Morgunblaðið - 14.04.1991, Page 2

Morgunblaðið - 14.04.1991, Page 2
2 FRÉTTIR/INNLENT MÓRGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. APRÍL 1991 EFNI Þíbilju boðið á leik- listarhátíð í Tampere LEIKHÓPNUM Þíbilju hefur verið boðið að taka þátt í árlegri leik- listarhátíð í Tampere í Finnlandi 13.—18. ágúst í sumar. Hópurinn mun setja á svið sýningu sem hefur hlotið nafnið „Dalur hinna blindu“ og er byggð á smásögu eftir H.G. Wells. Sýningar á verk- inu standa nú yfir í Lindarbæ. „Verkið fjallar um fólk { af- skekktum dal sem hefur fengið sjúkdóm og orðið blint. Fólkið gleymir því sem við vitum aðeins í gegnum sjón og öðlast nýja heims- mynd en er engu ap síður fullnægt og hamingjusamt. í nútíðinni gerist það svo að flugslys verður í ná- grenninu og feðgar komast af. Þeir vorkenna fólkinu og vilja hjálpa því en verkið segir frá sam- skiptum þeirra og blinda fólksins í dalnum," sagði Þór Tulinius um innihald verksins. Handritið samdi hann eftir sögu H.G. Wells „Land hinna blindu“ í samvinnu við leik- hópinn. Honum til aðstoðar voru Hilmar Öm Hilmarsson og Hafliði Hallgrímsson. í Þíbilju eru aðeins menntaðir leikarar. Átta eru útskrifaðir frá Leiklistarskóla íslands og tveir hafa fengið menntun sína erlendis. Þór sagði að í Finnlandsboðinu fælist uppihald meðan á leiklistar- hátíðinni stæði en enn ætti eftir að fjármagna ferðir fram og til baka. Ekki yrði farið nema til þess fengjust styrkir. • Leiklistarhátíðin í Tampere er haldin árlega. í fyrra tóku leikhóp- ar frá 15 löndum þátt í hátíðinn auk 16 finnskra leikhópa. Þá vora áhorfendur um 30.000. Morgunblaðið/KGA Lottóið flytur ínýtt húsnæði Starfsmenn íslenskrar getspár, sem rekur Lottóið, hafa undanfarn- ar vikur undirbúið flutning á tölvubúnaði fyrirtækisins í nýtt húsnæði í Laugardalnum. Strax að loknum útdrætti í gærkveldi var hafist handa við flutningana, en hér á landi era sex erlendir sérfræðingar vegna þessa. Myndin var tekin í gærmorgun þegar verið var að leggja síðustu hönd á tölvusalinn. Vegna flutninganna verður sölu- kerfi Lottósins um allt land lokað á mánudag og þriðjudag en opnar aftur á miðvikudagsmorgun. Paul Drack aðalforstjóri Alumax: Þarf að hraða viðræðum eftir kosningar á Islandi Telur að línur skýrist mjög á næstu tveimur mánuðum PAUL Drack, aðalforstjóri bandaríska álfyrirtækisins Alumax, sem ásamt hollenska fyrirtækinu Hoogovens og sænska fyrirtækinu Granges myndar Atlantsál, telur að lítið muni þokast í samninga- viðræðum Islands og Atlantsáls, fyrr en ný ríkissljóm hefur verið mynduð hér á landi, að afloknum alþingiskosningunum eftir eina viku. „Þá þarf líka að fara að hraða allri samningagerð og skrið- ur að komast á hlutina, því okkur sem ykkur er nauðsyn á að fá botn í það hvort ráðist verður í þessa framkvæmd, sem ég einlæg- lega vona að verði,“ sagði Drack í samtali við Morgunblaðið í gær. Morgunblaðið/Hallur Þorsteinsson Valt á saltkistu Toyota-jeppi valt í Hvalfirði á