Morgunblaðið - 07.11.1990, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 'l«CðO
23
Ethel og Julius Rosenberg sem aðstoðuðu Sovétmenn við smíði
kjarnorkusprengjunnar með njósnum og voru tekin af lífi í New
York 1958.
Khrústsjov lofar
Rosenberg-hjónin
í ÁÐUR óbirtum minningum Níkítá Khrústsjovs, leiðtoga sovéska
kommúnistaflokksins, sem bandaríska tímaritið TIME birti nýlega
útdrátt úr, fer hann lofsamlegum orðum um Julius og Ethel Rosen-
berg, bandarísku hjónin sem sökuð voru um að hafa aðstoðað Sovét-
menn við smíði kjarnorkusprengjunnar. Þau voru fundin sek um
njósnir og tekin af lífi í rafmagnsstól í New York 1953. Endurminn-
ingar þessar voru varðveittar á segulböndum sem ættingjar
Khrústsjovs höfðu geymt með leynd og ekki skýrt frá fyrr en á
þessu ári. Er í ráði að gefa þær út í heild á bók. Kaflinn um Rosen-
berg-hjónin fer hér á eftir:
„Síðustu dagana fyrir dauða [Jó-
sefs] Stalíns héldum við að Banda-
ríkjamenn hygðu á innrás í Sov-
étríkin. Þess vegna var öflugum
loftvarnarbyssum komið fyrir um-
hverfis Moskvu og þær mannaðar
allan sólarhringinn. Fallbyssuskot-
um var raðað allt í kring um byss-
urnar. Stalín óttaðist árás auð-
valdslandanna, fyrst og fremst
Bandaríkjanna með sinn öfluga
flugher og kjarnorkusprengjur.
Við höfðum nýlega smíðað okkar
fyrstu kjarnorkusprengju og áttum
nokkrar slíkar. Kjarnorkuvísinda-
menn okkar stóðu sig vel en ég
skai deila með ykkur leyndarmáli;
við fengum góða aðstoð frá fólki
sem gerði okkur kleift að framleiða
kjarnorku hraðar en við hefðum
ella getað og hjálpuðu okkur við
smíði fyrstu sprengjunnar.
Þetta fólk varð að gjalda fyrir
hugsjónir sínar og var hvorki út-
sendarar eða njósnarar Sovétríkj-
anna heldur hafði samúð með hug-
myndafræði okkar. Það var fram-
farasinnað og lét stjórnast af þeim
áhuga eingöngu og fór ekki fram
á greiðslur. Eg segi framfarasinnað
af því ég held þau hafi ekki verið
kommúnistar. Þau gerðu sem þau
gátu til að hjálpa okkur við smíði
kjarnorkusprengju til þess að við
gætum staðið jafnfætis Banda-
ríkjamönnum. Um það snerist mál-
ið.
Með þessu er ekki ætlunin að
gera lítið úr afrekum okkar eigin
vísindamanna. En það verður að
taka aðstoð vina okkar með í reikn-
inginn. Þeir liðu þjáningar, þeim
var refsað. Nöfn þeirra eru kunn
og þökk sé þeim að við skyldum
geta smíðað kjamorkusprengju og
staðið jafnfætis [Bandaríkjamönn-
um].
Eg var í Stalín-klíkunni þegar
hann skýrði okkur frá Rosenberg-
hjónunum. Hann talaði um þau
með hlýju. Ég get ekki skýrt frá
aðstoð þeirra í smáatriðum en
heyrði bæði á Stalín og Molotov,
þáverandi utanríkisráðherra, að
framlag þeirra hefði flýtt smíði
kjarnorkusprengjunnar verulega.
Með þessu vil ég heiðra minn-
ingu þessara verðugu hjóna. Takið
orð mín sem virðingar- og þakklæt-
isvott til þeirra sem fórnuðu lífi
sínu í þágu málstaðar Sovétríkj-
anna á sama tíma og Bandaríkja-
menn neyttu aflsmunar til þess að
kúga okkur og grafa undan alræði
öreiganna."
Ráðabrugg pólskra kommúnista:
Hugðust ræna Walesa
Varsjá. Reuter.
