Morgunblaðið - 05.01.1991, Side 21

Morgunblaðið - 05.01.1991, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1991 21 Starfsmenn Landsvirkjunar vinna við viðgerð á Laxárlínu. Norðanáhlaupið: Morgunblaðið/Rúnar Þór Linan frá Laxárvirkjun til Akureyrar brotnaði á 20 stöðum. Þessi brotna staurastæða er rétt innan við Akureyri. Annar staurinn tvíbrotnaði og lá efri hluti hans í tveimur pörtum á jörðinni. Vatnslaust varð hjá Hitaveitunni VATNSLAUST varð hjá Hitaveitu Akureyrar í gær I kjölfar þess að lína frá Akureyri inn að Hrafnagili og að Laugalandi slitnaði vegna ísingar. Varalína sem flytur rafmagn um hluta Eyjafjallasveit- ar hafði bilað áður, þannig að hitaveitan hafði ekki aðgang að raf- magni mestan part gærdagsins. Norðanáhlaupið stóð enn í gær og var véðrið síst betra en í fyrradag. Flugi var aflýst síðdegis og biðu tæplega 800 manns eftir flugi frá Akureyri með Flugleiðum suður. Viðgerðarflokkar á vegum Rafmagnsveitu Akureyrar og RARIK voru að störfum víða og voru verkefnin ærin. Franz Árnason veitustjóri sagði að bilunar hefði orðið vart á línunni frá Akureyri að Laugalandi um kl. 21.30 í fyrrakvöld og síðan aftur um kl. 01.30 ffyrrinótt, en í gær- morgun kom í ljós að línan hafði slitnað. Varalína, sem liggur frá Laugalandi og út gamla Onguls- staðahreppinn, var líka biluð. Ein- ungis var hægt að veita vatni til Fjórðungssjúkrahússins og Dvalar- heimilisins Hlíð auk nokkurra húsa. Viðgerð á línunni lauk síðdegis og var byrjað á að dæla vatni í tank við dælustöðina við Þórunnar- stræti, en um kl. 18.00 í gærkvöld var byijað að veita vatni á bæjar- kerfið. Franz sagði að þau hús sem lengst hefðu verið án hitaveitu í gær, hefðu ekki fengið heitt vatn í 12 tíma. „Við munum fylgjast grannt með þessari línu í nótt og vonum auðvitað að ekki komi til frekari óþæginda,“ sagði Franz. Dagvistarheimili á vegum bæjar- ins voru lokuð eftir hádegi í gær vegna kulda og einnig varð ekkert úr skólahaldi í bænum af sömu sökum. Þá voru gæsluvellir einnig lokaðir. Viðgerðarflokkar á vegum Raf- veitu Akureyrar voru að störfum í landi bæjarins en þar voru víða brotnir rafmagnsstaurar. Jónas Egilsson hjá rafveitunni sagði ástandið hefði verið mjög slæmt í gær, ísing mikil og menn vart haft undan að bijóta af. Rafmagnlaust var á'nokkrum stöðum í húsum sunnan við bæinn og nokkrum húsum í Glerárhverfi. Auk þess sem ekkert rafmagn var á Akureyrar- flugvelli, en þar var notast við vara- rafstöð að hluta. Jónas bjóst við að menn yrðu að störfum fram eftir nóttu. Arnar Sigtýsson hjá RARIK sagði ástandið síst skárra í gær en það var í fyrradag. Víða væri rafmagnslaust í Eyjafirði og austur um í Suður-Þingeyjarsýslu. Hann sagði að áhersla hefði verið lögð á það í gær að koma hitaveitu Akur- eyrar inn og einnig hefði komist rafmagn á að hluta í Hörgárdal. Ekkert rafmagn var frá Svalbarðs- strönd út í Grýtubakkahrepp og á Grenivík var rafmagnslaust. Þá var einnig rafmagnslaust í Eyjafjarðar- sveit en það svæði hefur verið án rafmagns í sólarhring. Mun meiri bilun var á Húsavíkurlínu en áður hafði verið talið að sögn Arnars og sagði hann að viðgerð tæki lang- an tíma. Flugi var aflýst síðdegis í gær og biðu tæplega 800 manns eftir flugi suður með Flugleiðum. Flestir vegir í nágrenni Akureyrar voru mokaðir í gær. En hjá vegaeftirliti fengust þær upplýsingar að skaf- renningur væri í Víkurskarði og Öxnadalsheiði þannig að eins væri víst að vegir tepptust aftur. * Oánægja með breytta ferðaáætlun Eyjafjarðarfeijunnar: Grímseyingar koma fiski ekki á markað ÓÁNÆGJA er í Grímsey og á Dalvík með nýja ferðaáætlun Eyjafjarðar- ferjunnar Sæfara sem útbúin var skömmu fyrir áramót. Nú þurfa Grímseyingar sem vilja fara með ferjunni í land að gista yfir