Morgunblaðið - 22.12.1990, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1990
19
Á LANDAKOTI
eftir Pál Sigurðsson
Haustið áður en ég tók stúdents-
próf lá ég nokkrar vikur á Landa-
kotsspítala. Ég lá á stofu 2 í gamla
spítalanum sem nú er löngu horfinn.
Þar lágu 10 aðrir sjúklingar. Þarna
sá ég dr. Bjama Jónsson fyrst að
starfi og nú eru 45 ár síðan. Hann
kom venjulega tvisvar á dag á stofu-
gang eldsnemma á morgnana og
aftur síðla dags. Ég sé hann fyrir
mér birtast í dyrunum, hávaxinn,
sterklegan, kvikann í hreyfíngum og
alltaf í heilum læknaslopp hnepptum
að aftan. Yfírskeggið kolsvart svo
og hárið, röddin djúp, skýr og skip-
andi. Það báru allir greinilega mikla
virðingu fyrir honum, sumir virtust
jafnvel smeykir við hann. Síðar átti
ég eftir að kynnast Bjarna betur sem
stúdent og aðstoðarlæknir og 10
árum seinna sem samstarfsmaður
hans á spítalanum um 14 ára skeið.
í mínum huga hafa dr. Bjarni og
Landakot verið óaðskiljanleg síðustu
hálfa öld. Það var því með mikilli
tilhlökkun sem ég opnaði bók hans
„Á Landakoti" er ég fékk hana í
hendur. Og ég varð ekki fyrir von-
brigðum, en við lestur bókarinnar
þótti mér sem nafn bókarinnar hefði
verið betra „Dr. Bjarni á.Landakoti“.
í bókinni tekst Bjarna í stuttu
máli að draga saman mikinn söguleg-
an fróðleik um íslenska heilbrigðis-
þjónustu og íslenska læknastétt en
sérstaklega um þá starfsemi sem
verið hefur á Landakoti síðan spítal-
inn var stofnaður þar 1902 og þann
þátt sem hann og aðrir starfsmenn
þar hafa átt í brautargengi spítalans.
í formála segir Bjami reyndar að
bókin sé hvorki saga Landakots né
ævisaga hans. Þetta má satt vera en
í reynd verður bókin þetta hvort.
tveggja þó hvorug frásögnin sé tæm-
andi, því vissulega er þetta aðeins
hluti af ævisögu dr. Bjarna.
Bjami skiptir bók sinni í 26 kafla
auk formála og skráa. Fyrsti hluti
bókarinnar er sögulegt yfírlit um
jörðina Landakot sem var í upphafí
hjáleiga frá landnámsjörðinni Vík.
Þá rekur hann komu katólskra til
íslands á 19. öld og skýrir frá upp-
mna og starfi reglu St. Jósefssystra
en sú regla varð til í litlum bæ í
S-Frakklandi á 17. öld. Systrareglan
var frá byijun líknarregla og hefur
verið það alla tíð. Eftir niðurlægingu
frönsku stjómarbyltingarinnar náði
reglan sér aftur á strik á 19. öld og
breiddist þá út víða um lönd. Árið
1856 fóm fjórar systur þessarar
reglu til Kaupmannahafnar til að
stunda líknarstörf og trúboð og aðrar
fjórar systur úr þessum systrahópi í
Danmörku fóm síðan til íslands 1896
og það var upphaf að spítalastarfí
St. Jósefssystra hér á landi.
í bókinni er rakinn í stuttu máli
sorgarsaga sjúkrahússbygginga hér
í Reykjavík á síðustu og þessari öld
en sérstaklega er rakin byggingar-
saga Landakotsspítala sem tók til
starfa 1902 svo sem fyrr segir.
Tvennt er sérstaklega tekið fram,
sem er nú flestum gleymt en tengist
þessari byggingarsögu, það er ann-
ars vegar gerð Landakotsbmnns sem
þá var besta vatnsból í Reykjavík
og nokkur ár eftir það og fyrsta stór-
virkið sem dýnamit var notað við í
Reykjavík. Hitt mannvirkið var
fyrsta holræsið í Reykjavík sem lagt
var frá spítalanum og niður að sjó
sem nú er Ægisgata. Þetta holræsi
mun enn vera í notkun svo ekki hef-
ur verið kastað til þess höndum.
Það er mjög fróðlegt að lesa sam-
antekt dr. Bjarna um fyrstu læknana
sem völdust að Landakoti og tengsl
þeirra við læknavísindi þeirra tíma,
bæði í Evrópu og vestan hafs. Jafn-
framt þessu koma frásagnir af fyrstu
botnlangatökum hérlendis, bæði á
Akureyri og í Reykjavík, og það er
alveg ljóst að tilkoma Landakotsspít-
ala hefur gjörbreytt allri aðstöðu til
lækninga og þeir ágætu læknar sem
þá vom starfandi hérlendis fengu
þarna kærkomið tækifæri til þess að
iðka læknislist sína og beita þeirri
þekkingu sem þeir áttu yfir að ráða.
