Morgunblaðið - 12.07.1990, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 12.07.1990, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 1990 31 Veðurstofan á Keflavíkurflugvelli: Nýr búnað- ur til hálofta- mælinga VEÐURSTOFAN á Keflavíkur- flugvelli, sem rekin er í samstarfí Veðurstofu íslands og Varnarliðs- ins, tók nýverið í notkun nýjan tækjabúnað til úrvinnslu upplýs- inga frá veðurathugunarloftbelgj- um á sjálfvirkan hátt. Um er að ræða tækjabúnað sem sendir upp- lýsingar um veður á útvarpsbylgj- um til móttökutækja á jörðu niðri. Með þessari nýju tækni er veður- stofunni unnt að senda út veður- spár til allt að flmm daga mun fyrr en áður hefur tíðkast. Starfsmenn Veðurstofu íslands á Keflavíkurflugvelli eru 11 og veitir Borgþór H. Jónsson deildinni for- stöðu. Starfsmenn Veðurstofu Bandaríkjaflota eru 25 og hefur mik- ið samstarf verið með þessum aðilum síðustu 30 árin. Starfsmenn Veðurstofu íslands annast veðurathuganir jafnt á jörðu niðri sem í háloftunum og eru niður- stöður þessara athugana notaðar af veðurstofum víða um heim. Veður- stofan í Reykjavík byggir veðurspár sínar fyrir flugleiðirnar yfir Norður- Atlantshafið á mælingum á hita- stigi, rakastigi, vindátt, vindhraða og loftþrýstingi en þessar upplýsing- ar berast frá 250 granna nema sem festur er í loftbelg sem sleppt er á loft tvisvar á sólarhring frá Keflavík- urflugvelli. Veðurfræðingar banda- ríska flotans á Keflavíkurflugvelli nota niðurstöðurnar einnig við gerð veðurspár fyrir varnarliðið. Áður var úrvinnsla þeirra upplýs- inga sem bárust frá loftbelgjunum afar tímafrek en með tilkomu hinnar nýju tækni liggja niðurstöðurnar fyr- ir jafnóðum og þær berast til jarðar. Um 10 mínútur líða frá því upplýs- ingar berast frá belgjunum þar til hægt er að gefa út veðurspá. Belgirnir eru fylltir vetni sem Veð- urstofan framleiðir sjálf á Keflavík- urflugvelli, en áður fyrr var notað helíum til að koma belgjunum á loft. Þeir fara að meðaltali í 26 km hæð áður en þeir springa. Að sögn Borgþórs H. Jónssonar veðurfræðings er unnt að gera jafn- framt mælingar á ósonlagi jarðar með því að gera nokkrar breytingar á tækjabúnaðinum. Hann sagði að Alþjóðaflugmálastofnunin greiddi 95% kostnaðar vegna veðurathugana fyrir millilandaflug, en slík starfsemi er um 10% af umsvifum Veðurstof- unnar á Keflavíkurflugvelli. Kostn- aðarskipting vegna veðurathugana á Keflavíkurflugvelli skiptist að öðru leyti jafnt á milli Bandaríkjahers og íslenskra stjórnvalda. HAMB0RGARI, FRANSKAR 0G PEPSI aðeins 299,- Bönusbitinn Ármúla42, s. 82990. Þú svalar lestrarþörf dagsins áaíöum Moggans! Rl i/ iJAR HÁTÍÐ FYRIRALLA Landsmóf UMFÍ í Mosfellsbæ stefnir í glæsilegasta landsmót fró upphafi. Yfir 3 þúsund keppendur af öllu landinu og fjöldi glæsilegra sýningaratriða í stanslausri dagskró fró miðvikudagskvöldi til sunnudagskvölds. Heimsókn forseta íslands Hótíðardagskrá fimmtu- dag kl. 09:00 í skrúðgarðin- um við Hlégarð. öll börn fá fána. \oioX Kvöldvaka laugardagskvöld kl. 20:30- 22:00 í íþróttahúsinu. Leikfélag Mosfellsbæjar og Goggi galvaski. ’SgSg''*-. Og 5 i k,-l9.7:°°- í* QSf,, 9;Oo l9 2*5' Hittumst í iKm/i im LANDSMÓTSGREINAR: KEPPNISGREINAR Venjulegar íþróttagreinar ■ Blak Bridds - Borðtennis ■ Fimleikar Frjálsar íþróttir ■ Glíma Handknattleikur * Júdó Knattspyrna ■ Körfuknattleikur Skák ■ Sund. STARFSGREINAR Dráttarvélaakstur ■ Hestadómar Jurtagreining • Lagt á borð Línubeiting ■ Pönnukökubakstur Starfshlaup. SÝNINGARGREINAR Golf • Hestaípróttir • íþróttir fatlaðra Boccia • 100 m hlaup karla/kvenna 100 m sund karla/kvenna ■ Tennis Siglingar • Karate • Ruðningsbolti UMFI-hlaup 1400 m og 2000 m 600 börn á aldrinum 11-14 ára Þríþraut, 750 m sund, 20 km hjólreiðar og 5 km hlaup Götuhlaup, 4 km fyrir alla sem langar til að hlaupa. Sérstök spjótkastkeppni á heimsmælikvaréa Einar Viihjálmsson • Sigurður Einarsson Sigurður Matthíasson • Peter Borglund Dag Wenlund. Verður sett heimsmet? íþróttir fornmanna kl. 17:15 á laugardag á Varmárvelli í umsjón Þorsteins Einarssonar. ■» m 20. LANDSMÓT UMFÍ Mosfellsbæ 12.-15. júlí 1990 SÍMI667720 SVE^> Jgi- Vfíbgj&st** sr-rov.°°. ^&oo.sw—"9 nótsfjöri ÁÆTLUNARFERÐIR Frá Grensásstöð á 1 klst. fresti frá 07:30-23:40 fi. og fö. Lau. og su. frá 08:00-23:40 á 2ja klst. fresti. Frá Kópavogi kl. 09:00, 13:00, 15:00, 17:00 og 21:00 alla dagana. Ekið: Sundlaug, Digrn.veg að MK, Bröttubr., Túnbr. að Ný.b/Þverbr. og Engihjalla. Sætaferðir frá BSÍ kl. 20:00, 21:00 og 22:00. Frá Kópavogshálsi kl. 21:00 og frá Hlemmi kl. 19:20.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.