Morgunblaðið - 08.03.1991, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 08.03.1991, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARZ 1991 AF INNLENDUM VETTVANGI EFTIR STEINGRÍM SIGURGEIRSSON Málefnagruridvöllur landsfundar Sjálfstæðisflokksins: Fyrirkomulag fiskveiða o g afstaðan til Evrópubanda- lagsins verða mál málanna LANDSFUNDUR er æðsta vald Sjálfstæðisflokksins í stefnumótun sem öðrum málum og ályktanir hans vega þungt ekki síst á kosninga- ári. Það hefur verið talið skipta miklu að flokkurinn markaði sér skýra framtíðarstefnu í mikilvægum málaflokkum á borð við sjávar- útvegsmál og Evrópumál en um þau mál hefur verið deilt hart inn- an flokksins að nndanförnu. í þeim drögum að ályktunum sem lögð hafa verið fyrir landsfundinn er lögð áhersla á að Sjálfstæðisflokkur- inn fari með stjórn ráðuneytis sjávarútvegsmála í næstu ríkisstjórn. Hugmyndum um sölu veiðileyfa er hafnað í drögunum en lagt til að fijáls verslun með veiðiheimildir verði að hluta til takmörkuð við almenningshlutafélög. í Evrópumálum er hugsanleg aðild að Evrópubandalaginu ekki útilokuð. Hins vegar er lögð áhersla á að úttekt á áhrifum fiskveiðistefnu EB á ísland utan og innan banda- lagsins verði gerð. Þá er skilyrt í drögum að sjávarútvegsmálaálykt- un að samskiptin við EB verði þannig að forræði yfir fiskimiðunum haldist hjá íslendingum. Drögin að málefnaályktunum landsfundar verða á næstu dögum rædd í málefnanefndum á fundinum. Ganga má út frá því með nokk- urri vissu að um fá önnur málefni verði eins hart deilt á landsfundinum og stefnu Sjálf- stæðisflokksins í sjávarútvegsmál- um enda er sú málefnanefnd á landsfundi sem um þau mál fjallar ávallt með þeim allra fjölmennustu. Innan flokksins hefur á undanförn- um misserum átt sér stað mikil og heit umræða um framtíðarskipulag fiskveiða og menn að mestu skipst í tvær fylkingar. Annars vegar þeir sem í stórum dráttum eru sátt- ir við núverandi kvótakerfi “og hins vegar þeir sem telja að taka beri upp annað kerfi. Hafa menn þá oftast staðnæmst við kerfí er bygg- ist á sölu veiðileyfa í einhveiju formi. Helstu röksemdir andstæðinga kvótakerfísins eru að með því sé verið að færa útgerðaraðilum landsins, sem eru ekki ýkja hátt hlutfall þjóðarinnar, helstu auðlind íslands, fiskinn í sjónum, til eignar um ókomna framtíð. Slík eignatil- færsla, sú stærsta í íslandssög- unni, sé óréttlætanleg og um hana geti aldrei náðst sátt. í þeim drögum að ályktun um sjávarútvegsmál sem liggja fyrir landsfundi er einmitt ítrekað að Sjálfstæðisflokkurinn telji það „mikla þjóðamauðsyn að sæmileg- ur friður ríki um sjávarútvegsmál, ekki aðeins innan sjávarútvegsins, heldur með þjóðinni allri.“ Sjávar- útvegsstefna sem taki tillit til allra þátta hafí ekki verið mörkuð enn og bíði þar næstu ríkisstjórnar mikið verk. Segir síðan að Sjálf- stæðisflokkurinn hafí ekki farið með stjórn sjávarútvegsmála sl. tólf ár og það sé „eðlileg krafa að stærsti stjómmálaflokkur landsins fái þetta mikilvæga ráðuneyti í sinn hlut í næstu ríkisstjórn.“ Lögð er til sú skipulagsbreyting á stjórn sjávarútvegsmála að sjálf- stæðri stofnun utan sjávarútvegs- ráðuneytisins verði falin fram: kvæmd laga um stjóm fískveiða. í þeirri stofnun verði m.a. sameinað og aukið hlutverk Fiskifélags ís- lands varðandi hagskýrslugerð um sjávarútveginn, eftirlit veiðieftirlits sjávarútvegsins og ríkismat sjávar- afurða. Stofnuninni verði einnig falin umsjón með starfsemi til efl- ingar tilraunaveiða og vinnslu sjáv- arfangs. Kostnaðurinn af rekstri hennar verði greiddur af aðilum sjávarútvegsins og stjórn Sjávarút- vegsstofnunar verði skipuð fulltrú- um sjávarútvegsins og fulltrúum kosnum af Alþingi. Veiðileyfasölu hafnað Meginhugsun ályktunardrag- anna virðist vera sú að styðjast beri áfram við núverandi kvóta- kerfi en gera á því róttækar breyt- ingar. Segirþarm.a.: „Frjáls versl- un með veiðiheimildir verði tak- mörkuð þannig, að einungis opin