Morgunblaðið - 12.07.1990, Side 18

Morgunblaðið - 12.07.1990, Side 18
18________________MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 1990_ Ráðamenn Stöðvar 2 - „luettið að skemmta skialtannm! “ eftir Hans Kristján Árnason í einfeldni minni og sakleysi á skrifstofunni uppi á Stöð 2 í gær- dag, þriðjudaginn 10. júlí, beið ég spenntur eftir að heyra hvaða upp- lýsingar og málefni stjórnarformað- ur og sjónvarpsstjóri Stöðvar 2 ætluðu að kynna á blaðamanna- fundinum kl. 14. Eg heyrði af boðun fundarins klukkutíma áður en hann var hald- inn. Fann ég strax á stjómanda stöðvarinnar að mér var ekki ætlað að sitja þennan fund, en það var aukaatriði. Nú hlaut að vera kominn tími hjá valdhöfum Stöðvar 2 til að snúa vörn í sókn. Batnandi mönnum er best að lifa hugsaði ég og beið frétta af fundinum. Nú yrði hafin ný sókn, barið á bumbur og blásið í herlúðra og tilkynnt að Stöð 2 ætlaði í víking. Nú yrði sjálfsagt spilað út leynivopni valdhafanna á Stöð 2 og staða sjónvarpsstöðvar- innar styrkt og bætt á markaðnum, því ekki veitti af á þessum síðustu og verstu tímum. Allt of mörg mistök höfðu átt sér stað undanfarna mánuði. Búið var að ala á endalausum deilum við bankann og minnihlutann og stofn- endur Stöðvar 2, markaðsmálin voru í molum og auglýsingatekjur að hrynja, læsing fréttanna og 19:19 hafði mistekist, sameiningar- málin við Sýn dauð, almennings- tengsl í lamasessi, umsókn til Reykjavíkurborgar um ábyrgð klaufaleg, undirbúningur að al- menningshlutafélagi enginn, ofl. ofl. Ég ætlaði því ekki að trúa mínum eigin augum og eyrum þegar það kom svo í ljós að tilefni fundarins var þriðjaflokks leiksýning áhuga- manna, sem ráða þó yfir einu öflug- asta leikhúsi þjóðarinnar! Sýningin féll og fór í vaskinn. Það var þá ekkert annað sem fyllti huga valda- mannanna á Stöð 2. Nú átti sem sagt að snúa vörn í skipulagslaust undanhald, og enn og aftur að heija á Eignarhaldsfélag Verzlunarbanka íslands hf., sem ráðamennirnir á Stöð 2 höfðu þó undirritað sátta- samning við þ. 22. mars sl. Sú jarð- arför var því löngu afstaðin, eins og menn rekur sjálfsagt minni til, minningargreinar þegar birtar og niðurstaðan þá orðin opinber. Hitt stóra leynivopnið var að „þjófkenna" stofnendur og eldri hluthafa Stöðvar 2. Þetta voru þá leynivopnin sem höðfingjarnir ætluðu að nota í næstu stórsókn Stöðvar 2 á mark- aðnum! Ég hef aldrei getað skilið þessa ágætu kaupmenn þegar þeir taka sig saman og skera upp sína há- væru herör. I mínum huga komust þeir yfir Stöð 2 fyrir spottsprís og var það hin mesta slembilukka fyr- ir þá þegar aðstæður réðu því að þessi hópur eignaðist sterkasta fjöl- miðil landsins, Raunar er löngu orð- ið augljóst að nýju stjómendumir munu aidrei sleppa dauðahaldinu á Stöð 2, hversu mjög sem þeir kvarta í fjölmiðlum og kveina að þeir keypt köttinn í sekknum af Eignarhalds- félagi VÍ um sl. áramót. En þetta skýrist e.t.v. betur síðar í greininni. Málflutningur stjómarformanns Stöðvar 2 og „uppljóstrun“ um kr. 24 m. skuldabréf nokkurra ónafn- greindra hluthafa er því miður á allra lægsta plani og tekinn úr öllu samhengi, enda munu þessi bréf án efa hafa verið eitt af