Morgunblaðið - 12.07.1990, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 1990
HONDÚRAS
NICARAGUA
COSTA RICA'
Bardagar í Nicaragua
Vesturlandamæri Póllands:
NÝLEGA skýrði hið kunna breska læknarit The Lancet frá því, að
25 ára sjómaður í Manchester hefði líklega látist úr alnæmi þegar
árið 1959. Byggist þessi niðurstaða á ítarlegum rannsóknum en á
sínum tíma var talið, að lungnabólga væri banamein mannsins.
Ónæmiskerfi mannsins brast og fram til þessa hafa læknar ekki
getað skýrt hváð olli því. Undrun vekur að alnæmi skuli hafa skot-
ið niður svo snemma í Evrópu.
Bretland:
Leitin að fyrsta al-
næniissjúklingnum
Lést hann á sjúkrahúsi í Manchester 1959?
Aðeins
65,000
stgr.
Vilja að Qórveldin
tryggi landamærin
Varsjá. Reuter.
VESTUR-Þjóðverjar vilja ekki eiga viðræður við Pólverja um landa-
mærasamning fyrr en sameining þýsku ríkjanna er um garð gengin
og því hefur stjórnin í Varsjá snúið sér til fjórveldanna og óskað
eftir því að þau afsali sér ekki ábyrgð á Þýskalandi fyrr en gengið
hefði verið frá samningi um austurlandamærin.
Utanríkisráðuneytið í Varsjá
sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar
sem segir að pólska stjórnin óttist
að deila um landamæra Póllands
og Þýskalands verði ekki að fullu
í höfn í desember nk. en þá er gert
Frakklandi:
Aðeins /
helmingur
drekkurvín
París. dpa.
AÐEINS helmingur Frakka
drekkur vín með mat. Vín-
drykkjumönnum hefúr fækk-
að verulega á síðustu árum.
Menningarbylting þessi varð
mönnum ljós þegar niðurstöður
könnunar, sem gerð var fyrir
vínsala frá Onivins, voru birtar
nú í vikunni. Víndrykkja hefur
farið minnkandi frá 1980 en þá
sögðust 62% Frakka vera
víndrykkjumenn.
Vín er ekki ódýrt en innan
við helmingur þeirra, sem ekki
sögðust drekka vín, telur það
of dýrt. Fjórðungur sagðist ekki
drekka af heilsufarsástæðum og
75% sögðu að þeim líkaði ein-
faldlega ekki bragðið.
Þeir sem ekki drekka vín
drekka flestir ölkelduvatn.
Könnunin var gerð af stofnun-
unum Inra og Inao og tóku 4.000
manns þátt í henni.
ráð fyrir að sameining þýsku
ríkjanna muni eiga sér stað.
Vestrænir stjórnarerindrekar í
Bonn sögðu óskir Pólveija skiljan-
legar en voru vantrúaðir á að fjór-
veldin yrðu við þeim. Pólska stjórn-
in vill að landamærasamningur
verði tengdur væntanlegum samn-
ingum um það hvenær ábyrgð og
skyldur Ijórveldanna vegna Þýska-
lands skal ljúka.
Pólveijum er í mun að ljúka
samningum um vesturlandamæri
sín og að þau verði miðuð við Oder-
Neiss-línuna svonefndu, þ.e. þau
landamæri sem ákvörðuð voru við
stríðslok, en austan þeirra eru stór
landsvæði sem voru hluti af Þýska-
Iandi fyrir stríð.
Reuter
Vígreifir stuðningsmenn stjórnar Violetu Chamorro við útvarpsstöð í Managua í gær. Veija þeir stöð-
ina sem tekið hefur afstöðu gegn stjórnarandstæðingum sem efht hafa til verkfalla til þess að mót-
mæla stefnu Chamorro.
Ástandið versnar í Managua:
Stuðning’smenn Chamorro grípa
til vopna gegn verkfallsmönnum
Managua. Reuter.
TIL harðra bardaga kom milli stuðningsmanna og andstæðinga
stjórnar Violetu Chamorro, forseta Nicaragua, í Managua, höfuðborg
landsins, í fyrrinótt. Að minnsta kosti einn maður beið bana og fjöldi
slasaðist og hafa þá a.m.k. fjórir menn látist vegna pólitískra aðgerða
í borginni frá því andstæðingar Chamorro efhdu til verkfalla í byij-
un síðustu viku.
