Morgunblaðið - 12.07.1990, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 1990
7
Slasaðist
í árekstri
MAÐUR slasaðist í hörðum
árekstri fólksbíls og vörubíls á
nýju Reykjanesbrautinni síðdeg-
is í gær.
Vörubflnum var ekið frá hest-
húsasvæði og in á Reykjanesa-
brautina án þess að ökumaðurinn
kæmi auga á fólksbíl sem þar kom
aðvífandi. Fólksbíllinn rakst á
framhorn vörubílsins. Ökumaður
fólksbílsins slasaðist nokkuð og var
talinn brotinn á handlegg. Bíll
hans er stórskemmdur.
Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson
Frá slysstað á Reykjanesbraut.
Millisvæðamótið í Manila:
Jóhann bætir stöðu sína
Manila. Frá Karli Þorsteins fréttaritara Morgunblaðsins.
Lokaspretturinn er nú haíínn á millisvæðamótinu í skák í Manila.
11. umferð var tefld í gær og þá vann Jóhann Hjartarson kanadíska
stórmeistarann Kevin Spraggett og Margeir Pétursson vann landa
hans, alþjóðlega meistarann Piasetski. Jóhann er nú í 17.-23. sæti
með 6 vinninga en Margeir er með 4 'h vinning.
Staða efstu manna breyttist lítið
og sovésku stórmeistararnir Bóris
Gelfand, Vassilíj Ivantsjúk og
Míkhafl Gurevitsj eru efstir með
7'A vinning.
Jóhann Hjartarson hefur bætt
stöðu sína verulega í síðustu um-
ferðunum.- Hann gerði jafntefli við
sovéska stórmeistarann Andreij
Sókólov í 10. umferð. Margeir tap-
aði hins vegar fyrir Neto Sunye frá
Brasilíu í 10. umferð og þar áður
tapaði hann biðskák við Marin frá
Rúmeníu.
12. umferð verður telfd í dag,
en mótinu lýkur á laugardag. 13
efstu skákmennirnir komast áfram
í áskorendaeinvígin.
HafriaivQörður og ná-
grenni:
Fjöldi um-
ferðarslysa
ÞRÍR slösuðust í hörðum
árekstri á Reykjavíkurvegi í
Ha&iarfirði síðdegis í gær.
Toyota sportbifreið var ekið aft-
an á Mazdabifreið. Ökumenn
beggja bílanna voru fluttir á slysa-
deild. Hemlaför eftir Toyota-bílinn
þóttu benda til þess að honum
hefði verið hraðar en lög leyfa.
Fjórir voru fluttir á slysadeild
síðdegis á þriðjudag eftir að stórum
vörubíl, hlöðnum möl, var ekið aft-
an á fjóra fólksbíla í sunnanverðri
Arnarneshæð. Einn hinna slösuðu
var lagður inn á Borgarspítalann
en aðrir fengu að fara heim að
lokinni rannsókn. Bílarnir eru stór-
skemmdir.
Ungur maður meiddist nokkuð
er Volvo Amazon bíll hans valt á
Álftanesbegi við Bessastaði í fyrra-
kvöld. Við óhappið kastaðist mað-
urinn út úr bílnum, sem fór marg-
ar veltur og stórskemmdist.
Þorlákshöfii:
Stálu humri
úr Meitlinum
TVEIR menn um tvítugt brutust
inn í írystihús Meitilsins í Þor-
lákshöfn í fyrrinótt og stálu það-
an 144 kílóum af humri. Upp
komst um mennina þegar lög-
reglan í Reykjavík stöðvaði bíl
þeirra á Miklubraut á ijórða
tímanum um nóttina en hann
hafði ekki verið færður til skoð-
unar í tvö ár.
I bílnum, sem er amerískur
jeppi, voru 12 kassar, sem hver
um sig reyndist hafa að geyma
12 kíló af humri. Mennirnir játuðu
við yfirheyrslur að hafa brotist inn
í Meitilinn og haft þaðan humarinn
á brott. Þeir voru geymdir á lög-
reglustöðinni um nóttina en verk-
stjóri úr Meitlinum kom í bæinn
og tók humarinn í sínar hendur.
XJöfðar til
JTXfólksí öllum
starfsgreinum!
fyrir þig og þína
Þú getur stólað
á sparisjóðina
Frelsi og sjálfstæði - lipurð og sveigjanleiki eru
fjögur lýsandi orð yfir starfsemi og þjónustu
sparisjóðanna í landinu. Hver og einn þeirra
starfar sem frjáls og óháð eining í þágu ein-
staklingsins og byggðarlagsins, trúr þeirri
stefnu að stuðla að eflingu mannlífs og at-
vinnuvega á sínu starfssvæði.
SPARISJÓÐIRNIR
Sparisjóðirnir, allir sem einn, leggja áherslu á
persónulega þjónustu þar sem lipurð og sveigj-
anleiki ráða ferðinni enda eru hagsmunir
byggðarlagsins hagsmunir sparisjóðsins. Þann-
ig kemur hver króna geymd í sparisjóðnum við-
komandi byggðarlagi til góða.