Morgunblaðið - 17.02.1991, Síða 39
4
teef HAfiaOTí.
MöRGUNBLÁÐIÐ
aiqAJa'/AJDHOM
UTVARP/SJOíMVARP'sunnudaguk W. februar 1991
39
Sjónvarpið:
Boðorðin
■■■■ í kvöld verður botninn sleginn í sýningar Sjónvarpsins á
99 00 hinni umfangsmiklu þáttasyrpu pólska kvikmyndaleikstjór-
~ ans Krzystofs Kieslowskis um boðorðin. Syrpan er með
hinu merkasta er úr smiðju pólskrar kvikmyndalistar hefur komið
og tóku gagnrýnendur svo til orða, að nú væri Pólland komið á blað
alþjóðlegrar kvikmyndagerðar svo ekki væri um villst. Syrpa Kieslow-
skis vár fjármögnuð af vestur-þýskum aðilum.
Tíunda og síðasta boðorð Gamla testamentisins er til umfjöllunar
að þessu sinni: Þú skalt ekki girnast konu náunga þíns, þjón, þernu
né nokkuð það sem náungi þinn á.
Að vanda nálgast höfundurinn þetta viðfangsefni sitt eftir sínu
eigin höfði og fer fijálslega með. Hér leiðir hann fram tvo bræður,
næsta ólíka að eðli og innræti. Er faðir þeirra fellur frá, uppgötva
þeir bræður að frímerkjasafn hans er mikið að vöxtum og dýrmætt.
Hinn óvænti fjársjóður kveikir miður göfugar kenndir með þeim
bræðrum og leiðir fram ýmsar öfgar í skapferli þeirra. Þýðandi er
Þrándur Thoroddsen.
Kl. 13.30 Gluggað i síðdegisblaðið. Kl. 14.00 Brugð-
ið á leik i dagsins önn. Kl. 14.30 Saga dagsins.
15.00 Topparnir takast á. Kl. 16.15 Heiðar, heils-
an og hamingjan. (Endurtekið frá morgni).
16.30 Akademían.
Kl. 16.30 Púlsinn tekinn i síma 626060.
18.30 Smásaga Aðalstöðvarinnar.
19.00 Kvöldtónar. Umsjón Halldór Backman. Ljúfir
kvöldtónar.
22.00 í draumalandi. Umsjón Ragna Steinun Ey-
jólfsdóttir. Draumar hlustenda ráðnir.
24.00 Næturtónar Aðalstöðvarinnar. Umsjón Rand-
ver Jensson.
ALFA
FM 102,9
8.45 Morgunbæn. Tónlist.
10.00 (stónn. Ágúst Magnússon.
13.30 Alfa-fréttir. Fréttir af því sem Guð er að gera.
Umsjón Kristbjörg Jónsdóttir.
16.00 „Svona er lifið" Ingibjörg Guðmundsdóttir.
20.00 Kvölddagskrá Krossins.
20.15 Hver er Guð? Fræðsluþáttur. Umsjón: Kol-
beinn Sigurðsson.
20.45 Rétturinn til lifs. Ólafur Ólafsson.
21.20 Kvöldsagan. Guðbjörg Karlsdóttir.
21.40 Á stund sem nú. Umræðuþáttur. Umsjön
Gunnar Þorsteinsson.
23.00 Dagskrárlok.
BYLGJAN
FM 98,9
7.00 Eirikur Jónsson og morgunvakt Bylgjunnar.
9.00 Páll Þorsteinsson. Starfsmaður dagsins val-
inn. íþróttafréttir kl. 11. Valtýr Bjöm Valtýsson.
11.00 Valdís Gunnarsdóttir á vaktinni.
12.00 Hádegisfréttir.
14.00 Snorri Sturluson. Fróðleikur, létt spaug og
óskalög.
17.00 Island í dag. Jón Ársæll Pórðarson og Bjarni
Dagur Jónsson taka á málum liðandi stundar.
18.30 Þráinn Brjánsson á vaktinni.
22.00 Haraldur Gislasoni Tónlist.,
23.00 Kvöldsögur. Símatimi ætlaður hlustendum.
24.00 Haraldur Gislason á vaktinni.
02.00 Heimir Jónasson á næturvakt.
EFF EMM
FM 95,7
7.30 Til í tuskið.
8.00 Morgunfréttir. Kl. 8.20 Textabrotið. Kl. 8.40
Frá hinu opinbera. Kl. 8.50 Stjörnuspá. Kl. 9.00
Frétayfirlit.
12.00 Hádegisfréttir.
19.00 Breski og bandariski listinn. Vilhjálmur Vil-
hjálmsson kynnir 40 vinsælustu lögin í Bretlandi
og Bandarikjunum.