Róttækir stuðningsmenn Cha-
morro gripu til vopna í fyrradag
og er hermt að flestir þeirra séu
fyrrum liðsmenn kontra-skæruliða.
Skutu þeir á vegtálma og virki sem
verkfallsmenn höfðu reist víðs veg-
ar um borgina en vegna þeirra hafa
strætisvagnar ekki komist leiðar
sinnar.
Einkum var barist í nágrenni við
VMD-6P jj SAfiYO jf
v|DEO SJÓNVARPSVÉUN
SEM SLÆR NÚ í GEGN
33 þúsund
króna lækkun
útvarpsstöð sem styður stjórnina
og heyrðust skothvellir við og við
fram undir morgun í gær.
Á þriðjudag kvaddi Chamorro her
landsins á vettvang til þess að
bijóta niður vegtálma og virki verk-
fallsmanna sem eru einkum úr röð-
um stuðningsmanna sandinista-
hreyfingarinnar er réði ríkjum í
Nicaragua í áratug eða þar til Cha-
morro var kjörin forseti í fyrstu
fijálsu kosningunum sem fram
höfðu farið í landinu í rúman ára-
tug.
Fregnir fóru af því að nýir veg-
tálmar og virki risu hraðar en þau
sem rifin væru niður. Talið var að
þar væru að verki bæði stuðnings-
menn stjórnarinnar og verkfalls-
menn. Viðræður fulltrúa stjómar
Chamorro og verkfallsmanna um
lausn deilunnar fóru út um þúfur
sl. föstudag þar sem verkfallsmenn
reyndust ófáanlegir til að slaka á
kröfum sínum um að stjórnin hyrfi
frá áformum um að selja ríkisstofn-
anir og einkavæðingu í lanbdbún-
aði. Chamorro hvatti til skynsemi
í yfirlýsingu í fyrrakvöld og í gær
hvatti Lucio Jimenez, leiðtogi verk-
MANAGUA:
Mestu götu-'
mótmæli
(tíu ár
fallsmanna, menn sína til þess að
fjarlægja vegtálma þar sem þá
væri kominn grundvöllur að samn-
mgaviðræðum um lausn deilunnar.
í gær var alþjóðaflugvöllur Mana-
gua enn lokaður vegna verkfallsað-
gerðanna og verkfallsmenn höfðu
ýmsar ríkisstofnanir enn á valdi
sínu.
ÆVARANDI
MINNING
í LIFANDI
MYND
JAPÖNSK
HÁGÆÐI
• Sjálfvírkur „fókus"
„Makró".
• Linsa: 8x(8,5-68 mm)
F 1,6.
• Titilsetning í fimm
litum, dagsetning og tími.
• Myndleitun í báðar áttir.
• Truflunarlaus kyrrmynd.
• Sjálfvirk Ijósstýring.
• Fylgihlutir: Hleðslutæki
110/220V, rafhlaða
millistykki, burðaról o.fl.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16 • Sími 680780
Stig Fröland, yfirlæknir við
Rikshospitalet í Osló segir í sam-
tali við Aftenposten, að sé þessi
breska niðurstaða rétt, hafi hér
verið um fyrsta þekkta tilvikið í
Evrópu að ræða. Ný tækni gerði
læknum kleift að greina HlV-veiru
í líkamsvef úr hinum 25 ára sjó-
manni. Fröland segir, að fundist
hafi mótefni gegn HIV í blóði úr
sjúklingi sem lést í Zaire 1959.
Hins vegar hefur hann ekki heyrt
um að alnæmisveiran sjálf hafi
fundist í jafn gömlum sýnum.
Norski yfirlæknirinn segir, að
fyrsta sönnunin fyrir HlV-sýkingu
í Noregi sé frá 1967. Þá hafi þessi
sýking verið næstum óþekkt í allri
álfunni. Öll tilvik fyrir 1970 séu
talin afar sjaldgæf.
Vísindamenn greinir enn á um
hvar og hvenær alnæmi kom fyrst
til sögunnar. Fröland telur því
mikilvægt að vitneskju sé aflað um
það, hvar enski sjómaðurinn smit-
aðist. Samkvæmt greininni í The
Lancet telja bresku vísindamenn-
irnir að það hafi gerst í Afríku.