Morgunblaðið - 12.07.1990, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JULÍ 1990’
37
Ragnar Olafs-
son - Minning
Fæddur 13. nóvember 1912
Dáinn 25. júní 1990
Kveðja firá
Tjaldanesheimilinu
Vegna fráfalls Ragnars Ólafsson-
ar vill Tjaldanesheimilið minnast
hans í fáum orðum.
Ragnar var meðlimur í Lions-
klúbbnum Þór í Reykjavík, sem
stofnaður var 1956. Þeir Þórsfélagar
hafa lagt mikið fé til mannúðar og
líknarmála á Islandi. Er Tjaldanes-
heimilið var stofnað árið 1965 tóku
Þórsfélagar það undir verndarvæng
sinn og studdu það af mikilli rausn.
Síðastliðin 10 ár hafa þeir gert eitt-
hvað fyrir þetta heimilí á hveiju ári.
Þeir stofnuðu Tjaldanesnefnd og um
tíma var Ragnar heitinn formaður
hennar. Hann var hér með annan
fótinn og kom þá í ljós dugnaður
hans og framtakssemi. Hann var ein-
staklega góður við skjólstæðinga
okkar hér og var í miklu uppáhaldi
hjá þeim. Þórsfélagar hafa verið hér
með alls kyns hátíðir á hveiju ári svo
sem grillveislur á sumrin, ferðir til
Þingvalla o.s.fi’v. Ragnar var hrókur
alls fagnaðar á slíkum stundum. Mér
er minnisstæður einn góðviðrisdagur
sl. sumar þegar Ragnar kom með
200 stórar tijáplöntur og vildi setja
þær- allar niður sama dag. Svo gekk
hann sjálfur í að gróðursetja með
starfsfólki, vistpiltum og Þórsmönn-
um, sem komu skömmu síðar. Þetta
atvik lýsir Ragnari vel, atorkusemi
hans og áhuga. Nú hefur klúbburinn
látið gera teikningu að skipulagi
gróðurs á Tjaldaneslóðinni og verður
farið eftir henni á næstu árum.
Ragnar var góður maður með stórt
hjarta. Við kveðjum hann með sökn-
uði og ég veit, að það gera einnig
félagar hans í Lionsklúbbnum Þór.
Birgir Finnsson
í dag fer fram frá Dómkirkjunni
í Reykjavík útför Ragnars Ólafsson-
ar, Austurbrún 6, en hann lést 25.
júní sl. Þegar vinir eru kvaddir hinstu
kveðju kallar hugurinn á ýmislegt
er ekki er hugsað um daglega. Ragn-
ar var hæglátur heiðursmaður,
traustur vinum sínum og sérstaklega
ef eitthvað blés á móti var hann þá
alltaf fús til aðstoðar.
Kynni okkar Ragnars voru orðin
nokkuð Iöng. Árið 1942 var ég sendill
Olíuverslunar íslands hf. en þá vann
Ragnar hjá sama fyrirtæki í olíuport-
inu á Klöpp. Stjórnandi Olíuverslun-
arinnar var þá hinn mæti maður
Héðinn Valdimarsson og forstöðu-
menn á Klöpp eru mér minnisstæðir,
þeir Páll Einarsson og Tómas Guð-
jónsson, miklir öndvegismenn allir
saman.
Oft var mikið að gera hjá þessu
stóra fyrirtæki, en Ragnar var þar
í ýmsum störfum, meðal annars við
akstur olíubíla, aðallega þá út á
landsbyggðina.
Árið 1947 lágu leiðir okkar aftur
saman á vinnustað, þá hjá Friðrik
Bertelsen stórkaupmanni. Ragnar
starfaði þar í nokkurn tíma en síðar
var hann við störf hjá Sambandi
íslenskra samvinnufélaga, Rafmagn-
sveitum ríkisins_ og í langan tíma
vann hann hjá ísal. Heiðarleiki var
Ragnari hugstætt orð, enda var
lífsganga hans mótuð þannig. Ungur
tók hann þátt í starfi KFUM og var
þar virkur félagi, einnig tók hann
þátt í Lions-hreyfingunni og var val-
inn þar til ýmissa trúnaðarstarfa.
Ekki skal síst nefna að hann var
meðlimur Frímúrarareglunnar.
Ég efa ekki, að margir sakna góðs
félaga og vinar. Ekki verða ferðir
Ragnars fleiri að Tjaldanesi, en þar
var hugur hans oft, sem og margra
annarra.
Því miður er ég ekki fær um að
rekja ætt Ragnars, en ég flyt öllum
aðstandendum hans innilega'samúð.
