Morgunblaðið - 08.03.1991, Page 7
ÍL'x'itiil.
wwmATm
n u' '}•'* ;•■•; r
Níu eldsvoðar á síðustu þremur árum frá viðtækjum:
Ráðlegt að hreinsa tæk-
in á þriggja ára fresti
r
segir starfsmaður Rafmagnseftirlitsins
NÍU eldsvoða í heimahúsum má
rekja til bruna í sjónvarps-,
myndbandstækjum eða mynd-
lyklum á síðustu þremur árum
og er tíðni eldsvoða af þessum
völdum meiri hér á landi en á
Norðurlöndunum. Haukur Ar-
sælsson hjá Rafmagnseftirliti
ríkisins segir að ekki nægi að
slökkva á viðtækjum heldur verði
að taka þau úr sambandi vilji
menn hafa vaðið fyrir neðan sig.
Haukur sagði að það væri alveg
ljóst að eldsvoðinn á Laugarnesvegi
aðfararnótt sl. miðvikudags hafi
orsakast af bruna í sjónvarpstæki,
myndlykli eða myndbandstæki.
Skemmdir voru það miklar í íbúð-
inni að ekki var hægt að greina
hvert þessara tækja olli eldsvoðan-
um, þó virtist mega útiloka mynd-
lykilinn þar sem hann hafði ekki
verið í notkun í nokkra mánuði.
Sömuleiðis virtist mega útiloka
myndbandstækið og tölvu sem einn-
ig var við viðtækjasamstæðuna því
hún hafði ekki brunnið að ráði.
Hins vegar var sjónvarpið nánast
brunnið upp til agna, að sögn
Hauks.
Að mati Rafmagnseftirlitisins
eru það agnir úr andrúmsloftinu,
þræðir úr teppum og annað slíkt
sem setjast inn í viðtækin og hjá
því verði vart komist að slíkt ger-
ist. Þegar þeir þrír þættir sem valda
bruna, súrefni, hiti og eldsneyti, eru
til staðar inni í viðtækinu getur eld-
ur orðið laus. Með því að taka einn
þessara þátta út, t.a.m. að taka
viðtækið úr sambandi, er hægt að
koma í veg fyrir eldsvoða. Ef slökkt
er á sjónvarpstæki með fjarstýringu
er straumrásin aðeins rofin en
spenna er ennþá í tækinu. Sama
gildir um myndbandstæki og mynd-
lykla. Myndlyklar eru hættulegri
að því leyti að spennir í tækinu er
alltaf virkur þrátt fyrir að straum-
rásin sé rofin þannig að alltaf er
spenna í tækjunum.
í nokkrum tilfellum myndast hit-
inn frá þéttum sem springa inni í
viðtækjum og eða jafnvel of lítið
bil á milli tveggja andstæðra póla
sem orsaka skammhlaup. Haukur
sagði að ráðlegt væri að láta hreinsa
viðtæki á minnst þriggja ára fresti.
Bilanatíðni Lnútímaviðtækjum væri
það lítil að oft gætu liðið mörg ár,
allt að tíu ár, áður en farið er með
tæki í viðgerð, en það fyrsta sem
rafeindavirki gerir áður en viðgerð
hefst er að hreinsa ryk og ló úr
tækinu.
Haukur kvaðst merkja það af
viðbrögðum hjá rafeindavirkjum að
fleiri sjónvarpseigendur láta hreinsa
tæki sín en áður og sérstaklega í
kjölfar umfjöllunar í ijölmiðlum um
eldsvoða um síðustu áramót sem
talinn var stafa frá myndlykli og
eldsvoða í Herkastalanum á síðasta
ári út frá sjónvarpstæki. Hann sagði
að það væri ekkert eitt vörumerki Ekki er nóg að slökkva á sjónvarpstækjnu með fjarstýringunni.
öðrum fremur sem ylli slíkum elds-
Upplýsingar Rafmagnseftirlits-
ins um fjölda bruna frá viðtækjum
hér á landi hafa verið kynntar fyrir
fulltrúum sambærilegra stofnana á
voðum, hann hefði fengið allar teg-
undir inn á sitt borð, allt frá Bang
og Olavsen-tækjum til kínverskra
sjónvarpstækja.
hinum Norðurlöndunum, og voru
þeir sammála um að tíðni eldsvoða
af þessum sökum væri meiri hér á
landi, að sögn Hauks.
Alvöru amerískur
glæsivagn með 3.0 L V-B vél,
fjögurra þrepa sjálf-
skiptingu, framhjóladrifi og
meira til, fyrir aðeins
kr. 1.545.000,-
Djass:
Skúli Sverris-
son og Full
Circle koma
HINGAÐ til lands er væntanleg
djasssveitin Full Circle en sæti í
henni á Skúli Sverrisson bassa-
leikari. Hljómsveitin er á leið í
tónleikaför til Norðurlanda en
mun halda tvenna tónleika 21.
og 22. mars í Púlsinum og kynna
efni sem er á nýrri hljómplötu
sem var tekin upp í Brasilíu og
gefin er út af Sony-Music í
Bandaríkjunum.
Hljómsveitin var stofnuð fyrir
fimm árum en Skúli gekk til liðs
við hana í fyrra. Aðrir í sveitinni
eru Karl Lundenberg hljómborðs-
leikari, Anders Bostrom flautu- og
hljómborðsleikari, Philip Hamilton ,
ásláttarleikari og raddari og Dan |
Riser trommuleikari. Full Circle S
hefur gefið út tvær plötur og sú |
þriðja, Secret Stories, kemur út á =
næstu dögum. Hún var tekin upp 5
í Brasilíu og naut sveitin liðsinnis
þarlendra ásláttarleikara og söngv-
ara, þar á meðal Gilberto Gil, sem
er einn kunnasti söngvari og laga-
smiður Brasilíumanna í jassbræð-
ingstónlist.
H
R
A.mcrískir bílar eru ekki settir í flokk með mörgum öðrum
bílum. Þeir eru þekktir sem tákn um öryggi,
gæði, þægindi og endingu. Þar sem þessir kostir fara saman að
sönnu, er sjaldnast um annað að ræða en dýra bíla. Okkur
er því ánægja að kynna Chrysler Saratoga;
bíll sem stenst allar þær kröfur sem gerðar eru til amerískra
bíla. Fyrir 1.545.000,- erum við ekki að bjóða einfalda snauða
útgáfu af bílnum, heldur ríkulega útbúinn glæsivagn. Kraft-
Kynnstu veglegum glæsívagni á viðráðan
SPARNEYTIN
3.0 L V - 6 V E L
mikil enspameytin3.0LV-6vél,aflstýri,rafdrifnar rúður og
útispeglar, fjögurra þrepa sjálfskipting,
samlæsing hurða, ffamhjóladrif, diskhemlar
bæði framan og aftan, mengunarvöm o.fl.
Bfllinn er auk þess sér-
lega rúmgóður, fallega innréttaður, með
stóru farangursrými og glæsilegur f útliti. JÖFUR HR
NÝBÝLAVEGI2. SlMl 42600
legu verði - kynnstu Chrysler Saratoga.