22.00 Jóhann Jóhannsson á rólegu nótunum.
STJARNAN
FM 102/104
7.00 Dýragarðurinn. Stjörnutónlist, leigubílaleikur,
getraunir.
9.00 Vinsældatónlist. Bjarni Haukur Þórsson.
11.00 Geðdeildin. Dóri-Mödder, Lilli og Baddi,
Svenni sendill og allar figúrunar nvæta til leiks.
Umsjón Bjami Haukur og Sigufður Hetgi
12.00 Sigurður Helgi Hlöðvetsson. Getraunir og
orð dagsins.
14.00 Sigurður Ragnársson. Ráðgjafaþjónusta
Gabriels Stefánssonar, kvikmyndagetraunir, leikir
og tónlist.
17.00 Björn Sigurðsson
20.00 Vinsældapopp. Jóhannes 8. Skúlason.
22.00 Arnar Albertsson.
02.00 Næturtónlist.
ÚTRÁS
FM 104,8
9.00 Kristján H. Stefánsson. (F.G.
12.00 Hádegisspjall. (F.G.)
13.00 Davið Ólafsson. (F.G.)
16.00 Skapti og Daði (F.G.)
18.00 Framhaldsskólafréttir. .'
20.00 Jón G. Geirdal og Þór B. Ólafsson (F.G.)
24.00 Næturvakt (F.G.).
HINNEINIOG SANNI
FRÍTT KAFFI — VÍOEÓHORN FYRIR BÖRNIN - ÓTRÚLEGT VERB
STEINAR
Hljómplötur — kasettur
KARNABÆR
Tískufatnaður herra og
dömu
HUMMEL
Sportvörur allskonar
VINNUFATABÚÐIN
Fatnaður
PARTÝ
Tískuvörur
BOMBEY
Barnafatnaður
MIKLIGARÐUR
Fatnaður og skór á alla
fjölskylduna
KJALLARINN/KÓKÓ
Alhliða tískufatnaður
STÚDÍÓ
Fatnaður
SAUMALIST
Allskonar efni
VERSLUNIN CARA
Kventískufatnaður
OG MARGIR FLEIRI
Fjöldi fyrirtækja — gífurlegt vöruúrval
Með lágu verði, miklu vöruúrvali og þátttöku fjölda fyrirtœkja
hefur stórútsölumarkaðurinn svo sannarlega slegið í gegn
og stendur undir nafni.
Gárur
eftir Elínu Pálmadóttur
Lagt í vanda-
málapúkkið
Margt er kvenna bölið. Hvar
fékkstu þessa húfu? spyrja
konur þegar maður kemur inn
úr vetrarrokinu með húfuna ofan
í augum. Rífur hana af sér. Og
sjá: Hárið er óbælt! Slík húfa
þykir greinilega þvílíkt fágæti
að hún kallar á sífellda upphróp-
un á þessum síðustu og verstu
óveðurstímum. Það kemur raun-
ar ekki á óvart, svo oft sem leit-
að hefur verið að slíkum gæða-
grip undanfarinn áratug.
Hvað vantar mig sem ekki
fæst nógu gott heima á íslandi?
spyr maður sig gjarnan í útlönd-
um. Satt að segja er það að verða
býsna fátt. Af sú tíð þegar kom-
ið var heim með þefjandi osta
úr utanlandsfei'ðum og vinum
boðið til að smakka. Þá fékkst
baraeinn-
„ostur“ á
landinu. Nú
fæst hið
ágætasta
úrval af ost-
um — æði
bragðlitlir
að vísu að
íslenskum
smekk, en úr
því má bæta.
Maður flytur
semsagt ekki lengur með sér
osta til Islands. Sama má segja
um dönsku skinkuna eða tung-
una, enda ér hún hætt að fást
heil í dósum á flugvöllum. Und-
anfarin ár hefur maður gjarnan
komið við í einhverri delikates-
sunni, eins og hjá Fourcet í Par-
ís, og keypt „paté“ af gæsa-,
anda- eða sveita-tagi eða kæfu
hússins, tii að geta slegið um sig
með bragði í forrétt eftir heim-
komuna. Að sjálfsögðu í dós, því
aðeins þannig má flytja hana inn
í landið. Nú hefur „Franskt eld-
hús“ tekið af það ómakið með
gómsætu „paté“ og sérstöku lúx-
uspaté fyrir jólahátíðina. Úr því
þetta er orðin íslensk gæðafram-
leiðsla getur hún með sóma borið
íslenskt heiti — kæfa!
Enn eru samt húfurnar eftir.
