Morgunblaðið - 12.07.1990, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JULI 1990
Staðarval fyrir álver:
Skiptar skoðanir um
um minnisblað ráð-
gj afanefndarinnar
EYFIRÐINGAR og Reyðfirðingar eru ósáttir við það mat á stað-
arvali fyrir álver, sem fram kemur í minnisblaði ráðgjafaneíndar
iðnaðarráðuneytisins, sem greint var frá í Morgunblaðinu á þriðju-
dag. í minnisblaðinu er meðal annars sagt, að Keilisnes á Reykja-
nesi uppfylli öll skilyrði Atlantsálfyrirtækjanna og að stofn- og
reksturskostnaður þar verði lægri en við Eyjafjörð og Reyðarfjörð.
Austfirðingar mega ekki
glata þessu tækifæri
Atvinnumálanefnd Reyðar-
fjarðar samþykkti á fundi á mánu-
daginn ályktun um staðsetningu
álversins. Þar segir meðal annars,
að fullyrðingum, sem fram hafi
komið um yfírburðastöðu Keilis-
ness umfram Reyðarfjörð, sé al-
farið vísað á bug. Aðeins tvö at-
riði séu talin draga úr möguleik-
um Reyðarfjarðar og þau séu reist
á vafasömum forsendum.
í fyrsta lagi sé gert ráð fyrir
dýrari mengunarbúnaði á Reyðar-
fírði, svokölluðum vothreinsibún-
aði. Því verði varla trúað að
óreyndu, að aðilar sem standa að
hollustuvemd og mengunarvöm-
um geri minni kröfur í þeim efnum
á Keilisnesi, sem sé aðeins í um
10 kflómetra fjarlægð frá útjaðri
höfuðborgarsvæðisins. Kröfur um
mengunarútbúnað af fullkomn-
ustu gerð hljóti alls staðar að
vera hinar sömu, hvort sem í hlut
eigi höfuðborgarbúar eða Aust-
firðingar.
í öðm lagi sé reiknað með mikl-
um kostnaði við aðflutning vinnu-
afis vegna álvers á Reyðarfírði,
en þar sé gengið út frá sömu for-
sendum og við byggingu virkjana
í óbyggðum. Atvinnumálanefnd
telur að þarna sé hallað réttu
máli og beinir því til fulltrúa
íslenskra stjómvalda að gera við-
semjendum sínum í Atlantsál-
hópnum grein fyrir því.
Þá segir í ályktuninni að at-
vinnumálanefndin vari eindregið
við því ástandi sem skapist í fjórð-
ungnum ef nýju álveri yrði valinn
staður á Reykjanesi og öll virkjan-
leg orka Austurlands flutt burt.
Austfírðingar megi ekki undir
neinum kringumstæðum glata
þessu mikla tækifæri í atvinnu-
málum. Er skorað á stjórnvöld að
gera það sem í þeirra valdi standi
tii að Reyðarfjörður verði fyrir
valinu og standa þannig vörð um
árangur af áralangri baráttu við
verðbólgu, en þensluáhrif á þjóð-
arbúið verði minnst ef álverið
verði reist á Austurlandi.
Þjóðhagslega hagkvæmast
að byggja við Eyjafjörð
„Eftir því sem ég veit best, er
meirihluti þingmanna þeirrar
skoðunar, að nýtt álveri skuli
staðsett úti á landsbyggðinni og
iðnaðarráðherra hlýtur að gera
sér grein fyrir því,“ segir Halldór
Blöndal, alþingismaður Sjálf-
stæðisflokksins í Norðurlands-
kjördæmi eystra.
