Morgunblaðið - 08.03.1991, Side 40
Týndur kettlingur
Lítill grár kettlingur með hvítt
hálsband villtist að heiman frá sér
Seljahverfi laugardaginn 2.
mars. Vinsamlegast hringið í síma
71853 ef hann hefur einhvers
staðar komið fram.
Dökkbrún kassalöguð taska
tapaðist í sumar. Finnandi vin-
samlegast hringi í síma 18347.
Góðir þættir
Aðdáandi hringdi:
„Ég vil þakka fyrir þættina Á
tali hjá Hemma Gunn. Þetta hafa
verið ákaflega skemmtilegir þætt-
ir í vetur og er vonandi að fram-
hald verði á.
Týnd læða
Gulbröndótt læða, 10 mánaða
gömul, týndist frá heimili sínu að
Framnesvegi 56A fyrir viku. Hún
er ómerkt. Vinsamlegast hringið
síma 20834 er hún hefur ein-
hvers staðar komið fram.
Vík\erji skrifar
HOGNI HREKKVISI
„ HAUN. BLUNPAf?, EN ÉG SkrAL.
M&D ‘AN/EGJO VEKXA HAMN."
Frétt Stöðvar 2 sl. mánudags-
kvöld um vopn sem lögreglan
hafði tekið af fíkniefnaneytendum
vakti óhug. Þarna mátti sjá byssur,
hnífa og sveðjur m.a. Lögreglan
upplýsir að ofbeldi færist stöðugt í
vöxt meðal fíkniefnaneytenda. Hún
segist vita dæmi þess að menn taki
að sér að innheimta skuldir með
hótunum um líkamsmeiðingar og
ekki sé látið sitja við orðin tóm ef
ekki er staðið í skilum.
Ástand mála er orðið mjög alvar-
legt í Reykjavík. Eftir hveija helgi
berast fregnir um fólskulegar árás-
ir og rán. Engu er líkara en ástand-
ið í höfuðborginni sé að verða eins
og í erlendum milljónaborgum. Ekki
verður vart við neinar sérstakar
aðgerðir af hálfu yfirvalda. Hvað
veldur?
Fréttin um kaup Búnaðarbanka
íslands á Hótel íslandi hefur
að vonum vakið mikla athygli. Ólaf-
ur Laufdal réðst í byggingu þessa
mikla húss í kjölfar leiðtogafundar-
ins 1986 þegar menn spáðu stór-
auknum straumi ferðamanna til
landsins. Þá átti Ólafur veitinga-
húsið Broadway skuldlaust. Nú hef-
ur komið í ljós að ekki fengust pen-
ingar til að klára húsið og hefur
Ólafur því neyðst til að selja það
langt undir matsvirði. Hann hefur
tapað öllum þeim peningum sem
hann lagði í húsið, líklega yfir 400
milljónum króna. Ef Ólafur hefði
hins vegar valið þann kost 1986
að selja Broadway og keypt ríkis-
ti-yggð skuldabréf fyrir peningana
eða lagt þá í banka væri hann stór-
ríkur maður í dag. Líklega ætti
hann einar 300 milljónir. Þetta er
vissulega umhugsunarefni.
xxx
Fyrir hverjar kosningar koma
fram sérframboð um hitt og
þetta. Eitt frumlegasta sérframboð-
ið er í undirbúningi meðal Austur-
Húnvetninga, ef marka má frétt
blaðsins Feykis. Er það tilkomið
vegna þess að peningar hafa ekki
fengist til hafnargerðar á Blöndu-
ósi! Samkvæmt fréttinni hafa áhrif-
amenn úr öllum flokkum rætt þetta
framboð en það kemur eflaust eng-
um á óvart að það eru framsóknar-
menn sem hafa átt frumkvæðið!
Aári hveiju flytja til landsins
tugir erlendra kvenna í at-
vinnuleit eða til að giftast hérlend-
um mönnum. Þeir sem til þekkja
telja að á undanförnum árum hafi
til dæmis verið reglulegur straumur
kvenna frá Thailandi. Nær undan-
tekningarlaust vita þær lítið sem
ekkert um land, þjóð og siði né sjálf-
sögð réttindi þegar stigið er á ís-
lenzka grund. Eru til átakanleg
dæmi þess að jafnvel eftir margra
ára búsetu vita þær lítið um sinn
rétt og hafa í raun búið hér í ein-
angrun. Væri ekki ráð að stjórnvöld
létu málið til sín taka og veittu
þeim aðstoð sem hingað koma? Eins
og sakir standa hafa konur einung-
is átt kost á aðstoð hjá Kvennaat-
hvarfinu þegar í óefni er komið.
X
Spámaður DV í knattspyrnuget-
raunum, Eiríkur Jónsson, setti
nýtt met um helgina, sem hann er
eflaust ekki stoltur af. í annað
skiptið hafði hann engan leik réttan
þótt hann rökstyddi spána í löngu
máli í blaði sínu. Sem sagt, allir
12 leikirnir voru rangir! Helgi Dan-
íelsson, núverandi yfirlögreglu-
þjónn RLR, var fyrstur getrauna-
spekinga til þess að fá engan réttan
þegar hann spáði fyrir Alþýðublaðið
fyrir tæpum 20 árum. En Eiríkur
er sá fyrsti sem afrekar þetta tvisv-
ar!