Morgunblaðið - 12.07.1990, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 1990
51
KNATTSPYRNA / ISLANDSMOTIÐ 1. DEILD - HORPUDEILD
Friðrik bjarg-
aði Þórsurum
MARKAHÆSTIR
Þórsarar geta þakkað markverði
sínum, Friðriki Friðrikssyni,
fyrir stig í leik sínum gegn Víkingi
í gær. Hann varði þrívegis mjög
vei á síðustu mínút-
Logi Bergmann um leiksins í annars
Eiðsson ákaflega bragðdauf-
skrifar um 0g markalausum
leik.
Víkingar voru meira með boltann
en gerðu þau mistök að sækja upp
miðjuna þar sem vörn Þórs var
sterkust. Það var ekki fyrr en und-
ir lok leiksins er Björn Bjartmarz
kom inná að líf færðist í leikinn.
Hann átti sendingu á Trausta Óm-
arsson sem var í dauðafæri en Frið-
rik varði mjög vel. Boltinn barst
út og Björn skaut að marki en Frið-
rik varði að nýju. Hann lokaði svo
markinu glæsilega skömmu síðar
eftir að Björn hafði snúið á vörn
Þórsara.
Víkingar voru heldur skárri .í
leiknum en í síðari hálfleik áttu
gestirnir ágæta spretti. Marktæki-
færin létu þó á sér standa enda
virtust bæði liðin leggja meira
6 — Hörður Magnússon, FH, Guðmundur
Steinsson, Fram.
5 — Sigutjón Kristjánsson, Val.
4 — Goran Micic, Víkingi, Hlynur Stefáns-
son, ÍBV.
3 — Bjarni Sveinbjörnsson, Þór, Atli Ein-
arsson, Víkingi, Lárus Guðmundsson,
Stjörnunni, Árni Sveinsson, Stjörnunni,
Ríkharður Daðason, Fram, Antony
Karl Gregory, Val, Bjarki Pétursson,
ÍA, Ormarr Örlygsson, KA, Ragnar
Margeirsson, KR, Pétur Pétursson, KR,
Pálmi Jónsson, FH.
áherslu á vörn en sókn.
í lið Víkings vantaði Janni Ziln-
ik, sem er í leikbanni, og Luka
Kostic lék ekki með Þór vegna
meiðsla. Það hafði líklega nokkuð
að segja enda hafa þeir verið bestu
menn liða sinna í sumar.
Víkingur-Þór 0:0
Víkingsvöllur, Islandsmótið I knattspyrnu,
1. deild — Hörpudeild — miðvikudáginn 11.
júlí 1990.
Gul spjöld: Sævar Árnason og Lárus Orri
Sigurðsson, Þór.
Dómari: Egill Már Markússon. Dæmdi vel.
Línuverðir: Kári Gunnlaugsson og Guð-
mundur Stefán Mariasson.
Lið Víkings: Guðmundur Hreiðarsson,
Ilelgi Björgvinsson, Ólafur Ólafsson, Helgi
Bjarnason, Gunnar Gylfason (Einar Einars-
son 68.), Aðalsteinn Aðalsteinsson, Atli
Helgason, Hörður Theódórsson (Björn
Bjartmarz'65.), Trausti Ómarsson, Atli Ein-
arsson, Goran Micic.
Lið Þórs: Friðrik Friðriksson, Sigurður
Lárusson, Siguróli Kristjánsson, Nói Björns-
son, Þorsteinn Jónsson, Árni Þór Árnason
(Ólafur Þorbergsson 72.), Júlíus Tryggva-
son, Sævar Árnason (Sveinn Pálsson 89.),
Þórir Áskelsson, Hlynur Birgisson, Lárus
Orri Sigurðsson.
Friðrik Friðriksson, Þór.
Aðalsteinn Aðalsteinsson, Atli Einarsson,
Helgi Bjarnason og Atli Helgason, Víkingi.
Hlynur Birgisson, Þór.
ÍSLANDSMÓTIÐ
1.DEILD
HÖRPUDEILD
Fj. leikja u j r Mörk Stig
VALUR 9 6 1 2 15: 8 19
KR 9 6 0 3 14: 9. 18
FRAM 9 5 1 3 17: 7 16
ÍBV 9 4 3 2 12: 14 15
VÍKINGUR 9 3 4 2 10: 9 13
FH 9 4 0 5 14: 13 12
STJARNAN 9 3 2 4 11: 15 1 1
ÍA 9 2 2 5 10: 16 8
PÓR 9 2 2 5 6: 12 8
KA 9 2 1 6 8: 14 7
Morgunblaðið/KGA
IMói Björnsson hafði góðar gætur á Atla Einarssyni í leiknum í gær og hér eru þeir í faðmlögum við vítateig Þórsára.
20. LANDSMOT UMFI
Morgunblaðið/KGA
í mörg horn að líta
Þegar Landsmót er í undirbúningi, er að mörgu að hyggja og í gær voru starfsmenn mótsins á þönum í Varmárskóla.
