Morgunblaðið - 12.07.1990, Síða 35
Örnólftir Árnason
„Ef ég væri í sporum
Guðrúnar og Hollend-
ingsins og tryði því sem
þau segjast trúa myndi
ég hiklaust kalla Bio-
Ray eftirlíkingu og
Manuel L. Polo svindl-
ara.“
við seljum hið upprunalega Mondial-
orkujöfnunararmband . . .“
Þau lög og þeir alþjóðlegu sáttmál-
ar, sem hafa það hlutverk að vernda
uppfinningar og hönnun, gefa lítið
fyrir yfirlýsingar um að ekkert sé
nýtt undir sólinni. Vestræn samfélög
gefa uppfinningamönnum kost á lög-
gildingu einkaréttar á framleiðslu-
vörum sem hafa t.d. tiltekna hönnun
eða samsetningu. Ég hef undir hönd-
um ljósrit af opinbei-um löggildingum
(patent) á uppfinningu Manuels L.
Polo, armbaugnum, á talsvert mis-
munandi þróunarstigum. Samkvæmt
þessum spænsku fógetaskjölum hef-
ur núverandi hönnunarformi arm-
bauga Polos verið náð býsna löngu
áður en framleiðsla Mondial-arm-
bandanna hófst í Hollandi árið 1986.
Hver hefur rangt við?
Guðrún Bergmann segir að Tai-
wan-menn hafi byrjað að framleiða
armböndin 1965 þ.e.a.s. 8 árum áður
en Manuel Polo fór að gera tilraunir
með sinn armbaug á Mallorca. Er
það ekki makalaus tilviljun að Polo,
eftir að hafa notað m.a. ferstrenda
póla, skyldi á endanum detta ofan á
nákvæmlega sömu hönnun og menn
hinum megin á hnettinum? Er það
ekki líka makalaust að Hollendingur-
inn skyldi finna „hönnuð“ alla leið
austur á Taiwari sem gat veitt honum
„einkaleyfí" fyrir armböndum sem
Ragnheiður Davíðsdóttir
að sporna gegn þessari miklu vá en
svo virðist sem minna sé um fram-
kvæmdir. Við hveija frétt af umferð-
arslysi stöndum við eftir í vanmætti
okkar; hristum höfuðið og höldum
áfram að lifa lífinu. Sumir bölva
gatna- og vegakerfinu, aðrir lög-
gæslunni eða ökukennslunni og enn
aðrir umferðarómenningunni í heild
sinni. En sjaldnast er nokkuð raun-
hæft gert til útbóta. Á meðan heldur
umferðarófreskjan áfram að taka
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 1990
35
líta alveg eins út og eiga að hafa
sömu virkni og armbaugar Polos sem
þá þegar höfðu verið seldir í milljóna-
tali um árabil á vinsælasta sumardv-
alarstað Hollendinga? Samt virðast
bæði Guðrún og Hollendingurinn
sátt við þá skoðun að hér sé einber
tilviljun á ferðinni því að hvorugt
þeirra svo mikið sem gefur í skyn
að Polo kynni að hafa haft njósn af
„uppfinningamönnunum" á Taiwan.
Ef ég væri í sporum Guðrúnar og
Hollendingsins og tryði því sem þau
segjast trúa myndi ég hiklaust kalla
Bio-Ray eftirlíkingu og Manuel
L.Polo svindlara. Það segir nokkra
sögu að þau gera það ekki heldur
segjast þau ekki skilja „hvaða vanda-
mál hinn innflytjandinn hefur.“
Sannleikurinn er sá, að öllu gamni
slepptu, að armbaugurinn, sem upp-
finningamaðurinn og kírópraktorinn
Manuel L. Polo byijaði að þróa 1973
og lét síðar skrásetja „patent" á með
því útliti sem Bio-Ray armbaugurinn
hans hefur í dag, er svo sérstakur i
útliti að ég hélt að engri manneskju
með fullu viti gæti dottið í hug að
slík hönnun skyti upp kollinum af
tilviljun víðs vegar um heim á sama
tíma. Meira að segja sverleiki hol-
lensku armbandanna og stærð enda-
kúlnanna eiai nákvæmlega sams kon-
ar og hjá Bio-Ray.