Dr. Bjarni bytjar starf sitt á
Landakoti í ársbyijun 1936 og ljóst
er að honum eru tveir atburðir sér-
„Ég tel bók dr. Bjarna vera
mikla heimild um lækning-
ar hér á landi á þessari öld
og um þær breytingar sem
orðið hafa og framþróun á
sjúkrahússþætti heilbrigð-
ismálanna.“
staklega minnisstæðir frá þessum
tíma. Annars vegar er bmninn í
Keflavík 30. desember 1935 en skað-
brenndir sjúklingar úr þeim bmna
vom einmitt komnir á spítaíann dag-
inn sem hann byrjaði þar og hitt er
Pomquoi Pas? slysið í september
1936. Bjarni segir svo frá: „Þegar
Matthías fór með mig í líkhús spítal-
ans sem var í kjallara í austurenda
hússins sá ég sjón sem ég aldrei
hafði séð áður og aldrei síðan. Það
vom lík 22 manna sem lágu þar á
flekum hlið við hlið. Þetta var skips-
höfnin af Pourquoi Pas?, dr. Jean
Charcot og lið hans“.....Þar sem
við stóðum og horfðum á valköstinn
sagði Matthías: „Ég ætla að biðja
yður að smyijá þessi lík. Því verður
að vera lokið á morgun““. Lýsingu
dr. Bjarna á þessari smurningu
líkanna ættu allir læknastúdentar og
læknakandidatar að lesa. Hún lýsir
í hnotskurn þeim kröfum sem þá
voru gerðar til ungra lækna og
hvernig þeir brugðust við.
Lýsing dr. Bjarna á viðskiptum
Landakots við sjúkratryggingarnar,
opinbera fjármálaaðila og daggjalda-
nefnd em nokkuð á einn veg. Hann
telur að spítalinn hafí frá því fyrsta
verið metinn minna en aðrir spítalar
og ævinlega að kalla verið vanþakk-
að starf hans og þeir menn sem þar
unnu aldrei settir á sama békk og
læknar annarra spítala.
Bréf Bjarna sem hann skrifar sem
yfirlæknir spítalans, sem birt eru
orðrétt í bókinni til landlæknis, fyár-
málaráðherra, borgarlæknis og fleiri
aðila, gætu verið kénnslubókardæmi
um rökfastan málflutning og einarða
skoðun án málalenginga.
Ég sagði fyrr að þetta væri bæði
saga Landakots og dr. Bjarna. Dæmi
um þetta tel ég vera sérstaklega tvo
kafla, kaflann um berkla og aðgerð-
ir við þeim og kaflann um höfuðslys.
í þessum þáttum bókarinnar lýsir
Bjarni annars vegar námsför sinni
vestan hafs að stríði loknu 1947-
1949 og námsferð til Kaupmanna-
hafnar 1956-1957. Bandaríkjaferðin
var farin til frekara náms í bæklunar-
lækningum. í þeirri ferð kynnti
Bjarni sér sérstaídega skurðaðgerðir
til festingar á hrygg, bæði vegna
berkla í hrygg og annarra sjúkdóma
þar, og eftir að hann kom heim gerði
hann íj'ölmargar skurðaðgerðir af
þessu tagi á berklasjúklingum og
raunar öðrum sjúklingum með sjúk-
dóma sem fengu af því bót. Um þess-
ar skurðaðgerðir ritaði Bjami síðan
doktorsritgerð sína á árinu 1953.
Ferðin til Kaupmannahafnar var far-
in til að læra sérstaklega meðferð
höfuðslysa. í Kaupmannahöfn dvald-
istBjarni á taugaskurðdeild ríkisspít-
alans hjá frægasta taugaskurðlækni
Dana og eftir heimkomuna haustið
1957 og til ársloka 1971 komu öll
höfuðslys landsins til meðferðar á
Landakoti hjá dr. Bjama ef sjúkling-
arnir á annað borð lifðu það af að
komast á spítala.
Dr. Bjami var hamhleypa til allra
verka. Á þessu sviði vann hann verk
sem fáir hefðu leikið eftir. Þegar
hann var á landinu þá var hann á
vakt allan sólarhringinn alla daga
og til hans komu öll höfuðslys sem
fyrr segir í 15 ár og hann þurfti að
vera viðbúinn að gera erfiðar aðgerð-
ir á þeim hvort sem var á degi eða
nóttu.
Þetta er ótrúlegt vinnuálag og sem
dæmi er tekið að um eina helgi í
júní 1970 frá laugardegi frá kl. 14
og til mánudags kl. 22.30 fékk hann
til meðferðar og aðgerðar 5 höfuð-
slys og þá var Bjami rúmlega sex-
tugur.
