Morgunblaðið - 05.01.1991, Side 11

Morgunblaðið - 05.01.1991, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANUAR 1991 11 Bókarfregn eftirE.J. Stardal Werner Trense. The Big Game of the World. Útgef. Paul Parey — Hamborg & Berlín. Ekki alls fyrir löngu kom út hjá Paul Parey Verlag í Þýskalandi ný og endurbætt útgáfa af hinu mikla riti Das- Grosswild der Erde und seine Tropháen sem upphaflega var ritað 1956 af Th. Haltenorth og Wemer Trense og fýlgdi þeirri út- gáfu formáli ritaður af þáverandi forseta Alþjóðaráðs um verndun villtra dýra, C.H. de Boislambert. Höfundur hinnar nýju endurskoðuðu og endurbættu útgáfu er annar fyrri höfunda þessa verks, W. Trense, hámenntaður þýskur dýrafræðing- ur. Hinn er nú látinn. Werner Trense er auk þess að vera alþekktur með- al frægra veiðimanna heimskunnur náttúruverndarmaður, sem hefur ferðast um flesta heimshluta til þess að kynna sér ástand hins villta dýr- alífs, ekki síst veiðidýra og vernd þeirra og er núverandi forseti áður- nefnds alþjóðaráðs. Wemer Trense er jafn ritfær á ensku og frönsku sem eigið móður- mál og þessi útgáfa er frumrituð á ensku og heitir The Big Game of the World. Nafnið segir ekki alla sögu því hér er ekki einungis fjailað um stærri veiðidýr jarðarinnar, held- ur er greint frá nær öllum helstu spendýrategundum sem hafa á ein- hveijum tíma verið eða era veiðidýr mannsins, útbreiðslu þeirra, vist- fræði og núverandi ástandi. Bókin er í allstóru broti, prýdd 381 ljós- myndum og teikningum, þar af 293 litmyndir; auk þess 316 lituð landa- kort sem sýna útbreiðslu dýranna um hnöttinn, ijölda einstaklinga inn- an tegundanna, sé hann kunnur eða greint frá áætluðum ijölda þar sem nákvæma þekkingu þrýtur. Út- breiðslusvæðum dýrategundanna er til hagræðis fýrir lesendur skipt í 7 höfuðsvæði. Hið fyrsta þeirra nær yfir Norður-Ameríku. Svæði 1 er Evrópa, Afríka norðan Sahara, As- íulönd norðan Himalajahálendis að meðtöldum Arabíuskaga. Svæði 2 er Afríka með sitt fjölskrúðuga dýr- alíf sunnan Sahara. Þriðja svæðið Minningarsjóður Gunnars Thoroddsens: Gunnar Kvaran styrkþegi sjóðsins LAUGARDAGINN 29. desember sl. fór fram í fimmta sinn styrk- veiting úr Minningarsjóði Gunn- ars Thoroddsens, en Gunnar hefði orðið 80 ára þann dag. Sjóðurinn var stofnaður af hjón- unum Bentu og Valgarð Briem 29. desember 1985, þegar liðin voru 75 ár frá fæðingu Gunnars. Sjóðurinn er í vörslu borgarstjór- ans í Reykjavík, sem ákveður úthlutun úr honum að höfðu sam- ráði við Völu Thoroddsen. Styrkþegi að þessu sinni er Gunnar Kvaran, sellóleikari. Að loknu námi hér heima stundaði Gunnar nám við Tónlistarskólann í Kaupmannáhöfn hjá prófessor Erl- ing Blöndal Bengtson og var að- stoðarkennari hans um 6 ára skeið. Framhaldsnám stundaði Gunnar í Basel í Sviss. Hann hefur komið fram sem einleikari og í kammer- tónlist á öllum Norðurlöndunum, mörgum Evrópulöndum, Banda- ríkjunum og Kanada. Gunnar er nær yfir Mið- og Suður-Ameríku. Fjórða svæðið er Indland og regn- skógabelti Suðaustur-Asíu að Nýju Gíníu. Meginland Ástralíu myndar eitt og sér fímmta svæðið með því sérkennilega dýralífi sem þróaðist þar í landfræðilegri og jarðsögu- legri einangrun. Suðurheimskauts- landið er hið sjötta. Loks mynda víðáttur Kyrrahafsins sjöunda og síðasta svæðið. Alls er ijallað um 250 dýrategundir í bókinni og fjöl- margar deilitegundir þeirra eða af- brigði. Greint er frá fræðilegum lat- nesk/grískum vísindaheitum dýr- anna, einnig talin upp nöfn þeirra á helstu menningartungumálum, og jafnframt heitum þeirra á máli þar- lendra íbúa landa þeirra eða land- svæða sem þau er fyrir að hitta. Samtök þeirra manna er stunda veiðiskap sem íþrótt hafa víðast sett hjá sér margvíslegar reglur um hversu meta skuli árangur eða afrek á sviði veiðimennskunnar sem íþróttar og eftir þeim em veitt verð- laun þeim görpum sem leggja að velli ár hvert mikilfenglegustu bráð- ina og er þá ýmist miðað við stærð dýra, lengd og þyngd eða horna- prýði þeirra dýrategunda sem nátt- úran hefur búið slíku skrauti eða vopnum. Þannig hafa verið samdar all deildarstjóri strengjadeildar Tón- listarskólans í Reykjavík og kennir þar sellóleik og kammertónlist. Árið 1988 stofnaði Gunnar Tríó Reýkjavíkur ásamt þeim Guðnýju Guðmundsdóttur, fíðluleikara, og Halldóri Haraldssyni, píanóleikara. Frú Vala Thoroddsen afhenti styrkinn, sem að þessu sinni var að íjárhæð kr. 250.000. Athöfnin fór fram