Morgunblaðið - 12.07.1990, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 12.07.1990, Qupperneq 44
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 1990 v44 fclk f fréttum Áhorfendur virtust skemmta sér konunglega. SPAUGSTOFAN Léttasta lundín fundin . , . Morgunblaðið/Börkur Sveinbjorn Guomundsson 1 lettri sveiflu. og sungu lag sem aö þeiira sögn Sveinbjörn Guðmundsson frá Vestmannaeyjum var valinn léttasta lund landsins í úrslita- keppni Spaugstofunnar um þennan ♦ eftirstótta titil síðastliðið þriðju- dagskvöld. Auk Sveinbjörns tóku þeir Ingólfur Arnarson frá Búðard- al, Gunnar Hallsson frá Bolung- arvík, Geirmundur Valtýsson og Eiríkur Hilmisson frá Skagafirði, Einar Sigurðsson frá Raufarhöfn og Einar Einarsson frá Egilsstöðum þátt í keppninni sem fór fram í Is- lensku óperunni. Sveinbjörn, sem keppti fyrir Suð- urlandskjördæmi, hóf mál sitt á því að beina þeirri spurningu til við- staddra hvort þeim fyndist ekki undarlegt að fólk næði fullum þroska miðað við þá meðferð sem það fengi í æsku. „Þetta byijar allt á fyrsta degi,“ ■f sagði Sveinbjörn. „Þegar manni er kippt út úr þægilegu og heitu um- hverfi í móðurkviði inn í iskalt her- bergi þar sem manni er haldið á löppunum og maður laminn eins og harðfiskur. Maður hugsar auðvitað, „ég hef ekki gert neitt“. Og mamin- an segir að það sé heilbrigt að barn- ið missi hárið eftir fyrstu fimm dagana. Þetta er bull. Barnið er beinlínis að deyja úr áhyggjum. Ekki batnar það þegar barnið hittir pabba, angandi af wisky. „Gúsí- gúsí,“ segir hann kannski. Og hvað haldið þið að barnið hugsi. Ju, auð- vitað: „Er þetta gæinn sem ætlar að kenna mér að tala?“. Svo fara ættingjarnir að skoða krakkann og pota í hann þar sem glittir í bert á milli buxnanna og peysunnar," sagði Sveinbjörn og bætti við að hann og tveir aðrir Vestiriannaey- ingar væru með fimm nafla. „Fóik er jafnvel að pota með óhreinum fíngrum upp í munninn á börnun- um. „Ertu ekki kominn með tenn- ur?,“ spyr það en áttar sig ekki á því að ef barnið væri með tennur væri það ekki með putta,“ hélt Sveinbjörn frásögninni áfram með leikrænum tilburðum þangað til áhorfendurnir bókstaflega veinuðu af hlátri. Ingólfur Arnarson keppti fyrir Vestfjarðarkjördæmi og sagði frá strák sem var með eindæmum mat- vandur. Foreldrar hans voru búnir að reyna ýmsar aðferðir til að fá hann til að borða þegar þau loksins ákváðu að leyfa stráksa _að velja hvað yrði á boðstólnum. „Ég vil fá ánamaðk," sagði strákurinn og lét sig ekki fyrr en pabbi hans fór út í garð og náði í stærðar ánamaðk handa honum. En þegar ánamaðk- urinn var borinn á borð fyrir strák- inn heimtaði hann að maðkurinn yrði steiktur og var það látið eftir honum. Þá vildi hann að ánamaðk- inum yrði skipt til helminga og pabbi hans æti helminginn á móti honum. Þrátt fyrir að föðurnum fyndist þetta þröngur kostur lét hann sig hafa það, át hálfan maðk- inn og benti stráknum á að ljúka við þann helming sem eftir var. En strákur svaraði með grátstafi í kverkunum: „Já en ég get það ekki, þú borðaði minn helming.“ Gunnar Hallsson, sem keppti fyr- ir Vestfjarðarumdæmi, sagði frá öðrum strák sem sem spurði pabba sinn hvað orðin félagar, þjóð og framtíð þýddu. „Félagar,“ sagði pabbi hans, „eru svona eins og við tveir. Þjóðin er allir hinir, til dæmis hún mamma þín, en framtíðin gæti verið litla systir þín.“ Eina nóttina vakti svo snáðinn pabba sinn og sagði: „Vaknaðu félagi, þú verður að vekja þjóðina, það er kúkalykt af framtíðinni". Geirmundur Val- týsson og Eiríkur Hilmisson kepptu fyrir Norðurlandskjördæmi vestra var samið fyrir nefnd um sölu á hrossakjöti. Lagið er eftir Geirmund en textann samdi Hilmir Jóhannes- son, faðir Eiríks. Einar Sigurðsson, sem keppti fyrir Norðurlandskjöi'dæmi eystra, sagði frá konu nokkurri sem var búin að koma sér vel fyrir í gufu- baði þegar karlmaður stóð skyndi- lega í gættínni og bað hana að vísa sér til vegar. Konan ætlaði svo sannarlega ekki að missa hand- klæðið en teygði fótinn fram með jafnvel verri afleiðingum. Að síðustu sagði Einar Einarsson, full- trúi Austurlandskjördæmis, frá manni sem grunaði eiginkonu sína um framhjáhald. í stuttu samtali við Morgunblaðið sagðist Sveinbjörn Guðmundsson ekkert frekar hafa búist við að sigra keppnina. „Maður var náttúrlega búinn að æfa sig en auðvitað getur maður aldrei verið viss um að vinna.