Morgunblaðið - 08.03.1991, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 08.03.1991, Qupperneq 32
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARZ 1?91 f 82 Ulfar Ulfars- son - Minning Fæddur 5. janúar 1963 Dáinn 3. mars 1991 í dag kveðjum við góðan dreng og mikinn vin, Úlfar Úlfarsson. Það er mikill harmur þegar ungur mað- ur fellur skyndilega frá í blóma lífs síns. Þó vinur okkar sé ekki lengur meðal vor þá er hann ljóslifandi í hugum okkar og allar þær góðu minningar sem Búffi skilur eftir sig eru okkur mjög kærar. ’ Búffi hafði ákaflega hlýja og ljúfa skapgerð og okkur leið vel í návist hans. Ekki skorti hann kímn- igáfu og gat verið fjörkálfur hinn mesti. Við fáa var betra að ræða sín hjartans mál en Búffa, menn höfðu hans trúnað allan. Minnis- stæðar eru allar þær samræðu- stundir sem við áttum við hann og gilti þar einu hvort umræðan sner- ist um bókmenntirnar, stjórnmálin eða tónlistina enda Búffi vel heima í þessu sem öðru. Tónlistin var hans helsta áhugamál, hann var trymbill í hljómsveit. Mörgum stundum eyddi hann við taktinn og undi vel. Ef taka þurfti til hendinni innan vinahópsins þá var Búffi ætíð fyrst- ur á staðinn, klár í málninguna eða flutninginn. Hann var maður mjög vinrækinn, tryggur og orðheldinn. Nú hefur stórt skarð verið höggvið í okkar vinahóp, skarð sem ekki verður fyllt. Við unnum öll Búffa heitt og minningin um góðan dreng mun lifa. Við vottum foreldrum og systkin- um Búffa, unnustu hans Sigrúnu og Sigríði Vilmu, augasteininum hans, okkar innilegustu samúð. Asgeir Einarsson, Berglind Hallgrímsdóttir, Bryndís Hrafnkelsdóttir, Einar Örn Jónsson, Guðný Magnúsdótt- ir, Gunnar Gunnarsson, Hanna Lára Steinsson, Jó- hann Ólafur Ólason, Jóhanna Jónsdóttir, Jón Hannes Stef- ánsson, Karl Guðmundsson, Karl Hjálmarsson, Katrín Lo- vísa Ingvadóttir, Kristján Erl- ingsson, Sigurður Sigurðsson, Þorsteinn Kristmannsson, Þó- runn Óskarsdóttir. Af hverju endilega hann? Það er sú spurning sem fyrst kemur upp í hugann við andlátsfrétt náins vin- ar og mágs. En maður verður að sætta sig við staðreyndir þó það sé erfitt á svona sórgarstundum. Búffi var ekki gamall þegar kallið kom óvænt, aðeins 28 ára. Hann var mér eins og bróðir enda ekki nema 9 ára þegar ég var svo lánsöm að hitta hann fyrst, fallegur og yndislegur drengur, nýbúinn að eignast systur sína Ingi- björgu. Búffi var dulur og tilfinninga- næmur, og hafði góðan mann að geyma, það vissum við vel sem þekktum hann náið, en hann var sú manngerð sem fór ekki mikið fyrir. Mér þótti afskapiega vænt um þennan dreg. Við náðum oft vel saman og gátum rætt málin þó svo við værum ekki alltaf sammála. En það var alltaf notalegt að hitta hann og yfirleitt bráðnaði ég fljót- lega þótt ég hafi verið ákveðin í að segja mína meiningu um hin ýmsu mál. Hann var svo lánsamur að hefja störf hjá Prentsmiðju Guðmundar Benediktssonar og fjölskyldu í Kópavogi og vissi ég hve vel honum líkaði að starfa þar, enda um ein- staklega gott fólk að ræða sem studdi hann og hvatti allt til dauða- dags. Búffi lætur eftir sig yndislega sjö ára dóttur, Sigríði Vilmu, sem var augasteinninn hans. Megi góður guð styrkja hana, elskulega tengda- foreldra mína og okkur öll í þessari miklu sorg. En við eigum alltaf eft- ir minninguna um góðan og ljúfan dreng. Brynja Vermundsdóttir Úlfar Úlfarsson var borinn Reyk- víkingur, fæddur 5. janúar 1963. Foreldrar hans eru Jónína Jóhanns- dóttir og Úlfar Guðjónsson, áður iðnrekandi. Úlfar var offsetljós- myndari að mennt, hóf nám sitt haustið 1982. Hann starfaði hjá fyrirtækinu Myndamótum hf. til vors 