Morgunblaðið - 17.02.1991, Side 21

Morgunblaðið - 17.02.1991, Side 21
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. FEBRUAR 1991 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. FEBRUAR 1991 21 Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakiö. Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Alver og orkuver Umræður um hin mikilvæg- ustu þjóðmál hafa tilhneig- ingu til að þróast út í heldur ómerkilegt karp um smáatriði og pólitískt dægurþras, þar sem stjómmálamenn sýnast leggja meiri áherzlu á að koma höggi hver á annan en ræða málefna- lega um veigamestu þætti mál- anna og upplýsa með slíkum umræðum hinn almenna borgara um stöðu mála. Umræður um nýtt álver og orkuver tengt því, hafa um nokk- urt skeið fallið í þennan farveg. Klögumálin ganga á víxl á milli stjómar og stjómarandstöðu en þó ekki sízt undanfarna daga milli samstarfsmanna í ríkis- stjóm, þar sem fulltrúar Alþýðu- bandalags og Framsóknarflokks vega hart að iðnaðarráðherra Alþýðuflokks, sem hefur forræði málsins á sinni hendi. Þetta pólitíska þras minnir óneitanlega á þær umræður, sem fóru fram, þegar samningar voru gerðir fyrir aldarfjórðungi um bygg- ingu álvers í Straumsvík og ákvörðun var tekin um byggingu Búrfellsvirkjunar. Það var t.d. eitt helzta hugsjónamál Alþýðu- bandalagsins á þeim tíma, að Búrfellsvirkjun yrði ekki byggð heldur smávirkjun í hennar stað! Það var líka eitt helzta hugsjóna- mál Alþýðubandalagsins þá, að orka fallvatnanna yrði notuð til húsahitunar og talsmenn flokks- ins töldu því óþarft að leita eftir markaði fyrir þessa orku með byggingu stóriðjuvera! Það skiptir höfuðmáli, að okk- ur takist að ná viðunandi samn- ingum um byggingu nýs álvers. Menn þurfa ekki annað en lesa nýlegt yfírlit frá Þjóðhagsstofn- un um þróun efnahagsmála á síðasta ári og horfur á þessu ári til þess að sjá, að það er ekkert að gerast í þessu landi. Hér er allt í stöðnun. Framkvæmda- menn halda að sér höndum eftir bitra reynslu þeirra, sem á und- anförnum árum hafa lagt út í nýjar atvinnugreinar, hvort sem er fiskeldi eða loðdýrarækt, sem fjármagnaðar hafa verið með verðtryggðum lánum með háum raunvöxtum. Kjarkurinn er horf- inn. Það má endalaust deila um það, hvort iðnaðarráðherra hefur haldið rétt á þessu máli eða hvort samskipti hans og stjórnar Landsvirkjunar hafa verið eins og bezt verður á kosið. En slíkar deilur mega ekki yfirgnæfa aðal- atriði þessa máls: Eru þeir samn- ingar, sem kostur kann að vera á, þegar á heildina er litið, viðun- andi fyrir okkur íslendinga? Um þetta þarf að ræða. Þeir, sem halda því fram, að við kunnum að tapa milljörðum á þessum samningum hljóta að færa efnis- leg rök fyrir sínu máli í stað þess að slá fram alls kyns órök- studdum staðhæfingum. Hins vegar er ástæða til að undirstrika þá staðreynd, að þessir samningar eru alls ekki í höfn. Nú er staðfest, að töluverð- ar tafir verða á samningsgerð- inni o g hugsanlegum fram- kvæmdum frá því, sem áður var áformað. Vart fer á milli mála, að samdráttur í efnahagslífi Bandaríkjanna og styijöldin við Persaflóa eiga þar hlut að máli. Þessi óvænta þróun mála sýnir okkur hversu viðkvæm samn- ingagerð af þessu tagi er. Iðnaðarráðherra hefur lýst því yfír, að hann muni leggja fram frv. að heimildarlögum á þessu þingi. Með hliðsjón af því pólitíska karpi, sem gosið hefur upp síðustu daga um málið er ánægjulegt að sjá hver viðbrögð Sjálfstæðisflokksins eru við þeirri yfírlýsingu. I grein hér í Morgunblaðinu í gær, sagði Halldór Blöndal, varaformaður þingflokks Sjálfstæðismanna: „Sjálfsagt er fyrir Sjálfstæðis- flokkinn að taka slíkum tillögu- flutningi vel. Samningsgerðin verður í höndum næstu ríkis- stjómar. Það er vonandi, að fmmvarp iðnaðarráðherra fái efnislega meðferð á Alþingi.