„Ég er ekki í vafa um að það
er þjóðhagslega hagkvæmast að
staðsetja álverið við Eyjaijörð,"
segir hann. „Við Eyjafjörð og á
Skjálfandasvæðinu býr tíundi
hluti þjóðarinnar og ég sé ekki
hvemig á að vera hægt áð halda
uppi heilbrigðri byggðastefnu
öðruvísi en að festa þessa byggð
í sessi og skapa almenn skilyrði
fyrir því að margvísleg atvinnu-
starfsemi geti þróast þar.“
Halldór segir að nauðsynlegt
sé að breikka grandvöll. atvinn-
ulífsins á þessu svæði. „Það hefur
ekki verið búið þannig að fisk-
vinnslunni að hún geti tekið við
meiri mannafla, heldur ekki að
samkeppnisiðnaði á borð við skip-
asmíða- og uliariðnaðinn og ekk-
ert bendir til frekari uppbygging-
ar smáiðnaðar. Álver myndi hins
vegar treysta stöðu atvinnulífsins
við Eyjafjörð."
í minnisblaði ráðgjafanefndar
iðnaðarráðuneytisins, segir að
samkvæmt fyrstu vísbendingum
verði kostnaðarauki af því að
byggja álver við Eyjafjörð eða
Reyðarfjörð miðað við Keilisnes,
20 til 40 milljónir bandaríkjadala.
Halldór Blöndal segist ekki hafa
séð hvernig komist hafí verið að
þeirri niðurstöðu. „Þar virðist vera
miðað við kostnað við byggingu
álvers án þess að líta á málið í
víðara samhengi. Til dæmis myndi
bygging álvers á Keilisnesi kalla
á aukna umferð á Reykjanesi og
umfangsmiklar ve_gaframkvæmd-
ir í kjöifar þess. I Eyjafirði þolir
vegakerfið hins vegar aukna um-
ferð. Auk þess er ekki tekið tillit
til kostnaðar vegna þeirra gífur-
Iegu fólksflutninga, sem bygging
álvers á Reykjanesi hefði í för
með sér. Mér sýnist því að þetta
dæmi sé vitlaust lagt upp,“ segir
Halldór.
Tek fullyrðingum um lægri
kostnað með fyrirvara
Hilmar Sigurjónsson oddviti á
Reyðarfirði segist taka fullyrðing-
um í minnisblaðinu um lægri
kostnað á Keilisnesi með fyrir-
vara. Jafnframt komi önnur atriði
þar sér á óvart, enda ekki í sam-
ræmi við þær upplýsingar, sem
Reyðfirðingar hafí fengið í við-
ræðum vegna álversins.
í minnisblaðinu var talið að
mengun frá álveri í Reyðarfírði
gæti haft áhrif á gróður í dalbotn-
inum og í þorpinu en Hilmar seg-
ir að vegna vindátta þurfi ekki
að hafa áhyggjur af þessum atrið-
um. Fólksfæð á svæðinu eigi held-
ur ekki að hafa áhrif. „Ef álverið
yrði staðsett á Keilisnesi er ljóst,
að meirihluti starfsmanna myndi
búa í Reykjavík. Það þýðir, að það
myndi taka lengri tíma fyrir þá
að safnast saman og fara suður
á Keilisnes heldur en fyrir menn
hér úr nágrannabyggðunum að
komast hingað, verði álverið stað-
sett hér,“ segir Hilmar.
Stöð 2 og Eignarhaldsfélag Verslunarbankans:
Erindinu verður svar-
að þegar það berst
- segirEinar
Sveinsson
Mynd franska ljóðskáldsins
Baudelaire er á forsíðu fyrsta
tölublaðs Tímaritsins 2000.
EINAR Sveinsson varaformað-
ur Eignarhaldsfélags Verslun-
arbankans segir að erindi Is-
lenska sjónvarpsfélagsins, sem
rekur Stöð 2, verði svarað þeg-
ar það berst.