1986, en þá réðst hann til prentstofu minnar og starfaði þar til æviloka. Úlfar var listrænn og því fagmaður góður og vandvirkur svo eftir var tekið. Hann hafði fág- aða framkomu, var frekar hlédræg- ur, lagði öllum gott til og var í öllu dagfari til fyrirmyndar. Úlfar hafði varið starfsmaður fyrirtækisins í nær 5 ár er hann fannst látinn að morgni sl. sunnudags. Það voru mér þung spor að þurfa að bera kennsl á þennan góða starfsmann og vin. Ungur hóf Úlfar sambúð með Huldu Einarsdóttur og áttu þau dótturina Sigríði Vilmu sem nú er 7 ára. Þau slitu samvistir. I hugann kemur sú ógn að ein- hver hefur framið þetta níðingsverk og stöndum við mennirnir agndofa, og spyrjum hvort þjóðfélagið þurfi ekki að taka sér taki svo þessum ógnvekjandi atburðum linni. Á kveðjustund eru Úlfari færðar þakkir fyrir samstarfið og góða við- kynningu af eigendum prentstof- unnar. Foreldrum, systkinum og dóttur- inni ungu flytjum við innilegar sam- úðarkveðjur. Guð blessi ykkur öll sem eigið um sárt að binda við frá- fall hans. Guðmundur Benediktsson Minningarnar hrannast upp, margar ógleymanlegar stundir, sem enginn vissi um en voru eign okkar Búffa og mín, sem hér stýrir penna. En við áttum það sameiginlegt að eiga systur sem voru töluvert yngri en við og þurftum að fá frí frá þeim. Fríin voru oft notuð í bíóferð- ir svokallaðar. Margt var brallað í Grænuhlíðinni er. þar bjó Úlfar sín unglingsár. Úlfar hafði sérstakt lag á börnum og leit systir mín mjög upp til hans, því'hann var mjög viljugur að sinna systur sinni og frænku. Músíkin var hans hjartans mál og var liann alltaf viðloðandi spila- mennsku frá unglingsárum. Um fermingu fékk hann trommusett og þá var mikið spilað í bílskúrnum í Grænó. (Maður vissi þá þegar hann var heima, það leyndi sér ekki.) Ef ekki var verið að spila var setið og hlustað á plötur með ýmsum góðum jassistum eða blúsurum. Leiðir okkar skildu þegar ég flutti austur og hóf búskap en hann flutti með foreldrum sínum til Hafn- arfjarðar. En alltaf hélst þetta ein- staka samband okkar, þótt margir mánuðir liðu án samfunda. Við átt- um alltaf skjól hvert hjá öðru, hvort sem við vorum að deila sorg eða gleði. Margar stundir áttum við mæðg- urnar hjá Úlfarí þegar hann bjó í Kvíholtinu með barnsmóður sinni, Huldu. Það var gaman að heim- sækja þau og ræða málin frá öllum hliðum. Eftir að ég flutti á Ölduslóð- ina jókst samgangurinn á milli okk- ar, því stutt var á milli og vildum við að börnin okkar kynntust. Litlu_ systur þótti mjög vænt um þegar Úlfar og Ingibjörg heimsóttu hana á spítalann í sumar, en þar er Úlfari rétt lýst því hann var allt- af kominn ef eitthvað bjátaði á. Hann var ákaflega róleg persóna og lofaði ekki meiru en hann gat staðið við. Við vottum dóttur hans Vilmu, foreldrum og systkinum okkar dýpstu samúð. Megi hann hvíla í friði. Helga, Vilborg og Guðrún. Kveðja frá samstarfsfólki í G. Ben. prentstofu hf. Með þessum fátæklegu línum kveðjum við okkar kæra vinnufé- laga, Úlfar Úlfarsson. Úlfar var fagmaður hinn besti, öll hans vinna einkenndist af yfirvegun, mikilli snyrtimennsku og af virðingu gagn- vart starfi sínu. Það var líka gott og gaman að vinna með Úlfari, hann hafði góðan húmor, hann var eitthvað svo hlýr og sérstakur per- sópuleiki, hann Úlfar. Það er svo sárt þegar ungt fólk er kallað brott í blóma lífsins, svo margt ógert, svo margt framundan. Þannig var það hjá Úlfari. Úlfar var fullur bjartsýni á framtíð sína þegar kallið kom. Hann var góður drengur með gott hjartalag. Um leið og við vottum dóttur hans og ijölskyldu allri okkar dýpstu samúð eigum við. þá einlægu