“ 1 1 Q MER ER JL A •Jtnær að halda kvótakerfíð sé einsog marxismi, óréttlátt 1 eðli sínu, þótt tilgangurinn sé kannski ekki svo slæmur. En hann er farinn að helga meðalið. Kvótakerfíð blæs á grund- vallarhugmynd sjálfstæðisstefn- unnar um eign handa öllum. Og mér er óskiljanlegt hvaðan svoköll- uðum vinstrisinnum í öðrum flokk- um kemur sá hugsjónahiti að lífsnauðsynlegt sé að mynda eign handa fáum, þvertoní landslög. Þegar við fengum 200 mílna fisk- veiðilögsögu 1976, með sameigin- legu átaki allra íslendinga, var auk- ið við eign hvers og eins, en ekki fárra útvaldra. Eða hvað ætla ráða- menn að gera þegar dýrir málmar og aðrar takmarkaðar auðlindir einsog olía fínnast á hafsbotni? Á þá að búa til falskan eignarkvóta handa Stálfélaginu, álmönnum og olíufélögum? Fá þá allir að ráðskast með eignina — nema eigendurnir? Flokkar sem geta ekki svarað slíkum spurningum nema með þjóð- nýtingarhjali eða hörðum kapítal- isma eru í vanda staddir á alda- hvörfum hruns og nýsköpunar. Allt er í deiglu nú um stundir, einnig Sjálfstæðisflokkurinn. Séu fískimiðin 400-500 milljarða virði einsog sumir ætla væri hlutur hvers og eins í auðlindinni ekki undir tveim milljónum króna og síhækkandi fiskverð eykur verðgildi hennar stöðugt. Solzhenitsyn hefur krafízt þess kommúnistar skili fyrri eigendum aftur eignum sínum áður- en talað sé við þá í alvöru. Eg þyk- ist heyra vægt bergmál þessarar kröfu fara íslenzkt þjóðlíf áminnandi þunga og það mun yfír- gnæfa annað skvaldur áðuren fiski- mið okkar eru komin á örfárra manna hendur þótt lög segi fyrir HELGI spjall um þau séu eign allra íslendinga. 120.' ORYGG- ismálin gætu jafnvel orðið erfíð viðureignar svo örar breytingar sem orðið hafa í kringum okkur. Sjálfstæðisflokkur- inn þarf að hafa mildandi áhrif á andstæðumar og laga öryggisstefn- una að nýjum viðhorfum og breyt- ingum sem verða munu á næstu árum. Hann verður að hafa sann- færandi forystu, ef styrkur hans á að haldast og hún á að sætta, en ekki sundra. Án forystu Sjálfstæð- isflokksins verður engin sannfær- andi breyting í þessum málaflokki. Hann einn hefur fullan trúnað kjós- enda, að ég hygg. En nú boðar enginn úrsögu úr NATO og vamar- mál eru ekki ásteytingarsteinn; nú veifar enginn aronsvendi lengur. En því má þá ekki heldur gleyma sem Havel sagði hér heima, Evrópa er á leið til nýs iíryggiskerfís. Við getum að sjálfsögðu ekki annað en fylgzt með þeirri þróun því hún snertir okkur og við eigum aðild að samtökum um öryggi í Evrópu. í samtali við Björn Bjamason í Mannlífi er drepið á öryggismál og skynsamlega talað einsog Bjöms er von og vísa. „Við eigum ekki að kasta hinu góða öryggiskerfí fyrir róða heldur viðhalda því í samræmi við breyttar aðstæður,“ segir hann. „Ég lít á hervarnir eins og trygg- ingakerfi. Þótt ég verði ekki fyrir slysi eða áföllum vil ég ekki að tryggingafélög séu lögð niður, eða hætti að greiða iðgjöld. Ég krefst þess ekki heldur að lögreglan sé lögð niður, þótt umferðarljósum fjölgi, hins vegar spara ljósin mann- afla og draga úr slysum.