Morgunblaðið - 05.02.1991, Page 29
MORGSUNBIiAÐIÐ! ÞRIÐJUDAGUR 5.' FEBRUAR 1931-1
unnu gott starf. Læknar voru
einnig til taks.
Skemmdir urðu ekki verulegar.
Þó hrundi fiskhjallur á Drengjaholti
í eigu Straumness hf. og annar, sem
stendur við hliðina á þeim fyrrnefnda
og er í eigu Odda, skemmdist lítil-
lega. Gamail hjallur á Stekkum fauk
en mönum tókst að koma í veg fyrir
skemmdir af hans völdum. Nokkrar
plötur úr ófrágenginni klæðningu á
sláturhúsinu fuku einnig.
Vindhraðinn var mestur á milli
klukkan 16 og 17, en þá fór hann
að ganga niður eins og hér gerist
yfirleitt þegar hann gengur nær
vestrinú. Þegar verst lét náði sjór
að bijóta lítillega úr veginum sem
hestamenn fara um til tómstunda-
skála sinna.
Rafmagn varð að skammta, en
Bíldælingar, Tálknfirðingar og Pat-
reksflrðingar reyndu að keyra saman
varaaflsstöðvar sínar. Hér olli það
orkubúsmönnum mestum vandræð-
um, að plötur frá áðurgreindum fiski-
hjöllum, fuku á inntaksvirki orkubús-
ins, þó flestar fykju þær til fjalls.
Nú eru plöturnar að skila sér til
baka, enda vaxandi veður, og óttast
orkubúsmenn afleiðingar þess.
Hilmar
Rif;
Trilla sökk í
höfninni
TRILLA sökk í höfninni á Rifi í
veðrinu sem _þar gekk yfir á
sunnudag. í Ólafsvík fuku járn-
plötur af tveimur húsum og lentu
m.a. inn í húsi björgunarsveitar-
innar.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar í Ólafsvík urðu einnig
skemmdir á fjórum bílum. Rúður
brotnuðu í þeim og iakk skemmdist.
Stór skemma í eigu Hraðfrystihúss-
inu lagðist saman. Hins vegar tókst
að bjarga bát sem þar var inni. Þá
fuku allar þakplötur af frystihúsinu.
Bolungarvík:
Fiskhjall-
ur fauk
Bolungarvík.
í Bolungarvík sluppu menn nokk-
uð vel við tjón af völdum óveðurs-
ins. Mesta eignatjónið varð þegar
stjór og mikill fiskhallur í Minnihl-
íðalandi fauk til og lagðist á hlið-
ina. Þá fuki til tveir bátar í fjöru-
kambinum, svokallaðir Sómabát-
ar. Ekki sá mikið á þeim, en um
miðjan dag í gær, mánudag, var
óvíst hvort drifbúnaður bátanna
hefði skemmst. Að öðru leyti var
allt með ró við höfnina þar sem
vindáttin var hagstæð fyrir þá
báta sem þar voru.
Veðrið sem menn bjuggu sig undir
að mæta á sunnudag, varð hér aldr-
ei meira en smá hvellur. Björgunar-
sveitamenn voru í viðbragsstöðu í
allan gærdag og hjálpuðu fólki þar
sem þess var þörf. Veðrið var verst
um fjögur leytið og stóð hryðjan í
tæpa tvo tíma. Slys urðu engin á
fólki. Að frumkvæði lögreglu og
slysavarnarfélagsins voru ýmis for-
varnarstörf unnin áður en illviðrið
gekk yfir og hefur það eflaust komið
í veg fyrir að ekki fór verr.
Sigmundur Þorkelsson, eigandi
fiskhjallans sem fauk, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að þetta 60
fermetra hús væri alveg ónýtt. Tjó-
nið er talið vera vel á aðra milljón,
en Sigmundur sagðist fá tjónið bætt
hjá tryggingunum. í fiskhjallinum
voru um tvö hundruð kíló af harð-
fiski, en að sögn Sigmundar tókst
að bjarga honum öllum.
Gunnar
Borgarnes:
Fjúkandi þak-
plötur skemma
hús og bíla
Borgarncsi.
TÖLUVERÐAR skemmdir urðu í
Borgarnesi og nágrenni í óveðrinu
sl. sunnudag. Félagar úr Björgun-
arsveitinni Brák og slökkviliðinu,
ásamt starfsmönnum Borgarnes-
bæjar, gerðu út frá lögreglustöð-
inni og unnu að viðgerðum og því
að fyrirbyggja frekari skemmdir
af völdum veðursins.
