands en iéttskýjað á Norður-og
Austurlandi. Hití ailt að 17 stig á Suðausturlandi i dag en mun svalara
norðanlandsog vestan. Á morgun fer að hlýna norðaustantil á landinu.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Nokkuð sttf sunnanátt. Skýjað og tals-
verð rigning um mest allt land, síst þó á Norðvesturlandi Tiltöiu-
lega hlýtt í veðri, hlýjast f innsveitum norðanlands.
HORFUR Á LAUGARDAG: Suðaustanátt, þurrt og sumstaðar létt-
skýjað í innsveitum norðanlands, en víðast annars staðar verður-
vætusamt. Áfram hlýtt í veðri.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Atskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* # *
■JO Hitastig:
10 gráður á Celsíus
Skúrir
*
V E'
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
[T Þrumuveður
% 1
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hiti veöur
Akureyri 9 skýjað
Reykjavik 11 hálfskýjað
Bergen 13 alskýjað
Helsinki 20 skýjað
Kaupmannahöfn 19 skýjað
Narasarssuaq 10 léttskýjað
Nuuk 7 léttskýjað
Ostó 17 skýjað
Stokkhóimur 20 skýjað
Þórshöfr, 12 skúr
Algarve vantar
Amsterdam vantar
Barcelona 26 léttskýjað
Berlin 17 skýjað
Chicago mm. skur
Feneyjar 24 heiðskýrt
Frankfurt 18 skýjað
Qlasgow 18 skýjað
Hamborg 19 skýjaö
Laa Palmas 24 léttskýjað
London 24 léttskýjað
LosAngeles 21 alskýjað
Lúxemborg 18 léttskýjað
Madnd 31 heiðskýrt
Malaga 29 heiðskýrt
Mallorca 29 léttskýjað
Montreal 16 skýjað
NewYork 23 skýjað
Orlando 26 léttskýjað
París 21 hálfskýjað
Róm 20 Þrumuveður
Vtn 19 skýjað
Washington 25 mlstur
Wlnnipeg 13 skýjað
Veiðarfæraíra,núeiðendur leggja
fram fé tíl kaupa á laxakvóta
Umboðsmaður bandaríska fyrirtækisins ORVIS á íslandi afhenti í gær
Orra Vigfússyni, sem haft hefur forgöngu um að aðilar í ýmsum lönd-
um kaupi úthafveiðikvóta á laxi, fyrsta framlag veiðarfæraframleið-
anda til kaupa á laxakvótanum. Framlagið nemur 2% hiutfalli af sölu
fyrirtækisins á íslandi og í Noregi, og að sögn Magnúsar Jónassonar,
eiganda ORVIS umboðsins á íslandi, nemur það nokkrum hundruðum
þúsunda króna. Á myndinni sést Orri Vigfússon, til vinstri, taka við
framlaginu úr höndum Magnúsar Jónassonar.
Stjórnarráð Islands:
Konur sækja á
í hærri stöður
KONUR, sem starfa ínnan Stjórnarráðsins eru í miklum meinhluta t
BSRB en karlar innan BHMR. Þær fylla flokk fulltrúa og skrifstofii-
fólks en karlar eru í meirihluta í stjórnunarstöðum. Sókn kvenna í
þessi störf hefúr þó aukist, samkvæmt niðurstöðum könnunar, sem
Jafiiréttisráð hefur unnið og eru konur nú nærri þriðjungur deildarsér-
fræðinga og deildarstjóra
* Skýrsla Jafnréttisráðs er unnin
upp úr upplýsingum sem Danfríður
Skarphéðinsdóttir alþingismaður
óskaði eftir hjá félagsmálaráðerra
og vörðuðu stöðu jafnréttismála í
ráðuneytum Stjómarráðsins. í svari
ráðherra kom fram fjöldi stöðugilda
í hvetju ráðurneyti fyrir sig, hvernig
þau dreifðust á milli kynjanna og
hvernig starfsfólk ráðuneytanna rað-
ast í launaflokka og þá um leið stétt-
arfélag. Upplýsingarnar taka til febr-
úar 1990.
í könnun félagsmálaráðherra kom
fra að konur eru tæp 76% BSRB-
starfsmanna í Stjórnarráðinu en
karlar rúm 24%. Aftur á móti voru
karlar tæp 70% BHMR starfsmanna
en konur rúm 30%.
Þá var spurt um hvernig stöðu-
gildi skiptust milli karla og kvenna.
Stöðu ráðuneytisstjóra gegndu karl-
ar í tæplega 95% tilvika. Stöðu skrif-
stofustjóra, sendiherra ríkisbókara
og ríkisféhirðis, gengdu karlar í tæp-
lega 90% tilvika. Yfírsérfræðingar
voru í um 70% tilvika karlar, og
deildarstjórar, sendiráðunautar,
sendifulltrúar og námsstjórar voru
karlar í um 65% tilvika. Deildarsér-
fræðingar voru í um 60% tilfellum
karlar og allir framkvæmdasljórar
voru karlar. Sérhæfðir fulltrúar voru
í rúmum 55% tilvika karlar en tæp-
lega 45% konur og stjómarráðsfull-
trúar vom í rúmlega 80% tilvika
konur. Tæplega 95% fulltrúa voru
konur og rúmlega 80% skrifstofu-
fólks. Flokkinn „annað“ fylltu ein-
göngu karlmenn en það átti við störf
á borð við bílstjóra, húsverði og dyra-
verði. í skýrslu Jafnréttisráðs segir
að þessar tölur staðfesti niðurstöðu
tveggja ára könnunar sem sýni fram
á aukna sókn kvenna í hærri stöður.
í ráðuneytum Sjórnarráðs em
starfsmenn í tveimur stéttarfélögum;
BSRB og BHMR. Skipting eftir
launaflokkum í BSRB er þannig að
í flokki 230 og lægri em eingöngu
karlmenn. í flokkum 231-250 eru
21% karlar og 79% konur og í flokki
251 og hærri eru 61% karla og 39%
kvenna. I launaflokkum innan
BHMR skiptast launaflokkar milli
kynja þannig að í flokki 140-144 eru
17% karla og 83% kvenna, í flokki
145-149 em 55% karla og 45%
kvenna og í flokki 150-154 em 63%
karlar og 27% kvenna. í flokki
155-158 em 90% karlar og í flokkum
168 og 171 era eingöngu karlar. í
efsta flokkinum em 93% karlar og
7% konur.
Unnið við Stuðlafoss í Hafnarljaröarhöfn í gær.
Morgunblaðið/Bar
Smygl fannst í Stuðlafossi
TOLLGÆSLAN fann 53 kassa
af bjór og um 40 kg af skinku
við leit sem gerð var í Stuðla-
fossi þegar skipið kom til Hafnar-
fjarðar í gær.
Varningurinn fannst í lest
Stuðlafoss, sem áður hét ísberg,
og hafa þn’r skipverjar játað að
hafa ætlað að smygla varningnum
inn í landið.