“ Nýr og breyttur heimur kallar á önnur viðbrögð en verið hafa. Ör- yggi þarf að treysta í samstarfi við alla þá sem vinna að friði í lífs- háskafullum heimi kjamorkunnar. En við eigum ekki að nota hjálm- inn til að sækja vatn handa Hrafni. Á það emm við minnt, nær daglega. 1 01 FRJÁLSAR ÞJÓÐIR Afcíi A »hafa tilhneigingu til að stökkva í björgunarbátinn og yfír- gefa farþega sökkvandi skips eins- og Lord Jim í samnefndri skáldsögu Conrads. í Kúveit er olía. Smáríki á heimsmælikvarða einsog írak gerir innrás í landið, henni er mætt með stríði. Það er engin olía í Lit- haugalandi, þótt það sé einskonar forðabúr fyrir Sovétríkin. Landið er lagt, nánast hljóðalaust, undir jámhæl marxista sem kunna bezt við sig í skriðdrekum og hafa ein- ungis getað framkvæmt kenning- una úr fallbyssuturni þeirra. Engu er líkara en S.Þ. missi allan þrótt andspænis þeim. Og það er stokkið í bátinn. Mér fannst einsog ég væri að svíkja hina dauðu, segir Jim í skáldsögu Conrads. En hvernig líður okkur? Líklega eitthvað svipað og Jim. En enginn ætlast þó til menn hefji heimsstyijöld að gamni sínu. Þar skilur á milli sovézkra skriðdreka og írakskra. Þetta stökk kostaði Jim sjálfs- virðinguna. Og hann leitaði hennar alla ævi. Reyndi að snerta himininn með hendinni, einsog segir í sög- unni. Sjálfsvirðingin skiptir öllu. Gagn- vart Lithaugalandi virðist hún í lagi. En gagnvart okkur sjálfum er hún í skötu líki. Þáð sjáum við í sjón- vörpunum sem eru mestmegnis er- lent bergmál, einskonar sírenuseið- ur sem jafnvel Odysseifur þurfti að varast. En andspænis slíkri atlögu er alþingi stikkfrí. Það er svosem eftir öðru. M. (meira næsta sunnudag.) AHINUM MIKLU BREYT- ingatímum í alþjóða- málum felst þverstæða í að halda því fram, að utanríkismál verði ekki ágreiningsefni í þing- kosningunum nú í vor. Það skal hins vegar gert og rökstutt. í fyrsta lagi er ekki lengur neinn ágreining- ur sem máli skiptir um aðild íslands að Atlantshafsbandalaginu eða vamarsamn- inginn við Bandaríkin. Það hefðu einhvem tíma þótt meiri tíðindi en nú, að ríkisstjórn með ráðherra Alþýðubandalagsins innan dyra sendi erindreka til Bandaríkjanna í því skyni að fá stjórnvöld í Washington til að falla frá niðurskurði á fjái’veitingum til varnarliðsins. I öðru lagi leggur enginn stjórnmálaflokkanna til aðild að Evrópu- bandalaginu og víðtæk samstaða er um að nauðsynlegt sé að gera samning um evrópskt efnahagssvæði. í þriðja lagi gæt- ir ekki lengur opinberlega sérviskulegra sjónarmiða þeirra, sem sóttu línuna til Moskvu. Ályktun alþingis um stjómmálasam- band við Litháen vekur ekki hefðbundnar deilur um utanríkismál og ekki heldur fyr- irhuguð samningsgerð um nýtt álver. Þessi tvö mál hafa hins vegar dregið athygli að ágreiningi innan ríkisstjómarinnar, þar sem forssétisráðherra var fjarverandi þeg- ar alþingi ályktaði um Litháen og fjármála- ráðherra og iðnaðarráðherra rífast harka- lega um álmálið. Um leið og þessu er slegið föstu skal hitt einnig fullyit, að á komandi þingi eigi umræður eftir að snúast meira um utanrík- ismál og þátttöku okkar í alþjóðlegu sam- starfí en jafnvel nokkru sinni fyrr. Takist samningamir um evrópska efnahagssvæð- ið fylgir þeim að lögfesta hér lagabálk Evrópubandalagsins, sem er talinn vera rúmar 10.000 blaðsíður í prentuðu máli. Er unnið að því að þýða þennan mikla bálk á íslensku. Óljóst er hvemig staðið verður að lögfestingunni, hins vegar er líklegt að ekki verði langur tími til stefnu, þar