Morgunblaðið - 05.02.1991, Qupperneq 45
MOttGUNBÉkÐIÐj ÞRIMUDÁGfeR >j 'f'ÉfcKMR 'ftfé-Y-
4Ér
Þessir hringdu ..
Bændur fá ekkert
Lesandi hringdi:
„Athygli hefur vakið hversu
hátt verð er á hrútsgungum, kíló-
ið á 1.289 krónur, og er því ekki
úr vegi að minna á að bændur fá
ekkert greitt fyrir þessa afurð.
Bændur fá sama verð fyrir
skrokkana hvort sem um er að
'ræða gimbur eða hrútlömb. Neyt-
andinn hlýtur því að spyija sig
hvernig standi á þessu háa verði.“'
Góð fyrirgreiðsla
Hanna Sigurðar hringdi:
„Ég vil þakka fyrir góða fyrir-
greiðslu, sem ég hef fengið i gegn-
um árin hjá Sparisjóði Reykjavík-
ur og nágrennis. Ég er einstæð
móðir með fjögur börn og átti á
tímabili í fjárhagsörðugleikum.
Ég fékk ráðgjöf hjá Sparisjóðnum
og var hjálpað til að halda íbúð-
inni, og sú fyrirgreiðsla sem ég
hef notið þar hefur verið ómetan-
leg.“
Styðjum okkar fólk
Björg hringingar:
„Að undanförnu hefur mátt sjá
neikvæð skrif um Söngvakeppn-
ina sem Sjónvarpið er að und-
irbúa. Stundum virðist vera
ástæða til að minna íslendinga á
að vera jákvæðari, við eigum að
hvetja okkar fólk en ekki letja.
Það mættu gjarnan heyrast fleiri
jákvæðar raddir. Við eigum að
styðja okkar fólk.“
Kettlingur
Gott heimili óskast fyrir 9 vikna
kassavanan kettling. Upplýsingar
í síma 14518.
Tveir kettlingar fást gefíns.
Upplýsingar í síma 12025.
Hlátrasköll á
kvikmyndasýningu
Bíógestur hringdi:
„Eg vil gera athugasemd við
bréf sem fjórar stúlkur skrifa í
Velvakanda föstudaginn 1. febrú-
ar. Staðreyndin er að ómögulegt
EKKIBEINT TIL
FYRIRMYNDAR
Opið bréf til Bjarna Dags Jónssonar
Til Velvakanda. ( okkur. Eilthvað fór lílið fyrir
Við erum héma nokkrar .smip þeim vorði því rkki «ium við þig
íkur* eins og þú neíndir okkur sið- svo miKM sem standa upp alla sýn-
astliðinn fostudag, nánar tiltrkið ingunn. En þu sýndir þroska þinn
25. janúar kl. 9 i einu af biðhúsum <>g yfirburði þegar þú hélst áfram
borgarinnar. að lemja i hausinn á okkur og segja
Við viljum lýsa þessari bióferð okkur að halda kjafti. Kona sem
frá okkar sjónarhóli. Við sátum sat við hliðina á |>ér lamdi slðan
fjórar saman og þú og vinafólk allharkalega i hakið á stráknum
þitt til hliffar við okkur og tva?r og annað hvort ykkar bað okkur
vinkonur okkar fyrir framan. Ivg- um að fara heim í Barbieleik.
lar myndin var rétt nýbyijuð fóru Okkur þykir leilt ef þú telur að
þessar tvaer aem sátu framar að við höfum spillt fyrir þér sýning-
tala og þá var gripið harkalega i unni. En það dregur hver dám af
öxlina á annarri og hcnni var sagt sfnum sessunaut og þin framkoma
að halda kjafti. Það var orðbragð var ekki beint til fyrirmyndar. >ar
þitt. Við hefðum tekið þetta til að auki veLst þú að bióhúsin cru
grcina ef þú hefðir ekki haett um ein af þeim fáu stöðum sem ungl-
betur og kastað pappadós í höfuð- ingar geta sólt. og þar af leiðandi
ið á einni okkar þegar hún beygði eru alltaf einhver laeti á niusýning-
sig fram. um um helgar. I>að má liteía við
Sömvj skipanir með sama orð- að kona sem við þekkjum og var
var að fylgjast með myndinni
vegna þess að þær töluðu sífellt
saman og voru með hlátrasköll.
Fólkið í kring reyndi að þagga
niður í þeim en þær létu sér ekki
segjast heldur höguðu sér eins og
þær væru einar í heiminum. Fyrst
þær höfðu ekki áhuga á að fylgj-
ast með myndinni áttu þær ein-
faldlega að fara úr salnum. Svona
háttarlag gengur ekki og þeir sem
reka kvikmyndahúsin ættu að
taka hart á svona löguðu. Við
hjónin misstum eiginlega alveg
af myndinni og erum að hugsa
um að sjá hana aftur í miðri viku.“
Þakkarverð greiðvikni
Til Velvakanda.