því fyrsta sem fyrir lá í bókhaldi félagsins um áramótin. Þetta vita ráðamenn Stöðvar 2 sem stóðu að hinum furðulega blaðamannfundi þ. 10. júlí sl. En hver var þá „glæpurinn" og hver tilgangurinn með frétta- mannafundinum? Helst kemur mér í huga að verið sé að draga athygli almennings frá neikvæðri umfjöllun um Stöð 2 nú undanfarið og beina umræðunni inn á aðrar og fremur ósmekklegar brautir. Ég neita því ekki að oft koma mér í huga margfræg hrekkjusvín og götustrákar úr barnaskóla þegar ég verð vitni að strákapörum valda- manna Stöðvar 2. Því er heldur ekki að neita að stundum fínnst mér ég vera hálf- gerður blóraböggull í hugum ýmissa gráðugra huldumanna í þjóðfélaginu. Hef ég þó fátt annað unnið mér til saka en að standa, ásamt nokkrum félögum mínum, fyrir stofnun og sjósetningu fyrstu íslensku einkasjónvarpstöðvarinn- ar. (Þetta er reyndar ekki allskostar rétt, því ábyrgð ber ég á fjölmörg- um mistökum, bæði stórum og smáum. Og svo er ég í ofanálag bersyndugur. Það veit sá sem allt veit og nokkrir þar að auki. Ég verð að segja það. En nóg um það á þessum vettvangi.) Lagði ég metnað minn, aleiguna og 5 viðburðarík starfsár í Stöð 2 af hugsjón við málstaðinn, sem ég taldi og tel enn af hinu góða. Það verður samt að segja þá sögu eins og hún er að varla hefur liðið sá dagur, sérstaklega nú upp á síð- kastið, að ég hafi ekki orðið var við aðdróttanir og sakargiftir úr launsátri, stundum frá mönnum sem ég hefi talið sómakæra og vel- viljaða að upplagi. Veit ég að félagar mínir og sam- eignarmenn kunna að skýra frá viðlíka söguburði, og oft og tíðum hafa þeir fengið stærri skammta af þeim kræsingum en undirritað- ur. Vegir rógberans eru oftast órannsakanlegir heima hjá henni Gróu á Leiti, og Þórðargleðin lifir enn góðu lífi hér á meðal okkar. Sögur tengdar því sem ráðamenn Stöðvar 2 hafa nú ákveðið að gefa út með fréttatilkynningu á blaða- mannafundi hafa mér áður borist til eyrna, m.a. hafðar eftir einstök- um áberandi kaupsýslumönnum hér í borg. Frekar átti ég þó von á að þar fengi rógurinn að grassera áfram í myrkrinu þangað til hann dræpist úr leiðindum og næringar- skorti eins og annað af því sauða- húsi. Svo skemmtilega brá við að þessu sinni að stjómarmennimir ákváðu að gera rógburðinn opinber- an, kannski vegna þess að þeir voru farnir að trúa honum sjálfir. Samt trúi ég því enn að þetta séu prýðisgóðir drengir, einir og sér, en þegar þessi ákveðni meiri- hlutahópur kemur saman til að bmgga sín viðskiptaráð, þá .er eins og þeir tapi gjörsamlega áttum, gleymi góðum siðum og fjandinn verður laus. Þetta virðist vera afar óheppileg blanda af mönnum og mega þeir ti) með að leita sér að betri félagsskap í framtíðinni eða a.m.k. að bianda hópinn öðruvísi en þeir nú gera. Þetta kann ekki góðri lukku að stýra, — ég verð að segja það. Satt best að segja átti ég ekki einu sinni von á að ráðamenn Stöðv- ar 2 reyndu að vega að uppeldisfor- eldrum Stöðvar 2 á jafn auðvirðileg- an hátt og raun bar vitni á blaða- mannafundinum margnefnda. Rétt er að svara þeim aðdróttun- um sem bomar vom á stofnendur og eldri hluthafa Stöðvar 2 á um- ræddum blaðamannafundi til þess að