Þakjám fauk af allmörgum íbúð-
arhúsum í Borgarnesi og rúður
brotnuðu í nokkrum húsum. Þá eyði-
lögðust nokkur garðhýsi og tvö gróð-
urhús. Járn af þaki brauðgerðar
Kaupfélagsins við Egilsgötu fauk að
mestu af og braut rúður í hótelinu
sem er þar á móti og skemmdi einn-
ig nokkra bíla sem stóðu framan við
Dvalarheimilið við Borgarbraut. Þá
fauk bíll út af veginum undir Hafnar-
fjalli og ökumaðurinn slapp með
minniháttar meiðsl. Skemmdir urðu
á íbúðarhúsi á bænum Höfn í Mela-
sveit vegna gijótflugs. Nokkrar
skemmdir urðu á umferðarmann-
virkjum í héraðinu. I Hvalfirði við
bæinn Þyrii lagðist vegrið út af á
um 30 metra kafla og klæðning fauk
af vegi heim að bænum Hvítanesi í
Skilmannahreppi á um 50 metra
kafla. Þá lagðist brúarhandrið inn á
brúnni yfir Alftá á Mýrum og leiðari
af bránni yfir Tunguá við Gijóteyri
losnaði af.
I uppsveitum Borgarijarðar urðu
töluverðar skemmdir. Mikið tjón varð
á bænum Síðumúla í Hvítársíðu en
þar fauk þak af íbúðarhúsi af að
hluta til. Einnig eyðilagðist ræktun
í gróðurhúsum á Laugalandi í Staf-
holtstungum.
- TKÞ.
Sunnanvert
Snæfellsnes:
Eins og
sprengja hafi
grandað sumar-
húsinu
Borg í Miklaholtshreppi.
AFTAKAVEÐUR skall hér á eftir
að vindátt breytti úr sunnanátt í
suðvestanátt á sunnudag. Það er
eitt mesta veður sem hér hefur
komið síðan ég kom hingað á Snæ-
fellsnes og eru á þessu ári 42 ár
síðan. Lítil úrkoma fylgdi þessu
veðri og hiti var 2-3 stig, en á
sunnudagskvöld kólnaði og frost
var komið í 2-4 stig.
Umtalsverðir skaðar hafa orðið á
allmörgum bæjum hér í grennd.
Fyrst skal nefna Kolbeinsstaðahrepp.
A Hallkelsstaðahlíð fauk stór hluti
af járni á þaki íbúðarhússins. Þá gjö-
reyðilagðist stór braggi sem tekur
200 fjár, en féð sem í honum var
sakaði ekki. Á nokkrum öðrum bæj-
um þar fuku plötur af gömlum húsum
og má þar nefna Syðri Rauðamel og
Grund.
Eyjahreppur: í Söðulsholti tók járn
af annarri hlið þaksins á íbúðarhús-
inu þar. Þá tók plötur af nokkrum
útihúsum í Eyjahreppi, Rauðamel
ytri, Akurholti, Hrútsholti og Rauð-
kollsstöðum.
Miklaholtshreppur: í Skóganesi
fauk þak af hlöðu og hurðir tók af
flatgryfju. Á Svarfhóli gjöreyðilagð-
ist nýtt sumarhús. Það er svo malað
Launaforrit sem hentar fyrir alla
alménna launaútreikninga. Það
þarf aðeins að slá inn lágmarics-
upplýsingar, LAUN sér um allt
annað.
niður, að það er eins og sprengja
hafi grandað því. Þá skal þess getið
að á nokkrum öðrum bæjum urðu
skaðar, þar sem plötur fuku af hús-
um, en ekki í stórum stíl, en slys
urðu hvergi á mönnum eða skepnum.
Á þessum bæjum hafa orðið tjón:
Miklaholti, Gröf, Borg, Fáskráðar-
bakka, Eiðhúsum, Miðhrauni, Vega-
mótum, Dal, Hrísdal, Hjarðarfelli,
Straumfjarðartungu, Hofsstöðum og
Borgarholti.
Áætlunarbílar sem ætluðu til
Reykjavíkur á sunnudagskvöld kom-
ust ekki og voru norðanfjalls um
nóttina.
Páll.
LAUN, sem er einnig þekkt sem
Rafreiknislaun er í notkun í
500 fyrirtækjum og mun vera
mest notaða launaforritið á
íslandi.
AthugiO aO LAUN sér um allt sem snýr aO staOgreiOsIu skatta.
LAUN fæst f næstu tölvuverslun.
Einar J. Skúlason hf.
Grensásvegi 10, 108 Reykjavík. Sími (91) 686933
BÓKAMARKAÐUR ARNAR OG ÖRLYGS • BÓKAMARKADUR ARNAR OG ÓRLYGS • BÓKAMARKADUR ARNAR OG ÓRLYGS
Opið laugardaga kl. 10 til 18
mánudaga til föstudaga kl. 9 til 18
og sunnudaga kl. 11 til 16
Vegna fjölda tilmæla og mikillar
aðsóknar framlengjum við bókamarkað okkar
til sextánda þessa mánaðar.
ÖRN OG #) ÖRLYGUR
Síðumúla 11 - Sími 84866
SDA.-IHO 90 HVNHV HnQVMSVMVkpS ■ S 9 A.1 U O 90 B V N U V H n G V M B V W V M Q a ■ S9A1BQ 90 BVNBV BftQVHHVMIVMQB
X