hlutafélög geti aflað sér veiðiheim- ilda umfram ákveðið hlutfall af heildarafla landsmanna." Er þarna tekið skref í átt til sjón- armiða talsmanna veiðileyfasölu. Veiðileyfasöluhugmyndinni sjálfri er ekki beinlínis hafnað (á hana er ekki minnst) í drögunum að ályktun um sjávarútvegsmál. Það er hins vegar afdráttarlaust gert í drögum að ályktun um skattamál. Þar segir í málsgrein sem ber fyrirsögnina „Auðlinda- skattur": „Hugmyndum um auð- lindaskatt eða sölu veiðileyfa er hafnað. Sérstaka gjaldtöku af út- gerð (virðisauka hennar, veiðileyf- um eða aflamagni) má hins vegar ekki útiloka, sem leið til að tryggja jafnræði milli útgerðar og annarra atvinnugreina í landinu, en þá þannig að annar atvinnurekstur njóti þess sjálfkrafa í lægri skött- um.“ Meðal annarra breytinga á fyrir- komulagi sjávarútvegsmála sem Starfsfólk Sjálfstæðisflokksins hafði í nógu að snúast er lands- fundarfulltrúar skráðu sig til þátttöku og fengu afhent kjörgögn í gær. lagðar eru til í ályktunardrögum má nefna að mun strangari viður- lögum verði beitt við hvers konar misferli eða brotum á lögum og reglum um fiskveiðar og að and- virði ólöglegs afla og tekjum af sölu upptækra veiðiheimilda verði varið til aðgerða til að minnka fiski- skipastólinn. Þá er lagt til að Hag- ræðingarsjóður sjávarútvegsins verði lagður niður og við hlutverki Úreldingarsjóðs fiskiskipa taki Ald- urslagatrygging, sem útvegsmenn Ijármagni með iðgjöldum gegn mótframlagi úr ríkissjóði og áður- nefndum tekjustofnum. Loks má nefna tillögu um að fiskiðnaðinum verði heimilað að mynda eigin sveiflujöfnunarsjóði til að mæta rekstrartapi en Verðjöfnunarsjóður sjávarútvegsins verði lagður niður. EB-aðild ekki útilokuð Afstaðan til þeirra breytinga sem nú eiga sér stað í Evrópu og hver eigi að vera framtíðartengsl íslands og Evrópubandalagsins er annað mál sem mjög skiptar skoð- anir hafa verið um innan Sjálfstæð- isflokksins. í drögum að utanríkismálaálykt- un segir að ljóst sé að stuðningur við aðild að Evrópubandalaginu vaxi jafnt og þétt í aðildarríkjum Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og því hugsanlegt að samningar um Evrópskt efnahags- svæði (EES) „verði ekki annað en aðlögunarsamningur EFTA-ríkj- anna að EB. íslendingar verða að marka sér stefnu um hve langt þeir vilja ganga í þessum efnum.“ Síðan segir í ályktuninni: „Sjálf- stæðismenn útiloka ekki hugsan- lega aðild íslands að EB í fram- tíðinni en leggja áherslu á að gerð verði af háifu stjórnvalda úttekt á áhrifum fískveiðistefnu EB á ísland utan og innan bandalagsins. Aðeins að slíkri athugun lokinni er unnt að svara þeirri spumingu hvort íslendingar eigi erindi í EB.“ Stefnan í landbúnaðarmálum ítrekuð í drögum að ályktun um land- búnaðarmál segir að Sjálfstæðis- flokkurinn vilji stuðla að gagn- kvæmum skilningi milli bænda og neytenda. Hann sé eina stjórnmála- aflið í landinu sem hafi burði til að sætta sjónarmið mismunandi hagsmunaaðila. Minnt er á þá stefnu sem mörkuð. var á síðasta landsfundi flokksins. Var þá sam- þykkt að stefna bæri að því að ná fram lækkun á búvöruverði, jafn- vægi í framleiðslu og sölu mikil- vægustu landbúnaðarafurða og að „lyfta af bændastéttinni fargi mið- stýringar og ofstjómar". Færa ætti niðurgreiðsiur af heildsölustigi yfir í beinar greiðslur til bænda. Skyldi landbúnaðurinn fá svigrúm til að ná þessum markmiðum án þess að mæta aukinni erlendri sam- keppni. í drögunum segir að stefna nú- verandi ríkisstjórnar gangi þvert á ofangreind markmið. Hún hafi á alþjóðavettvangi lagt fram tilboð um aukinn innflutning búvara án þess að boða nokkrar þær ráðstaf- anir sem bætt ‘gætu samkeppnis- stöðu íslensks landbúnaðar. Fyrri stefnumótun í landbúnað- armálum er ítrekuð og síðan segir í drögunum: „Aðild íslands að væntanlegu GATT-samkomulagi og nánara Evrópusamstarfí virðist krefjast þess m.a. að opinberum stuðningi við lándbúnaðinn og nið- urgreiðslum verði breytt á þann hátt að ekki