I bókinni er gert grein fyrir þeirri
læknaskipan sem er á Landakoti en
það hefur alla tíð verið frábrugðið
því sem er á öðrum spítölum hér á
landi þar sem læknar eru ekki fastr-
áðnir nema aðstoðarlæknar og allir
sérfræðingar bera fulla ábyrgð á
sjúklingum sínum. Skýrt er frá stofn-
un fyrstá læknaráðs á sjúkrahúsi hér
á landi það var haustið 1968. Ég
starfaði á spítalanum þegar þeta var
og átti nokkurn þátt í samningu
þeirrar reglugerðar sem sett var ráð-
inu sem raunar að mestu er enn í
gildi. Hugmyndin um stofnun lækn-
aráðs var ekki að stofna kröfugerðar-
hóp fyrir lækna heldur einkum að
stofna eftirlitsaðila með starfínu á
Páll Sigurðsson
spítalanum og var í rauninni fyrsta
hugmyndin að því gæðaeftirliti sem
nú er mikið rætt og vaxandi í tísku
að taka upp.
í allri bók dr. Bjarna skín í gegn
virðing hans á St. Jósefssystrum og
starfí þeirra hér á landi.
Ég trú því að þetta sé gagnkvæmt
frá þeirra hendi því í raun bar dr.
Bjarni í áratugi höfuð og herðar yfír
aðra lækna á Landakoti. Lýsingu á
systir Gabriellu geta allir tekið undir
sem hana þekkja: „Systir Gabriella
kom út hingað 1937 ... en tók við
stjórn og stýrði skurðstofu í hálfan
íjórða tug ára. Systir Gabriella er
smávaxin og nett og leit ekki út fyr-
ir að hafa mikið þrek en það er mis-
sýning. Aldrei var svo mikið lagt á
grannar herðar hennar að hún ekki
lyfti því. Hún var viðræðugóð, þægi-
leg í umgengni, hæglát og brosmild
og vakti traust“.
Systir Hildegard tók við stöðu pri-
orinu 1958. Bjarni lýsir vel starfí
hennar og raunar allra systranna.
„Hún var dugleg og stjómsöm og
kom með gust nýrrar aldar inn í
klaustur og spítala ... Systir Hilde-
gard naut þess að hafa samstiiltan
hóp sér við hlið. Systumar gengu í
hvaða störf sem var, smátt eða stórt
þegar þess þurfti og ætíð með ljúfu
geði að því er séð varð. Sýndist hver
systir hafa verið margra manna
maki. Það þurfti ekki að halda fundi
eða standa í deilum og þvinga fram
meirihluta ákvarðanir.
Nú starfa við spítalann hjúkrunar-
forstjóri, hjúkmnarframkvæmda-
stjóri, fræðslustjóri og ritarar þess-
ara embætta eins og tíðkast á öðrum
spítölum hér á landi af líkri stærð,
auk þess ræstingarstjóri og inn-
kaupastjóri. Öllum þessum störfum
gegndi systir Hildegard. Auk þess
var hún forstöðukona spítalans og
Bjami Jónsson
framkvæmdastjóri og yfírmaður
klaustursins".
Svo sem kunnugt er seldu St. Jó-
sefssystuu ríkinu spítala sinn og
hættu rekstri hans 1. janáur 1977.
Þessari breytingu er lýst mjög skil-
merkilega í bókinni svo og stofnun
sjálfseignarstofnunarinnar sem nú
rekur spítalann.
Dr. Bjami hætti sem yfírlæknir
1. janúar 1980 og hafði þá gegnt
því starfí í rúm 20 ár en verið tengd-
ur spítalanum svo sem fyrr segir
með ýmsum hætti síðan 1936.
Dr. Bjami er nú rúmlega áttræður
þegar hann sendir frá sér þessa bók.
Það em engin ellimerki á bókinni og
raunar varla á Bjama sjálfum enn.
Ég tel bók dr. Bjama vera mikla
heimild um lækningar hér á landi á
þessari öld og um þær breytingar
sem orðið hafa og framþróun á
sjúkrahússþætti heilbrigðismálanna.
Ég tel bókina nauðsynlegan lestur
öllum þeim sem að heilbrigðismálum
starfa og hún gefur góða innsýn í
starf og baráttu læknis sem hefur
verið brautryðjandi á sviði skurð-
lækninga hér á landi. Auk þess þá
er bókin fagur minnisvarði um St.
Jósefssystur og það mikla starf sem
þær unnu íslendingum í áratugi.
Ég læt setningu úr bókarlokum
Bjama vera niðurlag þessara hug-
leiðinga minna: „Spítalinn heldur
áfram á vegferð sinni. Hann hefur
aldrei verið betur búinn til að sinna
hlutverki sínu en nú. En það hefur
ekki fengist átakalaust. Ekkert sem
er nokkurs virði fæst án baráttu, það
sem kemur fyrirhafnarlaust er einsk-
is virði“.
Þannig hugsa aðeins vígreifir bar-
áttumenn.
Höfundur er ráðuneytisstjóri í
heilbrigðisráðuneytinu.
” ___ ___ _____.__
★ Stærsta
★ plaggata-
★ verslun
★ lantfsins
N______________
I1 I I í II- K I I C
I II I I III II S II M I fl 0
Opiö
laugardag
09.00 23.00
Sunnudag
Mánudag
0B.GG-12.G0
Stærð: 97 x 147 cm, verð 13.900. Tilb'oð til jóla kr. 11.900.
RAMMA
MIÐSTOÐIN
SIGTUNI 10-SIMI 25054
★ eitir
★ Stærö 66 x 86 cm