sem ætlunin er að evrópska efnahags- svæðið komi til sögunnar um leið og innri markaður Evrópubandalagsins, það er í ársbyijun 1993. í vor eða á næsta þingi verður fyrsti afvopnunarsamningurinn sem ritað hefur verið undir fyrir Islands hönd tekinn til umræðu. Á að nota það tækifæri til hins ýtrasta til að gera þing og þjóð sem ná- kvæmasta grein fyrir þróun vamar- og afvopnunarmála í Evrópu. Samningurinn er um fækkun hefðbundinna vígvéla í Evrópu, á svæðinu frá Atlantshafi til Úral- fjalla, CFE-samkomulagið svonefnda. Það var undirritað við hátíðlega athöfn í París 19. nóvember síðastliðinn en kemur ekki til framkvæmda fyrr en ríkin 22 sem að samkomulaginu standa hafa staðfest það á lögformlegan hátt, það er með samþykki þjóðþinga sinna. Vegna hinna miklu breytinga sem orðið hafa í stjómmálum Mið- og Austur-Evrópu er ljóst, að Atlantshafsbandalagið (NATO) breytir vamarstefnu sinni. Varnarlínan sem dregin var við landamæri Austur- og Vestur-Þýskalands er horfin með samein- ingu Þýskalands í eitt ríki. Ríkin sem lutu stjóm kommúnista em ekki lengur eins- konar stuðpúði fyrir Sovétríkin gagnvart Vesturlöndum heldur gegna nú þannig hlutverki fyrir NATO. Unnið er að því að endurskipuleggja varnarstefnu NATO með hliðsjón af því að viðvörunartíminn vegna hugsanlegrar árásar frá Sovétríkjunum er mun lengri en áður. í höfuðstöðvum NATO tala menn ekki lengur um threat eða ógn þegar þeir skilgreina öryggishagsmuni bandalagsþjóðanna heldur risk eða áhættu. Enn veit enginn hvaða dilk hemaðar- átökin við Persaflóa draga á eftir sér. Við sjáum ekki enn hver verður skipan mála við flóann eða almennt fyrir botni Miðjarð- arhafs eftir að fjölþjóðaherinn sem berst í umboði Sameinuðu þjóðanna hefur lokið því ætlunarverki sínu að ná Kúveit frá Saddam Hussein. Jafnmikil óvissa ríkir um framtíð Sovétríkjanna. Tekst að leysa úr ógnarvandanum þar á friðsaman hátt eða kemur til borgarastyijaldar? Viðhorf NATO INNAN ATLANTS- hafsbandalagsins er sú skoðun ráð- andi að það þjóni ekki hagsmunum aðildarríkjanna að gera neitt, sem Sovét- stjórnin geti talið ógna eða ögra sér. Nú skipti mestu að fara sér hægt og fylgjast náið með þróunina innan Sovétríkjanna og ýta undir það sem stefnir í rétta átt án þess að raska miðstjórnarvaldinu í Moskvu. Þessi afstaða leiðir til þess, að á vettvangi Atlantshafsbandalagsins er erf- itt að fá menn til fylgis við þá skoðun að Vesturlönd eigi að sýna stuðning sinn við sjálfstæðisbaráttu Eystrasaltsríkjanna í verki og viðurkenna ríkin með formlegu stjórnmálasambandi eins og íslensk stjórn- völd hafa ákveðið að gera eftir mikinn þrýsting heima fyrir og frá Litháen. Á meðan menn voru sannfærðir um að Mikhaíl Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, væri á umbóta- og framfarabraut hafði þessi stefna við nokkur rök að styðjast. Þá var unnt að benda á, að stutt væri við bakið á þeim manni, sem hefði sýnt að hann væri reiðubúinn til að falla frá hefð- bundinni valdbeitingarstefnu Kremlverja og gefa fólkinu sjálfu leyfi til að láta i ljós skoðanir sínar og vilja og virða hann. Eft- ir atburðina sem hafa gerst í Vilnius og Riga og mörg augljós merki um að Gorb- atsjov veðji nú á Rauða herinn og öryggis- lögregluna KGB til að halda völdum og hrinda ákvörðunum sínum í framkvæmd er hæpið, svo að ekki sé meira sagt, að það sæmi vestrænum ríkisstjórnum eða varnarbandalagi Vesturlanda að fylgja stefnu, sem er