Morgunblaðið - 08.03.1991, Page 15

Morgunblaðið - 08.03.1991, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 8. MARZ 1991 . 15 Orðheldni - úrelt dyggð? eftir Sigríði Asgeirsdóttur Sú spuming lætur hátt í huga mér í tengslum við yfii-vofandi formannskjör í Sjálfstæðisflokkn- um, hvort orðheldni sé nú einskis metin hér á landi. Margir sjálfstæðismenn kusu Davíð Oddsson við síðustu borgar- stjórnarkosningar af því að hann fullvissaði þá um að sá vettvangur væri honum kær og af honum myndi hann ekki hverfa þetta kjörtímabil. í trausti þess létu menn sig iitlu varða hverjir aðrir borgar- fulltrúar Sjálfstæðisflokksins væru og létu sér lynda að ekkert prófkjör fór fram. Með því móti var líka tryggt að enginn skuggi félli á yfir- burðaaðstöðu Davíðs. Haft var í flimtingum að þar færu Davíð og dvergarnir sjö. Afburðaléleg ríkisstjórn og margsundruð stjórnarandstaða í borgarstjórn hjálpuðu til þess að dvergunum fjölgaði um tvo. Nú lítur út fyrir að þeir ætli að velja borgar- stjóra úr sínum hópi. Aftur höfðaði Davíð til sjáifstæð- ismanna í Reykjavík um að styðja sig til setu á Alþingi, og enn með því fororði að hann væri ekki að yfirgefa stöðu borgarstjóra, heldur styrkja hana, þar sem fulltrúar Sjálfstæðisflokksins á Alþingi hefðu reynst kjördæminu lítill fengur. Nú kemur Davið í þriðja sinn og biður okkur um stuðning í for- mannssæti Sjálfstæðisflokksins til þess að verða forsætisráðherra. Nái hann vilja sínum, hlýtur fjöldi stuðningsmanna hans í fyrrnefnd- um kosningum að telja sig hafa verið svikna, ekki einu sinni heldur tvisvar. Davíð hamrar á því að höfuðkost- ur sinn sé sá að hann standi við orð sín, og sérlega að hann efni öll kosningaloforð. Ef ofangreind dæmi voru ekki kosningaloforð, hvað voru þau þá? Stjórnkænska eða öðru nafni vísvitandi blekkingar til þess að komast í þá aðstöðu sem hann hefur nú? Tökum enn eitt dæmi um orð- heldni borgarstjóra. Hann lofaði að byggja „lítið og pent ráðhús“ fyrir 750 milljónir króna, — á verðlagi í dag um 1300 milijónir. Jafnvel eft- ir að framkvæmdir voru hafnar hélt hann fast við þessa tölu, með í hæsta lagi 10% frávik. Þær stað- hæfingar voru margendurteknar á prenti á þessum tíma. Staðreyndin í dag — og er þó ekki öll kurl kom- in til grafar — er að húsið kostar 2,7 milljarða af skattpeningum Reykvíkinga. Byggingin hefur farið meira en 100% fram úr áætlun. Borgarstjóri treystir því að kjósend- ur séu minnislausir og staðhæfir enn blákalt að kostnaður hafi ein- ungis farið 20% fram úr áætlun, sem sé eðlilegt. Það er ekki að furða þótt hann leggi nokkuð á sig til að Ieyna þeim tölum sem afhjúpa orð- heldni hans. Með réttu ættu stjórn- málamenn sem staðnir eru að slíkum ósannindum að víkja, og svo Sigríður Ásgeirsdóttir „Nú kemur Davíð í þriðja sinn og biður okkur um stuðning í formannssæti Sjálf- stæðisflokksins til þess að verða forsætisráð- herra.