Morgunblaðið - 12.07.1990, Side 9

Morgunblaðið - 12.07.1990, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JULI 1990 9 Ég vil þakka öllum þeim, vinum og vanda- mönnum, sem glöddu migá80 ára afmœlisdag- inn 20. júní sl meÖ skeytum, blómum, gjöfum, söng, hljóðfceraleik og vísum og umfram allt nœrveru ykkar. Guð geymi ykkur öll. Jórunn Brynjólfsdóttir. TOYOTA NOTAÐIR BÍLAR Athugasemd! Bílar með staðgreiðsluverði eru einnig fáanlegir með lánakjörum skv. lánatöflu Toyota bílasölunnar. TOYOTA COROLLA LB. XL '88 TOYOTA COROLLA HB. '88 Dökkgrár. 5 gíra. 5 dyra. Ekinn 54 þús/km. Verð 770 þús. TOYOTA CAMRY ’87 Ljósblár. 5 gíra. 5 dyra. Ekinn 17 þús/km. Verð 990 þús. staðgr. SUBARU COUPE GL4 x 4 '88 Dökkgrár. 5 gíra. 3 dyra. Ekinn 28 þús/km. Verð 980 þús. Ljósbrúnn. 4 gíra. 3 dyra. Ekinn 34 þús/km. Verð 620 þús staðgr. TOYOTA COROLLA LB. '88 Dökkgrár. 5 gira. 5 dyra. Ekinn 26 þús/km. Verð 820 þús staðgr. TOYOTA COROLLA 4 x 4 ’89 Hvítur. Álfelgur. 5 gíra. 5 dyra. Ekinn 27 þús/km. Verð 1150 þús. 44 1 44 - 44 7 33 TOYOTA Ráðherra eða ríkisstjóm? í Morgunblaðinu birtist á fimnif udaginn fyrir viku frétt þar sem scgir: „Iðn- aðarráðherra [Jón Sig- urðsson] segist eiga von á, að undirbúningur virkj- anaframkvæmda vegna raforkusölu til álvers Atl- antsálfyrirtækjanna heQ- ist í sumar og haust. Er það i samræmi við heimild Alþingis um að verja allt að 300 milljónum króna á árinu í því skyni.“ I frétt- inni segir einnig: „Iðnað- arráðherra segir, að hann hafi nýlega gert Lands- virkjun grein fyrir stöðu viðræðnanna og stofhunin sé nú að meta í ljósi þess, hvaða framkvæmdir séu nauðsynlegar á næstu mánuðum." Af þessum orðum iðnað- arráðherra verður ekki annað ráðið en hann líti þannig á, að með samtali sínu við Landsvirkjun hafi hann gefið fyrirtækinu til kynna, að það geti gengið til þeirra verkefna sem þess bíða vegna nýs ál- vers. Jón Sigurðsson hef- ur vafalaust talið, að hann hefði umboð sem iðnaðar- ráðherra til að hrinda nauðsynlegum fram- kvæmdum af stað. Daginn eftir að fyrr- greind frétt birtist hér í blaðinu kom önnur um sama mál og var þá vitnað í Halldór Jónatansson, for- stjóra Landsvirkjunar. Þar segir (baksíða Morg- unblaðsins fostudag 6. júlí): „Halldór Jónatans- son, forstjóri Landsvirlq- unar, segir að lögum sam- kvæmt geti undirbúning- ur virkjanafrainkváemda vegna raforkusölu til nýs álvers ekki hafist fyrr en ríkisstjórnin hafi veitt samþykki sitt fyrir því. Sfjóm Landsvirkjunar Qallaði um virkjanafram- kvæmdir á sfjómarfundi í gærmorgun og ráðgert var að skýra iðnaðarráð- herra frá þeim viðræðum bréfleiðis. Halldór sagði að undirbúningsvimia yrði að hefjast sem allra fyrst. Viridanaframkvæmdir vegna álvers: Undirbúningsvinna háð samþykki ríkisstjórnar — segir Halldór Jónatansson, forstjóri Landsvirkjunar Þingflokksformaður framsókt^armanna um álversundirbúning: Ríkisstjómin hlýtur að leita álits þingflokkanna Erfiðar ákvarðanir Vegna áforma um smíði nýs álvers þarf að taka margar og flóknar ákvarðanir. Ýmsar þeirra eru þess eðlis að þar hljóta bæði ríkis- stjórn og Alþingi að koma við sögu. Innan stjórnarflokkanna eru menn ekki alfarið sam- stiga í málinu. Ríkisstjórnin hefur ekki sjálf ákveðið að í smíði álvers skuli ráðist. Til þess að atburðarás verði í samræmi við áætlanir í samningaviðræðunum við Atlant- sálhópinn þarf Landsvirkjun að geta hafið undirbúning að virkjanaframkvæmdum vegna raforkusölu til nýs álvers í sumar eða haust. Ákvörðun um þessar framkvæmdir byggist á mati manna á þvi, hvort samning- ar takist um nýtt álver. Ríkisstjórnin verður að koma við sögu þessara ákvarðana. Er staldrað við þær í Staksteinum í dag. „Alþingi heimilaði Lands- virkjun að verja allt að 300 milljónum kr. til und- irbúnings virkjanafram- kvæmda að fengnu sam- þykki ríkisstjómarinnar. Þetta er því mál sem sfjóm Landsvirkjunar og rikissfjómin verða [að] sammælast um og verið er að fjalla um þá hlið málsins í framhaldi af stjómarfundinum," sagði Halldór." f þessari frétt stóð ehmig: „„Undirbún- ingurinn þarf að heQast sem allra fyrsL Þetta fer að vera spuming um vik- ur og daga,“ sagði Hall- dór.