ætlað að skapa öryggis- kennd hjá Kremlveijum. Með því kann NATO að vera að leggja blessun sína yfir valdbeitingu Rauða hersins sem þjónar þeim tilgangi að knýja fólk til að virða miðstjómarvald síðasta nýlenduveldisins í Evrópu. Þegar þetta er sagt má þó ekki gleyma því, að upplausn innan Sovétríkj- anna fylgir mikil áhætta fyrir þjóðirnar í Evrópu og þar með mörg aðildarríki Atl- antshafsbandalagsins. Menn óttast til dæmis að borgarastyijöld í Sovétríkjunum kunni að hafa í för með sér að flóttamenn streymi þaðan vestur á bóginn. Margir stjórnmálamenn á Vesturlöndum hafa lagt mikið undir með porbatsjov, ef þannig má að orði komast. í kosningabar- áttunni hér á landi fyrir fjórum árum taldi Steingrímur Hermannsson sér það til dæmis mjög til framdráttar að hann fór og heimsótti Gorbatsjov i Moskvu í lok febrúar, aðeins fáeinum vikum fyrir kosn- ingar. Voru myndir af þeim félögum, þar sem þeir voru að heilsast í skrifstofu Gorb- atsjovs í Kreml, óspart notaðar í kosninga- auglýsingum framsóknarmanna í sjónvarpi og blöðum. Gat engum dulist aðdáun Steingríms á Gorbatsjov. Nú lætur Steingrímur á hinn bóginn í það skína, að hann hafi snúið baki við Gorbatsjov, harðstjóm hafí að nýju náð undirtökunum í Sovétríkjunum. Við mat sitt á Gorbatsjov og hlutverki hans studdist Steingrímur vafalaust við álit Hans-Dietrichs Gensch- ers, utanríkisráðherra Þýskalands og leið- toga fijálslynda flokksins þar, sem er í bræðraflokkasamstarfi við framsóknar- menn. Genscher hefur verið utanríkisráð- herra síðan 1974 og nýtur því mikils álits vegna þekkingar og reynslu. Hann hefur verið ákafur málsvari Gorbatsjovs og brást til dæmis við blóðbaðinu í Vilnius með því að segja, að ástæðulaust væri fyrir þýsku stjómina að breyta um stefnu gagnvart Sovétríkjunum eða fyrir þýskan almenning að hætta að gefa mat til Sovétríkjanna. Flóknir samningar SAMNINGARNIR sem ritað var undir í París, CFE-1- samkomulagið, eru gerðir milli 22 ríkja í Atlantshafsbandalaginu og Varsjár- bandalaginu. Þeir snúast um fækkun á skriðdrekum, brynvörðum hervögnum, stórskotavopnum, orrustuflugvélum og árásarþyrlum. Samningarnir byggðust á REYKJAVIKURBREF Laugardagur 16. febrúar því grundvallarsjónarmiði að nauðsynlegt væri að stemma stigu við yfirburðum Sov- étmanna í hefðbundnum herafla í miðhluta Evrópu. Litið er á samkomulagið sem for- sendu frekari samninga um samdrátt her- afla í álfunni og næsta skref verður að semja um fækkun hermanna. Eftirlits- ákvæði CFE-samkomulagsins eru flókin og við framkvæmd þeirra reynir á íslensk stjórnvöld með öðrum hætti en áður; fer varnarmálaskrifstofa utanríkisráðuneytis- ins með þessi mál. Á vettvangi Atlantshafsbandalagsins hafa Steingrímur Hermannsson forsætis- ráðherra og Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra lagt til að umboð í samn- ingaviðræðunum um takmörkun vígbúnað- ar verði rýmkað þannig að það nái til af- vopnunar á höfunum. Hefur þeim óskum verið hafnað innan Atlantshafsbandalags- ins. Sumir telja að ekki sé enn tímabært að huga að vígbúnaði á höfunum. Aðrir, einkum Bandaríkjamenn, eru þeirrar skoð- unar, að ástæðulaust sé að gera nokkuð sem takmarki umsvif herflota. Loks eru þeir sem segja, að einhliða aðgerðir þjóða og endurnýjun á tækjabúnaði leiði best til þess að vígbúnaður minnki á höfunum. Áhugi manna á slíkum aðgerðum er minni en ætla mætti, til dæmis hefur ekki verið um það rætt í fréttum hér, að