Morgunblaðið - 05.01.1991, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞROTTIR
LAUGARDAGUR 5. JANUAR 1991
35
HANDKNATTLEIKUR
HSI tilkynnti AKreð
ekki í heimsliðið
„Við viljum vera A-þjóð, en starfshættir eru eins og við séum C-þjóð,“ segir Alfreð
Gíslason, sem leikurekki með heimsliðinu gegn Norðurlandaúrvalinu
ALFREÐ Gíslason mun ekki
leika með héimsliðinu í hand-
knattleik gegn Norðurlanda-
úrvalinu i Stokkhólmi 8. jan-
úar og í Osló 9. janúar eins
og hann var valinn til. „Þegar
ég hafði samband við skrif-
stofu alþjóða handknattleiks-
sambandsins til að spyrjast
fyrir hvernig ég ætti að kom-
ast frá Spáni t leikina, var
mér sagt að ég væri ekki leng-
ur í liðinu vegna þess að
Handknattleikssamband ís-
land hafi ekki svarað útnefn-
ingunni og t ilkynnt mig í leik-
ina,“ sagði Alfreð í viðtali við
Morgunblaðið ígær.
Það var mikill heiður fyrir mig
að vera valinn til að keppa
með heimsliðinu, en aftur á móti
er það sárt að geta ekki leikið
með heimsliðinu vegna trassa-
skaps hjá HSÍ. Við viljum vera
A-þjóð, en starfshættir eru eins
og við- séum C-þjóð. Ég hugsa
ekki hlítt til HSÍ og forráðamenn
sambandsins geta sleppt þvi að
hringja í mig,“ sagði Alfreð.
Alfreð beið rólegur eftir kaliinu
frá IHF og sænska handknatt-
leikssambandinu, en þegar það
kom ekki hringdi hann til alþjóða
handknattleikssambandsins (IHF)
og fékk þá það svar að bóið væri
að kalia á varamann í hans stað.
HSÍ átti að staðfesta að Alfreð
kæmi í leikina fyrir 26. október.
Þess má geta að Þorgils Óttar
Mathiesen var útnefndur til að
leika með Norðurlandaúrvaiinu,
en hann kemst ekki tll að ieika.
Það verður því enginn leikmaður
frá íslandi í sviðsljósinu þegar
heimsliðið og Norðurlandaúrvaiið
ieika'í Stokkhólmi og Osló.
„Það er sárt að geta ekki leikið með heimsliðinu vegna trassaskaps hjá
HSÍ,“ segir Aifreð Gíslason.
íþróttir
helgarinnar
Körfuknattleikur
Úrvalsdeild
Sunnudagur:
Ak. Þór-UMFG...........20:00
Hlíðarendi Valur-UMFT.20:00
Höllin KR-Haukar......20:00
Sejjask. ÍR-UMFN.......20:00
1. deild karla
Laugardagur:
Borgames Skallagr. - Víkv.kl. 14:00
Handknattleikur
1. deild kvenna
Laugardagur:
Höllin Fram-ÍBV...........
2. deild karla
Laugardagur:
Ak. Þór-UBK...............
Höllin ÍS-ÍH..............
Varmá UMFA-UMFN...........
Sunnudagur:
Húsavík Völsungur - UBK...
Keflavík ÍBK-HK...........
2. deild kvenna
Laugardagur:
Strandgata Haukar - KR....
....kl. 14:00
..kl. 14:00
..kl. 15:15
..kl. 15.30
..kl. 14:00
..kl. 14:00
...kl. 15:15
íþróttir fatlaðra
Nýársmót fatlaðra barna og unglinga fer
fram á morgun, sunnudag, kl. 15:00 í Sund-
höll Reykjavíkur. Keppt er í flokkum hreyfí-
hamlaðra, þroskaheftra, blindra/sjón-
skertra og heymarlausra og em þátttakend-
ur böm og unglingar fædd 1974 og síðar.
Ýmsar úppákomur verða í tengslum við
mótið, m.a. mun blindur og einhentur harm-
ónikkuleikari sjá um tónlist, sýnt verður
dýfingaratriði og skátar minna keppendur
og gesti á þrettándann. Heiðursgestur á
mótinu verður Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra.
Borðtennis
Borðtennisdeiid KR og Lýsi h.f. halda
hið árlega Lýsismót, sem er punktamót i
karla og kvennaflokki í dag iaugardag kl.
