Morgunblaðið - 12.07.1990, Side 49

Morgunblaðið - 12.07.1990, Side 49
 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 1990 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS títm Og’leymanlegar stundir með Carreras, Pavarotti og Domingo Til Velvakanda. Nú er full ástæða til að þakka sjónvarpi „okkar allra“ fyrir síðustu helgardaga. Ég geri ráð fyrir að langt verði til annarra sambæri- legra. Á laugardag og sunnudag gafst að líta úrslitaleikina tvo í heims- meistarakeppni knattspyrnumanna, sem staðið hefur heilan mánuð suð- ur á Ítalíu með smáhvíldum. Heyrst hafa óánægjuraddir yfir þeirri rösk- un sem leikirnir höfðu á hefðbundna dagskrá. Vissulega er'öll reglusemi góðra gjalda verð, en þó trúi ég að þeir muni fleiri, sem tóku nýbreytn- inni vel eða bærilega. Ég bendi á dæmi því til stuðnings. Ég býst við að margur hafí haft verulega ánægju af kynnum við hina afrísku knattspyrnumenn frá Kamerún, þótt þeir féllu úr keppni fyrir síðustu atrennu. Þetta ríki, sem liggur á vesturströnd álfunnar skammt norðan miðbaugs og er nær fimmfalt stærra en ísland, byggir menningarþjóð, sem lítið hefur farið fyrir í almennum fréttum, en knatt- spyrnukappar þeirra voru líklega flestum liðum drengilegri á velli að viðbættum fræknleiknum. í öðru lagi var um helgina sýnd í sjónvarpinu lokakeppni tennisleik- anna á Wimbledon-velli í Lundún- um, bæði kvenna og karla. Prúður leikur og þó bráðspennandi í báðum tilvikum. En knattspymugarpar og tennis- hetjur hlutu að láta í minni pokann fyrir söngsnillingunum þremur, sem sjónvarpið gaf okkur kost á að heyra og sjá á laugardagskvöldið í tvær stundir samfleytt, þeim Dom- ingo, Carreras og Pavarotti. Þær stundir verða ógleymanlegar flest- um eða öllum, sem notið gátu, og er tilhlökkunarefni að fá þær endur- teknar í haust, eins og nú hefur verið heitið. Ur því að svo rúmur tími er til þeirrar stefnu ætti sjón- varpið að geta orðið sér úti um nið- urlag tónleikanna, sem munu hafa orðið nokkru lengri en hér gafst að heyra. Mjög var miður að þagg- að skyldi niður í þremenningunum í miðju óperulagi, og ætla ég að vona að sjónvarpsmenn okkar verði ekki vændir um það óþurftai-verk. Þessir merkilegu tónleikar fóru fram á útisviði innan uppistandandi veggja fornaldarmannvirkis, sem harðstjórinn Caracalla keisari lét reisa snemma á 3. öld. I þessu mikla húsi baðaði keisarinn sig ásamt hirðgæðingum sínum, og gátu víst laugað sig þar samtímis 1.600 manns. Nú á laugardaginn var böð- uðu sig þar 5.000 áheyrendur í tónaflóði snillinganna, sem studdir voru 200 manna hljómsveit undir stjórn Zubine Mehtas. Hér á landi skortir okkur tilfinn- anlega tónlistarhús. Við eigum ekki einu sinni útisvið, sem rúmað gæti svipaðan skara og baðhúsið forna í Róm. Það væri þá kannski hvað helzt að hugsa sér Ásbyrgi eða Almannagjá eftir gífurlegar tilfær- ingar. Bezt er að sleppa slíkum hugleiðingum, en snúa sér þeim mun frekar að húsbyggingu, sem þegar er í undirbúningi, tónleika- húsi. Byggingarlóð er fengin og teikning hefur verið gerð. Þegar sú bygging er risin, getum við kallað á snillingana miklu — og okkar eig- in snillinga — til söngs fyrir okkur milliliðalaust beint í eyra og æð, einn í einu eða alla í senn. Luciano Pavarotti söng hér á listahátíð fyrir u.þ.b. áratug og þá í Laugardalshöll. Svo vildi til að ég átti orðastað við hann baksviðs í tónleikahléinu, þar eð ég kynnti efnisskrána í útvarpið. Ég man að ég spurði hann, hvernig honum félli húsið til söngs. Hann varð armædd- ur á svip og kvaðst ekki muna til að hafa sungið í jafn „dauðu“ húsi. Þetta væri gímald, sem gleypti tón- inn og gæfi engan endurhljóm. Eitt með öðru staðfestir þetta brýna þörf okkar fyrir tónleikahús fullboðlegt þeirri menningarþjóð, sem við viljum teljast og erum reyndar í aðra röndina. Baldur Pálmason HLJÚMSVEITAKEPPNI R0KKUNGANNA verður haldin á BARNA- 0G FJÖLSKYLDUHÁTÍDINNI í HÚSAFELLSSKÓGI LAUGARDAGINN 4. ÁGÚST 1990. KEPPÐVDUR þurfa að vera YNGRI 01 16 ÁRA (fædd 1974 eða síðar). öll hljómtæki verða á staðnum en keppendur þurfa að hafa með sér eigin handhljóðfæri (s.s. gítar, bassa o.s.frv.). Hver hljómsveit má spila í 10 mínútur. DÓMNEFND sem skipuð verður starfandi hljóðfæraleikur- um og fagmönnum á sviði tónmennta mun velja sigurvegarana. VERÐLAUNIN: Sú hljómsveit sem sigrar mun leika eitt lag á hljómplötu ROKKUNGANNA sem kemur út fyrir jólin 1990, auk þess að fá afhentan veglegan verðlaunabikar. ÞÁTTTAKA tilkynnist fyrir 20. júlí í síma 91-689440. FJÖLSKYLDU ÁTÍ IHÚSAFELLSSKÓGI 3.-6. ÁGÚST1990 4í Svangir islendingarí Takió ykkur frí frá malseld TÖURIST MENU 'reitingastaóir víða um land innon Sombands veitinga- og gistihúsa bjóóa í sumar sérstakan matseóil, Sumarrétti SVG, þar sem áhersla er lögó á staúgóúan mat é góúu múi. Sumarréttamatseðillinn gildir frá 1. júní til 15. september. Hádegisv. Kvöldveróur Forréttur eóa súpa, kjöt- eða fiskréttur, kr. 750- kr. 1000- kaffi. 900 1500 Börn 0 til 5 ára: Ökeypis Börn 6 til 12 ára: 50% afsláttur Saniwrlega góú tíúinúi lyrir smga ierúalaaga. Upplýsingabæklingurfæstáferðaskrifstofumog f upplýsingamiðstöð í Bankastræti 2. Sjá þátttakendalista í Morgunblaðinu laugardaginn 7. júlí. Frábær uppskrift að fríinu roir-einstö BÆKLINGURINN OKKAR ER ÓMISSANDIFÖRUNAUTUR ÁFERÐALAGINU GÆÐAÞJÓNUSTA Á GÓÐU VERÐI Ferðaþjónusta bænda, Bændahöllinni v/Hagatorg Sími 623640. Símbréf (Fax) 628290

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.