Morgunblaðið - 05.01.1991, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARÐAGUR 5.'JANUAR 1991'
33
I
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
I
I
I
1
I
Vettlingar
Hvítir ullarvettlingar með
doppum og mynsturbekk töpuðust
fyrir sköm,mu við Laugaveg eða
í einhverri verslun þar. Finnandi
vinsamlegast hringi í síma
675711.
Kettlingur
Átta vikna kettlingur er í óskil-
um. Hann hefur hvítar hosur á
öllum fótum, er grár á baki og
með gráa rófu. Hvítur á kvið með
dökkt trýni. Fannst á Týsgötu á
miðvikudag. Upplýsingar á Dýr-
aspítalanum í síma 674020 eða
74549.
Kettlingar
Kettlingar fást gefins. Upplýs-
ingar í síma 17701.
Þessir hringdu ...
Góð mynd
J.S. hringdi:
„Eg vil þakka Sjónvarpinu fyrir
að sýna hina afbragðs góðu bíó-
mynd Pelle Sigurvegara um jólin.
Þessi mynd er Dönum til sóma
því hún er á heimsmælikvarða.
Sjónvarpið ætti að halda þeirri
stefnu að sýna slíkar stórmyndir
um hátíðar."
Hringur
Gullhringur með dökkbláum
steini umkringdum litlum demönt-
um tapaðist viku fyrir jól. Hring-
urinn var í blárri öskju. Finnandi
er vinsamlegast beðinn að hringja
í síma 672093. Fundarlaun.
TENÓR OG BASSI
SAMKÓR KÓPAVOGS
Samkór Kópavogs vantar karlmenn í ofan-
greindar raddir. Æfum í Digranesskóla á mánu-
dagskvöldum kl. 20.30-23.00.
Utanlandsferð fyrirhuguð með vorinu.
Upplýsingar gefa Ósk í síma 34369 og Ágústa
31857.
Svissneskur
hótel- og ferðamálaskóli
1 árs nám í hótelrekstri. Lýkur með prófskírteini.
2 ára nám í hótelstjórnun. Lýkur með prófskírteini.
Námið er viðurkennt af HCIMA.
Námið fæst metið í bandarískum og evrópskum há-
skólum.
1 árs nám í ferðamálafræði. Lýkur með prófskírteini.
Námskeið i almennum ferðaskrifstofustörfum.
IATA réttindi.
HOSTR
32árareynsla
SEH réttindi.
Skrifið til:
HOSTA HOTEL AND TOURISM SCHOOL,
1854 D Leysin, Switzerland.
Sími: 9041 -25-3426íl - Fax: 9041-25-341821.
I
4
Til verndar lítilmagnanum
Til Velvakanda.
Eg hvet fólk til að lesa greinina
„Hver getur hjálpað?" sem birtist í
Velvakanda 28. des. sl. Hefst hún
á þessum orðum: „Hvers konar
þjóðfélag er þetta orðið?“ Greinina
skrifar einstæð móðir þriggja ungra
barna. Er hið elsta fimm ára og
hefur átt við erfiðan sjúkdóm að
stríða. Hún er með skuldir upp á
tæpa milljón og er meiri hlutinn
[ögfræðikostnaður (hún er fráskil-
in). Um þann kostnað skrifar hún:
>» — þegar ég leita eftir niðurfell-
ingu hjá lögfræðingum þá er ekki
£ um mikinn skilning að ræða þar.
Þeir vilja bara fá sína okurvexti.
Meira að segja er gengið svo langt
að taka af manni bíldrusluna sem
er einskis virði en kemur manni þó
á milli staða. Hvemig er þetta
hægt og hver getur hjálpað?"
Unga konan vill frekar vera
heima með börnum sínum en vinna
úti sem er afar eðlilegt. í meðlag
og mæðralaun fær hún kr. 40.485
og í barnaörorkubætur kr, 8.386,
samtals kr. 48.781. Hún spyr hvers
vegna félagsmálakerfið hlaupi ekki
undir bagga með fólki sem þurfi á
því að halda. Vonandi gerir það það.
Ber ekki löggjafanum að meta
M heimaumönnun barna til fjár svo
™ fólk, sem er að vinna þjóðfélaginu
annað eins gagn og gott foreldri
æ gerir, þurfi ekki að ganga um með
betlistaf? Alþingismenn hlupu upp
til handa og fóta og flýttu sér að
4 samþykkja rýmkun fóstureyðinga-
™ laga 1975. Þeir voru ekki alveg
jafnfljótir að meta það við fólk að
það nenni áð eignast börn. Samt
er framtíð þjóðarinnar undir því
komin að börnin fái að fæðast.
