Morgunblaðið - 17.02.1991, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 17.02.1991, Qupperneq 4
4 FRÉTTIR/YFIRLIT MORGUNBLAÐH) SUN7ÍUDAGUR' 37. FEBRÖAR l&W ERLENT INNLENT Hálft ár þarf til að ljúka fjár- mögnun Jón Sigurðsson iðnaðarráð- herra og forsvarsmenn Atlant- sálsfyrirtækjanna ræddust við í New York á miðvikudag. Jón sagði að ætla mætti að það þyrfti hálft ár eða rúmlega það til þess að ljúka fjármögnunarþættinum í álmálinu. Hins vegar er stefnt að því að Ijúka samningagerðinni sjálfri, með fyrirvara um fjár- mögnun, innan þriggja mánaða. Heimilt að veiða 175 þúsund tonn af loðnu Sjávarútvegsráðherra heimilaði veiðar á 175 þúsund tonnum af loðnu, eftir að fiskifræðingar höfðu mælt sam- tals 525 þúsund tonn. Veiðamar hófust á mið- vikudag. Út- flutningsverð- mætið er allt að 1,8 milljarðar króna en þá er miðað við að um 150 þúsund tonn af loðnunni verði brædd, 2 þúsund tonn heilfryst og að 5 þúsund tonn af hrognum fáist úr loðn- unni. Mokveiði hefur verið á loð- numiðunum undan Suðurlandi síðan veiðar hófust. Sendherra Sovétríkjanna kallaður heim Sendiherra Sovétnkjanna á ís- landi, Igor N. Krasavín, var kall- aður til Moskvu til skrafs og ráða- gerða vegna samþykktar Alþingis um að taka upp stjórnmálasam- band við Litháen. Sovétmenn sögðust ekki senda sendiherrann tii Reykjavíkur fyrr en skýring hafí borist frá íslenskum stjóm- völdum. Viðbrögð Sovétmanna hafa vakið talsverða athygli er- lendis. Afurðaverð lækki um 20% Gert er ráð fyrir því að sauð- fjárafurðir lækki um 20% á næstu 5-6 ámm, samkvæmt tillögum sem ræddar hafa verið í sjö- mannanefnd um hagræðingu í sauðfjárrækt. Bankaríharðnandi samkeppni Ríkissjóður er orðinn helsti keppinautur bankakerfísins um sparifé landsmanna. Útistandandi spariskírteini og ríkisvíxlar voru í árslok 1990 um 45,6 milljarðar króna en innlán í bönkum og sparisjóðum vom á sama tíma um 126 milljarðar króna. Hlutur ríkis- ins er því um 36% af innlánum meðan sama hlutfall var um 16% árið 1985. Eistlendingar vilja síjórn- málasamband við Island Edgar Savisaar, forsætisráð- herra Eistlands, og Lennart Meri, utanríkisráðherra Eistlands, eru væntanlegir til íslands í vikunni. Þeir ræða við íslensk stjórnvöld um stjómmálasamskipti^ Eistlands og íslands og þá tillögu íslendinga að miðla málum milli Eystrasalts- .rjkjanna og Sovétríkjanna. Morgunblaðið/Rafn ERLENT Skýlið sem bandamenn vörp- uðu sprengjum á. Pjöldi borg- ara fellur í loftárás á Bagdad Hundmð manna biðu bana og særðust er tvær sprengjur frá bandarískum herþotum spmngu í loftvamabyrgi í Bagdad á mið- vikudag. Bandarísk stjórnvöld sögðu að íraksher hefði notað byrgið sem fjarskipta- og stjóm- stöð og sökuðu Saddam Hussein íraksforseta um að hafa látið flytja þangað óbreytta borgara. írakar vísuðu því á bug og sögðu að engin hernaðarmannvirki væru í grennd við byrgið. Þetta er mannskæðasta loftárás banda- manna á Irak til þessa. Mikil reiði greip um sig í nokkmm araba- löndum ' vegna loftárásarinnar. Spánveijar og Italir hvöttu einnig til þess að loftárásum á íraskar borgir yrði hætt. Um miðjan dag á fímmtudag sögðu írakar að 64 hefðu farist í árásinni á byrgið en á fimmtudagskvöld hækkaði sú tala í 288. Bandarískir embætt- ismenn gáfu til kynna á fímmtu- dag að manntjónið kynni að hafa þau áhrif að skotmörk banda- manna yrðu endurskoðuð. Marlin Fitzwater, talsmaður Banda- ríkjastjómar, sagði síðar að ekki kæmi til greina að hvika frá þeirri stefnu bandamanna að gera loft- árásir á stjómstöðvar Irakshers. Byltingarráðið íraska birti á föstu- dag tilkynningu sem í fyrstu virt- ist kveða á um að írakar væm reiðubúnir til að kalla heim innrás- arliðið frá Kúveit en síðar kom í ljós að hugsanleg heimkvaðning liiðsaflans var bundin sömu skil- yrðum og áður. Litháar vilja sjálfstæði Samkvæmt opinberum niður- stöðum úr atkvæðagreiðslu í Lit- háen á laugardag vom 90,47% kjósenda fylgjandi því að landið yrði sjálfstætt lýðveldi með