fólk átti sig betur á kjarna máls- ins. Það skal hér með upplýst að skuldabréf þau sem „ónafngreindir hluthafar" afhentu Stöð 2 vom gefin út í ágúst 1989 af undirrituð- um, ásamt Jóni Óttari Ragnarssyni (JÓR) og Ólafí H. Jónssyni (ÓHJ) — hvert að upphæð kr. 8 m. Bréf þessi vom gefin út til uppgjörs á reikningum hluthafa. A móti skuld þessari var ófrá- gengin og uppsöfnuð skuld félags- ins við ofangreinda hluthafa sem að mati þeirra var talin nema á hvern um sig a.m.k. kr. 8 m. Þessa upphæð skuldaði sjónvarpsfélagið okkur vegna vinnu í þágu Stöðvar 2 frá stofnun félagsins og fram á mitt sumar 1989. Krafa þessi sam- anstóð af vinnuframlagi okkar þriggja umfram laun á tímabilinu, hluthafasamningi frá 1987, vinnu við þáttagerð, og síðast en ekki síst áhættuþóknun fyrir personulegar ábyrgðir og veð (m.a. frá fjöiskyld- um okkar) í þágu Stöðvar 2, sem námu mörg hundruð milljónum króna, ofl. Þess má geta í þessu samhengi að það var eitt fyrsta verk hinna nýju eigenda Stöðvar 2 að ákveða að félagið greiddi þeim sjálfum umtalsverða veðleigu og þóknun fyrir persónulegar ábyrgðir þeirra í þágu Stöðvar 2. Einnig ákváðu nýju stjórnarmennirnir að greiða sjálfum sér rífleg stjórnarlaun, auk viðbótarlauna í þeim tiLvikum þegar vinna þeirra keyrði um þverbak. Hvað eru þessir sömu menn svo að tala um? í raun hefði verið réttara að ÍSF greiddi hluthöfunum sem hér um ræðir' þá kröfu sem þeir áttu á fé- lagið — en vegna þess hvað greiðslustaða félagsins var erfið, þótti rétt að ganga frá málinu þann- ig að hluthafar gæfu út óverðtryggð skuldabréf sem greidd yrðu á löng- um tíma. Að mati okkar var þetta einfaldlega leiðin til að afgreiða mál þetta þannig að fylgt væri ströngustu reglum. Útgáfa bréfanna fór því fram á formlega löglegan hátt. Aðalatriðið er að í 9 mánaða uppgjöri félagsins, þ. 30. september 1989, voru skuldabréf þessi til- greind í bókhaldi félagsins. Verzl- unarbanki íslands hf. eignaðist svo meirihlutann í Stöð 2 þann 30. des- ember 1989. Að sjálsögðu voru engar sérstakar atliugasemdir nokkurn tfma gerðar við mál þetta. Núverandi meirihlutaeigendur og stjórnendur Stöðvar 2 gengu síðan frá kaupum á hlutabréfum sínum við Eignarhaldsfélag Verzlunar- banka Islands hf. þann 7. janúar 1990. Hverjum dettur í alvöru í hug að jafn reyndir kaupmenn og hér áttu hlut að máli athuguðu ekki nákvæmlega þann varning sem þeir voru að kaupa? Enda er ég sann- færður um að það hefur verið gert í þessu tilfelli. Hér erum við komin að kjarna málsins og það sem mér finnst einna hjákátlegast við þennan blaða- mannafund er að nýju eigendurnir voru að blapda saman þessum skuldabréfum, sem voru hluti af kaupsamningi þeirra um áramótin, annars vegar og ársuppgjöri félags- ins sem þeir telja miklu neikvæðara en Eignarhaldsfélag VÍ kynnti fyrir þeim hins vegar. Það er með öllu óskiljanlegt hvernig mönnunum dettur í hug að blanda þessum hlut- um saman á þennan hátt. Ég veit t.d. að nýjum stjórnend- um Stöðvar 2 var vel kunnugt um margvísleg opinber gögn félagsins, þ.m.t. umrædd skuldabréf, strax í janúar sl. M.a. hefur fyrrverandi sjónvarpsstjóri staðið í því skemmti- lega verkefni að ganga frá