Morgunblaðið - 12.07.1990, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 1990
13
15 ára afinælishátíð sumar-
tónleika í Skálholtskirkju
SUMARTÓNLEIKAR í Skálholtskirkju hefjast laugardaginn 14.
júlí og munu standa yfir fimm helgar í júlí og ágúst líkt og undan-
farin ár. í tilefni 15 ára afmælis verður tónleikaskráin í sumar
sérstaklega glæsileg en eins og ávallt er ókeypis aðgangur að
öllum tónleikunum. Fyrstu helgina verður flutt sérstök hátíðar-
dagskrá tileinkuð Þorlákstíðum,
holti á miðöldum.
Dagskráin hefst kl. 15 á laug-
ardeginum með því að sungið
verður upphafsstef og latnesku
andstefin úr aftansöng Þorlákst-
íða. Þá mun Helga Ingólfsdóttir,
stjórnandi Sumartónleikanna,
ávarpa gesti í tilefni afmælisins
og dr. Sveinbjörn Rafnsson próf-
essor flytja erindi um miðaldir og
Þorlák biskup helga.
Kl. 17 sama dag verða flutt
tónverk byggð á stefjum úr Þor-
lákstíðum, Chaconne eftir Pál
Isólfsson og Recessional eftir Þor-
kel Sigurbjörnsson. Einnig verða
frumflutt tvö ný verk efir Mist
en þær voru frumfluttar í Skál-
Þorkelsdóttur og önnur tvö eftir
Þorkel Sigurbjörnsson.
Flytjendur á þessari hátíðar-
dagsskrá verða Hamrahlíðarkór-
inn undir stjórn Þorgerður Ing-
ólfsdóttur, félagar úr ísleifsreglu
og prestar, söngvararnir Guðný
Árnadóttir, Hrafnhildur Guð-
mundsdóttir, Sigrún Þorgeirsdótt-
ir, Helgi Bragason og Ragnar
Davíðsson og hljóðfæraleikararnir
Helga Ingólfsdóttir, Hilmar Örn
Agnarsson og Ólöf Sesselja
Óskarsdóttir.
Á sunnudeginum 15. júlí verða
síðan seinni laugardagstónleik-
arnir endurfluttir kl. 15 og við
messu kl. 17 vefða flutt atriði frá
tónleikum helgarinnar.
Að öðru leyti verður dagskrá
Sumartónleika í Skálholtskirkju
næstu helgar á þessar leið:
28. og 29. júlí
Bachsveitin í Skálholti og
kammerkór flytja sembalkonserta
og söngvérk eftir Joh. Seb. Bach
og ættingja hans. Stjórnandi kam-
merkórs: Hilmar Örn Agnarsson.
Einleikarar á sembal: Helga Ing-
ólfsdóttir, Elín Guðmundsdóttir,
Guðrún Óskarsdóttir og Málfríður
Konráðsdóttir. Konsertmeistari:
Ann Wallström.
4., 5. og 6. ágúst
Bachsveitin í Skálholti flytur
Árstíðirnar eftir Antonio Vivaldi.
Einleikari og konsertmeistari:
Ann Wallström. Helga Ingólfs-
dóttir leikur á sembal verk eftir
Skálholtskirkja
Leif Þórarinsson og Joh. Seb.
Bach.
11. og 12. ágúst
Einar Kristján Einarsson leikur
á gítar íslensk og erlend verk og
flutt verður dagskrá með verkum
Hafliða Hallgríssonar, m.a. verða
nokkur verk frumflutt. Flytjend-
ur: Sönghópurinn Hljómeyki og
hljóðfæraleikarar.
18. og 19. ágúst
Manuela Wiesler, Hörður
Áskelsson og Inga Rós Ingólfs-
dóttir flytja verk eftir íslensk og
erlend tónskáld fyrir flautu, orgel
Og hnéfiðlu. (Fréttatilkynning)
Þarna sérðu Magnús og Dóru á heimleið eftir SV2 árs útivist.
Þau létu drauminn rætast án þess að ganga á eigur sínar.
Þau hjónin komu aö landi 2. júní sl. og
höfðu þá siglt u.þ.b. 40.(XX) sjómílur.
Fyrir nokkrum árum ákváðu þau að
selja íbúðina og láta drauminn rætast,
- að sigla á skútu til framandi slóða,
laus við áhyggjur hins venjubundna
lífs. Dóra og Magnús hafa nú verið á
ferðinni í 5XÆ ár. Spánn, Kanaríeyjar,
Grænhöfðaeyjar, Suður-Ameríka,
Panamaskurðurinn, Kyrrahafseyjar,
Ástralía, Indlandshaf, Súesskurður og
Miðjarðarhaf eru nokkur þeirra
svæða sem þau nutu í félagi við hafið
og skútuna Dóru. Allan tímann var
andvirði íbúðarinnar í vörslu Verð-
bréfamarkaðar Fj árfestingarfélagsins.
Vextir umfram verðbætur sem þar
fengust nægðu þeim til framfærslu í
þessari frábæru ferð.
Eftir ógleymanlega hnattferð standa
þau Ijárhagslega í sömu sporum og
áður, því að uppreiknaður höfuðstóll
stendur óhaggaður. Þau gætu þess
vegna keypt sömu íbúð aftur.
Velkomin heim Dóra og Magnús,
- og til hamingju!
Ob
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF
HAFNARSTRÆTI28566 • KRINGLUNNI689700 • AKUREYRI11100