lýð- ræðisstjórnskipulagi. Þing Lithá- ens samþykkti á mánudag sam- hljóða ályktun þar sem segir að kosningin feli í sér „raunverulega ákvörðun þjóðarinnar um að stofna lýðræðislegt, borgarlegt þjóðfélag" og hún sýni eindreginn vilja til að veija og styrkja sjálf- stæðið. Jafnframt er skorað á önnur ríki heims að taka upp stjórnmálasamband við Litháea Fara líklega að dæmi Islendinga Mörg ríki em Iíkleg til að fara að dæmi íslendinga og taka upp stjórnmálasamband við Litháen að teknu tilliti til viðbragða og þeirra áhrifa sem ákvörðun ís- lendinga hefur. Þetta er-mat hátt- setts embættismanns í bandaríska utanríkisráðuneytinu. Embættis- ifiaðurinn, sem óskaði nafnleynd- ar, taldi að Sovétmenn myndu ekki slíta stjórnmálasambandi við íslendinga heldur láta mótmæli duga. Karen Karagesjan, að- stoðarmaður Vítalíjs Ignaten- kos, blaðafulltrúa Míkhaíls Gor- batjovs Sovétforseta, sagði á fímmtudag að í Moskvu hefðu menn ekki hugleitt þann mögu- leika að slíta stjórnmálasamband- ið við íslendinga. Fargjaldastríðið á Atlantshafsleiðinni harðnar: American Airlines lækk- ar fargjöld um 60% Dallas. Reuter. BANDARÍSKA flugfélagið American Airlines lækkaði fargjöld sín innanlands í Bandaríkjunum og til útlanda um allt að 60% á föstu- dag. Var fargjald fram og til baka á flugleiðinni milli Chicago og Parísar t.a.m. lækkað úr 618 dollurum í 318 dollara, jafnvirði 17.200 ISK. Nýju fargjöldin tóku gildi þegar á föstudag og miðast við það að farmiði sé keyptur fyrir 1. mars þó ferðin hefjist síðar. Er ákvörðun American liður í fargjaldastríði á flugleiðinni yfír Norður-Atlants- haf sem hófst sl. sunnudag er breska flugfélagið British Airways (BA) tilkynnti 33% lækkun far- gjalda milli London og New York. Bandarísku flugfélögin Pan Amer- ica (Pan AM) og Trans World Air- ways (TWA) ákváðu að lækka sín fargjöld til jafns við BA en bandarísk yfirvöld höfnuðu lækk- unarbeiðni breska félagsins og er því óvíst hvort til lækkunarinnar þess eða annarra flugfélaga kem- ur. Er talið að með þessu hafi Bandaríkjastjóm verið að knýja á bresk yfirvöld um að heimila bandarískum flugfélögum aukin afnot af Heathrow-flugvellinum í London. 'Ákvörðunin kann að koma sér mjög vel fyrir Pan Am og TWA vegna gífurlegra fjár- hagsörðugleika þeirra beggja. Af hálfu TWA var þó tilkynnt á föstudag að félagið væri í þann mund að bjóða lækkuð fargjöld til annarra áfangastaða í Evrópu en London. American Airlines sagðist ekki myndu lækka fargjöld til Bretlands. Pan Am hóf nýja söluherferð innan Bandaríkjanna með því að bjóða ferðir milli stranda landsins og jafnvel alla leið til Evrópu fyrir svo lítið sem 119 dollara, jafnvirði 6.400 ÍSK, hvora leið. Til þess að geta notið þessa fargjalds verða menn að hafa áður flogið með félaginu og framvísa svuntu af flugmiða úr slíkri flugferð. ERLENT Breskir menntamenn og Persaflóastríðið PERSAFLÓASTRÍÐIÐ hefur komið illa við margan. Sá hópur manna, sem leiðir og mótar skoðanir um málefni Iiðandi stundar og kalla má menntamenn, hefur skipst í afstöðu sinni. Sú skipt- ing er öðruvísi en vegna Falklandseyjastyijaldarinnar og, að því er virðist, Víetnamstríðsins. IBfetlandi er að finna hópa, sem það, sem þáú telja andleg örlög eru harðir andstæðingar i sín: „Ég er Guð; komdu andskota stríðsins. Uppistaðan í þeim er Baráttan fyrir kjamorkuafvopnun (CND), sem hefur beitt sér gegn stríðsátökum sl. þijátíu ár. En það, sem er markvert nú, er að þessi andstaða á sér minni hljóm- grunn meðal menntamanna en oftast áður. Það er sjálfsagt að geta tveggja staðreynda, sem skipta máli f þessu sambandi. I fyrsta lagi hafa báðir stóru stjómmálaflokk- arnir, Verka- mannaflokkurinn og íhaldsflokk- urinn, verið sammála um stefnuna í Persaflóastríðinu fram til þessa, þótt áherslur séu ekki alveg þær sömu. í öðm lagi hefur John Major, forsætisráðherra, allt ann- an stíl en fyrirrennari hans, Marg- aret Thatcher. Það er allt eins lík- legt, að andstaða menntamanna væri meiri