Bandaríkja- menn ætla að loka bækistöðinni fyrir kjarnorkukafbáta, sem þeir hafa í Holy Loch, skammt frá Glasgow í Skotlandi. Þar sem Poseidon-kafbátar Bandaríkjanna eru að hverfa úr sögunni er ekki lengur þörf fyrir stöðina, en hún er sú kjamorku- kafbátastöð Bandaríkjamanna sem er næst okkur. Eins og áður sagði er CFE-samkomu- lagið á milli ríkja Atlantshafsbandalagsins og Varsjárbandalagsins. Frá því að samn- ingaviðræðumar hófust hefur sú mikil- væga breyting orðið, að Varsjárbandalagið hefur gufað upp, ef þannig má orða það, og öflugasta ríki þess fyrir utan Sovétrík- in, Austur-Þýskaland, er ekki til lengur. Þess verður vart innan Sovétríkjanna, að harðlínumennirnir svonefndu, sem Mikhaíl Gorbatsjov forseti hallar sér æ meira að, eru andvígir CFE-samkomulaginu. Innan Rauða hersins era áhrifamiklir menn þeirr- ar skoðunar, að Edúard Shevardnadze, fyrram utanríkisráðherra, hafi samið af sér í afvopnunarmálum. Þessi gagnrýni ýtti undir ákvörðun Shevardnadze um að segja af sér. Sovétmenn hafa ekki staðið við CFE- samkomulagið. Johan Jörgen Holst, vam- armálaráðherra Noregs, hefur gagnrýnt framgöngu Sovétmanna. Hann segir að þeir efli vígbúnað sinn á Kóla-skaga við landamæri Noregs. Þeir hafi farið með skriðdreka austur fyrir Úralfjöll, sem þeir hefðu átt að rífa. Verður þess víðar vart innan NATO að menn era fullir tortryggni í garð Sovétmanna. Þá efast sumir um að sovéska þingið staðfesti CFE-sam- komulagið og á það er bent, að óvissa kunni að vera um framgang þess á þingum ríkjanna í Mið- og Austur-Evrópu. Gæti svo farið að samkomulagið yrði einskonar fórnarlamb upplausnarinnar í fyrrum fylgi- ríkjum Sovétríkjanna og innan Sovétríkj- anna sjálfra. Talsmenn vestrænna ríkis- stjórna segja, að æskilegast sé að flýta staðfestingu á CFE-samkomulaginu, áður en upplausnin verði enn meiri i austur- hluta Evrópu, þannig að unnt verði að vísa til þess til að hafa hemil á frekari vígbúnaði þar. Allt þetta verða menn að hafa í huga hér, þegar tekin verður endanleg afstaða til CFE-samkomulagsins. Ástæða er til að minna á þá staðreynd að með aðild að samkomulaginu og samningaviðræðunum sem í kjölfar þess sigla skuldbindum við okkur í raun til þess að hrófla ekki við grundvelli stefnunnar í öryggis- og varnar- málum nema með þeim hætti að samrým- ist gangi þessara viðræðna. íslensk stjórn- völd era þannig bundin af því umboði sem samningamönnunum hefur verið sett og nær ekki til vígbúnaðar á höfunum, ekki enn að minnsta kosti. Varsjár- bandalagið hverfur A ÞRIÐJUDAG skýrði Vítalíj ígnat- enko, talsmaður Gorbatsjovs, frá því að aðildarríki Var- sjárbandalagsins hefðu samþykkt að leggja það niður sem hernaðarbandalag fyrir 1. apríl. í máli hans kom fram, að Sovétmenn vonuðust til þess að aðildarríki Atlantshafsbanda- lagsins gripu til svipaðra aðgerða. Engin áform eru uppi um að leggja Atlantshafsbandalagið niður. í öllum ályktunum sínum á síðasta ári lögðu leið- togar aðildarríkja þess og utanríkisráð- herrar áherslu á að NATO ætti að starfa áfram, hvað sem liði þróuninni í Evrópu eða frekari samvinnu á vettvangi Ráð- stefnunnar um öryggi og samvinnu í Evr- ópu (RÖSE). Er litið þannig á að NATO sé óhjákvæmilegur hlekkur í öryggiskeðj- unni sem ríkin ætla að viðhalda í Evrópu með tengslum yfir til ríkjanna í Norður- Ameríku, Bandaríkjanna og Kanada. Þeir sem þekkja söguna vita að uppruni og eðli bandalaganna tveggja, Atlants- hafsbandalagsins