Sex mánaða fæðingarorlof og
jafnvel þótt í níu mánuði væri, er
of skammvinn hjálp fyrir félitla
konu með þijú ung börn, ég tala
ekki um sé eitt þeirra veikt. Uppeld-
isstörf á heimilum verður að meta
til fjár, Ef við viljum lifa áfram í
landinu þá verðum við að krefjast
þess. Kona, sem er heima hjá ung-
um börnum sínum, er líklegri til
að eignast 3-4 (eða fleiri) börn en
ef hún neyðist til að starfa utan
heimilis t.d. allan daginn, sem auk
allrar óhamingjunnar sem það
skapar, er hreinasti þrældómur. Það
er líka miklu ódýrara fyrir þjóðfé-
lagið að veita fé í einhverri mynd
til ungra fjölskyldna en að vera
sífellt að reisa rándýr dagvistar-
heimili sem mikið kostar að reka.
Er það eitthvert hámark ham-
ingjunnar fyrir lítil börn að vera
rifin upp úr rúmum sínum fyrir all-
ar aldir á morgnana og þurfa að
skipta á móðurfaðminum fyrir nær-
veru „gervimömmu“, kannski einn-
ar í dag og annarrar á morgun?
Veitir slíkt öryggiskennd?
Þökk fyrir skrifm, Björk, þú ert
greinilega mikil mannkostakona og
góð móðir. Guð blessi þig og börnin
þín og gefi að fljótt og vel leysist
úr málum ykkar. Þess sama óska
ég öðrum sem í líkum sporum
standa. Ég vildi ég hefði vald til
að hjálpa ykkur.
Rannveig Tryggvadóttir
Tilraunastarfsemi i
húsnæðismálum
Til Velvakanda.
Ég las í Morgunblaðinu miðviku-
daginn 28. nóvember grein eftir tvo
virðulega og framtakssama menn
varðandi hið nýja húsbréfakerfi. Ég
er sammála þeim um margt en
ekki allt. Það er rétt að stöðva til-
raunastarfsemi í húsnæðismálum
íslendinga og þörf á að menn geri
eins konar þjóðarsátt, svo notað sé
vinsælt orð, um þetta mál. Þeir fé-
lagar telja það orka tvímælis að
opinbert húsnæðiskerfi taki þátt í
endurfjármögnun á eldra húsnæði.
Þessu er ég ósammála. Á meðan
stór hluti húsnæðis í landinu er
nánast skuldlaus eftir óðaverðbólgu
undanfarinna ára verður að koma
til endurfjármögnun frá hinu opin-
bera.
Heilræði
4
Endurskinsmerki
stórauka öryggi í umferftinni.
Um annað atriði er ég algjörlega
ósammála og það er varðandi að-
stoð við þá sem eiga í greiðsluerfið-
leikum. Mig undrar það skilnings-
leysi sem ríkir í þjóðfélaginu gagn-
vart fólki í þessari stöðu. Það er
staðreynd að neyðaraðstoð þarf að
veita strax. Ég gæti trúað að í flest-
um tilfellum sé um að ræða mjög
auðleysan vanda, ef gripið er til
nógu stórtækra aðgerða. Stór hluti
þessa fólks skilst mér að skuldi um
3,5 miljónir króna, helming í lánum
til 10-15 ára og 'restina í skamm-
tímalánum til 2-4 ára. Ef þessu
fólki væri gert kleift að breyta
skuldum sinum yfir í húsbréf (það
er greiða upp allar sínar skuldir
með húsbréfum) lækkaði greiðslu-
byrðin verulega. Það er einungis
gálgafrestur að lána fólki 600.000
krónur þegar greiðslubyrði er jafn
þung og raun ber vitni. Fólk í þess-
ari stöðu þarf að fá tækifæri til að
endurfjármagna kaup sín frá
grunni. Ástæður fyrir ógöngum
þess geta verið margar og ein gæti
verið sífelldur hringlandaháttur i
húsnæðismálum þjóðarinnar. Ef
húsnæðisbréfakerfið er ekki opnað
fyrir þessu fólki mun það snúa sér
að því í stórum hópum að selja eign-
ir sínar (það er að segja þeir sem
eru svo heppnir að búa á svæðum
þar sem húsnæði er seljanlegt), t.d.
4ra herb. íbúð til þess eins að kaupa
sambærilega eign og komast þann-
ig inn í húsbréfakerfið. Þá græða
fasteignasalar en allir aðrir tapa.
Ég skora á þingmenn íslands að
styðja félagsmálaráðherra í þessu
máli. Þetta er sanngirnismál.
Örn
HENTUDOS TIL
HJÁLPAR!
Á laugardögum söfnum við einnota
umbúðum á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Hringið í síma 621390 eða 23190 á milli
kl. 11.00 og 15.00 og við sækjum.
ÞJÓÐÞRIF
LANDSSAMBAND BANDALAQ ISLENSKRA SKÁTA
HJÁLPAnSVEITA
SKÁTA
Dósakúlur um allan bæ
HJÁLPARSTOFNUN
KIRKJUNNAR
Skemmtilegt
kolaport í dag
Opidkl. 10-16
KOLA PORTIÐ
M^RKa-ÐXíOR<r
... undir seðlabunkanum.