Nú á vegamótum kveð ég góðan
vin með þakklæti og virðingu og bið
honum allrar blessunar og góðrar
ferðar.
Theodór Nóason
Kveðja frá
Lionsklúbbnum Þór
Fáum dögum eftir lengstan sólar-
gang var Ragnar Ólafsson allur.
Mig langar fyrir hönd félaganna
að kveðja Ragnar vin okkar með
nokkrum orðum. Ættir Ragnars ætla
ég ekki að rekja enda ekki nógu fróð-
ur um þær, en hitt veit ég að hann
var borinn og barnfæddur Reyk-
víkingur. Þá var ekki allt rétt upp í
hendur á fólki og ætlaðist það ekki
til alls af ríkinu eins og nú er.
Snemma þurfti Ragnar að taka
til hendinni eins og títt var í þá daga.
Margar sögur sagði hann mér frá
því er menn urðu dögum saman að
hanga og bíða eftir handtaki, en
þurftu heim að hverfa og margir
áttu stórai' fjölskyldur. Ragnar var
einhleypur allt sitt líf. Hann minntist
oft góðra stunda er hann vann hjá
Olíufélaginu og sagði mér oft smelln-
ar sögur frá atvikum er upp komu
og eins er hann vann hjá Rarik.
Ragnar var „húmoristi" góður.
Fyrst sá ég Ragnar er hann réð sig
til ísals, fljótlega eftir að það tók til
starfa og svo lágu leiðir okkar saman
í Lionsklúbbnum Þór. Þar störfuðum
við saman í mörgum nefndum að
líknarmálum en þó var .Tjaldanes-
heimilið Ragnari kærast, að hlúa að
því þó hann léti ekki önnur verkefni
gjalda þess. Þegar við félagarnir
komum í Tjaldanes með Ragnar í
fararbroddi og allir drengirnir komu
hlaupandi á móti okkur, þeir sem það
gátu, þá Ijómaði Ragnar og flýtti sér
til þeirra er áttu örðugt um gang til
að vefja þá örmum, slík var hjarta-
hlýja Ragnars.
Öfáir voru þeir morgnar um helg-
ar að við Ragnar fórum ekki á „rúnt-
inn“ eins og kallað er, heldur út á
Granda í kaffi. Hann fræddi mig um
gamla bæinn og hveijir hefðu búið
hér og þar, oftast fylgdi einhver
smellin saga um viðkomandi sem þar
hafði búið. Ragnar var vel lesinn og
stálminnugur.
Skólaganga hans sagði hann mér
að hefði verið stutt enda þá ekki
námslánin komi til sögunnar. Oft
varð ég vitni að því að Ragnar studdi
þá er minna máttu sín af miklu ör-
læti og þó ekki alltaf af miklum efn-
um að taka. Stundum dugði ekki
„landinn" til og þá tóku við börn úti
í hinum stóra heimi. Ragnai' sagði
að margt smátt gerði eitt stórt, þó
vildi hann vinna öll sín líknarverk
án þess að bera þau á torg. Alla sína
ævi var Ragnar dyggur þegn þessa
þjóðfélags og lítt að hans skapi þeg-
ar heilu stéttirnar voru hvattar til
leti og ómennsku af ráðamönnum
sínum. Þá leið Ragnari illa.
Á sínum efri árum gekk Ragnar
HRAÐLESTRARNÁMSKEIO
Sumarnámskeið í hraðlestri hefst miðvikudaginn 18. júlí nk.
Vilt þú lesa meira, en hefur ekki nægan tíma?
Vilt þú vera vel undirbúin(n) undir námið í haust?
Nú er tækifæri fyrir þá, sem vilja margfalda lestrarhraða
sinn, en hafa ekki tíma til þess á veturnar.
Ath. Sérstakur sumarafsláttur.
Skráning í dag og næstu daga í síma 641091
Hraðlestrarskólinn.
til liðs við frímúrararegluna sem
hann mat mikils. Þar sem annars
staðar veit ég að hann vai' drengur
góðut' í leik og starfi. Trúaður var
Ragnai' og ræddi hann oft þau mál
og las mikið um dulræn efni.
Við félagarnir sem kveðjum Ragn-
ar í dag eigum honum mikið að
þakka. Hann gerði góða menn að
betri.
Aðstandendum öllum biðjum við
blessunar guðs.
Hafi Ragnar þökk fyrir allt.
Þráinn Þorvaldsson
FERÐAMEHH
M SHÆFELLSHES
ATHUGIÐ I
Komið og gistið hjá
okkur í follegu og
vinalegu umhverfi.
Vel búin eins oa