11:00. Mótið fer fram í Héðinshúsinu við
Seljasveg og íþróttahúsi KR.
Blak
1 dag, laugardag, fara fram tveir leikur
í 1. deild karla og einn leikur í 1. deild
kvenna í blaki. I karlaflokki leika Völsung-
ur og KA ki. 14:00 á Húsavík og á sama
tíma leika IS og HK í Hagaskóla. í 1. deild
kvenna leika IS og HK i Hagaskóla kl.
15:15.
Félagslíf
Knattspymufélagið Valur er 80 ára á þessu
ári og f tilefni þess munu félagar Vals ganga
blysför frá Háteigskirlqu að þrettánda-
brennu á Valsvelli á morgun, sunnudag.
Safnast verður saman við Háteigskirkju kl.
17:00. í fararbroddi verður Lúðrasveit
Verkalýðsins og fyrirliðar allra flokka í
knattspyrnu, handbolta og körfubolta.
Hjálparsveit skáta heldur stórbrotna flug-
eldasýningu á Valssvæðinu.
Badminton
Unglingameistaramót TBR í badminton fer
fram í TBR-húsinu. Keppnin fer fram á
laugardag og sunnudag.
SUND / HM I ASTRALIU
^ Reuler
Fu Mingzia frá_ Kína vann fyrstu gullverðlaunin á heimsmeistaramótinu sem
hófst í Perth í Ástralíu í gær. Hér er hún í einu af stökkum sínum af 10
metra palli.
Tólf ára kínversk stúlka
vann fyrstu gullverðlaunin
FU Mingzia frá Kína, sem er
aðeins 12 ára gömul, vann
fyrstu gullverðlaunin á heims-
meistaramötinu t sundi sem
hófst í Perth í Ástralíu í gær
er hún sigraði í dýfingum
kvenna. Hun er yngsti gullverð-
launahafinn í 18 ára sögu
heimsmeistarakeppninnar.
Elen Míroshína frá Sovétríkjun-
um varð önnur og Wendy Will-
iams, Bandarikjunum, þriðja.
Fu Mingxia, sem vann einnig gull-
verðlaun ,á Friðarleikunum í Se-
attle í ágúst, átti erfitt uppdráttar í
undankeppninni í stökkunum af 10.
metra pallinum en í 12-manna úrslit-
um í gær voru æfinga hennar nánast
fullkomnar, hlaut yfir 60 stig í fjórum
af átta stökkum. Ólympíumeistarinn,
Xu Yanmei frá Kína, hafði foiystu í
undankeppninni en náði sér ekki á
strik í úrslitunum og hafnaði í 4. sæti.
Elena Míroshína frá Sovétríkjunum,
sem er Evrópumeistari, náði hæstu
einkunn fyrir einstakt stökk í gær
72,00 stig. Hún hafnaði í öðru sæti
eftir að hafa verið í fimmta sæti lengst
af. Bandaríska stúlkan Wendy Willi-
iams, sem vann brohsverðlaun á
Ólympíuleikunum í Seoul, varð í þirðja
sæti.
Fu Mingxia, sem er aðéins 144 sm
hæð og vegur aðeins 35 kg, sýndi og
sannaði að sigurinn á Friðarleikunum
var engin tilviljun. Hún hlaut samtals
426,51 stig og var 24,36 stigum á
undan Míroshínii. „Þetta er besti ár-
angur minn í keppni. Ég hugsaði ekki
um guHverðlaunin fyrir keppnina,
heldur aðeins að gera mitt besta. Eg
bjóst ekki við að geta unnið Xu Yan-
mei,“ sagði Fu.
Fu ákvað að snúa sér að dýfíngum
fyrir fjórum árum, þá átta ára, er
henni var sagt að hún væri orðin of
gömul til að ná langt í fimleikum.
„Draumurinn er að verað Ólympíu-
meistari," sagði Fu, sem verður 14
ára’er Ólympíuleikarnir í Bareelona
fara fram 1992.
FOLK
■ ALFREÐ Gíslason skoraði sjö
mörk þegar Bidasoa vann Valla-
dolid, 23:20, í æfingamóti á Spáni
á miðvikudagskvöld.
