Morgunblaðið - 12.07.1990, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTlJDAGjJIl }2, JÚLÍ 1990
S15
Minningarskjöldur um Guðmund Kamban settur upp á götuhlið húss-
ins Uppsalagata 20 í Kaupmannahöfn; Helga Bachmann og Helgi
Skúlason fylgjast með. Kamban bjó á gististað, pensjónati, sem áður
var þarna til húsa. Danskur andspyrnumaður myrti rithöfúndinn er
hann sat þar að snæðingi í stríðslok árið 1945.
séum’ekki svo upptekin af verkum
stórþjóðanna að okkur láist að líta
til norðurs.
Hvað sem öðru líður var Kamban
vel þekktur á námsárum mínum,
einkum verk hans Skálholt, Vér
morðingjar, Derfor skilles vi, Vítt
sé ég land og fagurt. Kamban og
Gunnar Gunnarsson voru álíka vel
þekktir hér og síðar bættist Lax-
ness við.
Öll þekkjum við söguna af
hörmulegum dauðdaga Kambans
sem skelfdi okkur svo mjög. Og því
miður hefur margt illt gerst síðan,
án sýnilegs markmiðs. Þótt við sé-
um öll búin að heyra um ótal morð
síðan fannst mér eins og 5. maí
1945 færðist nær í tímanum þegar
mér var boðið að vera viðstödd er
afhjúpaður var minningarskjöldur
um Kamban hinn 27. júní sl. Skjöld-
urinn er á húsinu Uppsalagata 20,
þar sem Kamban bjó og starfaði. Á
honum stendur:
Hér bjó
íslenski rithöfundurinn
Gúðmundur Kamban
Fæddur 8. júní 1888
og féll á friðardaginn
þann 5. maí 1945
J
Helga Bachmann, Helgi Skúla-
son og nokkrir aðrir íslendingar’
voru viðstödd athöfnina sem hafði
mikil áhrif á þau. Hefði ekki verið
rétt a kalla á fulltrúa danskra blaða?
En íslendingar segja mér að erfitt
sé að fá þá til að koma á staðinn,
t.d. þegar íslenskar myndlistarsýn-
ingar eru settar upp.
Það gleður mig fyrir hönd ís-
lands að búið er að heiðra Guðmund
Kamban með þessum hætti og text-
inn á skildinum á vel við, segir frá
átburðum án þess að varpa sök á
nokkurn.
HöAindur er kennari í Danmörku.
Nýtt tímarit um skáldskap
FYRSTA hefti af tímaritinu Ský
er komið út. Ský er tímarit fyr-
ir skáldskap og flytur jaftit
frumsamið og þýtt efhi.
Ljóð í þessu fyrsta hefti eiga
Berglind Gunnarsdóttir, Bárður
R. Jónsson, Gunnar Harðarson,
Jón Stefánsson, Óskar Árni
Óskarsson og Sigfús Bjartmars-
son.
Þá er birtur ljóðaflokkurinn
Hópmynd án Ijónanna eftir Ric-
'hard Brautigan í þýðingu Óskars
Árna, Til Önnu Akhmatovu eftir
Marínu Tvetaevu í þýðingu Ás-
laugar Agnarsdóttur og brot úr
Tímagopum og orðsporum eftir
Julio Cortazar í þýðingu Jóns Halls
Stefánssonar. Loks er i ritinu ein
reykvísk tröllasaga.
Ritstjórar eru Óskar Árni
Óskarsson og Jón Hallur Stefáns-
son. Ský er 36 síður að stærð, í
Fyrsta hefti af tímaritinu Ský er
komið út.
vasabroti. Það fæst í bókabúðum
miðbæjarins og kostar 300 krónur.
(Fréttatilkynning)
Um 116 taka þátt í til-
raun um grasasöfiiun
Hentug aukabúgrein að mati stoftiunarinnar
BYGGÐASTOFNUN beitir sér nú fyrir því að bændur íhugi þann
kost að taka upp söfhun villigróðurs sem aukabúgrein. Um 116
manns af öllu landinu hafa svarað tilboði stofnunarinnar um þátttöku
í tilraun um söfnun villgróðurs. Ut er komið rit um nýtingu hans
og ríflega 50 manns hafa þegar sótt námskeið í grasasöfhun.
Vorið 1989 veitti Byggðastofnun
Sigmari B. Haukssyni styrk til að
kanna möguleika á nýtingu grasa
og fjörugróðurs. í leiðbeiningariti
Byggðastofnunar „Nýting villigróð-
urs“ segir að að markaður innan-
lands fyrir söl og fjallágrös sé stöð-
ugur og lítið eitt vaxandi. Verð á
fjallagrösum á Evrópumarkaði hafi
farið vaxandi og sé raunhæft að
selja íslenska uppskeru þangað.
Dýrustu og seinteknustu grösin
sem Byggðastofnun mælir með að
séu týnd eru gulmaðra, kúmen,
blóðberg, ljónslappi og ijúpnalauf.
Fljóttekin eru meðal annara mjað-
jurt, vallhumall, hvannafræ, lyng
ogbirkilauf.
í ritinu er varað við því að íslensk
fjallagrös hafi verið nytjuð í mjög
litlum mæli og því engin vissa
hversu mikið sé hægt að selja af
þeim. Engar vísbendingar eru gefn-
ar um verð á uppskerunni.
Byggðastofnun hefur hug á að
fylgja þessu verkefni eftir með
kynningu, markaðsathugunum og
frekari námskeiðum, þar til ljóst
verður hvort starfið reynist arð-
bært, eins og segir í fréttatilkynn-
ingu.
L'ORÉAL
BOLUNGARVÍK
SUÐUREYRI
FLATEYRI-^ ÍSÁFJÖF
ÞINGEYRI • SÚÐ
TÁLKNAFJÖRQUR .
PATREKSFJÖRÐUR BiLDUDALUR
VBRJÁNSUEKU:
BOLUNGARVIK: Einar Guðfinnsson, Aðalstræti 21-23. ■
SUÐUREYRI: Essó, söluskálinn, Rómarstígur 10.
FLATEYRI: Essó, söluskálinn.
ÍSAFJÖRÐUR: Hamraborg hf., Hafnarstræti 7 — Vitinn, Aðalstræti 20
SUÐAVÍK: Söluskálinn Súðin, Aðalgötu 1
ÞINGEYRI: Kaupfélag Dýrfirðinga, Hafnarstræti 7
BILDUDALUR: Vegamót, veitingahús, Tjarnarbraut 1.
TÁLKNAFJÖRÐUR: Essó-nesti, Strandvegi.
PATREKSFJÖRÐUR: Rafbúð Jónasar Þórs, Aðalstræti 73.
BRJÁNSLÆKUR: Veitingastofan Flakkarinn.
munið MARG viknamiðana Góður ferðafélagi
UMBOÐSMENN
VESTFJCRB