og Varsjárbandalagsins, er gjörólíkt. Með Atlantshafsbandalaginu var stigið sögulegt skref til að binda enda á bandaríska einangrunarhyggju. Bretar börðust mest fyrir því meðal Evrópuþjóða eins og rakið var í Reykjavíkurbréfi fyrir skömmu. Enn í dag erum við minnt á heimssögulegt gildi samstarfs Bandaríkja- manna og Breta, sem hafa forystu um að bijóta yfirgangssegginn í Bagdad á bak aftur. Island hefur verið undir öryggis- vernd Breta um aldir og í ár era 50 ár liðin frá því að Bandaríkjamenn komu hingað fyrst til varnar landinu, þá á grand- velli samnings við íslensk og bresk stjórn- völd. Varsjárbandalagið var stofnað 1955, fáeinum dögum eftir að Vestur-Þýskaland varð aðili að Atlantshafsbandalaginu. Með því að stofna bandalagið vildu Sovétmenn sýna að þeir gætu einnig komið á fót hern- aðarlegum „samstarfsvettvangi" með „bandamönnum" sínum í austurhluta Evr- ópu. Áður en Varsjárbandalagið varð til höfðu Kremlveijar komið herafla sínum fyrir í ríkjunum, þar sem kommúnistar hrifsuðu til sín völdin eftir síðari heims- styijöldina. Hefur jafnan verið litið á samn- ingana um vera sovésku hermannanna í þessum löndum sem miklu mikilvægari grundvöll fyrir sovéska öryggiskerfinu í löndunum en Varsjárbandalagið sem slíkt. Nú er það sem sé að hverfa úr sögunni og einnig er unnið að því að flytja sovésku hermennina á brott frá löndunum í Mið- og Austur-Evrópu. Fjöldi þeirra er mestur í austurhluta Þýskalands og bíður hann eftir því að þýska stjórnin reisi herbúðir í Sovétrikjunum. Hefði einhver spáð því, að það yrði undir smíði herbúða fyrir þýskt fé komið, að Rauði herinn hyrfí frá Austur-Þýskalandi, hefðu menn talið spá- manninn hafa tapað glórunni. Breytingarnar í austurhluta Evrópu hafa verið með ólíkindum og gerst með meiri hraða en nokkurn gat órað fyrir. Brotthvarf Varsjárbandalagsins er aðeins formleg staðfesting á áhrifum breyting- anna. Manfred Wörner, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, hefur sagt frá þvi að hann fékk unga búlgarska þing- menn í heimsókn til sín fyrir skömmu. í fundarsal framkvæmdastjórans í höfuð- stöðvum NATO í Brassel lýstu þingmenn- imir yfir því, að þeir myndu strax við heimkomuna leggja tillögu fyrir þingið í Sofíu um að Búlgaría sækti tafarlaust um aðild að NATO. Wörner bað þá endilega að fara varlega, þótt hann mæti áhuga þeirra á NATO mikils væri ástæðulaust að gera nú nokkuð, sem Kremlveijar teldu ögrun við sig; innganga Búlgaríu í NATO yrði túlkuð á þann veg í Moskvu. Sama hefur Wörner sagt við forystumenn fleiri ríkja í Mið- og Austur-Evrópu að undan- förnu. Þeir sem nú eru að yfirgefa Varsjár- bandalagið, aðrir en Sovétmenn, líta alls ekki þannig á, að brottför þeirra þaðan eigi að leiða til þess að NATO hverfí úr sögunni, þvert á móti vilja þeir að banda- lagið starfi áfram og veiti þeim vernd gagnvart Sovétrikjunum eða því ríki sem tekur við af þeim. Morgunblaðið/RAX „Vegna hinna miklu breytinga sem orðið hafa í stjórnmálum Mið- og Austur-Evrópu er ljóst, að Atl- antshafsbanda- lagið (NATO) breytir varnar- stefnu sinni. Varnarlínan sem dregin var við landamæri Aust- ur- og Vestur- Þýskalands er horfin með sam- einingu Þýska- lands í eitt ríki. Ríkin sem lutu stjórn kommún- ista eru ekki leng- ur einskonar stuð- púði fyrir Sov- étríkin gagnvart Vesturlöndum heldur gegna nú þannig hlutverki fyrir NATO.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.