Morgunblaðið - 07.11.1990, Qupperneq 47
47
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MÍÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 1990
KNATTSPYRNA
Hovuard Kendall
Kendall aftur
til Everton
Howard Kendall yfirgaf Man-
chester City í gær og tók við
stjóminni hjá Everton. Kendall var
áður í fimm ár hjá félaginu og undir
hans stjórn náði liðið glæstum ár-
angri. Hann hélt til Bilbao á Spáni
1987, en fór aftur til Englands í
mars og kom Manehester City á rétt-
an kjöl.
Colin Hai-vey var rekinn frá Ever-
ton fyrir skömmu, en talað er um
að hann verði aðstoðarmaður Kend-
alls.
Drög að samningum
við leikmenn á borðinu
STEFNT er að því aðleggja fram tillögur um félagaskipti leik-
manna, samning milli leikmanna og félaga og afnám áhuga-
mannareglna KSÍ á ársþinginu, sem ferfram um næstu mán-
aðarmót. Störf milliþinganefndar um þessi mál voru kynnt á
fundi með fulltrúum félaganna um helgina og kom fram vilji
um að leggja tillögur nefndarinnar fram frekar en að fresta
málinu um enn eitt ár.
Asíðasta þingi var samþykkt
veigamikil breyting á áhuga-
mannareglum KSÍ þess efnis að
greiða mætti leikmönnum fyrir
afrek. í kjölfarið var skipuð fímm
manna milliþinganefnd og henni
gert að skila tillögum í formi
reglugerðar fyrir næsta ársþing.
Nefndin hefur starfað vel á árinu,
safnað gögnum frá nágrannalönd-
unum og sett saman drög að til-
lögum. Hún boðaði til fundar með
fulltrúum félaganna og var góður
hljómgrunnur fyrir tillögunum.
Staða hlutaðeigandi
{ drögum að tiliögu um reglu-
gerð um stöðu' félaga og leik-
manna er gengið út frá því að
leikmenn verði áfram áhugamenn,
en þeim sé heimilt að gera samn-
inga við félög og taka við greiðsl-
um innan þess ramma, sem reglu-
gerðin kveður á um. Samninga
má aðeins gera samkvæmt staðal-
formi frá KSÍ, ekki má gera lengri
en tveggja ára samninga og þeir
faUa úr gildi við fall um deild.
Samninga- og félagaskiptanefnd
KSÍ á að halda utan um málin
og skera úr deiiumálum.
Drög að stöðluðum leikmanna-
samningi liggja einnig fyrir, þar
sem tekið er tillit til hagsmuna
hlutaðeigandi, og er stuðst við
ámóta form frá Danmörku og
Svíþjóð.
Félagaskipti
Nefndin lagði einnig fram á
fyrrnefndum fundi drög að
ákvæðum um félagaskipti samn-
ingsbundinna leikmanna innan-
lands, en þar er gert ráð fyrir
ákveðnum greiðslum milli félaga,
sem byggjast á grunngjaldi og
margfeldi af því, þó aldrei hærra
en sem samsvarar sexföldu
grunngjaldi. Gengið er út frá af-
reksstuðli í fimm þrepum. Við
röðun í þrep er aldur leikmanna
hafður til hliðsjónar, annars vegar
fjöldi landsleika alls og hins vegar
undanfai'in tvö til fjögur ár eftir
aldri, leikir í öðrum en a-landsliði
og leikjafjöldi í 1. deild.
{ drögunum er gert ráð fyrir
að samninga- og félagaskipta
nefndin ákvarði þrep fyrir leik-
mann, sem er ekki íslenskur ríkis-
borgari eða varð það fyrir innan
við fjórum árum, með hliðsjón af
mati íslenskra leikmanna.
Nefndin ræddi einnig félaga-
skipti að sumarlagi og telur
ástæðu til að liðka urn fyrir þeim
fram að ákveðnum tíma, en loka
síðan á þau fram til loka keppn-
istímabils.
Engir átthagafjötrar
Á kynningarfundinum kom
fram ánægja með tillögurnar.
Bent var á að með þeim féllu
gölluð plögg úr umferð, en félög
hafa gert samninga við leikmenn,
sem hafa að mati ýmissa bundið
menn átthagafjötrum. Þá kom
fram að félög, sem vilja gera
samning við leikmenn, skapi sér
vinnufrið og geti þar af leiðandi
skipulagt starfið betur.