föstu- dagsmorgun þegar ökumaðurinn missti stjórn á bílnum í krapa í vegkantinum. Bíllinn rann út af, valt þegar hann lenti á saltkistu við veginn og stöðvaðist á toppnum. Ökumaðurinn slapp með minni hátt- ar meiðsli, en bíllinn er mikið skemmdur. Vegna bilunar í prentvél er ekki unnt að prenta Morgun- blaðið í þeirri stærð, sem nauð- synlegt væri. Það veldur þrengslum í blaðinu og falla því niður nokkrir fastaþættir, s.s. útvarpsdagskrá sunnudags og mánudags. Lesendur era beðnir velvirðingar á þessu og er þeim bent á Dagskrárblaðið, sem út kom í fyrradag en þar er m.a. dagskrá allra útvarps- stöðva. Oddeyrin EA: Samherji hf kaupir hlut bæjarsjóðs BÆJARSTJÓRN Akureyrar hef- ur samþykkt að selja Samheija hf. hlutabréf sín í Oddeyrinni EA-210, en bærinn átti hlutabréf í skipinu að upphæð 11 milljónir að nafnverði. Bréfin voru seld fyrir 18 milljónir króna. Samheiji hefur séð um rekstur skipsins frá upphafí. Oddeyrin er eitt af raðsmíðaskipunum svokölluðu og var smíðað í Slippstöðinni á Akur- eyri árið 1986. Skipið er 274 lestir að stærð og 39 metra Iangt. Samheiji átti 40% í skipinu, Akur- eyrarbær 40% og K. Jónsson 20%. Samheiji hefur nú eignast skipið að fullu, en fyrirtækið hefur einnig keypt hlut K. Jónssonar. Fram kom í mati Ráðgjafar Kaup- þings hf. sem gert var fyrir atvinnu- málanefnd að hæsta raunvirði hluta- bréfa Akureyrarbæjar væri 20 millj- ónir króna miðað við ákveðnar for- sendur. Samheiji bauð 16 milljónir króna fyrir hlutabréfm, en þau voru seld fyrir 18 milljónir króna. „Ég reikna með því að línur muni skýrast mjög á næstu tveim- ur mánuðum. Á þessu stigi er ekkert hægt að segja um það hvenær fyrirtækin geta lagt samn- inga fyrir stjómir sínar, því áður en það verður, verða ákveðin lykil- ELDUR kom upp á Hótel Sögu í fyrrinótt. Slökkviliðið fékk til- kynningu um mikinn reyk í stigagangi á 6. hæð hótelsins að austanverðu og kom í ljós að eldur logaði í dýnu, sem var geymd í neyðarstigagangi. Hót- elgestur hafði slökkt eldinn þegar slökkviliðið kom á vett- vang. Slökkviliðið fékk tilkynningu frá Hótel Sögu klukkan 2.07. Þeg- ar komið var á vettvang, á stiga- gangi á 6. hæð, vora starfsmenn hótelsins að vekja gesti í herbergj- um þar á hæðinni, svo þeir gætu yfirgefið herbergin til öryggis. Innst á stigaganginum var einn hótelgesta, Breti, að sprauta úr vatnsslöngu yfir dýnu, sem stóð á palli neyðarstigagangs. Eldurinn var kulnaður þegar slökkviliðið kom. Tveir reykkafarar fóra inn á neyðarstigaganginn og ræstu út. Þá var körfubíll notaður til að koma vatnssugu að, til að ljúka hreinsun. Einn hótelgesta var fluttur á sjúkrahús, vegna gruns um að hann hefði fengið snert af reykeitrun. Samkvæmt upplýsingum slökkviliðsins fór boðkerfi Hótel Sögu í gang klukkan 2.01, eða sex mínútum áður en slökkviliðið var látið vita. Þá höfðu norðurdyr hót- elsins ekki verið opnaðar þegar slökkviliðið koma á staðinn, en um atriði að liggja ljós fyrir, svo sem hver raunveralegur