Maður heldur áfram að leita að
og flytja með sér heim brúklegar
húfur fyrir íslenska veðráttu. í
býsna mörg ár hefur svarið
endurtekið sig á gangstéttum
erlendra borga. Ferðalangurinn
spyr sjálfan sig: Er það ekki eitt-
hvað sem mig vantar? Jú, brúk-
lega húfu! Og svo vindur maður
sér inn á jarðhæðina í einhverri
stórversluninni og fer að gramsa
í húfunum. Gjóar augunum en
reynir að forðast hattaborðin
með þessum dýrlegu höfuðfótum.
Vitandi að hattar eru óbrúklegir
á íslandi, fjúka af eða þarf að
ríghalda í þá, svo þeir sem fallið
er fyrir liggja bara ónotaðir uppi
í skáp. Vond fjárfesting að kaupa
þá fyrir svo fáa möguleika á
notkun. Skiljanlegt að íslenskar
konur skarti lítt skrauthöttum á
hátíðastundum — því miður. En
húfurnar! Góð húfa er gulls ígildi
á íslandi. Líklega helst þess-
vegna svona illa eftir heimkom-
una á þessum sem tekst að finna
á útlendum verslunarborðum.
Góð óveðurshúfa, hver á hana?
Er það ekki skrýtið að sáralítið
framboð skuli vera á nothæfum
rokhúfum á íslandi? Og hvaða
kostum þarf íslensk kvenhúfa að
vera búin?
Góð húfa verður að vera þeirr-
ar náttúru að tolla á höfðinu
hvernig sem Kári rífur í hana.
Kanturinn að liggja fyrir neðan
hársröndina. Og hún skal halda
vatni. Góð húfa skal vera nægi-
lega lipur til að stinga megi henni
í vasann ef linnir veðri nægilega
til þess að vegfarendur geti litið
upp og á húfuberann. En umfram
allt veröur góð íslensk kvenhúfa
að vera þeim kostum húin að
bæla ekki hárið. Vera nægilega
belgmikil til þess að loftmikil
hárgreiðsla komist fyrir innan í
henni og efni nógu létt.
I því síðastnefnda liggur hund-
urinn .vei\julegá' grafinn í ís-
lenskri húfuframleiðslu. Húfan
klessir hárið. Og það varanlega
þegar varla veröur komist út úr
húsi í vetrarveðrunum án þess
að troða henni á höfuðið á sér.
Óskahúfan minnir eftir þessari
lýsingu líklega mest á heimalok-
aða sultukrukku, þ.e. þegar
pappír er settur ofan á og bund-
ið með streng utan um fyrir neð-
an. Eða þá gamaldags nátthúfu
frá Viktoríutímanum.
Kynlegt er að ekki skuli allt
mora í svona gæðagripum á voru
landi. Kannski væri það ein óska-
framleiðslan í smáiðnaði í dreif-
býli sem koma skal í stað álfram-
leiðslu, eins og Kvennalistakonur
tala gjarnan um á ráðstefnum?
Vill ekki einhver hugvitsmann-
eskja reyna. Þá þyrfti maður
ekki að flytja með sér heim frá
útlöndum brúklegar húfur fyrir
íslenskt veðurfar.
★
Es. Morgun einn í vikunni birt-
ist mæddur maður hér hjá grein-
arhöfundi i útihýsi Morgunblaðs-
ins, sem er í leiguhúsnæði í Mið-
bænum. Spuröi hvar væri heita-
vatnsmælirinn, hann ætti að loka
fyrir vatnið. Og af hverju hér hjá
Gáruhöfundi? Jú, mælirinn sá
væri skrifaður á nafn Reykjanes-
fólkvangs. Muni einhveijir eftir
raunarollu í gárupistli 2. desem-
ber sl. um baráttuna við tölvu-
myliurnar, þá er komin skýring-
in. Opinberar tölvur hafa hundelt
þennan skrifara, frá því hann
fyrir 1-2 áratugum stóð að stofn-
un Reykjanesfólkvangs og reynt
að eigna þessa sameign margra
sveitarfélaga á Reykjanesskaga
Morgunblaðinu eða vesaling mín-
um. Eftir kokhrausta yfirlýsingu
í desember um að héreftir mundi
á þessum bæ ekki veröa kannast
við téðan fólkvang, hefur Hita-
veitunni kannski hugkvæmst að
lægja mætti í höfundi rostann
með því að skrúfa fyrir vatnið
sem rennur á ofna löngu horfms
formanns í téðum fólkvangi —
þó það sé í leighúsnæði vinnuveit-
anda hans. Segið þið svo að tölv-
urnar beiti ekki hugviti! Því auð-
vitað eru það þær sem finna upp
á slíku! Hver annar?