Morgunblaðið - 12.07.1990, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 12.07.1990, Blaðsíða 5
Kristján Pálsson bæjai'stjóri í Njarðvík KRISTJÁN Pálsson, bæjarfulltrúi í Olafsvík og fyrrum bæjarstjóri þar, verður ráðinn bæjarstjóri í Njarðvík. Eftir sveitarstjórnarkosningarnar í vor auglýsti nýkjörin bæjarstjórn Njarðvíkur eftir bæjarstjóra og sóttu 29 um stöðuna. I þeim hópi voru Sigurður Jónsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyj- um og Kristján Pálsson bæjarfulltrúi Lýðræðissinna í Olafsvík, en hann gegndi embætti bæjarstjóra þar á síðasta kjörtímabili. Bæjarráð Njarðvíkur samþykkti á fundi sínum í gær að ráða Kristján bæjarstjóra. D-listi sjálfstæðismanna og N-listi félagshyggjufólks mynda meirihluta í bæjarstjórn Njarðvíkur. Á síðasta kjörtímabili voru Alþýðuflokkur og Framsóknarflokkur í meirihluta og var Oddur Einarsson bæjarstjóri. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 1990 5 Morgunblaðið/Jón Hafsteinn Trítlað til Tjarnarinnar í lögreglufylgd Fiskvinnslan-Norðursíld á Seyðisfírði: Heimamenn vinna að kaupum á eignum HEIMAMENN á Seyðisflrði eiga í viðræðum við Landsbankann og Byggðastofnun um kaup á húsum og tækjum Fiskvinnslunnar-Norð- ursíldar, sem varð gjaldþrota á síðasta ári. í undirbúningi er að stofna hlutafélag til að taka við rekstrinum. Seyðfirðingar hafa komið á fót vinnunefnd til að undirbúa stofnun hlutafélags til að kaupa eignir Fisk- vinnslunnar-Norðursíldar og hefur hún átt í viðræðum við fulltrúa Landsbankans og Byggðastofnunar, sem eignuðust þær þegar fyrirtækið varð gjaldþrota á síðasta ári. í vinnu- nefndinni sitja Þoi’valdur Jóhannsson bæjarstjóri fyrir hönd kaupstaðarins, Trausti Magnússon fyrir hönd út- gerðar togarans Ottós Wathne, Ólaf- ur M. Ólafsson og Adólf Guðmunds- son fyrir hönd Gullbergs hf. sem gerir út togarann Gullver, og Hall- steinn Friðþjófsson fyrir hönd verka- mannafélagsins Fram. Vinnunefndin gerði tilboð í eign- irnar fyrir rúmri viku en því var hafnað munnlega. Síðan hefur hún látið gera úttekt á þeim tveimur fisk- vinnsluhúsum, sem Fiskvinnslan- Norðursíld átti, og liggur nú fyrir kostnaðaráætlun vegna endurbóta á húsunum. Fór vinnunefndin fram á það við Byggðastofnun og Landsban- kann á þriðjudag, að beinar viðræður milli aðila um sölu eignanna hæfust. - Þorvaldur Jóhannsson bæjarstjóri segist vonast til þess að stofnun hlutafélagsins vérði lokið í næstu viku og muni stjórn þess þá taka við í viðræðunum. „Það hefur enginn bolfiskur verið unninn á Seyðisfirði frá því í september á síðasta ári og mönnum finnst nú kominn tími til að það fari að sjást til sólar í þessu máli,“ segir Þorvaldur. Evrópumót yngri spilara í brids: íslenska lið- ið í 7. sæti LANDSLIÐ íslendinga var í 7. sæti af 22 þjóðum, þegar 12 umferðum var lokið á Evrópu- móti yngri spilara í brids. Norðmenn voru efstir með 237 stig, Israelsmenn voru í 2. sæti með 233,5 stig og Danir voru í 3. sæti með 211 stig. íslendingar vom í 7. sæti með 190,5 stig. Finnar vom í 6. sæti og Svíar í 8. Spilaðir eru þrír 20 spila leikir að jafnaði á dag. Mótinu lýkur á laugardag. Páll H. Jónsson, kennari, látinn PÁLL H. Jónsson, fyrrverandi kennari við Héraðsskólann að Laugum í S-Þingeyjarsýslu, er lát- inn, 82ja ára að aldri. Páll var fæddur 5. apríl 1908 á Mýri í Bárðardal. Foreldrar hans voru Jón Karlsson, bóndi þar, og Aðalbjörg Jónsdóttir. Hann ólst upp hjá hjónunum Páli H. Jónssyni, bónda á Stafni í Reykjadal, og Guð- rúnu Tómasdóttur. Páll stundaði nám við Hérðasskól- ann að Laugum og Samvinnuskól- ann, og sótti kennaranámskeið í Askov í Danmörku. Hann var kenn- ari við Héraðsskólann að Laugum 1933-1961, forstöðumaður fræðslu- deildar SÍS í Reykjavík 1961-1967, og stundakennari við Héraðsskólann og Húsmæðraskólann að Laugum 1967-1975. Eftir Pál liggur fjöldi ritverka, en hann hlaut verðlaun og viðurkenningu Reykjavíkurborgar fyrir bestu frumsömdu barnabók á íslandi 1978 og 1979. Páll var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Rannveig Kristjánsdóttir, sem lést árið 1966, og áttu þau fimm börn, sem öll em á lífi. Eftirlifandi eiginkona hans er Fanney Sigtryggs- dóttir, húsmæðrakennari. UMBOÐSMENN V^S-rURLAjlDI REYKHÓLASVEIT ■ ^ H'' ' STYKKISHÓLMUR . © BUÐÁRDALUR HELLISSANDUR I GRUNDARFJÖRÐUR ÓLAFSVIK ©REYKHOLT BORGARNES hvalfjörður AKRANES REYKHÓLASVEIT: Söluskálinn Bær. HELLISSANDUR: Essó, Útnesvegi. ÓLAFSVÍK: Bijlinn, Ennisbraut 1. GRUNDARFJÖRDUR: Bensínstöðin, Grundargötu 38. STYKKISHÓLMUR: Bensin og veitingasalan, Aðalgötu 25. BÚDARDALUR: Dalakjör.Vesturbraut 8. REYKHOLT: Verslunin Bitinn. BORGARNES: Essó, Borgarbraut. AKRANES: Söluturninn Markið, Suðurgötu 10 - Olís, Esjubraut 45 Skaganesti, Skagabraut 45 - Barbó, Skólabraut 37. HVALFJÖRÐUR: Veitingastofan Þyrill. munið margviknamiðana Gódur ferðafélagi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.