Morgunblaðið - 08.03.1991, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 08.03.1991, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARZ 1991 17 Skálholt: Páskag’leði fyrir fjöl- skyldur PÁSKAGLEÐI Skálholtsskóla 30. mars til 1. apríl er ætlað að gefa fjölskyldum, foreklrum og börnum kost á að íhuga efni páskanna, njóta hvíldar- og gleðistunda í faðmi stórfjöl- skyldu og Skálhoits. Stefnt er að því að fjölskyldu- stemmning ríki, allir leggi eitthvað gott til hópsins, með uppvaski eða öðru eins og heima. Hinum eldri gefst tækifæri til að setjast niður og íhuga boðskap páskanna með Einari Sigurbjörnssyni prófessor. Börnin munu nálgast hinn up- prisna Krist eftir leiðum verklegrar vinnu og barnasöngva. Rætt verð- ur um siði og venjur, skoðuð páska- tákn og með því móti reynt að upplýsa yngstu kynslóðina um inn- tak og táknmál páskanna. Þátt- taka verður í almennu helgihaldi í Skálholtskirkju. Með leik og söng, íhugun, útiveru, samvinnu og til- beiðslu munu fjölskyldur samein- ast í fjölbreytilegri páskahátíð í Skálholti. Allir eru velkomnir. Skráning er á biskupsstofu í Reykjavík. Hafnarfjarðar kirkja: Fræðslu- fundir og kvöldmessa ÞRJÁ næstu laugardagsmorgna mun dr. Sigurður Orn Stein- grímsson prófessor í guðfræði Gamla testamentsins fjalla um sáttmálshugtakið í Gamla og Nýja testamentinu, sem er grunnatriði í samskiptum guðs og manna, á fræðslufundum í safnaðarstöðu Hafnarfjarðar- kirkju í Dvergi gengið inn frá Brekkugötu. Hinn fyrsti verður haldinn á laugardaginn kemur 9. mars og síðan þeir næstu laugardagana 16. mars og 23. mars. Þessir fræðslu- fundir sem ei-u öllum opnir hefjast kl. 11.00 og standa fram til hádeg- is en þá verður þátttakendum boð- ið upp á léttan hádegisverð í boði kirkjunnar. Sunnudaginn 10. mars fer fram kvöldmessa í Hafnarfjarðarkirkju. Hefst hún kl. 20.30. Séra Sigurður Pálsson, aðstoðarframkvæmda- stjóri Hins ísl. Biblíufélags, prédik- ar og Jóhanna Möller syngur ein- söng. Kaffisamvera verður í Álfa- felli eftir messuna. HARRY C0NNICK JR. |Y|úsík WARRANT WE ARE IIM L0VE Söngvarinn og píanistinn Harry Connick Jr. flytur létta og sveitlandi tónlist I anda Frank Sinatra. Han semur megnið af tónlist sinni sjálfur, þ.á.m. Ftecipe For love og We Are In Love, en að auki má finn Cole Porter perluna Alright With me á þessari líflegu • plötu. |\/|ánaðarins í marsmánuði bjóðum við fimm ólíkar nýjar plötur á mjög hagstæðu verði í sérstöku tilboði sem við köilum MÚSÍK C&C MUSIC FACT0RY ^ar MANAÐARINS. Við hvetjum sem flesta til að nýta sér þetta tilboð okkar og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. CHERRYPIE Þrumugott þungaroMrmeð éinhverjum skemmtiegustu rokkurum heims ídag. Tónlistin er á mjög breiðum grunni, allt frá hörðu og hröðu rokki yfir i ballöður á borð við hið stórgóða lag I Saw Red. Þetta er þungarokk sem hægt er að mæla með. GL0RIA ESTEFAN GONNA MAKE YOU SWEAT Það eru tveir eftirsóttustu upptökustjórar heims sem standa á makvið nafnið C&C Music Factory, ásamt völdum kjarna aðstoðarfólks. Lagið Gonna Make You Sweat er eitt besta danslag sem komið hefur fram i langan tíma og fór það á toppinn beggja vegna Atlantsála. Nýja lagið Here We Go (Lets Rock & Roll) er ekki siðra. Meiriháttar danstónlist. JULI0 IGLESIAS INT0 THELIGHT Söngkonan Gloría Estefan hefur öðlast heimstrægð fyrir stórgóð lög sin á síðustu árum. Hér fer hún á kostum I lögum á borð við Coming Out Of The Dark, Remember Me With Love og What Goes Around. Það er hægðarleikur að falla fyrir söng og tónlist þessarar kúbönsku konu. PÓSTKRÖFUSÍMINN OKKAR ER Grænt númer: 996620 . vv *'///»•**'' l33® Þýð'r að hvaöan sem þú hringir borgar þú aðeins fyrir innanbæjar- símtal, við sjáum um afganginn. Sláðu á GRÆNA þráðinn. STARRY NIGHT Spænski söngvarinn Julio Iglesias hefur fyrir löngu slegið Elvis Prestley út hvað plötusölu á heimsvísu snertir. Hann er einn söluhæsti söngvari heims, enda góður túlkandi. Hér syngur hann dægurperlurnar When I Need You, Vincent (Starry Starry Night), Mona Lisa. If You Go Away og sex önnur gæðalög. Þar sem músíkin fæst! hljómplötuverslanir AUSTURSTRÆTI 22 © 28319, RAUÐARARSTIG 16 © 11620 • GLÆSIBÆ © 33528 ■ LAUGAVEGI 24 ® 18670 ■ STRANDGÖTU 37 © 53762 ■ ÁLFABAKKA 14 MJÖDD © 74848 ■ LAUGAVEGI 91 © 29290 iOy&l PiagaiUf er eitt af glæsilegum íbúöahótelum sem ferðaskrifstofan Atlantik býöur á Mallorka. Það er alveg við ströndina. Úr íbúðunum er útsýni yfir hafið. Á stórum svölum hótelsins er veitingasala og hótelinu fyigir frábær sundlaug. rvrirxvTifc FERÐASKRIFSTOFA HALLVEIGARSTlG 1 SÍMAR 28388 - 28580

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.