Morgunblaðið - 17.02.1991, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.02.1991, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B/C 40. tbl. 79. árg. SUNNUDAGUR 17. FEBRÚAR 1991 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Jokko páfa- gaukur í frí Nú hefur frægt sakamál, þar sem páfa- gaukurinn Jokko hefur verið í sviðsljós- inu, loks verið til lykta Ieitt í Noregi. Páfagaukurinn var leiddur fyrir rétt, ákærður fyrir að hafa valdið nágrðnn- um sínum ónæði með gargi og ólátum. Fjölskyldan hafði engan frið í garði sínum á sumrin fyrir hávaðanum í Jokko. Niðurstaða réttarins var sú að eiganda páfagauksins var gert að fara með hann í sumarfrí í fjórar vikur i júní til að nágrannafjölskyldan yrði örugglega ekki fyrir neinu ónæði af fuglinum á þeim tíma. Þá á að fara i burtu með hann aðra hverja helgi yfir sumartímann og hann má aldrei vera í þeim hluta garðsins sem snýr að húsi nágranlianna. Æsifrétta- blöðin upp- götva Saddam Æsifréttablöðin í Bandarikjunum hafa loks uppgötvað Saddam Husscin íraks- forseta, „slátrarann frá Bagdad". Blöðin hafa birt umfjallanir um einkalíf hans, aðbúnaðinn í neðanjarðarbyrgi hans í Bagdad og ýmis vopn sem fréttaritarar, sem flytja fréttir frá aðalstöðvum banda- ríska hersins í Pentagon, hafa „gleymt" að segja frá. Ótalmargt hefur verið af- hjúpað og allt er haft eftir „áreiðanleg- um heimildarmönnum" eða vitnað í greinar sem þegar hafa verið birtar í Bretlandi eða annars staðar í Evrópu. Tímaritið Star sagði frá því að Saddam hefði fengið konu sína til að lita hárið á sér ljóst svo hún líktist leikkonunni Diane Kcaton eins og hún var í kvik- myndunum um „Guðföðurinn11. Þá upp- lýsti National Enquirer að uppáhalds- sjónvarpsþáttur Saddams væri „Húsið á sléttunni". Blaðið hafði einnig eftir fyrr- verandi lífverði Saddams, sem nú er I felum í Frakklandi, að Saddam sinnti allt að þremur konum á hverri nóttu og að hann hefði látið drepa eina þeirra aðeins vegna þess að hún sagði frá reynslu sinni. Blöðin hafa sagt frá áður óþekktum Ieynivopnum. Árásarhöfrung- ar í þjónustu bandaríska sjóhersins hafa t.d. það hlutverk að finna tundurdufl og drepa íraska kafara, að sögn National Examiner. The Sun greindi þó frá hræði- legasta vopninu. Það er tímasprengja sem bandariskum og breskum pípulagn- ingamönnum tókst að koma fyrir I sal- ernisskál Saddams í neðanjarðarbyrginu í þeim tilgangi að klófesta hann „með buxurnar á hælunum". A Irakar ljá máls á heimkvaðningn hermanna frá Kúveit að uppfylltum skilyrðum: Morgunblaðið/KGA KANKVÍSIR KRAKKAR Sovétmenn eru ekki úrkula vonar um frekari tílslakanir Moskvu, Riyadh, Sameinuðu þjóðunum, Tókíó. Rei SOVÉSK stjórnvöld gáfu til kynna í gær, laugardag, að þau byndu vonir við að Irakar myndu Ijá máls á því að falla frá skilyrðum sem þeir hafa sett fyrir heimkvaðningu hermanna sinna frá Kú- veit. Patrick Hine, æðsti yfirmaður breska heraflans við Persaflóa, sagði að tilboð Iraka um að kalla hersveitir sínar í Kúveit heim kynni að vera „fyrsta til- raun“ þeirra til að finna leið út úr stríðinu fyrir botni Persaflóa. Vítalíj Tsjúrkín, talsmaður sovéska ut- anríkisráðuneytisins, lét svo ummælt að í yfirlýsingu Byltingarráðs íraka frá því á föstudag, þar.sem sett voru skilyrði fyrir heimkvaðningu hersveitanna, kæmu fram „nokkrir varfærnislega orðaðir fyrirvarar". „Við verðum að bíða og láta á það reyna hvort einhverjar frekari tilslakanir koma fram,“ sagði Tsjúrkín á blaðamannafundi í Moskvu. Hann bætti þó við að líklegt væri að skilyrði íraka gerðu tilboð þeirra um heimkvaðningu hersveitanna „marklaust". Jevgeníj Prímakov, sérlegur sendimaður Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétforseta í Persa- flóadeilunni, hvatti bandamenn til að hafna ekki aigjörlega tilboði Iraka. Hann kvaðst binda miklar vonir við fyrirhugaða ferð Tareqs Aziz, utanríkisráðherra íraks, til Moskvu. í ráði er að Aziz ræði við Gorb- atsjov og Alexander Bessmertnykh, utanrík- isráðherra Sovétríkjanna, á morgun, mánu- dag. Stjórnvöld í íran fögnuðu tilboði Iraka um að láta Kúveit af hendi og sögðu það fyrsta skrefið í átt til friðar. Hashemi Rafs- anjani, forseti írans, hyggst senda nefnd háttsettra embættismanna til Bagdad á næstu dögum til að færa íröskum ráðamönn- um „ítarlegt svar“ við tilboðinu. Patrick Hine sagði í Riyadh að tilboð ír- aka kynni að vera „fyrsta tilraun" þeirra til að binda enda á stríðið og kvaðst vona að það leiddi til skilyrðislausrar heimkvaðn- ingar íraskra hermanna frá Kúveit. „Sadd- am Hussein vill halda velli og stjórna araba- heiminum,“-sagði hann. „Svo kann að fara að hann fallist á vopnahlé á allt öðrum for- sendum." Hine sagði einnig litlar líkur á því að Saddam Hussein yrði steypt af stóli nema hershöfðingjar úrvalssveita íraka, lýðveldis- varðarins, kæmust að þeirri niðurstöðu að sigurlíkur íraka væru engar. Stríðið héldi áfram þar til írösk stjórnvöld ákvæðu að kalla hersveitir sínar í Kúveit heim án skil- yrða. HALENDISVEGIR MILLILANDSHLUTA SJUKLIHCARA svmmuM Deilur um notkun svefnlyjja á sjúkra- /y/ stofnunum Jj ~r 10 TRAUSTID ER ÞORRIÐ FRA HAMMURABI TIL HUSSEINS ■j- m C

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.