Morgunblaðið - 05.01.1991, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 05.01.1991, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1991 STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) a* Skyldu- og ábyrgðartilfmn- ingin hvetur hrútinn til dáða núna. Þó að hann sé vel á verði gætu ýmis smáatriði farið fram hjá honum í dag. Naut (20. apríl - 20. maí) Það er ekkert vit í því fyrir nautið að eyða tíma í að kvarta yfir smámunum. Það velur að vera með sínum nán- ustu í dag. Tvíburar (21. maí - 20. júní) Þetta er rétti dagurinn ef tvíburinn ætlar að látahendur standa fram úr ermum heima fyrir. Nú er enn fremur lag til að hyggja að heimiiisbók- haldinu. Krabbi (21. júní - 22. júlf) >“$8 Það stoðar krabbann ekkert að fara í fýlu ef ætlun hans er að njóta stuðnings sam- starfsmannanna. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Ljónið virðist vera á réttri leið með verkefni sem það hefur með höndum og leggur metn- að sinn í að Ijúka því núna. Meyja (23. ágúst - 22. september) 4* Meyjan kann tökin á smámun- unum í daglegu amstri, en henni hættir til að gera úlf- alda úr mýflugu. Hún ætti að einbeita sér að rómantíkinni núna. Vog (23. sept. - 22. október) Vogin reynir nú allt hvað hún getur að koma því í verk sem varð út undan fyrir hátíðam- ar. Heimilið er miðpunkturinn í lífi hennar um þessar mund- ir. Sporódreki (23. okt. - 21. nóvember) Sporðdrekinn gleðst yfir að geta gert vini sínum greiða núna, en smálegur skoðanaá- greiningur getur komið upp í dag út af peningamálum. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) & Bogmaðurinn stendur frammi fyrir einhveiju vandamáli núna. Hann ætti að setjast niður og hugsa málið og treysta síðan innsæi sínu. Steingeit (22. des. - 19. janúar) m Steingeitinni finnst hún þurfa að endurgjalda heimsókn í dag. Ferðalag er á dagskránni hjá henni og hún er ósam- mála ráðgjafa sem hún leitar til. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) Vatnsberinn er nú í óða önn að skoða peningamáh sín og koma bókhaldinu í lag. Hann talar við einhvem sem skuldar honum peninga eða greiða. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) *£* Fiskurinn gengur af vinum sínum dauðum úr leiðindum ef hann þrástagast á sömu vandamálunum æ ofan í æ. Þó gerir hann rétt í því að blanda geði við fólk. Stjörnusþána á að lesa sem » dægradvöl. Spár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni visindalegra staðreynda. DÝRAGLENS TOMMI OG JENNI FERDINAND ■■ SMAFOLK Ég held að þú sért ekki hinn raunverulegi jóla- sveinn.. IFYOURETHE REAL5ANTA, WHERE ARE YOUR H6LP6R5? /2-23 Ef þú ert hinn sanni jóla- sveinn, hvar eru þá hjálp- endur þínir? Hjálp, hýálp, hjálp. V THAT'5 THE DUM0E5T THIN6 l‘VE EVER 5EEN! WH0CARE5? MERRV CHRI5TMA5, 5WEETIE' OJOOF, W00F, UJOOF' n § Þetta er það heimskulegasta sem ég hef séð! Hveijum stendur ekki á sama? Gleði- leg jól, ljúfan! Voff, voff, voff! BRIDS Umsjón: Guðmundur Sv. Hermannsson Þetta spil virtist vera frekar einfalt til vinnings, þrátt fyrir slæma tromplegu. En sagnhafi komst að því að fljótfæmi borg- ar sig ekki. Norður Vestur ♦ ÁK10 VD972 ♦ 92 + G765 V 843 ♦ ÁK85 ♦ 103 Suður 32 VÁKG1065 ♦ 104 ♦ ÁD8 Austur ♦ D854 y- ♦ DG763 ♦ K942 Vestur Norður Austur Suður — — — 1 hjarta pass 1 spaði pass 3 hjörtu pass 4 hjörtu a. pass Vestur spilaði út laufafimm- inu og suður tók kóng austurs méð ásnum. Samningurinn var ömggur ef hjartað lá 2-2 eða 3-1 svo suður lagði næst niður hjartaás og fékk ótíðindin þegar austur henti tígli. Þrátt fyrir þetta gat suður talið 10 slagi með því að trompa lauf í borði, svo hann tók næst laufadrottningu og trompaði - lauf. Síðan spilaði hann hjarta á ás og hjartagosanum á drottn- ingu vesturs. En þegar vestur spilaði nú tígulníunni sá sagnhafi skyndi- lega að hætta var á ferðum. Hann tók með ásnum og spilaði spaða en vestur tók slaginn með kóng og spilaði meiri tígli. Suður spilaði aftur spaða, en austur hoppaði upp með drottninguna og spilaði tígli, og bjó þannig til fjórða slag vamarinnar á hjarta- níu vesturs. Vömin sýndi góð tilþrif í þessu spili og átti því skilið að uppskera vel. En sagnhafi gat komið í veg fyrir þetta með því að spila sjálfur spaða áður en hann fór af stað með laufa- trompunina. Ef vörnin spilar tígli, getur sagnhafi spilað öðr- um spaða, og þegar vestur á endanum fær á hjartadrottning- una getur hann ekki komið austri inn til að spila þriðja tíglinum. SKAK Umsjón Margeir Pétursson Færeyingar komu mjög á óvart í upphafi ólympíumótsins, náðu m.a. jafntefli við stórmeistarasveit Rúmena. Á þriðja borði vann Jens Chr. Ilansen snemma mann af alþjóðlega meistaranum Ionescu (2.440) og lauk skákinni síðan laglega: 31. Hh8 - Hdl (Eftir 31. - Kxh8 32. Dh6+ - Kg8 33. He8 væri Rúmeninn mát) 32. Dh6-i— Kf6 33. Hhe8 og svartur gafst upp, því hann á enga vöm við hótuninni Dh8+ sem leiðir til máts eðá drottningartaps. Á fyrsta borði náði John Rödgaard jafntefli á tapað tafl gegn hinum kunna stórmeistara Gheorghiu, á öðru borði tapaði Bogi Ziska fyrir Marin, en á því flórða náði Tor- bjom Thomsen jafntefli við Ghinda. Nokkru síðar klipu frænd- ur vorir einnig tvo vinninga af Belgum og vom framan af mótinu með svipaða vinningatölu og hinar Norðurlandaþjóðimar. En því mið- ur brást þeim úthaldið og Færey- íngar enduðu í 78. sæti. Munaði þar mestu um 0-4 tap fyrir Dóm- iníkanska lýðveldinu í 12. umferð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.