Það er ekki einungis hönnun Hol-
lendingsins sem er svona nauðalík
Bio-Ray. Manuel L. Polo hefur í 17
ár hlaðið kúlurnar segulmagni með
rafeindatækni og sett silfur pg gull-
húð á armbaugana. Hollendingarnir
virðast hafa verið svo lúsheppnir nú
fyrir 4 árum að komast í viðskipta-
samband við einhvern á Taiwan sem
gat gefið þeim einkaleyfí á einmitt
svona armböndum.
Eftirlíking með skrásettu
vörumérki?
Framleiðandinn hefur eflaust rétt
fyrir sér þegar hann segist vera með
hið upprunalega Mondial-armband
og að það sé skrásett vörumerki. En
vörumerki (trade mark) er allt annað
en einkaleyfi (patent). Hugsanlegt
er að kaupa sér skrásetningu á vöru-
merki og selja svo undir því eftirlík-
ingari Manuel Polo þurfti meira að
segja að skipta um nafn á armbaug-
um sínum fyrir skemmstu úr Rayma
í Bio-Ray vegna þess að fyrirtæki,
sem um skeið annaðist útflutning
hans, hafði látið skrá vörumerkið
Rayma í sínu eigin nafni, ekki Polos.
Mér er ljóst að allt þetta er býsna
ruglandi fyrir fólk. Þeim sem selja
eftirlíkingar er það einnig ljóst og
þeirra viðskipti þrífast á því að fólk
nenni ekki að setja sig inn í málin.
Athugum nú aftur ummæli
Hollendingsins:....og því skiljum
við ekki hvaða vandamál hinn inn-
flytjandinn hefur, því við höldum því
ekki fram að við höfum fundið upp
frumgerð armbandsins, heldur að-
eins að við seljum hið upprunalega
Mondial orkujöfnunararmband (Bio-
sinn toll og eftir standa líkamlega
og andlega niðurbrotnir einstakling-
ar — fórnarlömbin sjálf eða aðstand-
endur þeirra.
Því miður virðist sem umferðar-
öiyggismál eigi ekki upp á pallborðið
hjá sveitarfélögum í samanburði við
önnur þjóðþrifamál. Enn þekkjast
dæmi þess að 17 ára unglingur fái
ökuréttindi eftir aðeins 4-6 ökutíma.
Enn skirrast umferðaryfirvöld sveit-
arfélaganna við að útrýma hættuleg-
um blettum gatnakerfisins. Enn er
ekki búið að festa umferðarfræðslu
inni í námskrá grunnskólanna. Og
enn hefur löggæsluyfirvöldum ekki
borið gæfa til þess að leggja meginá-
herslu á umferðarlöggæslu og má í
því sambandi benda á skort á um-
ferðareftirliti úti á vegum landsins
svo ekki sé talað um óbyggðirnar
þar sem nær engin löggæsla hefur
verið undanfarin sumur.
Á meðan ástandið er eins og raun
ber vitni er víst að fórnarlömbum
umferðarslysanna fjölgar jafnt og
þétt. Þú og þínir gætu allt eins orðið
næst í röðinni.
En ... við getum þó spornað við
fæti þrátt fyrir allt. Það gerum við
best með því að aka alltaf eins og
við vildum að aðrir ækju í nánd við
okkur sjálf eða þá sem okkur eru
kærir. Það er nefnilega of seint að
vera vitur eftirá.
Höfunduv er blaðamaður.
regulator á ensku), sem er skrásett
vörumerki." Þetta er skrítin klausa
þegar hún er athuguð nánar. Úr því
að ekki er um að ræða frumgerð
armbandsins heldur „hið uppruna-
lega Mondial“ hlýtur maður að spyija
í fyrsta lagi hvar frumgerðin sé þá
og í öðru lagi hvað þýði „hið uppruna-
lega Mondial" úr því að Hollending-
urinn játar að það sé ekki frumgerð-
in. Ég skil ekki þennan málflutning.
Nema maðurinn sé að viðurkenna
að hann hafi einungis keypt nafnið
Mondial og vörumerkið frá Taiwan.
Þá sýnist mér enn síga á ógæfuhlið-
ina fyrir honum og Guðrúnu því að
jafnvel þó að þessi mikli hollenski
fræðimaður fullyrði enn að ekkert
sé nýtt undir sólinni fær hann mig
ekki til að trúa því að „Mondial“ sé
kínverskt nafn.