PÓLSKIR kommúnistar höfðu uppi áform um að láta ræna verkalýðs-
hetjunni Lech Walesa er verkamenn í Gdansk lögðu niður störf árið
1980 til að leggja áherslu á þá kröfu sína að fá að stofna óháða verka-
lýðslireyfíngu.
Talsmaður pólska innanríkisráðu-
neytisins greindi frá þessu í gær og
fylgdi sögunni að áætlun þessi hefði
verið ein af mörgum sem stjórnvöld
létu vinna skömmu eftir að verkfallið
skall á. Hugmyndin hefði verið sú
að senda sérþjálfaðar fallhlífarsveitir
til Gdansk í því skyni að ræna Wa-
lesa og verkfallsnefndinni sem hann
fór fyrir. Sagði talsmaðurinn að sér-
stakur hópur manna hefði unnið að
áætlun þessari og hefði öllum undir-
búningi verið lokið 27. ágúst 1980.
Áætlunin var hins vegar aldrei fram-
kvæmd því fjórum dögum síðar féll-
ust pólskir kommúnistar á kröfur
verkfallsmanna. í septembermánuði
undirrituðu síðan stjórnvöld og verk-
fallsmenn samning er heimilaði
stofnun Samstöðu, fyrsta fijálsa
verkalýðsfélagsins austan Járn-
tjaldsins. I desember 1981 sneru
stjórnvöld hins vegar snögglega við
blaðinu og bundu enda á starfsemi
Samstöðu með herlögum. Sagði tals-
maðurinn að þær aðgerðir allar hefðu
verið fullmótaðar sex mánuðum áð-
ur, í júní 1981, en þá var Wojciech
Jaruzelski, leiðtogi pólskra kommún-
ista. Jaruzelski hefur verið forseti
Póllands frá því kommúnistar afsö-
luðu sér einræði í pólsku samfélagi
en ferli hans lýkur síðar í þessum
mánuði er fram fara ftjálsar forseta-
kosningar í landinu.
Talsmaður innanríkisráðuneytis-
ins greindi ennfremur frá því að ör-
yggislögreglan pólska hefði hugsan-
lega hlerað einkasamtöl Jóhannesar
Páls páfa II er hann kom til Póllands
1979, 1983 og 1987. Alltjent hefði
fundist lítill hljóðnemi í íbúð þeirri
sem páfa var fengin í Jasna Gora-
klaustri í suðurhluta Póllands í þau
þrjú skipti sem hann hefur heimsótt
föðurland sitt. Talsmaðurinn sagði
að hljóðneminn hefði verið óvirkur
þegar hann fannst og ógerlegt væri
að segja til um hvenær hann hefði
hætt að koma að tilætluðum notum.
Sovétríkin:
Lýðveldin verða ekki
neydd í ríkjasambandið
■ segir talsmaður Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétforseta
Moskvu. Reuter.
GRÍGORÍJ Revenko, ráðgjafi
Míkhaíls Gorbatsjovs, forseta
Sovétríkjanna, sagði í gær að
sovésk stjórnvöld myndu ekki
reyna að neyða sovésku lýðveldin
finimtán til að undirrita samning
um nýtt ríkjasamband, sem
kveða mun á um breytt tengsl
þeirra við Sovétstjórnina í fram-
tíðinni. Hann bætti þó við að
áætlun Gorbatsjovs um að koma
á markaðshagkerfi kæmist ekki
í framkvæmd nema öll lýðveldin
undirrituðu samninginn.
Sovéska stjórnin og leiðtogar
flestra lýðveldanna hafa hafið við-
ræður um samninginn en Gorb-
atsjov vill að gengið verði frá honum
fyrir lok ársins. Eystrasaltslöndin
þijú taka ekki þátt í viðræðunum.
Revenko ítrekaði þá afstöðu sov-
éskra stjórnvalda að þau lýðveldi
sem vildu segja skilið við Sovétríkin
þyrftu að semja um það í samræmi
við ákvæði stjórnarskrárinnar.
Margir telja hins vegar að slíkt
skilyrði útiloki í raun úrsögn úr
Sovétríkjunum.