starfs- lokasamningi við nýju eigendurna þar sem verið er að meta öll hans mál, þar með talin ofangreind skuldabréf. Lokaorð Ég og aðrir sem fylgst höfum með þessu máli erum sannfærðir um að aðaláhugamál nýrra hluthafa -voru, þegar þeir tóku þá ákvörðun að kaupa meirihlutann í Stöð 2, óvenju miklar fastar mánaðartekjur Stöðvar 2, og voru þeir að fjárfesta í framtíð fyrirtækisins. Galdurinn er hinsvegar að reka Stöð 2 þannig að vegur hennar vaxi og arður fá- ist af fjárfestingunni. Ekki sýnist mér núverandi meirihluti hafa þessi einföldu sannindi að leiðarljósi. Hans Kristján Árnason „Þess má geta í þessu samhengi að það var eitt fyrsta verk hinna nýju eigenda Stöðvar 2 að ákveða að félagið greiddi þeim sjálfiim umtalsverða veðleigu og þóknun fyrir per- sónulegar ábyrgðir þeirra í þágu Stöðvar 2. Einnig ákváðu nýju stjórnarmennirnir að greiða sjálfiim sér rífleg stjórnarlaun, auk viðbótarlauna í þeim til- vikum þegar vinna þeirra keyrði um þver- bak. Hvað eru þessir sömu menn svo að tala um?“ Kaupsamningur nýju hluthaf- anna við Eignarhaldsfélag Verzlun- arbanka íslands hf. var hinsvegar óviðkomandi okkur eldri hluthöfum félagsins, sem áttum engan þátt í samningum nýju hluthafanna við Eignarhaldsfélag VÍ. Það hefur aldrei staðið á stofn- endum og eldri eigendum Stöðvar 2 að skýra atriði sem kynnu að vekja spurningar hjá hluthöfum fé- lagsins (m.a. útgáfu umræddra skuldabréfa) ef óskað væri eftir og eðlilega að málum staðið. Það verður að taka það aftur skýrt fram að hér var um bókfærð gögn hjá félaginu að ræða. Það að draga þetta einstaka mál (sem allt- af var opinbert í bókum félagsins) fram á blaðamannfundi og rang- túlka það úr öllu samhengi verður að teljast ámælisvert. Það mál hlýt- ur að flokkast undir vitlaust útspil af hálfu þeirra, ella er augljóst að annarleg sjónarmið búa hér að baki hjá núverandi meirihluta og vald- höfum á Stöð 2. Vinnubrögð núver- andi meirihluta Stöðvar 2 hafa ein- kennst af framkomu í garð eldri stjórnenda og núverandi minnihluta sem telja verður ósæmandi siðuðum kaupsýslumönnum. Á fyrrnefndum blaðamannfundi vitnaði stjórnarformaður Stöðvar 2 í áritun endurskoðanda Islenska sjónvarpsfélagsins hf. sem fylgir ársreikningi félagsins fyrir árið 1989. Honum láðist hinsvegar að geta hvernig sú áritun er tii orðin, enda segir þar að núverandi stjórn félagsins telji sig eiga almenna kröfu á hendur tilteknum hluthöf- um. Það er óskiljanleg árátta hjá virt- um kaupmönnum að elta ólar á opinberum vettvangi við mál sem eru hálfopinber bókhaldsgögn í vörslu þeirra sjálfra og eðlilega til- komin. Það er ámælisvert að leyfa sér að gera slíka atlögu að stofnend- um Stöðvar 2 eins og hér er gert með málatilbúningi af þessum toga. Það hefði t.d. verið lágmarks kurt- eisi að láta „sakborningana“ vita hvað stæði til og hvernig fjallað yrði um mál á fréttamannafundi sem kæmi þeim svo sannrlega við. En því var ekki að heilsa hér frem- ur en fyrri daginn. Stöð 2 hefur átt í vök að veijast út á við undanfarna mánuði og hafa ýmis mál tengd stjórn hennar fengið miður góða einkunn hjá al- menningi. Þetta er varasöm þróun fyrir fyrirtæki sem á eins mikið