Morgunblaðið - 08.03.1991, Síða 1
64 SIÐUR B/C/D
56. tbl. 79. árg.
FÖSTUDAGUR 8. MARZ 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Albanía:
Stjórnvöld reyna
að stemma stign
við fjöldaflótta
Vín. Reuter.
STJÓRN kommúnista í Albaníu reyndi í gær að stemma stigu við
straumi flóttamanna frá landinu til Italíu. Helsta hafnarborg lands-
ins, Durres, var sett undir stjórn hersins og fjöldasamkomur voru
bannaðar í nokkrum borgum og bæjum. Um 12.000 Albanir, marg-
ir hverjir svangir og peningalausir, hafa komið til Ítalíu á undanf-
örnum dögum og þarlend stjórnvöld ákváðu að senda flesta þeirra
aftur til Albaníu.
Flestir flóttamannanna höfðu
komið frá Durres og í yfirlýsingu
albönsku stjórnarinnar sagði að
borgin væri undir stjórn hersins.
Yfiriýsingin þótti minna mjög á
þá tíma er stalínistinn Enver
Hoxha var við völd í landinu. „Inn-
lend og erlend öfl“ voru sögð hafa
skipulagt flóttamannastrauminn í
þeim tilgangi að útrýma albönsku
þjóðinni, lama efnahag landsins
og kveikja ófriðarbál á öllum Balk-
anskaga.
Stjórnin bannaði einnig „óeðli-
legar fjöldasamkomur" í Tirana,
höfuðborg landsins, Durres og
strandbæjunum Vlore og Shengj-
in. Daginn áður höfðu hundruð
Albana reynt að ryðjast inn í vest-
ræn sendiráð í Tirana eftir að orð-
rómur komst á kreik um að hægt
væri að fá þar vegabréfsáritanir
til að hefja nýtt líf á Vesturlönd-
Bandaríkjaforseti reifar hugmyndir um öryggiskerfi í Mið-Austurlöndum:
ísraelssljórn segist ekki
sjá neitt nýtt í ræðu Bush
fallið útbyrðis vegna troðnings.
Italska ríkisstjórnin efndi til
skyndifundar um flóttamennina
og ákvað að senda flesta þeirra
aftur til Albaníu.
Sjá „Uppþot á meðal þúsunda
flóttamanna ...“ á bls. 21.
Það var margt um manninn um borð í albanska bátnum Lirija þegar hann sigldi inn í höfnina í Brindisi
í gær. Að minnsta kosti sjö albönsk skip hlaðin flóttafólki eru nú komin til Ítalíu eða á leið þangað.
um.
Jerúsalem. Damaskus. Reuter.
Til uppþota kom í ítölsku hafn-
arborginni Brindisi í gær er þús-
undir albanskra flóttamanna börð-
ust um matvæli eftir þriggja daga
sjóferð frá Albaníu. Einnig þurfti
ítölsk lögregla að bjarga nokkrum
Albönum úr sjónum en þeir höfðu
Talsmaður bandaríska varnar-
málaráðuneytisins sagðist telja að
órói væri nú í tólf íröskum borgum
sem væri helmingi meira en fyrir
nokkrum dögum. Cheney sagði að
svo virtist sem það sem eftir væri
af íraska hernum, þ. á m. Lýðveldis-
vörðurinn, stæði með Saddam.
Hann spáði því að íraksstjórn myndi
takast að bæla niður allan mótþróa.
Fréttaritari breska dagblaðsins
The Daily Telegraph í Bagdad seg-
ist hafa sloppið undan gæslu upp-
lýsingaráðuneytis Iraks og getað
rætt við íbúa þar óhindrað. Þeir
hafi sagt að tólf lögreglumenn og
félagar í Ba’ath-flokknum hafi ver-
ið felldir í óeirðum í Bagdad. Eins
hafi „mjög rnargir" stuðningsmenn
Saddams verið myrtir í borgBasra.
STJÓRNVÖLD í ísrael vísuðu
því á bug í gær að ræða George
Bush Bandaríkjaforseta uni
nauðsyn öryggiskerfis í Mið-
Austurlöndum væri vísbending
um breytta afstöðu til deilu Isra-
ela og Palestínumanna. Hátt-
Fréttaritarinn sagði að viðmælend-
ur sínir byggjust við hinu versta
eftir að vestrænir fréttamenn yfir-
gæfu Bagdad samkyæmt skipun
stjórnvalda og hefði einn hvíslað
því að sér að hroðalegir atburðir
væru í aðsigi,
Iraksstjórn tilkynnti í gær að
sleppt yrði tvö þúsund Kúveitum
sem handteknir voru á meðan föð-
urland þeirra var hernumið.
