Morgunblaðið - 12.07.1990, Síða 21
21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 1990
Ekki vonlaust verk
Fagfólk sem starfað hefur með
unglingum telur tiltölulega auðvelt
að greina einkenni eineltis í hópi
barna og unglinga og því sé fræðsla
eitt af lykilatriðum þess að hægt
sé að gera átak gegn einelti. Sér-
fræðiráðgjöf fyrir kennara og kenn-
aranema myndi því vera ein þeirra
leiða sem samstarfshópur athugaði
gaumgæfilega.
Ýmsar ytri aðstæður svo sem
hönnun skólalóða og gæsla í
frímínútum geta skipt sköpum um
hvort börnum og unglingum sé
búið öryggi í frímínútum eða þar
séu aðstæður sem ýta undir einelti.
Reynsla annarra þjóða sem glíma
við sama vanda hefur orðið til þess
að farið er að huga gaumgæfilega
að tómstundaaðstöðu í skólum, með
það í huga að veita orku bama og
unglinga útrás í uppbyggjandi leikj-
um og starfi. Ætla má að hægt sé
að gera einfaldar úrbætur og bæta
gæslu á leikvöllum án mikils til-
kostnaðar og ekki ólíklegt að í heild
gæti slík fjárfesting leitt til sparn-
aðar, ef hægt væri að koma í veg
fyrir ofbeldi og einelti á skólavöll-
um. A sama hátt verður einnig að
líta á fleiri staði þar sem börn safn-
ast saman í stórum hópum, til dæm-
is skólabíla.
Bestu leiðirnar ekki dýrastar
Rétt er að vekja athygli á að
hægt er að benda á tiltölulega ódýr-
ar leiðir til að ná miklum árangri
til hagsbóta fyrir börn og unglinga,
ekki síst þá sem eiga undir högg
að sækja. Ef vei tækist til væri
hægt að byggja upp öflugt forvarn-
arstarf sem byggðist fremur á skyn-
samlegri stefnumörkun en dýrum
björgunaraðgerðum þegar skaðinn
er skeður.
Margir þeirra unglinga sem síðar
leiðast út í ofneyslu áfengis og
annarra vímuefna hafa orðið fyrir
einelti þegar þeir voru yngri. Veru-
legu máli skiptii að ná fljótt til sem
flestra fórnarlambanna. Átak gegn
einelti er því fyrirbyggjandi starf
sem getur skilað góðum árangri.
Þeir sem leggja aðra í einelti eiga
einnig við vandamál að stríða.
Breytt samskiptamynstur í félaga-
hópi, t.d. í skóla, getur einnig hjálp-
að þeim sem beita einelti.
Vernd barna og unglinga, velferð
þeirra og góð líðan verður aldrei
metin til fjár. Því verða allir að
taka höndum saman og stuðla að
því að gert verði átak gegn einelti,
byggt á því starfi sem þegar hefur
verið unnið í íslenskum skólum,
reynslu starfsfólks unglingadeilda
og unglingaheimila og árangri þeim
sem náðst hefur í svipuðu átaki
meðal annarra þjóða.
Höfundur or þingmadur
Kvennalistans í
Reykjaneskjördæmi.
Kristján B. Þórarinsson
„Mér fínnst að allir sem
byggja landið, eigi að
taka þátt í og leggja
sitt af mörkum til að
jafiivægi komist á og
stuðla að uppbyggingu
réttláts þjóðfélags.
ekki koma inn. Til eru dæmi um
fyrirtæki, sem hafa lagt upp laup-
ana vegna þess að þau hafa full-
nýtt aðstöðu sína til lántöku, við-
skiptavinir þeirra og skuldunautar
komnir í gjaldþrot. Síðan þegar
gjaldþrotin hafa verið gerð upp,
hefur staðan verið viðunandi, en
bara of seint, endar náðu ekki sam-
an. Biðlund fjármagnseigenda
nægði ekki, þeir tóku ekki áhættu.
Batnandi árferði í rekstri margra
fyrirtækja, aukin verkefni, meiri
umsvif og arðsemi hafa ekki nægt
til að standa straum af of háum
fjármagnskostnaði. Menn hafa
reynt að bjarga sér, t.d. með sam-
runa fyrirtækja, en verðtryggðu
skuldirnar hverfa ekki, heldur banka
á dyr þessara fyrirtækja eins og
annarra og er ekki spurt að leikslok-
um.
Fyrirtæki og allir þeir sem standa
í framkvæmdum og rekstri þurfa
lánsfé, en þeir eru bundnir á klafa
verðtryggingar. Það eru ekki fjár-
magnseigendur verðbréfa og banka-
fyrirtækja, sem standa í slíkum
áhætturekstri, enda eina stéttin í
landinu, sem varin er gegn slíkum
áföllum með verðtryggingu.
Að lokum: Allir landsmenn eiga
rétt á að safna og eiga sparifé, en
þeir eiga ekki að vera rétthærri en
þeir sem leggja allt sitt undir til að
halda gangandi atvinnulífi þjóðar-
innar, afla henni gjaldeyris og
tryggja afkomu þeirra sem landið
byggja. Verðtrygging er ekkert
annað en fínt nafn á okurvöxtum,
sem mala gull fyrir bánka og fjár-
magnseigendur, en blóðmjólkar at-
vinnulífið, eins og samdráttur og
vaxandi atvinnuleysi eru talandi
dæmi um. Mér finnst að allir sem
byggja landið, eigi að taka þátt í
og leggja sitt af mörkum til að jafn-
vægi komist á og stuðla að upp-
byggingu réttláts þjóðfélags, sem
þjónar ekki aðeins þeim stóru, held-
ur einnig þeim smáu.
Höfundur er verkstjóri.
Ef V.-Þjóðverjar hefðu
gleymt HM-styttunni
í Róm...
...þá hefðu þeir að öllum
líkindum gripið til símans
og beðið um að styttan yrði
send þeim í snarhasti með
EMS- Forgangspósti.
Tekið er við EMS-Forgangs-
pósti á öllum pósthúsum
landsins og þar er hægt að fá
nánari upplýsingar og nýjan
kynningarbækling.
EMS- Forgangs-
póstur er sérstök
hraðþjónusta sem
tryggir viðskipta-
vinum hraðan og
öruggan flutning á mikil-
vægum skjölum og vörum
innanlands og heimshorna á
milli, rakleitt til
viðtakanda.
GJALDSKRÁ 01.01.1990. EMS-FORGANGSPÓSTUR TIL ÚTLANDA
250 gr 1 kg Hvert viðbótar kg
Evrópa 1.500,- kr 2.500,- kr 200,- kr
N-Amerika 1.800,- kr 3.000,- kr 400,- kr
Afríka og Asía 2.100,- kr 3.500,- kr 450,- kr
S-Ameríka 2.400,- kr 4.000,- kr 500,- kr
Eyjaólfa 2.700,- kr 4.500,- kr 550,- kr
FORGA NGSPOSTUR
EMS - upplýsingasími 91 - 63 71 90
A1 I
Við eigum fyrirliggjandi
álfelgur undir HONDU, TOYOTA,
BMW, VW GOLF, AUDI og BENZ.
• Eingöngu viðurkennd þýsk
gæðaframleiðsla.
• Sérpöntum fyrir þýska
og japanska bíla.
• Örstuttur afgreiðslufrestur.
GOTTFÓLK/SlA SS00-1SS 1.1