■ WA YNE Gretzky skoraði 700.
mark sitt í bandarísku NHL-deild-
inni í íshokkí í fyrrakvöld. Hann
gerði markið í leik Los Angeles
Kings gegn New York Islander í
fyrsta leikhluta. Þetta var jafnframt
23. mark hans á tímabilinu. Gorie
Howe á metið í deildinni, en hann
gerði alls 801 mark. Aðeins tveir
aðrir leikmenn, Marcel Dionne og
Phil Esposito, hafa gert meira en
700 mörk í deildinni.
IÞROTTIR
íþróttamaður
ársins 1990 *
útnefndur
á þriðjudag
ar
Iþróttamaður ársins 1990 verður
útnefndur á vegum Samtaka
íþróttafréttamanna við hátíðlega
athöfn að á Hótel Loftleiðum á
þriðjudag, 8. janúar kl. 20:00.
Samtök íþróttafréttamanna hafa^
staðið að útnefningu íþróttamanns
ársins undanfarin 34 ár. Vegsemd-
inni fyigir glæsilegur verðlauna-
gripur til varðveislu í eitt ár. Gripur-
inn verður til sýnis í innanlandsaf-
greiðslu Flugleiða á Reykjavíkur-
flugvelli fram að kjörinu ásamt
nánari upplýsmgum um kjörið.
Iþróttamaður ársins var fyrst út-
nefndur fyrir árið 1956. Alfreð
Gíslason, handknattleiksmaður var
íþróttamaður ársins 1989.
Eftirtaldir hafa hlotið viðurkenn-
inguna Iþróttamaður ársins:
1956 - Vilhjálmur Einarsson
1957 - Vilhjálmur Einarsson
1958 - Vilhjálmur Einarsson
1959 - Valbjörn Þorláksson
1960 - Vilhjálmur Einarsson
1961 - Vilhjálmur Einarsson
1962 - Guðmundur Gíslason
1963 - Jón Þ. Óiafsson
1964 - Sigríður Sigurðardóttir
1965 - Valbjörn Þorláksson
1966 - Kolbeinn Pálsson
1967 - Guðmundur Hermannsson
1968 - Geir Hallsteinsson
1969 - Guðmundur Gíslason
1970 - Erlendur Valdimarsson
1971 - Hjalti Einarsson
1972 - Guðjón Guðmundsson
1973 - Guðni Kjartansson
1974 - Ásgeir Sigurvinsson
1975 - Jóhannes Eðvaldsson
1976 - Hreinn Halldórsson
1977 - Hreinn Halldórsson
1978 - Skúli Óskarsson
1979 - Hreinn Halldórsson
1980 - Skúli Óskarsson
1981 - Jón Páll Sigmarsson
1982 - Óskar Jakobsson
1983 - Einar Vilhjálmsson
1984 - Ásgeir Sigurvinsson
1985 - Einar Vilhjálmsson
1986 - Eðvarð Þór Eðvarðsson
1987 - Arnór Guðjohnsen
1988 - Einar Vilhjálmsson
1989 - Alfreð Gíslason
1990 - ???????????
KORFUKNATTLEIKUR
Dan Kennard aftur með Þór:
Evans er ekki kom-
inn úrjólafríi
DAN Kennard, sem lék með
Þór sl. keppnistfmabil, er
kominn aftur til Akureyrar og
verður hann löglegur þegar
Þórsarar fá Grindvíkinga í
heimsökn annað kvöld kl. 20.
Þórsarar kölluðu í Kennard
eftir að Cedric Evens, sem ték
með Þór fyrir áramót, hefur
ekki iátið sjá sig og þá hafa
Þórsarar ekki náð sambandi
við hann.
Urvalsdeildin hefst á ný annað
kvöld og verða þá fjórir leik-
ir. KR-ingar fá Hauka í heimsókn
í Laugardalshöliina og leikur nýr
Bandaríkjamaður með Hafnar-
fjarðarliðinu. Það er Damon Van-
ce,_ sem er 2,06 m risi.
ÍR-ingar hafa einnig fengið
nýjan leikmann frá Bandaríkjun-
um. Það er Frank Brooker, sem
er 1,83 m á hæð. Hann tekur
stöðu Douglas Shouse, sem var
Dan Kennard leikur á nv með Þór.
látinn fara vegna _þess hvað hann
var leiðinlegur. IR leikur gegn
Njarðvík. Fjórði leikurinn verður
viðureign Vals og Tindastóls að
Hlíðarenda.