Ég er búinn að glugga annað
slagið í Velvakanda frá fyrstu
stundu. Núna seinni ár hef ég ekki
gert eins mikið af því vegna þess
að ég hef verið búsettur erlendis, í
Noregi, Síðastliðin 8 og hálft ár.
Fyrir stuttu kom að máli við mig
vinur minn hérna í Noregi- og bað
um aðstoð íslendings. Hér kemur
saga hans.
Hann heitir Leif Andenes og er
búsettur á Bryne sem er smábær
sunnan við Stavanger (sem er öllum
kunnur sökum olíuvinnslu í Norður-
sjónum). Hann er formaður Listafé-
lagi Bryne (Bryne Kunstforening)
og er búinn að vera í landstjórn lista-
mannafélaga í Noregi síðustu 5 ár-
in. Hann sótti um styrk frá Roga-
landfylki til að ferðast um ísland,
til þess að sjá hvernig íslendingar
kærau á framfæri list um landið.
Hann ferðaðist um landið í ágúst-
mánuði 1990, auk þess dvaldist
hann nokkra daga í Reykjavík.
I stuttu máli vegnaði honum vel
í ferðinni og var yfír sig hrifinn af
landi og þjóð. Hann var á ferð um
Norðurland, og vildi skoða landið
upp á eigin spýtur og kvaðst hafa
lagt af stað frá Varmahlíð að kvöld-
lagi og vildi vita hvort hann myndi
ekki hitta á Norðurleiðarrútuna á
leiðinni til Akureyrar.
Hvað um það, hann hitti ekki á
hana, en kvaðst þess í stað hafa
ákveðið að „ferðast á puttanum“ í
fyrsta skipti á ævinni. Það kom
ekki til af peningaleysi heldur, vildi
hann ef unnt væri komast í kynni
við „innfædda".
Hann sagði að bíll hefði stoppað
fyrir sér og honum hefði skilist á
manninum að hann ætlaði einungis
stuttan spöl framí sveitina. Hann
sagði bílstjóranum, sem heitir Krist-
ján Valdimarsson og kvaðst sá hafa
verið í einhveijum tengslum við
Ferðaþjónustu bænda, að hann væri
sjálfur á leiðinni norður á Akureyri.
Hvað um það, þessi nefndur
Kristján reyndist honum hinn besti
drengur og ók honum alla leið til
Akureyrar, þar sem hann hitti
frammámenn í Menningarsamtök-
um Norðurlands, eins og hann orð-
aði það sjálfur.
Leif vildi láta í ljósi þakklæti sitt
og sendi bók til Kristjáns Valdimars-
sonar c/o Ferðaþjónusta bænda,
Bændahöllinni, en fékk síðan bókina
endursenda og með þeim skilaboð-
um að viðtakandi væri ókunnur. Ég
vonast til að umræddur Kristján
Valdimarsson gefi sig til kynna svo
vinur minn geti komið til hans bók-
inni. Hann vill jafnframt nota tæki-
færið til að koma á framfæri þakk-
læti til allra þeirra sem greiddu
götu hans meðan á íslandsdvölinni
stóð.
Tomas Frosti Sæmundsson
Tuften 11,4340 Bryne Norge
ö*ria\dsve<
,\<.Þa\d
^abíasTattdr
Virftisaak . u\dabrei
'J'^ar °9re9\u9erft'!r ,
afstem''"';
i\ 09 a1s' c;ar
Bókhalds-
nám
Tölvuskóli Reykjavíkur býður nú upp á bókhalds-
nám fyrir fólk sem vill ná tökum á bókhaldi
fyrirtækja.
Markmið námsins er að þátttakendur verði full-
færir um að starfa sjálfstætt við bókhaldið og
annast það allt árið.
Þeim sem ekki hafa kynhst bókhaldi gefst
kostur á sérstöku grunnnámskeiði.
Námskeiðið er 72 klst.
Hringdu og fáðu nánari upplýsingar.
UTSALA
25%
VEROLÆKKUN
fl PEYSUM OG VÆR6ARV0ÐUM
STÓRKOSTLEG VERÐLÆKKUN
Á VÆRÐARVOÐUM OG PEYSUM
JAFNT FYRIR KONUR OG KARLA.
GILDIR AÐEINS DAGANA
1.-8. FEBRÚAR.
EINNIG TILBOÐ Á POSTULÍNI,
GLÖSUM, GJAFA-, STÁL- OG
KOPARVÖRUM OG MÖRGU FLEIRU
ÁLAFOSSBÚÐIN
VESTURGÖTU 2, SÍMI: 91- 1 34 04
6S-lW«9>l>inV