Sæmundur Runólfsson, annar framkvæmdastjóra mótsins veitir starfsmanni leiðbeiningar en Einar Vilhjálmsson, spjót-
kastari með meiru hefur gripið í símann. Einar keppir í spjótkasti á sunnudaginn, en meðal keppenda þar verða Svíarn-
ir Peter Borglund og Dag Wannlund, svo og íslendingarnir Sigurður Einarsson og Sigurður Matthíasson. Besti árangur
Borglunds er 84,76 metrar, en Einar á best 84,66 metra. Því má vænta skemmtilegrar keppni á sunnudaginn. Keppni
á Landsmótinu hófst í gær í körfuknattleik og knattspyrnu kvenna. Keppni í dag hefst svo kl. 10 með golfi og jurta-
greiningu — sem nú fer fram utandyra, í Skrúðgarðinum við Varmárvöll. Það verður mikið um að vera í dag; Vigdís
Finnbogadóttir gróðursetur, ásamt fleirum, birkitré, en meðal þess sem keppt verður í, má nefna fijálsar íþróttir, bridds,
körfuknattleik og knattspyrnu, hestadóma og blak auk margs annars. í kvöld verður haldin rokkhátíð. Hún hefst kl. 20
í Álafossskemmu. Þess má geta að sætaferðir verða frá BSI upp í Mosfellsbæ í dag, á morgun og á laugardag á rokk-
hátíðina og dansleiki. Einnig er boðið upp á ferðir rneð Mosfellsleið á klukkustundar fresti frá Grensásskiptistöð. Þá
verður boðið upp á férðir til baká‘ íií ’Réyltjávíkúríáð lókúúm dansleikjum Og rokkhátíð. v
GOLF / EVROPUMOT UNGLINGA
ísland í 13. sæli
„Eins og við var að búast," segir
Hannes Þorsteinsson, fyrirliði liðsins
ÍSLENSKA unglingalandsliðið í
golfi er í 13. sæti af 16 þjóðum
eftir fyrsta keppnisdag á Evr-
ópumóti unglinga í golfi sem
fram ferá Grafarholtsvelli. Eft-
ir tvo fyrstu dagana er liðunum
skipt í tvo flokka eftir styrkleika
og má búast við að íslendingar
verði í neðri flokknum.
Frakkar eru í efsta sæti, með
376 högg, en Englendingar og
Skotar koma einu höggi á eftir.
Þessar þjóðir skera sig úr eftir
fyrsta daginn en Svíar eru í fjórða
sæti með 386 högg. íslendingar
léku á 403 höggum og eru í 13.
sæti, tveimur höggum á eftir Aust-
urríkismönnum.
„Þetta var svona eins og við var
að búast. Við höfum yfirleitt verið
í neðri hlutanum og erum aðeins
ofar að þessu sinni,“ sagði Hannes
Þorsteinsson, fyrirliði íslenska liðs-
ins. „Það er svolítil pressa á liðinu
á heimavelli en í sjálfu sér skiptir
ekki miklu máli í hvaða sæti liðið
er, frekar í hvaða flokki,“ sagði
Hannes.
í dag heldur undankeppnin áfram
og þá kemur í Ijós hvaða átta þjóð-
ir leika um Evrópumeistaratitilinn
og hvaða þjóðir leika um 9.-16.
sæti í þriggja daga holukeppni. ís-
lendingar verða líklega ,í síðari
hópnum- enda vantar liðið þrettán
högg á Hollendinga sem eru í 8.
sæti.
Sturla Ómarsson náði besta skori
íslendinga í gær, 78 höggum. Ást-
ráður Th. Sigurðsson og Hjalti Niel-
sen léku á 79 höggum, Júlíus Hall-
grímsson á 81, Örn Arnarson á 86
og Kjartan Gunnai-sson á 87 en
skor fimm bestu gilda. Englending-
urinn Westwood náði besta skori
dagsins, lék á 71 höggi sem er par
vallarin§.
„Það kom kannski í ljós í dag
að okkur vantar breidd. Hinar þjóð-
irnar hafa úr mun fleiri kylfingum
að velja. En við höfum ekki gefist
upp og ætlum að beijast í holu-
keppninni," sagði Hannes.
Golf
EVRÓPUMÓT UNGLINGA
Staðan eftir fyrsta dag:
1. Frakkland........................376
2. England....................................377
Skotland.......................377
4. Svíþjóð....................................386
5. Spánn......................................387
6. Danmörk....................................389
Wales....................................389
8. Holland....................................390
9. írland.....................................391
10. Belgía....................................396
V-Þýskaland............................ 396
12. Austurríki................................401
13. ísland.....:..............................403
14. Ítalía....................................404
15. Finnland„.,..i...r,e,..j...~...(...„.».,..407
16. -Noi-egur____________:__________4)5