Hollendingurinn getur þess að
„Bioregulator" sé skrásett vöru-
rrierki. Ekki veit ég hvað það mundi
vera á kínversku en fyrsti hluti þess
minnir ekki lítið á „Bio-Ray“ og ég
get upplýst lesendur Morgunblaðsins
um að Manuel Polo hefur um langt
árabil haft löggildingu á nafninu
„biomagnetic regulator" (á spænsku:
regulador biomagnetieo). „Bioregul-
ator“ (lífjafnari) hljómar óneitanlega
eins og stytting á „biomagnetic reg-
ulator" („lífseguljafnari" nefnist
Bio-Ray armbaugurinn í Heilsuhús-
inu).
Stopul óbótavant
Þá er komið að þeirri ásökun Guð-
rúnar Bergmann í minn garð að ég
sé ekki nógu kurteis við hana í blaða-
skrifum. Þetta er því miður alveg
rétt hjá henni. Mér hættir til að vera
óvæginn og hvassyrtur þegar mér
þykir fólk vera á röngu róli. Þetta
er ijóður á rnínu ráði sem ég vildi
feginn vinna bug á.
Hins vegar má Guðrún sjálf vara
sig örlítið því að það er ekki fallegt
af henni að bera mér á brýn kyn-
þáttafordóma. Hún segir að ég setji
svartan stimpil á heila þjóð og lýsi
frati á kínverska siðmenningu með
því að segja að Taiwan hafi slæmt
orð á sér fyrir að bijóta einkaleyfis-
rétt. Það er þó satt að eyjan er býsna
illa þokkuð að þessu leyti. En ég hef
hvergi sagt að íbúarnir séu verra
fólk en gengur og gerist heldur ein-
ungis að Taiwan sé skjól margra
vondra skálka. Þeir eru vafalaust af
margvíslegum þjóðemum. M.a.
vegna þess að Taiwan er ekki aðili^
að samþykktum um einkaleyfisrétt,
höfundarrétt o.fl. reka ýmis erlend
fyrirtæki þar starfsemi sem ekki
fengi að þrífast í heimalandi þeirra.
Og Guðrún verður að vara sig, ef
hún ætlar að fara að leggja fyrir-sig
ritdeilur, að virða betur leikreglur
og fara ekki rangt með tilvitnanir,
allra síst innan gæsalappa. En það
gerir hún i grein sinni í Mbl 23.
maí. Hún rangfærir orð mín og dreg-
ur síðan ályktanir af því sem hún
sjálf leggur mér í munn. Ég efast
ekki um að þetta sé óviljaverk en
ég bið hana að gæta sín á þessu í
framtíðinni og ég skal hins vegar
reyna að taka mig á í háttvísinni.
Höfundur er rithöfundur.
UMBOÐSMENN
NORÐURLA\j JDI
EYSTRA
GRÍMSEY
ÓLAFSFJÖRÐUR
...
DALVÍK ©#
KÓPASKER
■M HÚSAVÍK
RAUFARHÖFN
V ÞÓRSHÖFN
^ GRENIVÍK
Á
AKUREYRI
©MYVATNSSVEIT
ÓLAFSFJÖRÐUR: Vídeó Skan, Ægisgötu.
DALVÍK: Sæluhúsið, Hafnarbraut 14.
AKUREYRI: Nætursalan, Strandgötu 5 - Verslunin Síöa, Kjalsíðu 1.
Shell-nesti, Hörgársbraut-KEA, Byggðavegi98-KEA, Hrísalundi5.
GRENIVÍK: Essó skálinn, Túngötu 3.
GRÍMSEY: Kaupfélag Eyfirðinga, útib. Grimsey.
HRÍSEY: Veitingahúsið Brekka, Brekkugötu 5.
HÚSAVÍK: Essó-skálinn, Héðinsbraut 2. - Sölutuminn, Garöarsbraut 66.
MÝVATNSSVEIT: Essó-skálinn, Mývatni.
KÓPASKER: Essó-skálinn.
RAUFARHÖFN: Essó-skálinn, Aðalbraut 24.
ÞÓRSHÖFN: Essó-skálinn, Fjarðarvegi 2.
MUNIÐ MARG VIKNAMIÐANA
Góður ferðafélagi