Morgunblaðið/Júlíus
Einar G. Sigurdsson hleypir af gegn FH í gærkvöldi. Hann gerði fimm mörk
í leiknum.
HANDKNATTLEIKUR
FH-Selfoss 22:18
Kaplakriki, íslandsmótið, 1. deild — VÍS-keppnin — þriðjudag 6. nóvember 1990.
Gangnr leiksins: 0:2, 1:3, 3:3, 6:6, 7:9, 8:10, 8:11, 9:11, 9:12, 14:12, 14:14, 16:14,
17:15, 19:17, 19:18, 22:18.
Mörk FH: Guðjón Árnason 10, Óskar Helgason 4, Hálfdán Þóiðarson 3, Gunnar Beinteins-
son 3, Pétur Petersen 2.
Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson 11 (þar af 3 er knötturinn fór aftur til mótheija),
Guðmundur Hrafnkelsson 3. Utan vallar: Engum vísáð útaf.
Mörk Selfoss: Sigurður Þórðarson 5, Einar G. Sigurðsson 5/2, Siguijón Bjarnason 4,
Gústaf Bjarnason 2, Stefán Halldórsson 1, Erlingur Klemenzson 1.
Varin skot: Gísii Felix Bjamason 10/1 (þar af 1 er knötturinn fór aftur til mótheija).
Utan vaiiar: 6 mínútur.
Áhorfendur: Um 400. Dómarar: Gísli Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson.
. Naumur FH-sigur á nýliðunum
Selfyssingar komú íslandsmeisturum FH í opna skjöldu í Hafnarfirðinum
í gærkvöldi — utan vallar sem innan. Leikmenn liðsins voru mjög frískir
í fyrri hálfleik og höfðu forystu, 11:8, er gengið var til búningsklefa. Og frammi-
staða áhangenda liðsins var ekki verri. Það var engu líkara en leikurinn færi
fram fyrir austan. Selfyssingar voru léttir á sér í fyrri hálfleik,
Skapti gerðu laglega hluti og höfðu greinilega gaman af verkefninu.
Hallgrímsson Heimamenn, aftur á móti, voru annað hvort með hugann við
skrífar flugið til Tyrklands í dag, eða Evrópuleikinn þar á föstudag-
inn. Að minnsta kosti ekki við leikinn í gær. Engu líkara var
en þeir væru með blý í skónum. En í síðari hálfleik breyttist leikurinn nokkuð:
Selfyssingar gerðu aðeins sjö mörk, FH-ingar hins vegar 14 og sigruðu nokk-
uð örugglega. Selfyssingar sýndu á köflum að þeir geta leikið góðan handknatt-
leik. Sóknarleikur liðsins er mjög agaður — stundum einum of, þannig að
menn þora ekki að taka af skarið. FH-ingar voru langt frá sínu besta og verða
heldur betur að taka sig saman í andlitinu ef þeir ætla að standa sig gegn
Tyrkjunum.
FRJALSAR
Heimsmethafar í bann
i veir heimsmethafar í fijálsum íþróttum Bandaríkjamennirnir Randy Barnes
I I og Harry „Butch" Reynolds hafa verið dæmdir í keppnisbann eftir að
hafa fallið á iyfjaprófi. Reynolds, sem á heimsmetið í 400 metra hlaupi, keppti
, á móti í í Mónakó 12. september og í ljós kom að hann hafði neytt anbaol-
{ ískra stera, þeirra sömu og urðu Ben Johnson að falli. Sömu efni fundust í
sýni Barnes, heimsmethafa í kúluvarpi, sem tekið var eftir, að hann hafði sigrað
á móti í Malmö í Svíþjóð. í fyrra.
i
i
i
J
Atli frá keppni
framyfirjól
úRsur
Knattspyrna
Evrópukeppni meistaraliða:
(2. umferð, síðari leikir. Samanlagl i sviga).
CSKA Sofia—Bayern. Miinchen..0:3 (0:7)
- Roland Wohlfarth (16.), Stefan Effen-
berg (78.), Alan Mclnally (84.)
UEFA-keppnin:
Inter Bratislava—Köln......0:2 (1:2)
- Armin Götz (57.), Olaf Janssen (62.)