tengist um of fram- leiðslu eða markmiði. Á vegum Sjálfstæðisflokksins er unnið að því að móta nýtt kerfi fyrir sauðfjár- framleiðsluna sem í senn nái þess- um markmiðum, skapi bændum eðlileg afkomuskilyrði og leiði til lækkunar ríkisútgjalda. Samhliða verði losað um framleiðslustjórn í greininni." Valið um menn, vinnu brögð og viðhorf eftirllluga Gunnarsson Næstkomandi sunnudag munum við sjálfstæðismenn velja okkur formann. Hingað til höfum við bor- ið gæfu til að velja hæfa rpenn til forystu og er engin ástæðk til að ætla að annað verði uppi á teningn- um í þetta sinn. Nú eru í framboði tveir hæfir menn. Að mörgu leyti eru þeir ólíkir og liggja hæfíleikar þeirra á mismunandi sviðum. Er því í sjálfu sér ekkert athugavert við það að kosið sé á milli þessara manna. En að mínu mati er ekki einvörðungu verið að velja á milli manna. Hér er einnig tekist á um vinnubrögð og viðhorf innan Sjálf- stæðisflokksins. Það er trú mín og margra annarra, að þegar fylgi hrynur af flokki, illvíg innan- flokksátök geisa og formaður á í miklum erfiðleikum beri honum að víkja. Við slíkar aðstæður er það beinlínis skylda annarra forystu- manna flokk.sins að fara fram á móti formanni og þarf þá engin að efast um niðurstöðuna. Eins er það að þegar flokkurinn nýtur mikils fylgis, friður ríkir inn- an hans og kosningar á næsta leiti, er það skylda allra flokksmanna að standa þétt að baki formanni sínum. í þeirri stöðu er Sjálfstæðisflokkur- inn núna. í ljósi þessa ber að harma framboð núverandi varaformanns gegn formanninum. Á landsfundin- um verður því ekki einungis kosið á milli Þorsteins og Davíðs, heldur einnig á milli viðhorfa og vinnu- bragða. Það hlýtur að vera mikil- vægt að formenn Sjálfstæðisflokks- ins geti í framtíðinni treyst því að standi þeir sig vel í störfum sínum í þágu flokksins muni þeir njóta þess í traustu fylgi flokksmanna sinna. Því er það lífsnauðsynlegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að styðja núverandi formann flokksins Þor- stein Pálsson. Hörundur er landsfundarfulltrúi fyrir FUS, Vestur-ísafjardarsýslu. ,.En að mínu mati er ekki einvörðungu verið að velja á milli manna. Hér er einnig tekist á um vinnubrögð og við- horf innan Sjálfstæðis- flokksins.“ Tekjur og gjöld hins opinbera 1945-1989: Ellefu hallaár - þijá- tíu o g fjögur tekjuár Opinber útgjöld hafa hækkað úr 21% af vergri landsframleiðslu [VLF] árið 1945 í tæplega 40% árið 1989, að því er segir í riti Þjóð- hagsstofnunar: „Búskapur hins opinbera 1980-1989“. Árlegur meðal- vöxtur opinberra útgjalda hefur verið 6,3%, eða um 2% umfram hagvöxt. Opinber útgjöld voru 5% af lands- framleiðslu um aldamótin en nálægt 40% árið 1989. Þau hafa sjö til áttfaldast á framangreindu árabili umfram vöxt landsframleiðslu. Op- inber þjónusta hefur næstum 80- faldast að raungildi á mann á öld- inni. „Sé dregin upp mynd af heildar- tekjum, útgjöldum og tekjuafkomu hins opinbera í hlutfalli af VLF á árunum 1945 til 1989, sést, að tekjuhalli á opinberum búskap hef- ur aðeins verið í 11 ár af þessum 45. Hin árin var tekjuafgangur. Að meðaltali hefur tekjuafgangurinn verið um 1% af VLF á ári“ , segir í fréttatilkynningu Þjóðhagsstofn- unar. Tekjuafgangur var mestur á árunum 1951-52, eða 4-5% afVLF. Tekjuhallin var hins vegar mestur á árunum 1974-75, eða um 3% af VLF. Eftímabilið 1980-1989 erskoðan sérstaklega kemur fram, að umsvif hins opinbera hafa aukizt um 21% umfram hagvöxt, samkvæmt þess- um mælikvarða. Opinber útgjöld voru 31,6% af VLF í upphafi ára- tugarins en 39,3% á árinu 1989. Tekjuafkoma, sem tekur tillit til útgjalda til fjárfestinga og fjár- magnstilfærslna, sýnir, að aðeins var um tekjuafgang að ræða á árun- um 1980-82 og 1984, en tekjuhalla öll hin árin. Mestur var tekjuhallinn á árunum 1983, 1986 og 1989, eða l, 8%, 3,9% og 2,9% af VLF. A þess- um árum yfirtók ríkissjóður 735 m. kr. skuldir orkuveitna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.