“ Þessi ummæli forstjóra LandsvirRjunar verða ekki skilin nema á einn veg. Sfjóm Landsvirkjun- ar lítur þannig á, að henni dugi ekki að fá samþykki Jóns Sigurðssonar iðnðar- ráðherra við framkvæmd- um er tengjast nýju ál- veri; samþykki ríkissfjóm- arinnar allrar verði að liggja fyrir, samkvæmt ákvörðun Alþingis. í fréttum Morgunblaðs- ins laugardaginn 7. júlí er haldið áfram að fjalia um þetta mál. Blaðið snýr sér til Páls Péturssonar, form- anns þingflokks fram- sóknarmanna og stjórnar- manns í Landsvirlyun, sem segpr „að samkvæmt lögunum frá því i vor sé Ijóst, að það þurfi sam- þykki ríkisstjómarinnar, en ekki aðeins iðnaðarráð- herra, til að heimila Landsvirkjun að hefja undirbúningsframkvæmd- imar. Jafnframt te[ji hann, að ráðherramir hljóti að vi[ja ræða málið í þingflokkum stjómar- flokkanna áður en ákvörð- un verði tekin, enda væri verið að taka mikla áhættu með því að veija 300 milljónum til fram- kvæmdanna. Páll vísar til þess, að við myndun ríkisstjómar- innar hafi Steingrímur Hermannsson, forsætis- ráðherra, lýst því yfir, að ákvörðun um byggingu álvers yrði ekki tekin nema með stuðningi allra stjómarflokkanna og að ef einhver hluti stjórnar- iimar afgreiddi málið með sfjómarandstöðunni liti hann svo á, að nýr meiri- hluti hefði myndast á þiiigi. Páll segir, að staðsetn- ing álversins geti haft áhrif á afstöðu aðila í ríkisstjómarflokkunum til málsins. Ef ríkisstjórnin ætli að hafa áhrif á byggðaþróun í landinu, scm hann telji henni bera skylda til, þá hljóti hún að taka á staðarvalinu." Páll Pétursson telur sem sé ekki nóg að ríkis- sfjómin veiti Landsvirkj- un nauðsynlegar heimildir til að hefja framkvæmdir heldur vill hann, að þing- flokkar ríkisstjórnarinnar ræði málið og byggist þessi afstaða hans á yfir- lýsingum forsætisráð- herra við myndun ríkis- stjómarinnar; einstakir stjómarflokkar eiga sem sé að hafa rétt til að segja álit sitt áður en ráðist verður í að reisa álver og 'um það snúast ákvai-ðan- imar um framkvæmdir Lands virkj unar. Þetta erfiða mál tekur síðan enn nýja stefhu á þriðjudag, þegar Stein- grímur Hermannsson for- ætisráðherra tjáir sig um það i Dagblaðinu-Vísi (DV). Steingrímur segir að það sé á valdi einstakra . stjómarflokka, hvort þeir eftii til þingflokksfúnda um málið. Hins vegar virð- ist hann ekki þeirrar skoð- unar, að neitt liggi á að afgreiða málið á næstu dögum. Forsætisráðherra segir: „... Mér sýnist allt benda til þess að eftir næsta fund í álviðræðun- um verði staða þessara mála orðin nægjanlega skýr til þess að gefa Landsvirkjun grænt \jós, enda hafa alþýðubanda- lagsmenn ekkert haft við gang þessara mála að at- huga.“ Næsti fiindur í ál- viðræðunum? Verður ekki of seint að taka ákvarðan- ir um framkvæmdir Landsvirkjunar eftir liann? Veit forsætisráð- herra ekki um livað málið snýst? Þú gefur eignast 2,2 milljónir ef þú leggur 7.000 krónur fyrlr mánuðarlegu í 15 ár* Nú getur þú lagt reglulega til hliðar ákveðna upphæð til kaupa á Eininga- bréfum og safnað þannig smám saman þínum eigin varasjóði. • UPPHÆÐINNBORGUNAR RÆÐUR ÞÚ SJÁLF(UR). • SJÓÐURINN ER ÆTÍÐ ÓSKIPT EIGN ÞÍN EÐA AFKOMENDA ÞINNA. Allar nánari upplýsingar gefa ráðgjafar okkar í síma 689080. *M.v. 7% vexti umfram veröbólgu næstu 15 árin. • HÆGT ER AÐ GREIÐA MEÐ GREIÐSLUKORTIEÐA GÍRÓ- SEÐLI. • YFIRLIT YFIR HEILDARINN- EIGN SENT ÁRSFJÓRÐUNGS- LEGA. Sölugengi verðbréfa 12. júlí ’90: EININGABRÉF 1 ....4.976 EININGABRÉF 2 ....2.713 EININGABRÉF 3 ....3.275 SKAMMTÍMABRÉF ....1.683 KAUPÞING HF Löggilt verdbréfafyrirtœki, Kringlunni 5, 103 Reykjavík, sími 91-689080

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.