íj Höfða. (Úr fréttatilkynningu) flóknar stigatöflur — og reyndar oft mismunandi eftir ríkjum eða heims- hlutum — sem kveða á um hvað meta skuli til úrskurðar hverjir hafí lagt að velli metdýr sem teljast hæf til verðlauna. Þar eð bók þessi er einkum ætluð veiðimönnum og áhugafólki um veiðiskap er í henni vendilega getið um slík verðlauna- dýr hverrar tegundar, stærð og punktatölu þar sem samkomulag er um þessi atriði, 'jafnframt nöfn þeirra veiðimanna sem það hnoss hafa hlotið að komast á verðlauna- pall. Aftan við þann hluta bókarinnar er fjallar um hinar margvíslegu dýrategundir er ritgerð eftir kunnan dýrafræðing, A.B. Bubenik. Hann ræðir þar um líffræðilega þróun hyrndra dýra og hlutverk hornanna frá vísindalegu sjónarmiði náttúru- fræðinnar og er þar að fínna gagn- rýni á ýmsar reglur veiðiklúbba og annarra samtaka veiðimanna sem hann telur ekki ætíð reistar á vísindalegum gmndvelli. Næst fýrir aftan er að fínna stutta greinargerð eftir náttúrufræðinginn Valerius. Rætt um hættu þá sem dýrategund- um getur stafað af gálausum til- raunum mannsins til kynblöndunar ýmissa dýrategunda, sem leitt geti af sér -hættu úrkynjunar og sýk- ingu; jafnvel orðið orsök útrýmingar heilbrigðra náttúrulegra dýrastofna. Slíkt ætti að vera ærið umhugsunar- efni fyrir okkur íslendinga sem höf- um á síðustu ámm farið af stað með slíkt fikt í fískræktarmálum án þess að vita í hvaða óvissu er stefnt. Lokakafli bókarinnar er stutt hugleiðing eftir Sigrid Schwenk um veiðar og menningarsamfélög mannsins. Þar er rakin í örstuttu máli saga veiðimennskunnar, þau árþúsund steinaldartímans þegar veiðimennskan var slík nauðsyn að tilvera mannsins og framtíð hans stóð með henni eða féll — fram til nútímans, þar sem svo er skipt um að nú bíður sú spuming svars hvort homo sapiens, þetta háskalega spendýr og grimmasta rándýr, sem náð hefur mestri útbreiðslu á móður jörð og jafnframt þróað með sér heilastarfsemi — vit — sem er langt umfram það sem náttúran ætlaði henni, notar þetta vit sitt og tækni til þess að stilla veiðiskap sínum í framtíðinni í vitrænt hóf og snýst til vemdar þeim nú varnariitlu dýr- um, forðar þeim frá endanlegri tortímingu, — sem eitt sinn voru hans daglega „brauð“. Werner Trense hefur oft heimsótt ísland og viðað að sér þekkingu um dýralíf hér og veiðiskap og á hér ýmsa vini og kunningja. íslands er eðliiega ekki mikið getið í þessari bók, enda er spendýrafána Islands ekki ijölskrúðug. Helsta villta land- spendýr hér, hreindýrið, er innfiutt og um “slík dýr er jafnan fjallað í þessari bók í upprunalegum heim- kynnum þeirra. Auk þess háttar svo til um veiðiskap okkar íslendinga á hreindýrum og öðrum spendýrum sem náttúran hefur falið okkur til forsjár að sennilega er okkur best að sem minnst sé um það rætt á alþjóðlegum vettvangi. Bók Wemers Trense er eigulegur gripur, jafnt fyrir veiðimenn sem náttúruunnendur — og sem betur fer em þetta oftar en ekki tvö nöfn á sömu manngerð. En hún er því miður líka dapurleg lesning, þar sem dregin er fram vægðarlaust sú stað- reynd að fjöimörgum tegundum dýra hefur verið gjöreytt og öðmm ógnar nú útrýming ef ekki er gripið í taumana strax og hiklaust. Hvað er maðurinn án dýranna? Ef öll dýr hverfa af jörðinni deyr andi mannsins af lífsleiða. Orlög dýranna verða einnig örlög mannsins. Þetta aldargamla ijóð indíána- höfðingja eins og skálds er leiðar- stef þeirra skoðana sem hinn þýski veiðimaður og náttúmskoðandi, Werner Trense, hefur sett fram ásamt samstarfsmönnum sínum í þessari bók og vonandi átta leiðandi menn þjóða heimsins sig á sann- leiksgildi þess áður en það verður of seint. Knattspyrnufélagið Valur 80 ára Blysför — Prettándabrenna Valsmenn hefja afmælisárið með því að ganga blysförfrá Háteigskirkju að þrettándabrennu á Valsvellinum. Safnast verður saman við Háteigskirkju kl.17.00 sunnudaginn 6.janúar. í fararbroddi verður Lúðrasveit verkalýðsins og fyrirliðar allra flokka í knattspyrnu, handbolta og körfubolta. Foreldrar, afar og ömmur Valsmanna í yngri flokkum eru sérstaklega hvattar til að mæta. Hjálparsveit skáta heldur stórbrotna flugeldasýningu. í félagsheimilinu býður verksmiðjan Vífilfell Valsmönnum upp á frábært Fanta og Sláturfélag Suðurlands býður upp á meiriháttar kokteilpylsur. Við þökkum þessum aðilum kærlega stuðninginn. Munið að koma vel klædd og í afmæliskapi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.