Morgunblaðið - 05.01.1991, Qupperneq 2
leer hawai. a'jOAaflAOUAJ gigajswuohom
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1991
Orrustuþotur sendar á vegum NATO til Tyrklands:
Akvörðun tek-,
in samhljóða af
fastafulltrúum
AKVÖRÐUN Atlantshafs-
bandalagsins (NATO), sem tek-
in var síðastliðinn miðvikudag,
um að senda fjörutíu herþotur
til Tyrklands, til að minnka
líkur á árás Iraka, markar viss
tímamót i sögu bandalagsins.
Var þetta í fyrsta skipti, frá
stofnun Atlantshafsbandalags-
ins árið 1949, sem slík beiðni
frá aðildarríki um hernaðarað-
stoð var tekin fyrir. Akvörðunin
var formlega tekin í varnará-
ætlunamefnd NATO og var hún
samhljóða.
Þorsteinn Ingólfsson, ráðuneyt-
isstjóri í utanríkisráðuneytinu,
sagði þetta mál hafa gengið fyrir
sig samkvæmt skipulagi og sátt-
mála Atlantshafsbandalagsins.
Fastafulltrúar ríkjanna kæmu
saman og fengju sína afstöðu að
heiman.
Hér á íslandi væri það utanrík-
isráðherra sem tæki ákvörðun um
afstöðu Islendinga enda mjög
Leystur frá
vinnuskyldu
meðan rann-
sókn fer fram
Lögregluþjónninn sem kærður
hefur verið vegna meintrar
hrottalegrar meðferðar við
handtöku, aðfaranótt 27. des-
ember sl. mun ekki mæta til
vinnu- meðan á rannsókn málsins
stendur, að sögn Guðmunds Guð-
jónssonar, yfirlögregluþjóns.
Guðmundur segir að í þessu fel-
ist ekki að lögregluþjónninn hafí
verið leystur frá störfum. Hann
haldi áfram launum sínum og rétt-
indum sem opinber starfsmaður.
„Síðan þegar rannsóknin er nægi-
lega vel á veg komin þá metum við
hvað gert verður út frá því sem hún
leiðir í ljós,“ segir Guðmundur.
Það er Rannsóknarlögreglan sem
sér um rannsókn málsins og segir
Guðmundur að hann hafí lagt
áherslu á það við hana að rannsókn-
inni yrði hraðað sem kostur væri.
Segist hann reikna með því að hún
muni ekki taka langan tíma.
skýrt samkvæmt stjórnskipun að
hann fari með þessi mál.
Sverrir Haukur Gurinlaugsson,
fastafulltrúi íslands hjá NATO,
sagði ákvörðunina hafa verið
tekna af varnaráætlunamefnd
Atlantshafsbandalagsins, sem allir
fastafulltrúar, nema Frakklands,
.eiga sæti í.
Var ákvörðunin tekin að höfðu
samráði við utanríkisráðherra að-
ildarríkja bandalagsins.
Hún var, eins og allar aðrar
ákvarðanir nefndarinnar, tekin
samhijóða.
AWACS-vélin frá NATO á Keflavíkurflugvelli í gær.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal.
Ný ratsjárvél til íslands
RATSJÁRVÉL af gerðinni E-3
Sentry AWACS í eigu Atlants-
hafsbandalagsins (NATO) er nú
komin til starfa á Keflavíkur-
flugvelli.
Kemur vélin í stað tveggja
bandarískra AWACS-véla sem
verið hafa á Keflavíkurflugvelli
undanfarin ár. Voru þær kallaðar
aftur til heimastöðvar sinnar,
Tinker-flugstöðvarinnar í Okla-
hóma í Bandaríkjunum, vegna
hugsanlegrar endurstaðsetningar
til Persaflóasvæðisins. Heimastöð
ratsjárvéla NATO, en þær em
alls átján talsins, er í Geilenkirch-
en í Þýskalandi.
Húsnæðisstofnun ríkisins:
Reíknað með eðlilegri af-
greiðslu lána á mánudag
Viðræður við Seðlabanka og ríkisstjórn um starfsemi stofnunarinnar út árið
LÁNVEITINGAR frá Húsnæðisstofnun ríkisins voru afgreiddar í
gær til veðdeildar Landsbankans samkvæmt lánsloforðum um út-
greiðslu lána eftir 5. janúar. Undanfarið hafa farið fram viðræður
milli ríkisstjórnarinnar, Seðlabanka og Húsnæðisstofnunar m.a. um
fjármögnun þeirra lána sem greiða á út á mánudag. Sigurður E.
Guðmundsson, framkvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar, sagði að verið
væri að reyna að finna heildarlausn til að tryggja eðlilega starfsemi
stofnunarinnar út árið. „Það þýðir að sú fyrirgreiðsla sem við þurf-
um liggi fyrir þegar við þurfum á henni að halda.“
Eins og fram kom í Morgunblað-
inu í gær tókst ekki að greiða niður
skuld Húsnæðisstofnunar við Seðla-
bankann um áramót, 800 til 1.000
milljór.ir króna, og ríkir óvissa innan
stofnunarinnar um fjárhaginn á
árinu. Aðspurður um hvort hugsan-
legt væri að afgreiðsla þeirra lána
sem eiga að koma til útgreiðslu á
frá og með mánudeginum tefðist
sagði Sigurður: „Ég á alls ekki von
á því en á mánudag sjáum við bet-
ur hvar við stöndum.“
„Við klárum okkar hlutí hér eins
og kerfið á að vinna. Síðan göngum
við út frá því að núna eftir helgina
þegar kemur að því að við eigum
að fara að greiða út þessi lán, sé
ríkisvaldið búið að tryggja Bygging-
arsjóði ríkisins fjármagn, svo að
hann geti staðið við skyldur sínar,“
sagði Haukur Sigurðsson forstöðu-
maður Byggingarsjóðs ríkisins í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Haukur Sigurðsson var spurður
hvort hætta væri á að afgreiðsla
lánanna bregðist. „Ég sé ekki annað
en að það sé tóm fíflska að hugsa
það til enda að fólk sem hefur láns-
loforð í höndunum fái ekki lánin.