stofnkostnað- ur nýs álvers verður. Auk þess verður fjármögnun fyrirtækisins að liggja fyrir, og þótt ég telji að nú sé auðveldara að semja um fjár- mögnun, eftir að stríðinu við þær var fljótlegast að komast á eldstaðinn. Loks fannst slökkvilið- inu ámælisvert að dýnan skyldi vera geymd við neyðarútgang, en það hefði getað hindrað fólk í undankomu, ef eldur hefði logað í hótelinu sjálfu. Jónas Hvannberg, hótelstjóri, sagði að ekki hefðu lið- ið sex mínútur þar til slökkviliðinu hefði verið gert viðvart, enda brýnt Persaflóa er lokið, þá taka samn- ingar við banka um fjármögnun sinn tíma,“ sagði Drack. Forstjóri Alumax sagði að full- trúar Atlantsáls hefðu að undan- fömu átt í viðræðum við banka um fjármögnun nýs álvers á Keilis- nesi, en þar væri einnig erfitt að ganga frá nokkrum sköpuðum hlut á þessu stigi, vegna þess að endan- legar stærðir lægju' ekki fyrir, hvað varðar stofnkostnaðinn. „Við eram enn að leita leiða til þess að lækka stofnkostnaðinn, sem enn er samkvæmt áætlunum tals- vert of hár,“ sagði Drack. fyrir starfsfólki að gera það ávallt tafarlaust. Þá hefðu umræddar dyr verið opnaðar í sömu mund og slökkviliðið kom að. Um dýnuna væri það að segja, að hún hefði ekki verið fyrir á neinn hátt og því ekki lokað flóttaleið. Loks ósk- aði Jónas eftir að koma á fram- •færi þakklæti til slökkviliðsins, sem hefði brugðist mjög skjótt við. Mikill reykur þegar eldur logaði í dýnu á Hótel Sögu Morgunblaðið/Sverrir Slökkviliðsmaður hugar að leifum dýnunnar, sem brann á Hótel Sögu í fyrrinótt. Heimamaður í Háskól anum ►Rætt við Sveinbjöm Björnsson nýkjörinn rektor Háskóla íslands. /12 Þar sem fiðrildin og furðudýrin verða til ►Listamenn í Bústaðaskóla heim- sóttir/16 ► Bheimili/ FASTEIGNIR ► 1-24 Fasteignaauglýsingar ► l-32 . Síðasti Sjópósturinn ►Halldór Jónsson sjópóstur á Bíldudal hefur siglt á trillu með póst og vörur um Amarfjörð í 18 ár og er sá eini hér á landi, sem þannig ferðast um með póst sinn. /1-12,13 Soldáninn stendur sterkari eftir ►Jóhanna Kristjónsdóttir, blaða- maður Morgunblaðsins, heldur áfram för sinni um Miðausturlönd og er nú stödd í Óman /2 Ég hef aldrei þurft að gera upp með tapi ►Vilhjálmur Jónsson lætur bráð- lega af forstjórastarfí Olíufélags- ins hf., en þar hefur hann haldið um stjómvölinn síðustu 32 árin. /4 Kúguð þjóð án ríkis ►Kúrdar hafa háð þrotlausa bar- áttu fyrir sjálfstjóm um áratuga skeið. Hún hafa mátt þola ofsókn- ir af hálfu nágranna sinna og enn eiga þeir undir högg að sækja. /6 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/6/bak Dagbók 8 Mannlífsstr. 8c Hugvekja 9 Fjölmiðlar 18c Leiðari 20 Kvikmyndir 20c Helgispjall 20 Myndasögur 22c Reykjavíkurbréf 20 Minningar 24c Brids 26 Stjömuspá 26 Skák 26 Fólk í fréttum 36 Velvakandi 26c Karlar 36 Bíó/dans 28c Útvarp/sjónvarp 39 Samsafnið 30c INNLENDAR FRÉTTIR: 2-6-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1-4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.