von að minningin um góðan og hjartahlýjan dreng verði þeim huggun harmi gegn. Fari okkar kæri vinur í friði með þökk fyrir allt. Björn Jónsson, Gili - Minning Fæddur 15. nóvember 1904 Dáinn 18. febrúar 1991 Rannveig Gunnars dóttir - Minning Fædd 6. nóvember 1901 Dáin 29. janúar 1991 Nú hefur hann Björn afi minn sagt skilið við sitt jarðneska líf. Dvelur nú í hinum glæstu sölum almættisins, þar sem ekki er skreytt með demöntum heldur kostum þeim, er hver sál hefur yfir að búa. Þar er heldur ekki streð né togstreita um hjóm eða gull í stöngum. Björn Jónsson fæddist 15. nóv- ember 1904 á Páfastöðum í Skaga- firði. Var hann því 86 ára er hann Iést á Héraðshæiinu á Blönduósi 18. þessa mánaðar. Hafði hann legið þar í ein 10 ár. Barðist þar við hrörn- unarsjúkdóm er fylgir oft ellinni. Foreldrar afa voru Jón Sigfússon og Guðný Jónsdóttir. Er Björn afi Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmæl- is- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaösins á 2. hæð í Aðal- stræti 6, Reykjavík og á skrif- stofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birt.ast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á .mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tekin til birtingar frumort Ijóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta tilvitnanir í ljóð eftir þekkt skáld, og skal þá höfundar get- ið. Sama gildir ef sálmur er birt- var sjö ára missti hann föður sinn. Var heimilinu sundrað eins og þá var siður. Lenti hann hjá vandalausu fólki. Bar þess merki aila ævi bæði andlega og líkamlega. Með krepptar hendur og kaun á sál. Árið 1927 kvæntist afi ömmu, Sigþrúði Frið- riksdóttur frá Valadal á Skörðum. Hafði hann komið að Valadal til vinnumennsku. Sigþrúður amma er dóttir Friðriks Stefánssonar og Guð- ríðar Pétursdóttur. Þau voru búhöld- ar góðir á þeirra tíma mælikvarða. Hef ég trú á því að það hafi mætt einhveiju mótlæti sá ráðahagur ömmu er hún gekk að eiga afa. Búskap sinn hófu þau síðan á Vala- björgum á Skörðum. Árið 1941 flytja þau vestur í Húnavatnssýslu að Brún í Svartárdal. Síðan að Gili og bjuggu þar á móti Stefáni Sig- urðssyni og Elísabetu Guðmunds- dóttur. En síðan keypti Friðrik son- ur þeirra jörðina. Voru afi og amma síðan áfram á Gili í skjóli hans. Afa og ömmu varð tveggja barna auðið. Þau eru Friðrik, fæddur 8. júní 1928, er kvæntur Erlu Hafsteins- dóttur, eiga þau fimm börn og búa á Gili, og Jóhanna, fædd 26. maí 1940, býr á Blönduósi, hennar mað- ur er Sigfús Guðmundsson, eiga þau fjögur börn. Afi var maður lystisemdanna. Hafði gaman að skemmtunum, söng og öði-um mannamótum. Jafnframt var hann bókhneigður og safnaði bókum. Mikið yndi hafði hann af söng. Var hljómfagur sjálfur, eins og margir hans skagfirsku frændur. Næi-veru hesta naut afi, átti jafnan góða hesta. Var hann ákafamaður á hesti eins og sjá mátti af ásetu hans. Afi var ekki maður auðs eða frama. Sjálfsagt hefur hans æska átt þátt í því. Oft held ég að amma hafi þurft að spara til að endar ! næðu saman._Yenð.hefur það henni. erfítt þar sem hún ólst upp Við önn- ur og betri kjör. Bjöm afí var sveif- hugi, lifði frá degi til dags, æðrað- ist ekki útaf smámunum. Hefur kannski snemma gert sér grein fyr- ir því hve litlu við ráðum um hvað morgundagurinn ber í skauti sér. Hann var dulur um sína hagi en hafði sínar skoðanir sem hann lét í ljós ef svo bar undir. Oft var hann neikvæður og setti sig á móti sjálf- sögðum hlutum. Hið rétta sá hann samt sem hann lét þá í ljós síðar. Kannski var þetta hans húmor. Mik- ið dálæti hafði afi á okkur barna- börnum sínum, nafni hans Björn