Morgunblaðið - 05.02.1991, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.02.1991, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B 29. tbl. 79. árg. ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1991 Prentsmiðja Morgunblaðsins MANNSKAÐALAUST FÁRVWRIREW YFIR Mesti vindhraði sem mælst hefur - Eignaljón talið nema á annan milljarð króna Björgunarsveitarmenn berjast við fljúgandi þakplötur við Austurbæjarskólann í Reykjavík. Morgunblaðið/Júiíus A Forseti Irans býðst til að miðla niáluni í Persaflóastríðinu ENGIN alvarleg slys urðu á fólki, en gífurlegt eignatjón varð um sunnan-, vestan- og norðanvert land á sunnudag í einhveiju mesta fárviðri sem gengið hefur yfir í manna minnum. Guðjón Petersen framkvæmdastjóri Al- mannavarna rikisins sagðist í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi telja að eignatjón á landinu geti numið á annan millj- arð króna, en skýrsla Almanna- varna verður rædd á ríkisstjórn- arfundi í dag. Nokkur hús til sjávar og sveita eyðilögðust og mjög mörg skemmd- ust meira eða minna. Þakplötur og annað lauslegt fauk eins og skæðadrífa um allt og tré rifnuðu víða upp með rótum. Lögreglu- og slökkviliðsmenn, björgunarsveitir og aðrir sjálfboðaliðar lögðu sig víða í mikla hættu við að bjarga verðmætum. Veðrið skall á sunnanverðu landinu á tíunda tímanum og fór norðureftir. Tíu mínútna meðal- vindhraði á Stórhöfða í Vestmanna- eyjum mældist 110 hnútar og hefur Veðurstofan aldrei mælt meiri vind- hraða hér á landi. A flestum þéttbýlisstöðum og nær öllum sveitabæjum á óveðurs- 'svæðinu urðu einhveijar skemmdir. Víða horfði fólk til sveita á útihús takast á loft og jafnvel springa í tætlur undan veðurofsanum. Sauð- fé drapst þegar það lenti undir húsarústum. Gróðurhús eyðilögðust víða á Suður- og Vesturlandi. Flug- vélar og bátar eyðilögðust, eða urðu fyrir skemmdum, fjórir byggingakr- anar og tugir bíla eyðilögðust og hundruð bíla skemmdust. I Reykjavík hafa orðið mestu gróður- skemmdir sem sögur fara af. Lauslegt mat í gærkvöldí benti til þess að allt að þriðjungur þeirra einstaklinga, sem varð fyrir tjóni af völdum fárviðrisins, hefði verið ótryggður. Sjá fréttir af fárviðrinu á bls. 2, 4, 16, 17, 18, 19, 20, 21, miðopnu, 27, 28, 29, 30, 31, 46, 47 og baksíðu. Nikósíu. London. Washingfton. Reuter. ALI Akbar Rafsanjani, forseti írans, bauðst í gær til að miðla málum í Persaflóastríðinu. Bandaríkjastjórn tók tilboði hans I fálega og var þögn íraka túlkuð á sama veg en Perez de Cuellar, I framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, fagnaði tillögunni. Út- varpið í Bagdad sendi í gærkvöld út torkennileg skilaboð um að nú yrði látið til skarar skríða. „Þetta er úrslitastundin .. þetta er dagur ykkar allra .. fram- kvæniið áætlun síðasta fundar,“ sagði þar og voru skilaboðin sögð koma frá „sljórnstÖð“. Einnig sagði í fréttaskýringu útvarpsins að Iraksher biði eftir merki um að hefja „myljandi árás“ á fjöl- þjóðaherinn. Rafsanjani kvaðst reiðubúinn að hitta Saddam Hussein íraksforseta til að ræða vopnahlé og eins sagð- ist hann vilja ræða með óbeinum hætti við Bandaríkjamenn. Dick Cheney, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, dró í efa að hægt væri að finna pólitíska lausn á Persaflóastríðinu. „Við erum nú í þeirri stöðu .. að við munum halda áfram hernaðaraðgerðum uns markmiðinu er náð.“ De Cuellar sagðist í gær vera mjög áhyggju- fullur vegna manntjóns og eyðilegg- ingar í Persaflóastríðinu. Hann sagðist telja að Iranir væru í að- stöðu til að miðla málum. „Eitthvað verður að gera til að stöðva stríðið,“ sagði hann. Talsmenn ijölþjóðahersins sögðu í gær að enn væru níu tíundu hlut- ar búnaðar íraska landhersins óskaddaðir þrátt fyrir gífurlegar loftárásir. Engan bilbug væri heldur á Lýðveldisverðinum, úrvalssveitum íraksforseta, að finna. Mikil óánægja hefur komið fram hjá miðstjórn sovéska kommúnista- flokksins með styijaldarreksturinn. Miðstjórnin hefur skorað á Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseta að leita leiða á alþjóðavettvangi, þ.á m. hjá Sameinuðu þjóðunum, til að binda enda á „blóðbaðið". Pravda, mál- gagn flokksins, hafði það eftir Bor- is Oleinik, þingmanni í Æðsta ráð- inu, að „Eyðimerkurstormurinn gæti breyst í þriðju heimsstyrjöld- ina“. Sjá fréttir á bls. 22. Tekjuöflunarleið austur-þýskra stjórnvalda: Tilraunir á sjúklingum Berlín. The Daily Telegraph. ARUM saman prófuðu austur-þýskir Iæknar ný lyf á sjúklingum sínum að fyrirskipan stjórnvalda. Var þetta gert samkvæmt samn- ingi við vestræn fyrirtæki og í staðinn fékk kommúnistastjórnin gjaldeyri sem hana bráðvantaði. Sjúklingar á sjúkrahúsum máttu þola hitasótt, skjálftaköst, höfuðverki, lágan blóðþrýsting og jafn- vel minniháttar hjartaáföll vegna tilraunanna, að sögn þýska viku- ritsins Der Spiegel. Tilraunir þessar hófust árið 1983 og lauk ekki fyrr en komm- únistastjórnin leið undir lok í Austur-Þýskalandi síðla árs 1989. Ýmist sögðu læknar sjúklingum ekki frá því hvað væri á seyði eða gerðu þeim ekki fulla grein fyrir þeirri áhættu sem fylgdi lyfjatök- unni. Skipti þá engu þótt um öflug, hættuleg og óprófuð lyf væri að ræða. Féð, sem þannig aflaðist, rann einkum til austur- þýska heilbrigðiskerfisins. Þýska heilbrigðisráðuneytið staðfesti í gær að tilraunir með lyf hefðu farið fram í Austur- Þýskalandi án samþykkis sjúkl- inga en óljóst væri hvort vestrænu fyrirtækin hefðu vitað að ekki var leitað samþykkis sjúklinganna. Meðal lyfjanna sem þannig voru prófuð voru hormónalyf sem ætlað var að vinna á krabba- meinsfrumum, „betablokkarar" og þunglyndislyf. Flest lyfjafyrir- tækin voru vestur-þýsk en einnig greiddu japönsk og austurrísk fyrirtæki fyrir tilraunirnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.