Morgunblaðið - 22.12.1990, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1990
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl) fpf
Þér sinnast við vin þinn út af
peningamálum í dag. Einkavið-
ræður vita á gott fyrir möguleika
þína í starfi. Gerðu ráðstafanir á
bak við tjöldin.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það væri hyggilegt af þér að ýta
ekki um of á eftir hlutunum í
dag. Eigingimi þín gæti spillt
fyrir þér. Þú heyrir frá vini sem
býr í fjarlægð. Áætlanir þínar í
félagsstarfi ganga algerlega upp
i kvöld.
Tvíburar
(21. mai - 20. júní) 5»
Viðskiptaviðræður sem þú tekur
þátt í taka enda í dag. Farðu
varlega ef þú tekst ferðalag á
hendur. Hlýddu umferðarreglun-
um í einu og öllu. íjármálavit
þitt er upp á sitt besta.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) HIS
Þú kannt að lenda upp á kant
við vin þinn núna, en samband
þitt við ástvini þína er í góðu
jafnvægi.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Deildu ekki við náinn ættingja
eða vin. Þú hefur góða yfírsýn
og áttar þig á hvemig þú átt að
bregðast við ákveðnum aðstæð-
um í vjðskiptum og nýta tækifær-
in sem best.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Ef þú kemst í uppnám núna dreg-
ur stórlega úr afköstum þínum
og þú getur ekki lokið því af sem
þú ætlaðir þér. Nú fara í hönd
góðir dagar í lífi þínu og ástvina
þinna. Verðu'deginum með fjöl-
skyldunni.
V°g
(23. sept. - 22. október) L'L
Þú hefur meira gaman af að vera
með fjölskyldunni núna en fara
út að skemmta þér. Eyðileggðu
ekki útivistarferð með rifrildi.
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Það getur orðið eitthvert uppnám
heima hjá þér fyrri hluta dags-
ins. Þú verður í skapi í kvöld til
að fara út að skemmta þér.
Sinntu skapandi viðfangsefnum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember)
Óþolinmæði getur komið í veg
fyrir að þú náir að Ijúka verkefni
sem þú hefur með höndum.
Hægðu á ferðinni ef þú ætiar að
skila af þér vönduðu verki. Jóla-
gjöfin sem þú átt eftir að kaupa
bíður enn í hillu einhverrar versl-
unarinnar.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Annaðhvort hættir þér til að
missa stjórn á þér eða þú eyðir
of miklu i dag. Farðu ekki út að
versla. Þú átt auðvelt með að
koma skoðunum þínum áleiðis til
annars fólks núna.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Viðræður sem fram fara í dag
snerta fjánrálahagsmuni þ[na.
Eitthvað sem fer úrskeiðis heima
kann að koma þér úr jafnvægi.
Sýndu öðrum í fjölskyldunni þol-
inmæði.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Jólastressið nær nú loksins tökum
á þér, en þú losar þig bráðlega
úr glímutökunum til að geta not-
ið hátíðarinnar í hópi fjölskyldu
og vina.
AFMÆLISBARNIÐ er metnað-
argam vinnuþjarkur. Stundum á
það þó i erfiðleikum með að sætta
innsæi sitt og hagsýni. Það fær
oft á tiðum góðar hugmyndir, en
þarf að læra að treysta betur á
þær. Það getur náð langt á öllum
sviðum sem tengjast hugsjónum
þess. Það hefureðlislægan áhuga
á almennri velferð fólks.
Stjórnuspána á að lesa sem
dœgradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staðreynda.
DYRAGLENS
HVAÐ
F/NUST
þétz
SKQ...MÆ.TT/ é&
Fyzsr spyerA Ht/oe)
y/a&ie érue etua \
L/TLA FgOSkyt'P
GRETTIR
TOMMI OG JENNI
TO/VtAA! X/ERSHJP /BFTJP ÞEG/)p
HANN UPPGÖ-nz/tR AE> t//Ð
SETTUAA Lt/U ‘A HENDU&iAtZ/
*> HONUA/L. '
LJÓSKA
SMÁFÓLK
aðeins einn ykkar
sykurpúðana, og
hann heldur á þeim
í kassa!
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Andstæðingarnir eru utan
hættu og fengu báðir tækifæri
til að ströggla á fyrsta þrepi.
En þögðu samt. Það bendir til
að spaðinn — veiki litur sóknar-
innar — skiptist 4—4 milli handa
þeirra.
Norður gefur: NS á hættu.
Vestur
♦ KD108
V10642
♦ 742
+ KG
♦ 953
VÁK8
♦ K5
♦ Á8642 Austur
♦ Á742
Suður
♦ G6
¥ G75
♦ ÁDG10983
♦ 5
VD93
♦ 6
♦ D10973
Vestur Norður Austur Suður
— 1 lauf Pass 1 tígull
Pass 1 grand Pass 3 tíglar
Pass 3 hjörtu Pass 4 tíglar
Pass Pass 5 tíglar Pass Pass
Útspil: spaðakóngur.
Suður hefði kannski átt að
segja 3 spaða við 3 hjörtum til
að bjóða makker upp á 3Gr. En
5 tíglar eru svo sem ágætis
geim, sem vinnast auðveldlega
ef laufið brotnar 4—3.
Vörnin spilar spaða þrisvar
og suður trompar. Spilar svo
laufí á ás og trompar lauf. Inn
á tígulkóng og trompar aftur
lauf. En nú hendir vestur spaða.
Ekki er þó öll nótti úti enn. Ef
austur á hjartadrottningu, má
vinna spilið með trompþvingun:
Vestur Norður ♦ - ¥ÁK8 ♦ - ♦ 86 Austur
♦ - ♦ -
¥ 10642 llllll ¥ D93
♦ - ♦ - Suður ♦ - ♦ - ♦ D10
¥ G75 ♦ DG ♦ -
Sagnhafi hendir hjarta
blindum í næst síðasta trompið
og austur er vamarlaus.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Þetta endatafl kom upp á
ólympíumótinu í viðureign alþjóð-
lega meistarans Ricardi (2.405)
og hollenska stórmeistarans Jero-
en Piket (2.495), sem hafði svart
og átti leik. Hvítur lék síðast 53.
b4-b5. Svar Pikets minnir á lausn
á skákdæmi.
53. - f4!, 54. Rd3 (Eftir 54. bxc6
- fxg3 vekur svartur óumflýjan-
Iega upp nýja drottningu með
skák og sama verður uppi á ten-
ingnum eftir 54. gxf4 - g3) 54.
- fxg3, 55. fxg3 - f2!, 56. Rxf2
- Bf3+, 57. Kd2 - He2+, 58.
Kd3 - Hxf2. Svartur hefur nú
unnið á mann og hvítur skömmu
síðar upp.
Hollendingar, sem svo óvænt
hrepptu bronzið á ólympíumótinu
í Saloniki 1988, voru ekki eins
sigursælir nú, þrátt fyrir að Jan
Timman, þeirra langsterkasti
skákmaður, hafí nú séð sér fært
að vera með. Þeir voru að vísu
jafnir íslendingum o.fl. að vinn-
ingum, en voru úrskurðaðir í 12.
sæti, því þeir tefldu ekki við sér-
lega sterkar þjóðir. Fyrirfram voru
þeir álitnir eiga fímmtu sterkustu
sveitina.