Skömmu síðar komu hundruð Kúv-
eita til heimalands síns. Einnig segj-
ast írakar ætla að sleppa 21 vest-
rænum blaðamanni en talið er að
35 slíkir hafi horfið í Suður-írak
að undanförnu. Samkomulag varð
í viðræðum bandamanna og íraka
í Saudi-Arabíu í gær um skipti á
stríðsföngum,
settur fulltrúi Palestínumanna
sagðist hins vegar sjá margt
athyglisvert og jákvætt í ræðu
Bandaríkjaforseta.
I ræðu sinni í fyrrakvöld sagði
Bush að nauðsynlegt væri að finna
málamiðlun [ deilu ísraels og
arabaríkja og Israela og Palestínu-
manna. Framfyigjayrði ályktunum
öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna
um þetta efni. Einnig ætti að virða
þá grundvallarreglu að Iand yrði
látið af hendi í skiptum fyrir friðar-
samninga. „Eftir því sem ég kemst
næst af lestri ræðunnar virðist
ekki vera um neina breytingu á
stefnu Bandaríkjastjórnar að
ræða,“ sagði Avi Pazner, háttsett-
ur ráðgjafi Yitzhaks Shamirs, for-
sætisráðherra ísraels, í gær en vildi
ekki tjá sig frekar um ræðuna.
Faisal al-Husseini, háttsettur full-
trúi Palestínumanna, sagði jákvætt
að Bush legði áherslu á ályktanir
öryggisráðsins og viðurkenndi
borgaraleg réttindi Palestínu-
manna.
Núverandi ríkisstjórn ísraels
hefur lagst gegn því að láta her-
numdu svæðin af hendi í skiptum.
fyrir frið við araba. David Levy,
utanríkisráðherra Israels, sagði í
samtali við ísraelska útvarpsstöð í
gær að þarna skildi leiðir með
honum og Bandaríkjaforseta.
Dagblað hersins í Irak, AI-
Qadissiyah, fagnaði ræðu Bush og
sagði að hún væri merki um að
Irakar hefðu unnið sigur í Persa-
flóastríðinu.
Roland Dumas, utanríkisráð-
herra Frakklands, sagðist taka
undir með Bush er hann segði að
nauðsynlegt væri að setja niður
deilur milli ísraela og araba. Hann
sagðist styðja allar tillögur sem
miðuðu að þessu marki en Frakkar
teldu alþjóðlega ráðstefnu um
málefni Mið-Austurlanda vænleg-
asta.
Utanríkisráðherrar þriggja Evr-
ópubandalagsríkj a, Lúxemborgar,
Ítalíu og Hollands, eru nú í ísrael.
Þeir segjast hafa hvatt stjórnvöld
þar til að nota hið sögulega tæki-
færi sem nú gefist til að semja
frið við arabaríki. Þeir leggja til
að slíkur samningur hafi Helsinki-
sáttmálann frá 1975 að fyrirmynd.
Hassan Habibi, varaforseti ír-
ans, og Ali Akbar Velayati, ut-
anríkisráðherra landsins, komu í
gær til Sýrlands til viðræðna við
þarlenda ráðamenn. íranir hafa
lýst yfir áhyggjum af samkomulagi
átta arabaríkja um að Sýrlendingar
og Egyptar stofni friðargæslulið
við Persaflóa. Stjórnmálaskýrend-
ur segja að Iranir séu sárir vegna
þess að þess var ekki óskað að
þeir væru aðilar að samkomulag-
inu.
Sjá „Málamiðlun verði fund-
in...“ á bls. 20.
Reuter
Fyrsta herfylkið heim
Fyrstu bandarísku hermennirnir héldu heimleiðis í gær frá Saudi-
Arabíu. Þj|ð var 24. herfylki fótgönguliðsins sem kvaddi vígstöðvarn-
ar en áætlað er að 5.000 hermenn fari heim á dag að meðaltali.
Samtals eru nú 540.000 bandarískir hermenn við Persaflóa.
Cheney, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna:
Óeirðir gegn stjórn
Saddams breiðast út
Washington. Reuter.
DICK Cheney, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að
óeirðir sem beindust gegn stjórn Saddams Husseins Iraksforseta
hefðu breiðst út undanfarna daga. Fulltrúar Kúrda segja landa sína
hafa náð nokkrum borgum í Norður-írak á sitt vald og barist sé í
einu af hverfum Bagdad.