“ Hann segist hafa unnið út frá reynslu sinni af yngri systkinum sínum tveimur og börnum vina sinna en sjálfur er hann laus og liðugur, eins og hann orðar það sjálfur. Sigrún Andradóttir útskrifaðist sem doktor • í stærðfræði frá Stanfordháskóla 17. júní. Systir hennar, Hrund Ólöf Andradóttir, varð dúx við Menntaskólann við Hamrahlíð nú i vor. SYSTKIN r Góður námsárangur júní var mikill gleðidagur • í lífi Sigrúnar Andra dóttur og fjölskyldu hennar því þann dag útskrifaðist hún sem doktor i stærðfræði frá Stanford- háskóla í Bandaríkjunum. Sigrún hefur ekki enn fengið umsögn um doktorsritgerðina en þess má geta að hún dúxaði frá menntaskóla í París þar sem ijölskylda hennar bjó um hríð. Að sögn ömmu Sigr- únar, Sigrúnar Jónsdóttur, hefur hún þegið stöðu við bandarískan háskóla í haust. Þess má geta að systir Sigrún- ar, Hrund Olöf Andradóttir, varð dúx við Menntaskólann í Hamrahlíð nú í vor. Hrund Ólöf, sem er aðeins 17 ára, lauk hluta af menntaskólanámi sínu í Frakklandi. Nafn Hrundar Ólafar misritaðist í frétt um skólaslit í vor og er hér með beðist velvirð- ingar á því. Að lokum má geta þess að bræður systranna, Þór ísak, sem er verkfræðingur, og Hjalti Sigur- jón, hafa einnig gott orð á sér sem námsmenn. Hjalti Sigurjón, sem er 13 ára, fékk t.a.m. þrenn verð- laun fyrir góðan námsárangur við skólaslit nú í vor, en hann stund- ar nám í New York. NYJAR VORUR BÆKUR - SPÓLUR - TÍMARTT O.FL. BÆKUR GURUDEVS JÓGA: □ Meditation in Motion I & II □ Working Miracles of Love □ Happiness is now □ Your Center and hour to keep it (spóla) NÝTT FRÁ LOUISE HAY: □ Love yourself, Heal your life - Workbook □ Metafitness □ A Garden of Thoughts □ You can Heal your Life □ Power Thougts - Litlu marglitu kortin □ Love your Body □ Heal your Body Spólur frá Louise Hay: □ Forgiveness, Loving the Inner Child □ Anger Relieasing □ Dissolving Barriers O Totality of Possibilities Bækur Carlos Castaneda: □ The Eagles gift □ A Seperate Reality □ The Second Ring of Power □ The Fire From Within □ Joumey to Ixtlan 0 The Power of Silence □ Tales of Power □ Self Healing □ Self Esteem □ Stress Free □ What I Believe, Deep Relaxation Bækur Joan Grant: □ Winged Pharaoh □ Retum to Elysium □ Life as Carola □ Scariet Feather □ Far Memory □ Lord of the Horizon □ Receiving Prosperity □ Cancer □ You can Heal your Life □ Feeling fine Affirmations □ Moming and Evening Meditations Bækur Yogananda: □ Man’s Etemal Quest □ Sayings of Parmahansa Yogananda □ The Devine Romance □ The Law of Success □ How you can talk with God □ Metaphysical Meditations □ Autobiography of a Vogi Bækur Lynn Andrews: □ Medicine Woman □ Flight of the Seventh Moon □ Jaguar Woman □ StarWoman □ Crystal Woman □ Windhorse Woman □ TeachingsAroundtheSacredWheel □ Course in Miracles bækur □ Nýjar Michael bækur □ BækurumTarotogTarotspilíúrvali □ Bækur um stjörnuspeki □ Bækur um heilun, heilsufæði, likams- rækt, nudd o.fl. □ Pendúlar, orkusteinar og kristallar □ Tímarit □ Bækur um kristalla og orkusteina . Æk VERSLUN í ANDA beuRMip™ Laugavegi66-101 Reykjavík^^^ Símar: (91)623336 - 626265 Póstkröfuþjónusta - Greiðslukortaþjónusta Pantanasimar: (91)623336 og 626265 □ Bækur um dulræn málefni 0 Margar „12 spora“ bækur t.d. 12 Steps to Happiness, 12 Steps to Overeaters □ Veggspjöld - gjafakort □ Reykelsi - ilmolíur □ Stjörnukort □ Sérstæðar styttur □ Mondial armbandið

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.