Revenko sagði að sovésk stjórn-
völd myndu ekki grípa til neinna
aðgerða til að koma í veg fyrir að
lýðveldin lýstu yfir sjálfstæði. Hann
kvað ekki koma til greina að
„hlekkja lýðveldin í ríkjasamband“,
slíkt kynni ekki góðri lukku að
stýra. Hins vegar þyrftu öll lýðveld-
in að undirrita samninginn til að
hægt yrði að koma efnahagsáætl-
unum Gorbatsjovs í framkvæmd.
Stjórn Rússlands telur að áætlun
Gorbatsjovs gangi ekki nógu langt
og hefur boðað mun róttækari að-
gerðir. „Ef Rússland undirritar ekki
samninginn yrði varla um ríkjasam-
band að ræða. Ég álít hins vegar
að Rússum sé ekki stætt á öðru en
að skrifa undir og að þeir átti sig
á því,“ sagði Revenko.
Hann kvaðst einnig telja að
stjórn Níkolajs Ryzhkovs forsætis-
ráðherra segði af sér eftir undirrit-
un samningsins og ný stjórn yrði
mynduð.
Ungverjarí Evrópuráðið
Catherine Lalumiere, framkvæmdastjóri Evrópuráðsins, óskar utanrík-
isráðherra Ungveijalands, Geza Jeszensky, til hamingju með aðild
landsins að Evrópuráðinu á fundi í Róm. Ungverjar eru fyrsta ný-
fijálsa þjóðin í Austur-Evrópu til að hljóta fulla aðild að ráðinu sem
lýðræðisríki álfunnar stofnuðu á sínum tíma.
Við fögnum því að Sveinn Hjörtur
Hjartarson gefur kost á sér til
framboðs fyrir Sjálfstæðisflokkinn
í Reykjaneskjördæmi í næstu al-
þingiskosningum. Þingmaður
Reykjaneskjördæmis þarf að
kunna góð skil á þörfum þéttbýlis-
ins í nágrenni Reykjavíkur og jafn-
framt á höfuðatvinnuvegi þjóðarinnar, sjávarútveginum.
Sveinn Hjörtur sameinar þetta hvort tveggja og við
hvetjum þig, kjósandi góður, til að tryggja honum þriðja
sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjör-
dæmi 10. nóvember nk.
Gunnar Birgisson, formaður bæjarráðs Kópavogs
Albert K. Sanders, fyrrv. bæjarstjóri, Njarðvík
Þengill Oddsson, læknir, Mosfellsbæ
Guðni Stefánsson, forseti bæjarstjórnar Kópavogs
Stefanía Gunnarsdóttir, snyrtifræðingur, Garðabæ
Hilmar Sigurðsson, bæjarfulltrúi, Mosfellsbæ
Axel Axelsson, skipstjóri, Hafnarfirði
Halldór Jónsson, form. fulltrúaráðs sjálfstæðisf. í Kó
Guðrún Lárusdóttir, útgerðarmaður, Hafnarfirði
Hlynur Guðjónsson, form. Týs, Kópavogi
Birna Friðriksdóttir, bæjarf ulltrúi, Kópavogi
Sigurjón Sigurðsson, læknir, Kópavogi
Þórður S. Óskarsson, forstöðumaður, Seltjarnanesi
Atli Dagbjartsson, barnalæknir, Kópavogi
Arnór L. Pálsson, bæjarfulltrúi, Kópavogi
Ævar Guðmundsson, framkvæmdastjóri, Seltjarnarnesi
Jón Kr. Snæhólm, form. utanríkismálanef ndar SUS
Þorsteinn Erlingsson, skipstjóri, Keflavík
Hafsteinn Reykjalín, framkvæmdastjóri, Kópavogi
Gunnar Benediktsson, húsasmiður, Mosfellsbæ
>. Kristín Líndal, varabæjarfulltrúi, Kópavogi
Halla Halldórsdóttir, form. sjálfstæðiskvennafél. Eddu,
Guðrún Stella Gissurardóttir, nemi, Kópavogi
Þorgerður Aðalsteinsdóttir, fyrrv. formaður Breiðabliks,
Stefán H. Stefánsson, forstöðumaður, Kópavogi.
Sigurður H. Guðmundsson, sóknarprestur, Hafnarfirði
Kosningaskrifstofa Hamraborg 5, símar 41290 og 41244.