Bor. Dortmund—Craiova (Rúm.) .1:0 (4:0)
Michae! Zorc (39.)
Bordeaux (Fra)-Magdeburg (Þýs)..1:0
Jean-Marc Feireri (58.)
England
Deildarbikarinn, þriðja umferð:
Portsmouth—Chelsea..............2:3
Swindon—Sheffield Wednesday.....0:1
• Margir leikir eru á dagskrá Evrópukeppn-
innar í dag. Þar á meðal viðureign Dynamo
Moskvu og Napoli. Diego Maradona fór
ekki með félögum sínum í Napolí liðinu í
fyrradag; sagðist ekki ætla að leika en gaf
svo sem ’enga skýringu á því! Hann flaug
slðan i einkavél til Moskvu í gær en ef
marka má umm^eli forráðamanna félagsins
var ekki ljóst hvort hann fengi að leika með.
Atli Hilmarsson
ATLI Hilmarsson handknatt-
leiksmaður, sem leikur með
Granollers á Spáni, verður að
gangast undir uppskurð í
nára 29. nóvember. Hann
hefur einnig verið meiddur í
baki og hefur því ekki getað
ieikið með liði sínu að undan-
förnu.
tli byrjaði keppnistímabilið
mjög vel og var ávallt
markahæsti • leikmaður liðsins.
Liðið má varla við þessum missir
því spænski landsliðsmaðurinn í
liðinu, Alex Franch, fór í upp-
skurð vegna ökklameiðsla í gær
og verður ekki með næsta mánuð
að minnsta kosti.
Forráðamenn Granollers hafa
verið að leita að leikmanni í stað
Atla og hefur Sovétmaðurinn,
Alexander Tsjúmentsjev verið
nefndur í því sambandi. Tsjú-
mentsjev er 28 ára og hefur leik-
ið yfir 200 landsleiki fyrir Sov-
étríkin og hefur verið fyrirliði
landsliðsins undanfarin ár. Þjálf-
ari og formaður Granollers fóru
til Kanaríeyja til að fylgjast með
Tsjúmentsjev í Evrópuleik með
sovéska liðinu Dynamo Altrakan
í síðustu viku.
EM
Barcelona-Fram:
„Markmiðið
að gera betur
en síðast“
Framarar mæta liði Barcelona í
kvöld á Spáni. Þetta er síðari
viðureign liðanna í 3. umferð Evr-
ópukeppni bikarhafa en Barcelona
vann þá fyrri 2:1 í Laugardal.
„Það getur allt gerst. Markmiðið
er að gera betur en síðast,“ sagði
Pétur Ormslev, fyrirliði Fram, sem
kemur inn í liðið á ný, ásamt Við-
ari Þorkelssyni. Þeir voru báðir í
banni í fyrri leiknum. Fram tapaði
0:5 á Nou Camp fyrir Barcelona
1988.
faóm
FOLK
■ SAUÐKRÆKINGAR hafa
gífurlegan áhuga á körfubolta enda
hefur liðið leikið mjög vel í vetur.
Eftir leikinn gegn KR komu um
150 manns á Hótel Mælifell og
fylgdust með leiknum af mynd-
bandi. Vélin með liðinu og spólunni
kom rétt fyrir miðnætti en áhugas-
amir Sauðkrækingar létu sig hafa
það að vaka til kl. 2.
■ ALLIR leikir Tindastóls eru
teknir upp á myndband af körfu-
knattieiksdeildinni. Síðan er hægt"*^
að leigja spólur og það er mikið
gert á togurunum þar sem þessar
spólur hafa leyst aðra vinsæla teg-
und af hólmi.
■ LEIFUR Garðarsson, körfu-
knattleiksdómari, fór illa með Axel
Nikulásson í leik KR og Vals í
gær. Axel var ekki sammála Leifi
í dómgæslunni og þegar þolinmæð-
in var á þrotum sagði hann: „Ertu
ekki að fylgjast með leiknum?“
Leifur svaraði að bragði: „Ég er
að reyna það en hann er bara svo
leiðinlegur.“
í kvöld
Tveir leikii' verða í kvöld í 1.
deild karla í handknattleik: KR
og Stjarnan mætast í Laugar-
dalshöll og Haukar fá Valsmenn
í heimsókn í íþróttahúsið við
Strandgötu í Hafnarfirði. Báðir
leikir hefjast kl. 20.00.