undir velvilja og vinsældum aí- mennings og Stöð 2. Hafa almenn- ingstengsl að mínu mati verið van- rækt og hefur ógætilega verið hald- ið á spilunum í því áróðursstríði sem stendur um þennan áhrifamikla fjölmiðil. Af nógu er að taka, en hér nægir að nefna aftur ákvörðun meirihlutans að sækja um 200 millj- óna króna ábyrgð hjá Reykjavíkur- borg, — og sorgleg endalok samein- ingarmálanna við Sýn hf. Bæði þessi mál eru verulegt áfall fyrir Stöð 2 og hlýt ég að lýsa yfir fullri ábyrgð á hendur núverandi valdhöf- um Stöðvar 2. Ég verð að ætla að með leiksýn- ingunni á blaðamannafundinum hafi aðeins verið um enn eitt frum- hlaupið hjá valdhöfum Stöðvar 2 að ræða. Ég hlýt að flokka þetta undir vankunnáttu þeirra og byij- endamistök, annað væri sorglegra en tárum tekur. Mér finnst stundum eins og nú sitji við stjórnvölinn á kærleiksheimilinu mínu gamla menn sem hafa komist undir stýri á einhveiju kraftmesta tryllitæki landsins og það tekur þá enn nokk- urn tíma að læra að stýra og beita hestöflunum þannig að þeir haldi sér á þjóðveginum. Ég vona svo sannarlega að þeir nái meiraprófi, svo flokka megi þessa frumraun þeirra á tryllitækinu undir bemsku- brek og ærslagang í hita leiksins. Stofnendur Stöðvar 2, ásamt hópi einstaklinga úr ýmsum at- vinnugreinum, eiga ekki síður fjár- hagslegra hagsmuna að gæta en núverandi valdameirihluti Stöðvar 2. Þessi minnihlutahópur hefur einnig lagt afar mikið í sölumar og m.a. keypt hlutabréf í Stöð 2 fyrir um kr. 150 m. Hinsvegar hafa núverandi meirihlutaeigendur litið á sig sem einkaeigendur Stöðvar 2 og notað yfirgnæfandi valdastöðu sína til að kveða niður raddir minni- hlutans og láta sem honum komi rekstur Stöðvar 2 nánast ekkert við. Gott er að hafa í huga að illt eitt hlýst af stríði — þar tapa báðir aðilar — en þeir sem tapa þó mest á þessum sandkassaleik fullorðinna kaupsýslumanna eru auðvitað þeir sem síst skyldu, nefnilega íslenskir sjónvarpsáhorfendur, áskrifendur Stöðvar 2 og íslensk menning. Það var svo sannariega ekki sú stríðs- hugsjón sem hvatti stofnendur Stöðvar 2 til að ráðast í þetta risa- vaxna verkefni í upphafi. Það er kominn tími til að opinber- um innanfélagsóeirðum á Stöð 2 linni. Það sem mestu máli skiptir á Stöð 2, ef takast á að koma dross- íunni upp á þjóðveginn aftur er eft- irfarandi. 1. Bæta þarf reksturinn til að snúa taprekstri í hagnað, og í framhaldi af því þarf að opna félagið til að öðlast hlutdeild og afla hlutafjár frá almenningi. 2. Miklu skiptir að gerð verði enn ein tilraunin til að bjarga samein- ingu Sýnar hf. og Stöðvar 2. Þetta þýðir að stjórn Stöðvar 2 þarf að rétta Sýn sáttahönd og bjóða þeim annaðhvort stjórnar- formennsku eða forstjórastöðuna í sinn hlut. Menn mega nefnilega ekki halda svo stíft í stóla sína í svona fyrirtækjum að þeir láti annan eins happdrættisvinning úr greipum sér ganga. Takist að bjarga sameiningunni fyrir hom er t.d. umsóknin til Reykjavíkur- borgar alls óþörf. 3. Vinna verður að því öllum árum að Stöð 2 endurheimti markaðshlutdeild sína, bæði á auglýsingamarkaðnum og á með- al áskrifenda. Enda þótt ógern-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.