Morgunblaðið - 14.04.1991, Side 1

Morgunblaðið - 14.04.1991, Side 1
96 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 84. tbl. 79. árg. SUNNUDAGVR 14. APRÍL 1991 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Morgunblaðið/Sverrir SVIPPAÐÁ SEYÐISFIRÐI Spenna eykst í búðum kúrdískra flóttamanna Bandarískar flutningaþyrlur sendar til hjálparstarfs í norðurhluta íraks Nikósíu. Reuter. SPENNA fer ört vaxandi milli tyrkneskra hermanna og kúrdískra flóttamanna með- fram tyrknesku og írösku landamærunum. í gær var því haldið fram að tyrkneskir hermenn hefðu skotið marga Kúrda til bana í kapphlaupi um matarpakka sem varp- að hefur verið úr breskum, frönskum og bandarískum flugvélum yfir fióttamanna- stöðvarnar. Þá sögðust íranir ekki lengur hafa neina stjórn á þeim mikla fjölda Kúrda sem þangað hefði flúið og væri ekkert lát á straumnum en hátt í tvær milljón- ir Kúrda hafa flúið undan hersveitum Saddams Husseins íraksforseta. Hugmynda- ríkir Japanir Kenji Kawakami, ritstjóri japansks póstverslunartímarits, fær yfir 50 til- lögur frá lesendum í hverjum mánuði um vörur sem því finnst að ætti að framleiða. Sem dæmi um nokkrar þeirra má nefna fatarekka sem festa má á bak manns sem vill þurrka undir- fötin sín um leið og hann fer út að ganga eða hjóla; svissneskur her- mannahnífur í yfirstærð með garð- yrkjuáhöldum; nögl til að taka utan af appelsínum sem bregða má á þumalfingur; hálsbindi með vösum á bakhliðinni fyrir krítarkort og sóla- lausir spariskór fyrir þá sem vilja halda kaupsýslumannslegu yfirbragði og njóta um leið þeirra náttúrulegu áhrifa sem því fylgja að ganga ber- fættur í grasi. Ein af uppáhaldshug- myndum Kawamakis er ljósmynda- flass sem gengur fyrir sólarrafhlöð- um! Hvað ætli myndi ná mestri mark- aðsútbreiðslu? Tyggjóflóð í Frelsisstyttu Tyggjóvarnarnefnd Bandaríkjanna ætlar að koma Frelsisstyttunni í New York til hjálpar. Ann Belkov, umsjón- armaður Liberty-eyju og Ellis-eyju, segir fólk henda svo miklu af tyggi- gúmmíi í styttunni að hún sé að verða einn „stór tyggjóklessa“. Héðan í frá verða gestir varaðir við „ólöglegri losun tyggigúmmís“ og settar verða upp sérstakar ruslatunnur þar sem þeir stíga á land á báðum eyjum. Þeir sem verða staðnir að því að henda tyggjói þar sem það er óleyfilegt verða sektaðir um 250 Bandaríkjadali eða um 15.000 ÍSK. Heilar karla rýrna hraðar Samkvæmt nýrri rannsókn virðast heilar karlmanna hrörna hraðar en heilar kvenna. Ákveðnar heilafrumur, sem fást við tal, röksemdafærslu og hamingju, drepast fyrr hjá karlmönn- um. „Þetta gæti bent til þess að líkurn- ar til þess að verða geðstirður og við- skotaillur með aldrinum séu meiri hjá körlum en konum,“ sagði Ruben Gur, við Háskólann í Pennsylvaníu, sem tók þátt í gerð könnunarinnar. Hermt er að a.m.k. 2.000 Kúrdar hafi dáið við tyrknesku landamærin úr hungri og vosbúð. Talið er að mun fleiri hafi dáið í Iran. Fréttamenn höfðu eftir flóttamönnum í gær að tyrkneskir hermenn misstu í aukn- um mæli stjórn á sér er þeir reyndu að hemja soltið fólkið sem barist hefur um matarbit- ann. Þá hefðu þeir skotið fjölda Kúrda í kapphlaupi um pakka sem fallið hafa utan flóttamannabúðanna. Hermennirnir legðu hald á pakka sem kæmu niður utan ákveð- inna svæða og reyndu að selja flóttamönnun- um. Þá hefur kappið verið stundum það mikið að flóttamenn hafa orðið undir matarbrett- unum sem svifið hafa til jarðar í fallhlíf og kramist til bana undir þeim. Þannig biðu sjö flóttamenn bana í einum búðunum á föstu- dag. Flutningaþyrlur bandaríska heraflans í Evrópu hafa verið sendar til Tyrkalands en þaðan verða _þær sendar til hjálparstarfs í norðurhluta Iraks og taka rúmlega 8.000 hermenn þátt í þessum aðgerðum. Bretar gáfu til kynna í gær, að bandamenn myndu beita hervaldi ef írösk stjórnvöld gerðu hið minnsta til þess að hindra áform um hjálpar- starf á slóðum Kúrda. írakar höfnuðu hug- myndum Breta um sérstakt griðland fyrir Kúrda í norðurhluta landsins en fulltrúar ríkjanna fimm sem eiga fastafulltrúa í örygg- isráði Sameinuðu þjóðanna (SÞ) sátu á rök- stólum í fyrrakvöld og ræddu hugmyndina um griðland. Embættismenn sögðust þó tæpast eiga von á formlegri ákvörðun ráðs- ins um það efni. Fyrstu friðargæsluliðar SÞ, 30 að tölu, komu til Kúveits í gærmorgun til þess að skipuleggja gæslustarf_ á vopnahléslínunni meðfram landamærum Iraks og Kúveits, en alls verða 1.440 menn frá 34 ríkjum í gæslu- sveitunum. Hans-Dietrich Genscher, utanríkisráð- herra Þýskalands, sagði í gær að Sameinuðu þjóðunum bæri að efna til stríðsglæparéttar- halda yfir Saddam Hussein íraksforseta á borð við Núrnberg-réttarhöldin yfir foringj- um þýskra nasista eftir seinna stríðið. Sömu ástæður væru fyrir hendi nú og þá til réttar- halds af þessu tagi. HEMMMK ÍH/ÍSKÓLÁHUM / 9 Sveinbjöm Bjömsson 'L ^ nýkjörinn háskólarektor ÞAR SEM „Fiðrildin & furðudýrin“ 16 VERÐA TIL

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.