“ fer fyrir þeim í öllun nágrannaríkj- um okkar. Hér ætlast slíkir menn til þess að þeim séu veitt aukin völd og falin forsjá þjóðarinnar allr- ar. Ef við látum að vilja þeirra, erum við um leið að lýsa því yfir að við sættum okkur við að vera leiksoppar pólitískra sjónhverfinga- manna, sem meta orðheldni einskis og telja að tilgangurinn helgi með- alið. Höfundur er lögfræðingur og fv. varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Átak til orkusparnaðar: 120 mættu til skoðunar 120 BÍLAEIGENDUR komu með bíla sína til ókeypis skoðunar hjá verkstæðinu Sveini Egilssyni Semoco sl. sunnudag, en fyrh-tæk- ið bauð þessa skoðun sem lið í átaki fyrir orkusparnað. Starfsmenn verkstæðisins skoð- uðu áttatíu bíla á sunnudag en fjörtíu bílar verða skoðaðir í þessari viku. Kristján Gunnarsson, einn af eigend- um fyrirtækisins, sagði að mun fleiri hefðu nýtt sér þessa þjónustu en búist hafði verið við. Hann sagði að vélar bílanna hefðu verið skoðaðar í tölvubúnaði og í ljós kom að bróður- parturinn þurfti einhverrar aðhlynn- ingar við. Þakklæti til allra þeirra, erglöddu okkur með heimsókn- um, gjöfum, blómum og skeytum í gullbrúÖ- kaupi okkar í GerÖubergi, er okkur efst í huga. Sérstaklega þökkum við börnum og tengda- börnum fyrir munaöarfullt og glœsilegt veislu- borð. Þá þökkum viÖ starfsliÖi GerÖubergs fyrir smekklega dúkun og þjónustu og mjög hóflegt verð á veitingum. Innilegar þakkir. Hrönn Jónsdóttir, Þórir Konráösson, Krummahólum 29. Búrfells Londonlamb pr. kg. 789,- Lambhryggir pr. kg. 598,- Grill lambakótelettur pr. kg. 639,- Lambalæri, kryddlegin pr. kg. 748,- 1 AFMÆLISTILBOÐ! Ungnautahakk 648,- - hverju kílói fylgja 500 gr. Barilla Spaghetti Ungnautavöðvar Svínabógar k9- Diletto kaffi 250 gr. 109,- Mjúkir og safaríkir ungnautavöðvar sem hafa moðnað í góöan tíma. Pakki af BERNAISESÓSU fylgir hverjum vöðva. 495,- kg. Holdaunghænur pr. kg. Unghænur pr. kg. Kjúklingar 398,- 295,- 195,- Saltaðar lambasíður í fötu pr. kg. 195,- Þykkvabæjarnasl - Flögur 80 gr. 108,- Þykkvabæjarnasl - Flögur 120 gr. 156,- 369,- Borgarnes PIZZA allar gerðir Coka Cola 6x1/2 Itr. Diet Coka Cola 6x1/2 Itr. Marud 250 gr. Salt & Pipar Farm Frits franskar kart. 907 gr. Merrild kaffi, Caffe Noiar 500 gr. Merrild kaffi, Special 400 gr. MS HVERSDAGSÍS j 98 — 2 Itr. - allar gerðir Gefum öllum börnum MS íspinna! Pepsi 2 Itr. 149,- Diet Pepsi 149,- 2 Itr. 7-up 149,- 2 Itr. Diet 7-up 149,- 2 Itr. Sun-Chreinn 89,-1 Itl*. appelsínusafi eplasafi 79,-1 Itr. Blá og græn Lúxus vínber pr. kg. 289,- Appelsínur, sætar og safaríkar pr. kg. gij^ 249,- Epli, rauð Delecius 197,- pr.kg. t19,- 296,- AJAX hreingerningarl. 207,- 1250 ml. 179,- Palmolive ne _ uppþvottal. Eldorado tómatar 1/2 dós 42,- Suma eldhúspappír, 2 rúllur 99,- WC pappír, Srúllur -f 69s. REDMOND í pakka 500 ml. shampo og 250 ml. næring 698,- pr. pk. ARIEL ULTRA 800 gr. 333,- ARIEL ULTRA 2 kg. 758,- Pampersbleiur 1.198. »»7VÍW»„*™ Msrmtva/ Verið vandtát - það erum við! HÁALEITISBRALJT fifi VIRKA DAGA KL- 9-18.30 föstudaga kl. 9-19 lODlrtMU I 00 LAUGARDAGA FRÁ KL. 10-16 »*» «««« nani'.ilaÍTJl uib'iBl) •iublisviotI .\mi>\niV\áEÍviv>\'\Vr. (n; ,Ji'lj;ti fgiig sniaÖE ibliv gö firi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.