Grétar naut þess þó mest. Lét hann það í ljós með því að rétta honum ýmislegt. Bæði gjafir í skepnum og hlýju viðmóti. Nú er þessu jarðneska lífi afa lokið. Hann er genginn til móts við almættið. Skaparann sem tekur okkur hvert og eitt til sín. Með þeim verkum sem við höfum unnið. Guð veit að við mannanna börn erum breysk. Tekur á yfirsjónum okkar af skilningi. Eins og okkur ber að gera við okkar börn. Blessuð sé minning Björns afa míns. . Om Friðriksson Rannveig Gunnarsdóttir frá Skógum í Öxarfirði, sú mikilhæfa merkiskona, kvaddi þennan heim 29. janúar síðastliðinn, eftir fjögurra og hálfs árs erfíða sjúkdómslegu. Mig langar með fáum orðum að þakka henni allt það góða sem hún kenndi mér, er ég um fermingarald- ur kom á hennar stóra og um- fangsmikla heimili. Aldrei gleymi ég, hvað ég mætti þar elskulegu viðmóti frá henni og öllu hennar fólki, svo mér fannst frá fyrsta degi ég vera ein af fjölskyld- unni. Útskálaheimilið var eitt af þess- um gömlu, grónu menningarheimil- um, þar sem hægt var að læra margt og mikið, bæði til munns og handa, heimili sem jafnaðist á við góðan skóla. Rannveig var ein sú duglegasta kona, sem ég hefi kynnst. Hún var bæði mikilvirk og vandvirk á allt það sem hún lagði hönd að, enda þurfti hún sannarlega á því að halda, þar sem hún, aðeins 17 ára gömul, tók við svo umsvifamiklu heimili, sem heimili hennar og Bjöms Kristj- ánssonar kaupfélagsstjóra var, því þá mátti segja, að þangað væri stöð- ugur straumur fólks, bæði innan héraðs og utan, einkum áður en gistihús var byggt á Kópaskeri. Háir sem lágir þágu þar beina og gistingu. Fáar nætur man ég svo, að ein- hveijir gestir hefðu þar ekki nætur- dvöl. Óhjákvæmilega þurfti heima- fólk oft að ganga úr rúmum fyrir gestum, en það var gert með ljúfu geði, því það var svo gaman að geta gert þeim hjónum tii þægðar. Eins var létt að vinna þeim, því inni- legt þakklæti fékk maður ætíð ef vel var gert. L En Rajtnveig var, ekki bara mikil húsmóðir, hún var líka mikil félags- málakona og sparaði ekki krafta sína þar frekar en annars staðar, var um árabil í stjóm kvenfélagsins Stjörnunnar á Kópaskeri, einnig gjaldkeri í Kvenfélagasambandi N- Þing. I kirkjukór Snartarstaðakirkju söng hún, svo lengi sem hún dvaldi á Kópaskeri. Ekki má gleyma öllum þeim stundum sem hún dvaldi í garðinum sínum við Útskála, þar sem hún hlúði að ýmsu grænmeti og veik- byggðum gróðri, en það voru henn- ar einkenni, að hlúa að því sem veikbyggt var. Vefnaðarkona var hún með ágæt- um og óf marga, bæði nytsama og fagra muni. Eftir að hún flutti til Reykjavík- ur, gat hún í ríkara mæli gefið sig að þessum áhugamálum sínum, þar sem umsvif heimilisins minnkuðu nokkuð, ætíð var þó margt í kring- um hana, bæði ættingjar og vinir. Og hún hafði engu gleymt frá Út- skálum, það fékk ég að reyna, er ég kom gestur til hennar í Reykja- vík. Þar var eins og áður, nóg á borðum og nóg af fögrum handunn- um munum að skoða. Skrýtið, mér finnst, að alltaf hafi verið sólskin á Kópaskeri. Gleymi ekki silungsveiði í „Víkinni" á kyrr- um sumarkvöldum, með glaðværu fjölskyldunni í Útskálum, þar sem húsmóðirin var í broddi fylkingar. Ekki gleymi ég heldur sumardeg- inum fyrsta, þegar allt heimilisfólk- ið, nema Rannveig og Gunnþórunn lá í inflúensu, samt var tími til að færa öllu fólkinu, 14 manns, smá sumargjafir. Svona var Ranna. Nú kveð ég þessa elskulegu konu, með þakklæti fyrir allt, og sendi börnum hennar og öðrum ættingjum mínar dýpstu samúðarkveðjur og bið þeim blessunar Guðs. llólinl'ríður I> riðgeirsdóttir I

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.