en hún er, ef Thatcher væri enn við stjómvölinn. Andstöðunni gegn Persaflóa- stríðinu virðist í megindráttum mega skipta í þrennt. I fyrsta lagi era eindregnir friðarsinnar, sem trúa því að allur vígbúnaður og vopnaátök séu siðlaus og þess vegna sé alltaf rangt að veijast ofbeldi. Þetta er nokkur hópur, en ekki ber mikið á honum vegna þess, að það er ákaflega erfítt að taka hann aivarlega. Ef skoðun hans væri rétt, hefðu öll átökin gegn Hitler á sínum tíma verið samfellt sigurverk siðleysisins. Þessu trúir ekki nokkur maður< með fullu viti, enda er skoðunin siðiaus en ekki allt ofbeldi. I öðru lagi eru þeir, sem hafa fyrirlitningu á Bandaríkjunum og öllum tiltektum þeirra. í þennan hóp verður að flokka Tony Benn, þingmann Verkamannaflokksins, sem hefur beitt sér hart gegn stefnu flokks síns. Sömuleiðis er leikskáldið Harold Pinter í þessum hópi. Hann sagði nýlega um stríð- ið: „Bandaríkin eru að gera ein- faldan hlut. Þau eru að staðfesta þínum úr vegi mínum. Fnykurinn flyst með okkur að eilífu." í þriðja lagj era þeir, sem halda því fram, að þetta stríð standi um olíu og ekkert annað. Það sé því ný mynd gamallar heimsvalda- stefnu, sem er fyrir löngu siðiega gjaldþrota. Sá, sem hefur haldið þessu fram af mestum krafti, er Paul Foot, blað- amaður. Stærstur hluti þess hóps, sem kallaðir era menntamenn, er þó fylgjandi stríðinu, þótt sumir geri ágreining um tímasetninguna og vilja, að viðskiptabannið hefði fengið meiri tíma. En meginástæðan fyrir því, að þeir telja stríðið réttlátt eða a.m.k. réttlætanlegt er sú, að þeir sjá ekki aðra leið til að stöðva Saddam Hussein. Þetta segja há- skólamenn eins og sagnfræðing- urinn Conrad Russell, sonur Betr- ands Russells,-heimspekings, eins af stofnendum Baráttunnar fyrir kjamorkuafvopnun, og Bemard Crick, sem einnig er sagnfræðing- ur, en hvorugur þessara manna hefur verið sakaður um hægri- stefnu. Stjómmálamaðurinn David Owen bætir því svo við, að næst á eftir Kúveit hefði Saddam Hussein lagt til atlögu við Jórdan- íu og þá hefði stríð við ísrael ver- ið óumflýjanlegt. Það stríð hefði verið miklu erfiðara og kostnaðar- meira en núverandi styijöld. En hveiju svara menn því, að þessi styijöld snúist um olíu og allt talið um nýja skipan heims- mála sé hreint yfirskin og Samein- uðu þjóðirnar einungis leiksoppur Bandaríkjanna? Svarið virðist einkum vera í tvennu lagi. Annars vegar þá séu ástæður til stríðs ævinlega margbrotnar og auðvit- að sé það mikilvægur þáttur, að stærstu olíubirgðir heimsins eru á þessu svæði. Það þýði hins vegar ekki, að olían sé eina ástæðan og sjálfsagt sé að taka mark á þeim vilja, að styrkja Sameinuðu þjóð- Reuter John Major forsætisráðherra. Það er allt eins líklegt, að and- staða menntamanna væri meiri en hún er, ef hann væri ekki við stjórnvölinn. irnar til að vinna gegn ofbeldis- hneigðum einræðisherra eins og Saddam Hussein. Hins vegar er sagt, að þótt Bandaríkin, Bretar og aðrir meðal bandamanna þeirra séu ekki full- komnir og hafí gert ýmislegt, sem ekki verði réttlætt, þá þýði það ekki, að þetta stríð sé ranglátt. Heimurinn og mennirnir í honum séu ófullkomnir og þótt þeir hafi breytt illa áður, séu þeir nú að gera rétt. Og það eigi að styðja. Skoðanir af þessu tæi má sjá hjá dálkahöfundum eins og Neil As- cherson á The Independent on Sunday, sem telur sig vera rót- tækan byltingarmann. Það er rétt að taka fram, að þessar skoðanir taka fullt tillit til þess, að óbreyttir borgarar í írak era raunverulegt fólk og geta hæglega týnt lífinu í þessum átök- um. Hernaðaraðgerðir andstæð- inga Saddams Husseins hafa mið- að að því að halda dauðsföllum óbreyttra borgara í lágmarki, enda er það skilyrði þess, að stríð geti talist réttlátt. A þessu varð mikilvægur misbrestur sl. mið- vikudag er óbreyttir borgarar féllu í loftárás á Bagdad af hvaða ástæðum, sem hann stafar. Baksvió eftir Guömund Heibar Frímanns- son

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.