Meirihluti eigenda Stöðvar 2
ætlar að óska skýringa á misræmi
á upplýsingum, sem Eignarhalds-
félagið gaf um fjárhagsstöðu
Tímaritið 2000 komið út
TÍMARITIÐ 2000 hefiir hafið göngu sína og verður haldið upp á
útkomu fyrsta tölublaðsins á Hótel Borg á fiistudagskvöldið. Tíma-
ritið 2000 er 132 blaðsíður og er prentað í stærðinni 49 x 29 sm.
Aðstandendur tímaritsins 2000 eru Ari Gísli Bragason, Lars Emil
Árnason, Sigurjón Ragnar og Þorsteinn Siglaugsson.
í fyrsta tölublaðinu era m.a.
greinar um arkitektúr og hönnun,
bókmenntir, myndlist og tízku og
sérstök áherzla er lögð á ljósmynd-
ir.
Á Hótel Borg verður fyrsta tölu-
blað tímaritsins kynnt, og klukkan
21 hefst Ijóðalestur.
Þá lesa höfundarnir Nína Björk
Árnadóttir, Sigfús Bjartmarsson,
Kristján Þórður Hrafnsson,
Margrét Lóa Jónsdóttir og Ari
Gísli Bragason les úr ljóðahandriti
Steinars Jóhannssonar.
Þá verður tízkusýning og eftir
hana ýmsar uppákomur og stuttu
eftir miðnætti hefur hljómsveitin
Júpiter leik.
Stöðvar 2 í janúar sí„ og niður-
stöðu endurskoðaðra reikninga
Stöðvar 2.
Einar sagði ljóst að þarna væri
um stórt mál á ferðinni, en að
hann hefði ekki kynnt sér forsögu
þess nægilega vel til að svara til
um efnisatriði. Einar Sveinsson
kom inn í stjórn Eignarhaldsfé-
lagsins á síðasta aðalfundi þess í
lok apríl. Þá var Haraldur Haralds-
son kosinn formaður, en hann er
einnig stór hluthafi í Stöð 2, og í
hópi meirihlutans. Ekki náðist tal
af Haraldi í gær.
I reikningum Stöðvar 2 kemur
fram, að heildarskuldir um áramót
námu Í496 milljónum króna. Nei-
kvætt eigið fé, það er skúldir
umfram eignir, var 671 milljón,
og 155 milljóna króna tap varð á
rekstri fyrirtækisins árið 1989.
Þá gerðu endurskoðendur athuga-
semdir við 24 milljóna króna skuld
fyrri aðaleigenda við Stöð 2, og
að yfirverð hefði verið greitt fyrir
fasteign. Eignarhaldsfélag Versl-
unarbankans, hafði hins vegar
upplýsingar um að neikvætt eigið
fé væri 500 milljónir um siðustu
áramót, og að reksturinn yrði á
núlli. Á þessu ári hefur komið inn
500 milljóna króna nýtt hlutafé,
sem aðallega var notað til að
greiða niður skuldir.
Nína Gautadóttir við eitt verka sinna
Nína Gautadóttir sýn-
ir á Kjarvalsstöðum
NÍNA Gautadóttir opnar málverkasýningu á Kjarvalsstöðum laugar-
daginn 14. júlí kl. 14. Verkin á sýningunni eru öll unnin á síðustu
tveimur árum, og er uppspretta þeirra áhugi Nínu fyrir skrift og
táknriti, en hún notar rúnaletur, forn-egypsku og fjölkyngitákn í
myndir sínar.
Nína er fædd i Reykjavík 1946.
Hún lauk hjúkrunarprófí frá Hjúk-
runarskóla Islands 1969. Árið 1970
fór hún til Frakklands þar sem hún
stundaði nám í Listaháskóla París-
arborgar og lauk þaðan brottfarar-
prófí í málaralist 1976. Hún stund-
aði einnig framhaldsnám i högg-
myndun við sama skóla. Nína dvaldi
í nokkur ár í Níger og Kamerún í
Afríku og vann um tíma í vefnaði
og með ieður. Hún býr nú og star-
far í París.