Það er margbúið að lofa því á hinu
'pólitíska sviði,“ sagði hann.
Haukur sagði að í lánsloforði sé
sagt að eftir tiltekinn dag í mánuði
eigi að greiða út lán. „Það tryggir
okkur það að við eigum í rauninni
ekki að borga út peninginn fýrr en
eftir þennan tiltekna dag, en það
hefur þróast þannig að alltaf hefur
verið reynt að gera þetta sem næst
þessum degi og stundum fyrr,“
sagði hann. „Svo fremi að til hafi
verið fé, þá hefur verið reynt að
greiða þetta strax og ekki bíða.“
Haukur sagði að ástæða þess hve
tilkynningar eru seint á ferðinni nú
sé, að byggingarvísitalan, sem lán
eru miðuð við, hafi komið 19. des-.
ember síðastliðinn. Þann dag var
byijað að vinna lánveitingarnar og
síðan hafi ekki gefíst nema fjórir
heilir dagar fyrir áramót. „Þess
vegna erum við að ljúka við hana
núna, þanhig að það er ekkert óeðli-
legt í sjálfu sér þótt það hafi dreg-
ist aðeins fram í fyrstu dagana í
janúar að ganga frá lánveiting-
unni. Þetta liggur hins vegar klárt
fýrir frá og með deginum í dag,
þannig að eftir helgina eru lánveit-
ingar klárar og þá verður tekið við
gögnum niðri í veðdeild. Ef allt er
í lagi með peningamál og þess hátt-
ar, þá fara lánveitingar væntanlega
af stað.“
Hæstiréttur:
Morgunblaöið/Ámi Sæberg
Samlestur fyrir Pétur Gaut
Á þriðja tug leikara og annarra listamanna kom saman í æfingasal
Þjóðleikhússins á fimmtudaginn til æfinga á Pétri Gaut eftir Henrik
Ibsen. Það er Þórhildur Þorleifsdóttir sem leikstýrir verkinu en með
hlutverk Péturs fara þeir Amar Jónsson og Ingvar E. Sigurðsson.
Kristbjörg Kjeld leikur Ásu, móður Péturs og Steinunn Olína Þor-
steinsdóttir leikur Sólveigu. Pétur Gautur verður opnunarsýning Þjóð-
leikhússins 15. mars næstkomandi eftir endurbætur á stóra salnum.
Guðrún Erlends-
dóttir kjörinn for-
seti Hæstaréttar
Fyrsta konan til að gegna því emb-
ætti á Norðurlöndunum
GUÐRÚN Erlendsdóttir hæsta-
réttardómari hefur verið kjörin
Bolungarvík:
Minningarat-
höfn frestað
Bplungarvík.
Minningarathöfninni um þá Vagn
Margeir Hrólfsson og Gunnar Örn
Svavarsson sem fórust er þá tók út
af vélbátnum Hauki frá Bolungarvík
þann 18. desember síðastliðinn hefur
verið frestað um nokkra daga. Minn-
ingarathöfnin átti að fara fram frá
Hólskirkju í dag en vegna veðurs
hafa ættingjar og vinir hinna látnu
ekki komist til Bolungarvíkur.
Gunnar
forseti Hæstaréttar íslands til
tveggja ára frá 1. janúar 1991
að telja. Hún mun vera fyrsta
konan á Norðurlöndum sem
gegnir embætti forseta hæsta-
réttar.
Guðrún var fyrst sett dómari
við Hæstarétt 1982-1983 og skip-
uð dómari 1. júlí 1986. Hún sagði
við Morgunblaðið að hún væri eina
konan sem skipuð hefði verið í
embætti hæstaréttardómara á ís-
landi og þar af leiðandi er hún nu
fyrsta konan til að verða kjörinn
forseti Hæstaréttar. Hún sagði að
eftir því sem hún vissi best væri
hún einnig fyrsta konan á Norður-
löndunum sem gegndi embætti
forseta Hæstaréttar.
Þess má geta að forseti Hæsta-
réttar er einn af þremur handhöf-
Guðrún Erlendsdóttír
um forsetavalds í fjarveru forseta
íslands. Auk Vigdísar Finnboga-
dóttur, forseta íslands, eru því nú
tveir af þremur handhöfum for-
setavaldsins konur, þær Guðrún
Erlendsdóttir, forseti Hæstaréttar,
og Guðrún Helgadóttir, forseti
Sameinaðs þings. Þriðji handhafi
forsetavalds í fjarveru forseta er
forsætisráðherra.
Varaforseti til tveggja ára frá
sama tíma var kjörinn Bjarni K.
Bjarnason hæstaréttardóman.