Morgunblaðið - 08.03.1991, Síða 27
ieeí SHAM .8 HUOA(IUTSÖ'ii GlQAJaMUOaOM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARZ 1991
as
27 -
Morgunbladið/Rúnar I>ór
Myndakeppni um Múlagöng
Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, afhenti
ungum Ólafsfirðingum verðlaun í teiknimyndasam-
keppni sem efnt var til í tilefni af formlegri vígslu
Múlaganga í síðustu viku. Veitt voru verðlaun í
tveimur flokkum, annars vegar eldri barna og ungl-
inga á aldrinum 11-15 ára og hins vegar 6-10 ára
bama. Viðar Svansson hlaut 1. verðlaun í yngri
flokknum, Anita Veigarsdóttir 2. verðlaun og Matt-
hildur Kjartansdóttir hlaut 3. verðlaun. í eldri flokkn-
um vann mynd Fjólu Jónsdóttur, Guðni Þrastarson
varð í 2. sæti og Jóna G. Guðmundsdóttir í því 3.
Á myndinni eru verðiaunahafar með forsetanum.
Iðunn sýnir í
Gamla Lundi
IÐUNN Ágústsdóttir opnar
myndlistarsýningu í Gamla
Lundi við Eiðsvöll á Akureyri á
morgun, laugardag, kl. 14. Sýn-
ingin verður opin fram til sunnu-
dagsins 17. mars næstkomandi.
Á sýningunni eru á milli 40 og
50 myndverk, pastelmyndir, verk
máluð á silki og einnig olíumálverk,
einkum mannamyndir. Manna-
myndir Iðunnar eru ekki til sölu,
enda flestar í eigu einkaaðila, en
um sölusýningu er að ræða að því
er aðrar myndir varðar.
Þetta er 10. einkasýningi Iðunn-
ar, en hún hefur að auki tekið þátt
í fjölda samsýninga bæði hér heima
og erlendis. Nú í vikunni var m.a.
opnuð sýning í Tingvoll Kunsthall
í Noregi þar sem verk eftir Iðunni
eru sýnd ásamt verkum tveggja
kvenna frá Akureyri, þeirra Ruthar
Morgunhlaðið/Rúnar Þór
Iöunn Ágústsdóttir við eitt verka
sinna.
Hanssen og Guðrúnar Lóu Leon-
ards og ísfirðingsins Péturs Guð-
mundssonar.
Sýning Iðunnar í Gamla Lundi
verður opin frá kl. 14 til 21 um
helgar og frá 18 til 21 á virkum
dögum.
Ingimar í vesturför'
HIN þrítuga hljómsveit, sem kennd er við Ingimar Eydal, heldur til
Bandaríkjanna um helgina þar sem hún skemmtir á Islendingafagn-
aði Islendingafélagsins í Washington.
Þetta er fyrsta ferð Hljómsveitar
Ingimars Eydal vestur um haf, en
hljóðfæraleikararnir eru aftur á
móti öllum hnútum kunnugir á
norðlægari slóðum þar sem þessi
sívinsæla hljómsveit hefur margoft
skemmt landanum. Hljómsveitin er
þannig nýkomin heim úr Danmerk-
urferð þar sem hún skemmti á fjöl-
mennu þorrablóti íslendingafélags-
ins í Kaupmannahöfn. Það sem af
er árinu hafa Ingimar og félagar
leikið á þorrablótum og árshátíðum
víðsvegar um land og er sveitin
bókuð fram á sumar. Hljómsveit
Ingimars Eydal á þrítugsafmæli á
árinu og af því tilefni verða gefnir
út geisladiskar með lögum hennar —
frá því á 7. áratugnum og fram á
þann 10.
Lóö viö Undirhlíð:
Hluti lóðar tekirni undir atvinnu-
starfsemi á áður grænu svæði
BÆJARSTJÓRN Akureyrar samþykkti á fundi í vikunni að skipulag
opins svæðis við Undirhlíð verði tekið til endurskoðunar með það
fyrir augum að á hluta þess verði atvinnustarfsemi. Þrír af fjórum
fulltrúum Framsóknarflokks voru á móti breytingunni. Nokkrar um-
ræður urðu um málið á fundi bæjarstjórnar.
í aðalskipulagi Akureyrar 1990— ast gegn framkomnum hugmyndum
2010 er gert ráð fyrir að lóðin við um breytingu á svæðinu, en tók fram
Undirhlíð sé svokallað grænt svæði, að ekki væri búið að eymamerkja
en síðasta haust barst erindi frá hvers konar starfsemi færi þarna
Hjólbarðaþjónustunni við Hvanna- fram og myndu fulltrúar flokksins
velli þar sem sótt er um lóð á svæð- taka afstöðu til þess eftir að lóðin
inu, áhorniHörgárbrautarogUndir- hefði verið auglýst.
hlíðar. Jón Kr. Sólnes, Sjálfstæðis- Sigurður J. Sigurðsson, Sjálfstæð-
flokki sem sæti á í skipulagsnefnd
sagði að svæðið allt væm um 6.000
fermetrar að stærð, en með þeirri
breytingu sem lögð væri til væri
gert ráð fyrir að röskur helmingur
þess, 3.500 fermetrar, yrði tekinn
undir atvinnustarfsemi, einkum
verslun og þjónustu.
Þórarinn E. Sveinsson, Framsókn-
arflokki sagði það ekki góða stefnu
ef taka ætti græn svæði undir bygg-
ingar í livert sinn sem einhverjum
dytti í huga að byggja á umræddum
svæðum. Hann sagði ekki farsælt
að byggja á svæðinu við Undirhlíð.
Gísli Bragi Hjartarson, Alþýðu-
flokki, sagði að samþykkt aðalskipu-
lag væri eklri heilög kýr sem ekki
mætti hrófla við, þvert á móti ætti
skipulagið að vera í sífelldri endur-
skoðun.
Bjöm Jósef Arnviðarson, Sjálf-
stæðisflokki, tók í sama streng og
Gísli Bragi og sagði að engin rök
mæltu gegn því að hluti svæðisins
yrði tekinn undir atvinnustarfsemi.
Hann sagði að vissulega yrðu menn
að gæta þess að ganga ekki um of
á grænu svæðin, en varpaði fram
þeirri spurningu hvort skynsamlegt
væri að hafa svo mikið af slíkum
svæðum í bæjarlandinu að ekki væri
unnt að hirða þau svo sómi væri að.
Heimir Ingimarsson, Alþýðu-
bandalagi, sagði flokkinn ekki leggj-
isflokki, sagði að við gerð aðalskipu-
lags væri það oft svo að er ekki
fyndust lausnir á því hvers konar
starfsemi ætti að vera á ákveðnum
stöðum væru þau sýnd sem græn
svæði. Nú hefði einstaklingur sýnt
því áhuga að kóma á umræddum
stað upp atvinnustarfsemi og við það
væri ekkert að athuga. Hann sagði
að ekki þyrfti að koma til breytinga
á aðalskipulagi þó hluti svæðisins
yrði tekin undir atvinnustarfsemi,
nægði að sýna það á deiliskipulagi.
Hljómsveit Ingimars Eydal, í efri röð frá vinstri: Snorri Guðvarðar-
son, Grímur Sigurðsson, Inga Eydal og Þorleifur Jóhannsson, en í
neðri röðinni eru þeir Brynleifur Hallsson og Ingimar Eydal.
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI: 681511 LUKKULÍNA: 991000
VERTU MEÐ - Þ AÐ ER GALDURINN