Morgunblaðið - 08.03.1991, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARZ 1991
21
Ítalía:
Reuter
Þúsundir albanskra flóttamanna um borð í flutningaskipinu Lirija
stökkva í land í itölsku hafnarborginni Brindisi í gær.
Brindisi. Reuter.
FIMMTÁN manns urðu fyrir meiðslum þegar þúsundir svangra
Albana.börðust um matvæli sem dreift var þegar þeir gengu í land
í ítölsku hafnarborginni Brindisi í gær eftir nokkurra daga sjóferð
frá Albaniu.
Til uppþota kom við höfnina
þegar flóttamennirnir flykktust að
bráðabirgðaskýli þar sem mjólk
og kexi var dreift. Starfsmenn
hjálparstofnunarinnar, sem stóð
fyrir dreifingunni, urðu felmtri
slegnir og köstuðu mjólkurhyrnum
og kexpökkum í hópinn til að halda
fólkinu í burtu. Margir flótta-
mannanna höfðu ekki fengið mat
í þijá daga og þeir duttu hver um
annan er þeir reyndu að ná mat-
vælunum.
Sjúkrabifreiðar fluttu nokkra á
sjúkrahús en gert var að meiðslum
annarra á bryggjunni. Margir
flóttamannanna reyndu að forða
sér og klifruðu aftur um borð í
flutningaskipið Lirija, sem flutti
þá frá Albaníu.
57 ára gamall flóttamaður og
fímmtán ára gamall sonur hans
sýndu fréttamönnum veraldlegar
eigur þeirra - brúnt umslag fullt
af myndum af fjölskyldunni. Hann
sagði að flóttamennirnir hefðu náð
skipinu á sitt vald í albönsku hafn-
arborginni Durres á mánudag en
ekki getað lagt af stað fyrr en á
miðvikudag. Aður en skipið lagðist
að bryggju var 21 árs ófrísk kona
flutt í land á vélbáti er hún hafði
fengið fæðingarhríðir.
Um 12.000 Albanir reyndu að
komast með skipum og bátum til
Ítalíu í gær, samkvæmt áætlunum
ítalskra embættismanna. Um
7.000 Albanir voru um borð í skip-
um við bryggju í Brindisi og-um
5.000 í bátum í grennd við höfn-
ina. „Margir þessara báta eru i
hættu vegna þess að fólkið sem
hefur tekið þá kann ekki að sigla
þeim,“ sagði hafnai-vörður í ítölsku
Þving’aðir til að hreinsa eigið blóð
Jóhannesarborg. Reuter.
EITT helsta vitnið í réttarhöldunum yfir Winnie Mandela í Suður-
Afríku skýrði réttinum frá því í gær að hann og þrír aðrir blökku-
menn, sem haldið var nauðugum á heimili hennar, hefðu verið neydd-
ir til að hreinsa eigið blóð af veggjum herbergis þar sem hún hafði
barið og húðstrýkt þá.
Nelson Mandela, eiginmaður sak-
borningsins og leiðtogi Afríska
þjóðarráðsins, fylgdi konu sinni til
réttarins en hlýddi ekki á vitnis-
burðinn.
Vitnið, Kenneth Kgase, 31 árs,
sagði að foringi lífvarða Wirinie
Mandela, Jerry Richardson, hefði
skipað honum og félögum hans að
hreinsa eigið blóð af veggjum her-
bergisins eftir að hún og lífverðirn-
ir höfðu misþyrmt þeim. Hann hefði
einnig þurft að hreinsa blóð félaga
síns, Stompie Seipei, í öðru her-
bergi eftir að hann hefði verið bar-
inn til óbóta. Seipei var þá fjórtán
ára gamall. Hann fannst látinn
nokkru síðar, með svöðusár á háls-
inum. Richardson var dæmdur til
dauða í fyrra fyrir morðið.
Læknir kvaðst hafa rannsakað
Kgase, Seipei og þriðja fórnarlamb-
ið, Barend Mono, eftir misþyrming-
arnar. Hann sagði að rannsóknin
hefði leitt í ljós að þeir hefðu verið
barðir með hnefum, húðstrýktir og
sparkað hefði verið í þá.
Kgase sagði að Richardson hefði
lokað fjórmenningana inni eftir
barsmíðarnar. Hann hefði síðan
kynnt þeim „heimilisreglur“ Winnie
Mandela. Fyrsta reglan hefði verið
að ekki mætti kalla hana annað en
„mömmu“. Önnur var að þeir
mættu ekki flýja, annars yrði þeim
refsað.
Kgase sagði að Richardson hefði
sagt þeim að Stompie ætti ekki
langt eftir ólifað þar sem hann hefði
gert eitthvað af sér. „Stompie var
illa útleikin," sagði hann. „Hann
var með kúlu á höfðinu. Þegar hann
reyndi að borða kastaði hann upp.“
Kgase sagði að hann, Mono og
Mekgwe hefðu verið neyddir til að
liðsinna Richardson við að ráðast
með hníf á annað ungmenni, sem
hefði neitað að ganga í lífvarða-
sveit Mandela, sem kölluð hefur
verið Mandela United Football Club.
Réttarhöldin yfir Winnie Mandela:
hafnarborginni Bari. Sjónvarpið í
Albaníu sýndi myndir af þúsund-
um manna til viðbótar, sem biðu
við hafnir í suðurhluta landsins
eftir báti til Ítalíu.
Reuter
Stuðningsmenn Afríska þjóðarráðsins í Suður-Afríku fagna Winnie
Mandela, eiginkonu Nelsons Mandela, leiðtoga samtakanna, er hún
gengur inn í dómshúsið í Jóhannesarborg. Hún hefur verið sökuð
um að hafa misþyrmt fjórum ungum blökkumönnum, sem haldið
hafi verið nauðugum á heimili hennar.
Hernám Kúveits:
Hundsuðu stjórnvöld
viðvörun um innrás?
Kúveit-borg. Reuter.
Fyrrverandi hermálafulltrúi við ræðismannsskrifstofu Kú-
veits í Basra, næststærstu borg íraks, segist hafa sent kúveisk-
um stjórnvöldum nákvæmar upplýsingar um áform íraka nokkr-
um dögum fyrir innrásina 2. ágúst en þau hafi kosið að hundsa
upplýsingarnar. Hann segir að al-Sabah-ættin sem öllu ræður
í Kúveit hafi fremur viljað trúa heitstrengingum Saddams Hus-
seins sem sagði ráðamönnum Egyptalands og Saudi-Arabíu að
liðsafnaðurinn við kúveisku landamærin merkti alls ekki að
innrás væri í aðsigi.
Hermálafulltrúinn, Matar Said
al-Matar ofursti, skýrði frá þess-
um atburðum á blaðamannafundi
en hann slapp úr írösku fangelsi
sl. sunnudag. Matar segist hafa
aðstoðað andspyrnuhreyfinguna í
Kúveit um hríð eftir innrásina en
upp hafi komist um njósnastörf
hans í október er írakar fundu
skeyti frá honum í stöðvum kú-
veiska hersins þar sem hann gat
nokkurra íraskra heimildar-
manna. Hann sagði yfirmann
írösku leyniþjónustunnar hafa
beitt sig pyntingum til að reyna
að fá uppgefin fleiri nöfn á írösk-
um uppljóstrurum.
„Kúveiska stjórnin vissi um
áætlunina og tímasetninguna,“
sagði Matar. Hann lýsti því hvern-
ig hann hefði kannað vandlega
áðurnefndar upplýsingar aðfara-
nótt 25. júlí en þær sagðist hann
hafa fengið hjá íröskum heimild-
armönnum í Lýðveldisverðinum
og síðan sent þær áleiðis til Kú-
veit. Er hér var komið sögu stöðv-
aði kúveiskur ráðherra, Suleiman
Mutawa, blaðamannafundinn á
þeirri forsendu að ekki hefði verið
fengið leyfi fyrir honum hjá her-
yfirvöldum. Áður höfðu æstir
embættismenn hvatt Mutawa til
að stöðva fundinn.
Kúveitar höfðu til umráða
geysifullkomið eftirlitskerfi sem
hægt var að nota til að fylgjast
með hreyfingum íraska hersins
og nutu m.a. aðstoðar frá gervi-
hnöttum í þessu sambandi. Stjórn
Kúveits flúði land eftir innrásina
og ljóst er að skipuleg andspyrna
af hálfu hersins við ofurefli innr-
ásarliðsins var lítil. Óbreyttir her-
menn og lágt settir liðsforingjar
börðust þó sums staðar af hörku
við íraka fyrstu dagana auk þess
sem andspyrnuhreyfingin gerði
hernámsliðinu marga skráveif-
una.
FERMINGAR1991
STVLKUR
DRENGIR
Jakki
Síðbuxur
Bermúdabuxur
Blússa
kr. 9.980,-
kr. 4.990,-
kr. 3.980,-
kr. 2.980,-
Jakki kr.
Buxur
Skyrta
Slaufa
Bindi
kr. 9.980,-
kr. 4.490,-
kr. 2.980,-
kr. 1.090,-
kr. 1.590,-
Wh. Mittislindasett kr. 3.990,-
(imKARNABÆR
LAUGAVEGI 66 - SÍMI 22950
Uppþot á meðal þúsunda
flóttamanna frá Albaníu