nótt í Hrísey eða taka Hríseyjarferjuna þaðan á Ársskógssand. Þá geta sjó- menn í Grímsey ekki lengur komið fiskinum á fiskmarkað á Dalvík en þar hafa þeir fengið mun hærra verð en hjá fiskverkun KEA. Ferðaáætlunin barst til Grímseyjar með þeim hætti að bæjarstjórn Dalvíkur, sem hafði fengið um hana upplýsingar, mótmælti nýju áætlun- inni harðlega í bréfi til oddvita Grímseyjarhrepps, Þorláks Sigurðs- sonar. Einnig sendi bæjarstjórnin mótmælabj’éf til hreppsnefndar Hríseyjar og í samgönguráðuneytið. Kristján Júlíusson bæjarstjóri á Dalvík sagði að mótmælin væru sett fram vegna skerðingar á þjónustu feijunnar. Á sama tíma væri rekstr- arkostnaður feijunnar aukinn veru- lega á kostnað Dalvíkinga og Grímseyinga eins og annarra lands- manna. Oddviti Grímseyjar kallaði strax saman hreppsnefndarfund þat’ sem fjallað var um bréf bæjarstjórnar Dalvíkur. Samþykkt var harðort mótmælabréf og það sent til Hríseyj- ar og i samgönguráðunytið ásamt tillögu um ferðaáætlun sem henti Aldrei fleiri fasteignir seldar á nauðungaruppboði MIKIL aukning var á sölu fasteigna á nauðungaruppboði hjá embætti bæjarfógetans á Akureyri á síðasta ári, miðað við fyrra ár. En á liðnu ári voru seldar 24 fleiri fasteignir - Á liðnu ári voru seldar 52 fast- eignir á nauðungaruppboði hjá bæj- arfógetanum á Akureyri en þær voru 28 á árinu 1989. Elías I. Elíasson bæjarfógeti sagði að aukningin hefði ekki áður verið jafn mikil á milli ára. En sala fast- eigna á nauðungaruppboði hefði far- en á árinu þar á undan. ið vaxandi á síðustu árum. Tvær fasteignir voru seldar á nauðungar- uppboði á árinu 1980, á árinu 1987 voru þær 8 og helmingi fleíri ári síðar. Á árinu 1989 voru þær 28 og á síðasta ári 52 og á tíu árum hefur þeim fjölgað úr 2 í 52. Grímseyingum betur. I nýju áætluninni er gert ráð fyrir tveimur ferðum á viku til Grímseyj- ar, á þriðjudögum og fimmtudögum eins og áður. Þær eru báðar famar frá Akureyri en áður hófst önnur ferðin þar en hin á Dalvík. Fyrir- komulag ferðanna frá Greymsey til lands veldur mestri óánægju nú því Sæfari fer beina leið til Hríseyjar og liggur þar yfir nótt og fer síðan dag- inn eflir til Dalvíkur. Séu farþegar frá Grímsey eru þeir tilneyddir til að gista í Hrísey eða fara þaðan með Hríseyjarfeijunni Sævari á Árskógs- sand. Þá er orðið algerlega útilokað að koma fiski frá Grímsey á markað- inn á Dalvík og eru sjómenn í Grímsey mjög óánægðir með það. Benda þeir m.a. á þau ummæli Hall- dórs Ásgrímssonar sjávarútvegsráð- herra á fundi í Grímsey í desember að þeir yrðu að koma afla sínum í sem best verð. KEA starfrækir fískverkun í Grímsey og býður hún hún talsvert lægra verð en fæst á fiskmarkaðnum á Dalvík. Sjómenn segja að meðal- verð á línufiski hafi verið 45 krónur kr. hjá KEA í Grímsey síðustu þtjá mánuði síðasta árs en þá hafi kaupfé- lagið reyndar greitt beituna. Hins vegar hafí meðalverðið á fiskmark- aðnum á sama tíma verið um 80 kronur.......................... Verzlunarskóli Islands • • Oldungadeild Innritun á vorönn öldungadeildar Verzlunar- skóla íslands fer fram á skrifstofu skólans dagana 7.-10. janúar kl. 08.30-18.00. Eftirtaldar námsgreinar eru í boði á vorönn: Bókfærsla Bókmenntir Danska Enska Farseðlaútgáfa Franska Hagræn landafræði íslenska Landafræði og saga íslands Líffræði Mannkynssaga Reksturshagfræði Ritun Ritvinnsla Stofnun og rekstur fyrirtækja Stærðfræði Tölvubókhald Tölvufræði Vélritun Þjóðhagfræði Þýska Áföngum ofangreindra námsgreina er hægt að safna saman og láta mynda: Próf af bókhaldsbraut Próf af ferðamálabraut Próf af skrifstofubraut Verslunarpróf Stúdentspróf Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á skrifstofu skólans, Ofanleiti 1.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.