Morgunblaðið - 12.07.1990, Page 14
1
sendingaf
husgognum frá:
gneros
jT .m |
sérverslun með listræna húsmuni
Borgartúni 29,
sími 20640.
ei verðmæt
Miðasala fer fram í Sjálfstæðishúsinu Valhöll, Háaleitisbraut 1,
frá kl. 9.00-18.00 daglega.
Allar upplýsingar og miðapantanir í síma 82900.
Tryggið ykkur miða tímanlega.
Hægt er að greiða með greiðslukorti. Stjórn Varðar.
[E |
■BBBH
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JULI 1990
Sumarferð Varðar laugardaginn 14. júlí
Landmannalaugar
Þjórsárdalur/Landmannalaugar/Dómadalur/Galtalækjarskógur
Sumarferð Landsmálafélagsins
Varðar verður farin laugardaginn
14. júlí nk. Ferðin er dagsferð.
Lagt verður af stað frá Valhöll
kl. 08.00 og áætlað að koma aft-
ur til Reykjavíkur um kl. 20.00.
Hugleiðingar Dana
um íslenska leik-
listarheimsókn og
önnur Islandsmál
eftir Ellen Præst-
gaard Andersen
Hér í Danmörku veit almenningur
talsvert um bræðraþjóðina nyrst á
Atlantshafi — ekki nóg að minni
hyggju en meira en áður tíðkaðist.
Fólk þekkir íslenskar bókmenntir,
helstu höfunda, myndlist, sjón-
varpsleikrit. En það er líka til dálít-
ill hópur sem hefur orðið hugfang-
inn _af íslandi og öllu sem íslenskt
er. Ástæðurnar geta verið ferðalög
til landsins, þátttaka í gagnkvæm-
um bekkjarferðum, sérstök fjöl-
skyldutengsl; hjá mér vaknaði
áhuginn þegar ég fór að lesa bækur
Gunnars Gunnarssonar, seinna ís-
lendingasögurnar og loks er ég
stundaði háskólanám hjá Jóni
Helgasyni. Loks má nefna áhuga-
fólk um leiklist sem gleypir auðvitað
allt í sig, t.d. Skálholt, Gullna hlið-
ið og nú fyrir skömmu Djáknann á
Myrká, mjög spennandi verk. Sum-
ir kunningjar mínir segja að það
sé afburða leikhúsverk, öðrum
fannst að dauðinn helkaldi (eða var
þetta ári?) og unga, reynslulausa
fólkið, sem dó allt of fljótt, væru
of sterkar persónur fyrir þennan
fjölmiðil. Hérlendir leikhúsvinir
mínir fara einnig og horfa á íslen-
skar gestauppfærslur með ánægju
án þess að skilja málið.
Býsna margir leggja sig fram
um að læra þessu fallegu en erfiðu
tungu ykkar. (Bráðskemmtilegur
kennari minn, Jón Helgason, stað-
hæfði að íslenska væri hin eina
sanna tunga — Danir hefðu eyði-
lagt sína, m.a. með því að gefa við-
tengingarháttinn upp á bátinn af
fúsum og frjálsum vilja). Tímarnir
hjá lektorum í íslensku við háskól-
ann eru vel sóttir; námið færir okk-
ur ekki gull í greipar en ómetanlega
ánægju.
Mér hefur þótt einstaklega gam-
an að sjá íslensk verk, t.d. Islands-
klukkuna í Reykjavík, ógleyman-
lega gestauppfærslu á verki um
Kaj Munk 1987, áhugamannaleik-
hús frá Húsavík og loks það sem
var flutt í Jónshúsi í Kaupmanna-
höfn: upplestur Helgu Bachmann
og Helga Skúlasonar á Fjallkirkj-
unni og Brekkukotsannáli. Minni-
máttarkennd þjakar ekki Dani og
okkur finnst við eiga ágætt leikhús-
fólk en ég dái svo sannarlega einn-
ig íslenska leikara og leikhúsáhug-
inn er langtum meiri hjá ykkur.
Ég notaði orðið upplestur, ef til
vill hefði leikgerð verið réttara orð.
Það er í tísku í Danmörku sem
stendur að færa klassísk verk nær
samtímanum og þetta er í lagi- ef
það skaðar ekki sjálft inntak verks-
ins, sál þess. Þegar Lárus Pálsson
og Bjarni Benediktsson frá Hofteigi
bjuggu til leikgerð Fjallkirkjunnar
árið 1954 og ungi bókmenntamað-'
urinn Hallgrímur H. Helgason fór
höndum um verk Laxness 1989, var
hvorttveggja óaðfinnanlegt, upp-
runalegu verkunum var sýnt tillit
og heiðarlega að málum staðið.
Hvílík heppni að það skildi vera
Fjallkirkjan; þar eru öll eftirlætis
tilsvörin og samtölin mín. Ég heyrði
raddir þeirra allra; Ugga litla,
Beggu gömlu, móðurinnar, smiðs-
ins, afa, Siggu Mens, allra þessara
kæru vina minna, og stundum var
varpað ljósi á ýmislegt í fari þeirra
sem jafnvel ákafur lesandi hafði
ekki tekið eftir. Það er aðal góðs
upplesara að ýkja hvorki né skerða;
Helgi og Helga hafa vald á þessum
fínlegu blæbrigðum svo að úr verð-
ur mikil list. Sendið okkur í öllum
bænum fleiri íslenska leikara!
Það var vel til fallið að ljúka
fyrra kvöldinu með því að bókasafn-
inu í Jónshúsi var afhent gjöf Al-
menna bókafélagsins: ritsafn Gunn-
ars Gunnarssonar, og seinna kvöld-
inu með fyrirheiti Vöku-Helgafells
um úrval seinni tíma verka Hall-
dórs Laxness.
Sársaukafull minningin um
þriðja íslenska skáldið, Guðmund
Kamban, var einnig ofarlega á
baugi meðan Helgi og Helga voru
hér í heimsókn.
Danir kannast við ýmis leikverk
frá íslandi en ekki nógu mörg. Ég
læt mig dreyma um að þýða leik-
gerð íslandsklukkunnar á dönsku,
tel að hún hafi sama gildi fyrir
ykkur og Elverhoj hjá okkur. Núna
er ég að þýða Haustbrúði sem hent-
ar vel fyrir danskt leikhúsfólk. Ég
get ekki stillt mig um að spyija
svolítið mæðulega hvort við Danir
Aningastaðir:
Árnes í Þjórsárdal
Ávarp: Davíð Oddsson, varaformaður Sjálfstæðisflokksins.
Aðaláningarstaður: Landmannalaugar
(ekið til baka um Dómadal ef færð leyfir).
Ávarp: Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.
Höskuldur Jónsson, forseti Ferðafélags íslands, lýsir staðháttum.
Galtalækjarskógur
Aðalfararstjóri: Höskuldur Jónsson, forseti Ferðaféiags íslands.
Miðaverð: Fullorðnir kr. 1.800 börn (5-14 ára) 700 kr.
Ætlast er til að ferðalangar taki með sér allt nesti.
Miðasalan er hafin. Tryggið ykkur miða í tíma.
tfgíW'
í Kaupmannahöfn
F/EST
í BLADASÖLUNNI
Á JÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHÚSTORGI