Morgunblaðið - 14.04.1991, Qupperneq 4
4 FRÉTTIR/YFIRUT
MÖRGtÍÍÍBÍiAÐIÐ> 'SUNNUD'ÁUUlU ŒMgféííT >Í8W-
ERLENT
INNLENT
Flestir vilja
Davíð sem
næsta for-
sætisráðherra
MEIRIHLUTI kjósenda vill Davíð
Oddsson, formann Sjálfstæðis-
flokksins, sem næsta forsætisráð-
herra landsins. Þetta kemur fram
í niðurstöðum skoðanakönnunar
sem Skáís gerði og birtar voru í
vikunni. 51,4% kjósenda sögðust
vilja Davíð sem næsta formann en
41,2%" sögðust vilja Steingrím
Hermansson, formann Framsókn-
arflokksins, sem næsta forsætis-
ráðherra.
UMFN íslandsmeistarar
Njarðvíkingar tryggðu sér ís-
landsmeistaratitilinn í körfuknatt-
leik karla í vikunni þegar þeir
lögðu nágranna sína úr Keflavík
af velli í fímmtu viðureign liðanna
um þennan eftirsótta titil.
María í St. Barbara
Leikkonan María Ellingsen
hefur fengið hlutverk i bandarísku
sápuóperunni St. Barbara. Þættir
þessir voru sýndir á Stöð 2 til
skamms tíma og hefur verið ákveð-
ið þar á bæ að reyna að fá þá til
sýningar aftur.
ERLENT
Tvær millj-
ónir hafa
flúið írak
Talið er allt að tvær milljónir
manna hafi flúið undan hersveitum
Saddams Husseins í Irak eftir að
stjómarherinn íraski braut á bak
aftur uppreisn Kúrda og shíta í
norður- og suðurhluta landsins.
Mestur er flóttamannastraumur-
inn yfír til írans og segja starfs-
menn erlendra hjálparstofnana að
hundruð þúsunda manna bíði þess
að komast yfír landamærin.
Fullvíst er talið að þúsundir manna
hafi látið lífíð á flóttanum sökum
hungurs, kulda og vosbúðar og
hjálparstarf hefur gengið treglega.
Bandaríkjamenn bönnuðu allar
hemaðaraðgerðir í Norður-Irak í
vikunni en fréttir bárust af því að
íraski stjórnarherinn hefði hundsað
tilskipun þessa. Tillaga bresku
ríkisstjómarinnar þess efnis að
skilgreind verði sérstök griðasvæði
Kúrdum til handa var rædd á vett-
vangi Sameinuðu þjóðanna í vik-
unni. Framkvæmdastjóri SÞ lýsti
yfír því að slík svæði yrði aðeins
unnt að marka með samþykki ír-
askra stjómvalda.
Vopnahlé gengið í gildi
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
lýsti formlega yfír vopnahléi í
Persaflóastyijöldinni á fimmtudag.
Hafði þá borist staðfesting frá
írökum þess efnis að þeir hefðu
fallist á alla þá skilmála sem sett-
ir höfðu verið en þeir kveða m.a.
á um stríðsskaðabætur og uppræt-
ingu vígtóla í vopnabúrum stjóm-
arhersins. Bandaríkjamenn hófu
að flytja liðsafla sinn frá Suður-
írak og munu friðargæslusveitir
SÞ halda uppi eftirliti á þessu
svæði.
Útvarpsráð greip inn í
kosningasjónvarpið
Útvarpsráð samþykkti sam-
hljóða að banna fréttastofu sjón-
varpsins að birta niðurstöður úr
skoðanakönnun, sem Gallup hefur
unnið fyrir RÚV, í kosningasjón-
varpi frá einstökum kjördæmum.
Niðurstöður könunarinnar hafa
hins vegar verið birtar í fréttatím-
um sjónvarpsins og verður svo
áfram, en útvarpsráð lýsir allri
ábyrgð á hendur Markúsi Erni
Antonssyni útvarpsstjóra.
Sala á bjór minnkar
Fyrstu þijá mánuði þessa árs
hefur sala á bjór dregist saman
en á sama tíma hefur sala á sterk-
ari drykkjum aukist. Samdráttur
var í heildarsölu ÁTVR á áfengi
um 3,53% í lítrum talið en salan
hefur hins vegar aukist um 0,42%
í alkóhóllítrum talið. Sala á neftó-
baki hefur aukist nokkuð en vindl-
ingar og annað tóbak selst minna
en áður.
Einkaleyfi SÍF afnumið
Sex áratuga einkaleyfí Sölu-
samtaka íslenskra fiskframleið-
enda á saltfísksölu til Ameríku-
landa var afnumið í vikunni en SÍF
mun áfram hafa einkaleyfi á út-
flutningi til Evrópu. Útflytjendur
sem hug hafa á að flytja saltfísk
til Ameríkulanda verða að uppfylla
ströng skilyrði til að fá leyfi til
slíks.
Hlutabréfín seldust vel
Hlutabréf Dagsbrúnar í Eignar-
haldsfélaginu Alþýðubankinn hf.
seldust öll á mánudaginn á skömm-
um tíma. Bréfin seldust á tæplega
tvöföldu nafnverði.
Nýr slökkviliðssljóri
Hrólfur Jónsson, varaslökkvi-
liðsstjóri í Reykjavík hefur verið
ráðinn slökkviliðsstjóri höfuðborg-
arinnar frá og með 1. desember.
Rúnar Bjarnason lætur þá af
störfum en hann verður sextugur
í nóvember.
Samkomulag um
friðarráðstefnu
Stjómvöld í
Bandaríkjunum
og ísrael hafa
orðið sammála
um að boða
skuli til svæðis-
bundinnar ráð-
stefnu um frið
í Mið-Austur-
löndum. James Baker, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, átti fundi
með ísraelskum ráðamönnum í
byijun vikunnar og kynnti tillög-
umar. Stjórnvöld í Saudi-Arabíu
og Egyptalandi tóku undir hug-
myndina en Sýrlendingar halda
fast við þá kröfu að eftit verði-tíl
alþjóðlegrar friðarráðstefnu á vett-
vangi SÞ.
Lýst yfir sjálfstæði Georgíu
Þing Sovétlýð-
veldisins Ge-
orgiu sam-
þykkti á þriðju-
dag að endur-
vekja sjálf-
stæðisyfirlýs-
ingu lands-
manna frá
1918. Zviad
Gamsakhurdia, forseti Georgíu,
sagði hins vegar að sjálfstæðisyfír-
lýsingin jafngilti ekki úrsögn úr
sovéska ríkjasambandinu. Þjóðern-
issinnar í Georgíu gengust fyrir
verkföllum í vikunni og kröfðust
þess að ráðamenn í Kreml hæfu
við þá viðræður um umbætur á
vettvangi efnahags- og stjómmála.
Fyrr í vikunni höfðu stjómvöld
fallist á viðræður við fulitrúa verk-
fallsmanna í Hvíta-Rússlandi en
krafa þeirra er m.a. sú að Míkhaíl
S. Gorbatsjov, leiðtogi Kommún-
istaflokksins og forseti Sovétríkj-
anna segi af sér. Gorbatsjov lagði
hins vegar fram sérstaka neyðar-
áætlun á þriðjudag til að afstýra
efnahagslegu hruni og pólitískri
upplausn í Sovétríkjunum.
Ástralía:
Kólesterólsnauð-
ur ostur á markað
Sydney. Reuter.
ÁSTRALSKT fyrirtæki lýsti yfir
í gær að því hefði tekist að fram-
leiða ost með lágu kólesterólinni-
haldi. Osturinn lítur út og smakk-
ast eins og venjulegur ostur, en
inniheldur 90% minni mettaða
fitu.
Vísindamenn sem starfa hjá mat-
vælafyrirtækinu Poseidon Terama í
Melbourne segjast hafa fundið aðferð
til að fjarlægja úr ostinum megnið
af mettuðu fitunni sem er einn helsti
orsakavaldur hjartasjúkdóma.
„Bragðið og aðrir eiginleikar osts-
ins haldast, svo og næringargildið,"
segir Tim Horwood matvælatækni-
fræðingur sem starfar hjá fyrirtæk-
inu. „Aðeins mettaða fítan hverfur
að mestu leyti.“
Nýja aðferðin hefur verið notuð
við feta- og havarti-osta, en fleiri
tegundir koma fljótlega á markaðinn.
Fetaostur fyrirtækisins inniheldur
17 milligrömm af mettaðri fítu á
hver 100 grömm, en venjulegur ástr-
alskur fetaostur 75 milligrömm. Ha-
varti-ostur fyrirtækisins inniheldur
17 milligrömm af mettaðri fítu á
hver 100 grömm, en venjulegur ostur
sömu tegundar 120 milligrömm á
100 grömm.
Réglugerðir í Ástralíu koma í veg
fyrir að fyrirtækið geti merkt þessa
framleiðslu með orðinu „ostur“, þar
sem hún inniheldur enga smjörfitu.
Gorba æði í
V
Japan
Japanskar stúdínur máta boli
sem nú seljast eins og heitar
lummur í Tókýó vegna sögu-
legrar heimsóknar Míkhaíls
Gorbatsjovs Sovétforseta til
Japans. Heimsóknin hefst
næstkomandi þriðjudag og
stendur í fjóra daga.
Þýskaland:
Framtíðarhlutverk Sam-
bandshersins í brennidepli
Framtíð og hlutverk þýska Sam-
bandshersins hefur iqjög verið
til umræðu í Þýskalandi á und-
anföraum vikum og mánuðum
og í vikunni bárust fregnir af
því að þýsk stjórnvöld hafi
ákveðið að koma á fót í sumar
fimmtán þúsund manna hrað-
liðssveitum til að taka þátt í
hugsanlegum heraaðaraðgerð-
um á vegum Atlantshafsbanda-
lagsins (NATO) en einnig að-
gerðum skipulögðum af Samein-
uðu þjóðunum. Þetta eru vissu-
lega mikil tíðindi því að þýskir
hermenn hafa hingað til ekki
tekið þátt í neinum aðgerðum
utan ramma NATO. f 26. grein
þýsku stjórnarskrárinnar er lagt
bann við að þýski herinn taki
þátt í „árásarstríði" og hefur
þessi grein af mörgum verið
túlkuð þannig að Þjóðverjum
leyfist ekki þátttaka í hernaðar-
aðgerðum utan varnarsvæðis
NATO - ekki einu sinni þátttöku
í friðargæslusveitum Sameinuðu
þjóðanna.
Kveikjan að umræðunni um
framtíð Sambandshersins er
þríþætt. í fýrsta lagi sameining
Þýskalands og þar með innlimun
fyrrum austur-þýska hersins NVA
(Nationale Vojksarmee) í Sam-
bandsherinn. í öðru lagi hinar
gjörbreyttu aðstæður í Evrópu og
upplausn Varsjárbandalagsins og
í þriðja lagi Persaflóastríðið. Þó
að Þjóðveijar hafí ekki tekið þátt
í átökunum við
Persaflóa með
beinum hætti,
heldur einung-
is stutt banda-
menn fjárhags-
lega, varð
stríðið líklega í engu öðru Evrópu-
landi að jafn viðkvæmu pólitísku
deilumáli.
Hið nýsameinaða Þýskaland,
sem helst hefði viljað fá ró og
næði fyrst um sinn til að koma
innanlandsmálunum í viðunandi
horf, var allt í einu orðið að skot-
spón helstu bandamanna sinna,
sem vildu að fjölmennasti her
Vestur-Evrópu tæki einhvern þátt
í Persaflóadeilunni. Innan Þýska-
lands óx líka þeim röddum ásmeg-
in sem kröfðust þess að ríkið axl-
aði ábyrgð á alþjóðavettvangi í
samræmi við stærð sína og styrk.
Dagblaðið Frankfurter AUge-
meine líkti þannig í forystugrein
Þýskalandi við „móðursjúka kell-
ingu“ í samfélagi vestrænna lýð-
ræðisríkja.
Engir þýskir hermenn voru hins
vegar sendir til Saudí-Arabíu
heldur til Miðjarðarhafsins og
norðurhluta Tyrklands. Jafnvel sú
ákvörðun varð að deilumáli og
drógu margir stjómmálamenn úr
Kohl kanslari heilsar yfirmönn-
um í Sambandshernum.
röðum jafnaðarmanna og græn-
ingja í efa að Þjóðveijar væru
skuldbundnir til að veija Tyrki, í
samræmi við stofnsáttmála
NATO, réðust írakar þar inn.
Þá neituðu fjölmargir hermenn
Sambandshersins að fara til Tyrk-
lands, þrátt fyrir að hverfandi
líkur væru á að þeir myndu lenda
í bardögum, og þeir sem þangað
fóru voru gagnrýndir fyrir slæleg-
an baráttuvilja. Sjónvarpsviðtölin
við þýska hermeim í Tyrklandi og
hermenn úr fjölþjóðahernum í
Saudí-Arabíu voru eins og svart
og hvítt. Annars vegar voru her-
ménn sem kvörtuðu yfír því að
fá ekki að beij-
ast og hins
vegar hermenn
sem kvörtuðu
yfir því að þeir
fengu ekki að
rölta um og
kaupa gjafír handa konunum!
Aðalritstjóra tyrkneska dagblaðs-
ins Turkish Daily News fannst
það „hlægilegt að svona lið eigi
að veija okkur“.
Að stórum hluta til má rekja
þennan slælega baráttuvilja til
hins pólitíska andrúmslofts í
Þýskalandi. Fjölmiðlar og stjórn-
málamenn á vinstri vængnum
halda uppi óvæginni gagniýni á
herinn og allt sem honum tengist.
Fyrrum kanslaraefni jafnaðar-
manna, Oskar Lafontaine, var til
dæmis ekkert að skafa utan af
skoðunum sínum meðan á Persa-
flóadeilunni stóð. Ef menn væru
þannig sinnaðir að þeir vildu veija
„frelsið" ættu þeir bara að skrá
sig í útlendingahersveitina.
Framtíð Sambandshersins
Sambandsherinn er minnkandi
her. í hinum sameinaða her eru
nú 597.000 menn. í viðræðum
Þjóðvetja við Bandaríkin, Sov-
étríkin, Frakkland og Bretland í
tengslum við sameininguna var
hins vegar ákveðið að verulega
yrði dregið * úr hernaðarmætti
Þjóðveija, aðallega að kröfu Sov-
étmanna. Er stéfnt að því að Sam-
bandsherinn telji 370.000 manns
árið 1994. Þá verður dregið veru-
lega úr brynvörðum sveitum
þýska hersins og skriðdrekum t.d.
fækkað úr 7133 í 2967 eða um
42%. En þó herinn minnki er einn-
ig ætlunin að gera hann hreyfan-
legri og er myndun hraðliðssveit-
anna, sem áður var getið um,
skref í þá átt.
Spurningin um hvort Sam-
bandsherinn hafí umboð til að
taka þátt í öðrum aðgerðum en
NATO-aðgerðum er hins vegar
enn opin. Jafnaðarmenn sam-
þykktu í síðasta mánuði að ein-
ungis kæmi til greina að þýskir
hermenn tækju þátt í friðargæslu-
aðgerðum undir beinni stjóm
Sameinuðu þjóðanna. Hefur
Hans-Jochen Vogel, formaður
flokksins, til að mynda hafnað því
að Sambandsherinn taki þátt í
samstarfi um vamarmál sem
skipulagt yrði innan Vestur-Evr-
ópusambandsins (WEU), vamar-
bandalags níu Evrópuríkja.
Á slíku hefur hins vegar Helm-
ut Kohl, kanslari, áhuga sem og
að þýskir hermenn geti tekið þátt
í fjölþjóðaheijum á vegum Sam-
einuðu þjóðanna á borð við þann
sem frelsaði Kúveit. Hugsanlega
myndi slíkt krefjast breytingar á
stjómarskránni. Sagðist Sam-
bandsstjórnin þannig ekki geta
tekið þátt í aðgerðunum við Persa-
flóa á grundvelli hennar. Þó að
ekki séu rnenn á eitt sáttir um
hvernig túlka eigi stjórnarskrána
er þessi túlkun stjórnarinnar tal-
inn hafa mikið fordæmisgildi.
Til að gera breytingar á stjóm-
arskránni þarf meirihluta 2/3
þingmanna sem setur stjómina í
ákveðinn vanda. Þetta þýðir nefni-
lega að breytingar geta/einungis
náð eins langt - eða skammt - og
stjómarandstaðan getur sætt sig
við. Þó margir þingmenn jafnað-
armanna séu á svipuðu róli og
kanslarinn í varnarmálum er í
hæsta máta ólíklegt að samkomu-
lag geti náðst um stjómarskrárs-
breytingu um annað en að Sam-
bandsherinn fái að taka þátt í
friðargæslusveitum SÞ. Þá hefur
Hans-Dietrich Genscher, utanrík-
isráðherra og leiðtogi stjórnar-
flokksins FDP, talað um að stjórn-
arskrárbreyting ætti að leyfa að-
gerðir „innan ramma Sameinuðu
þjóðanna“. Þar með væri komið
ótvírætt stjórnarskrárlegt bann
við öðm, sem ekki er til staðar
nú og því eiginlega betur heima
setið en af stað farið fyrir Kohl.
BAKSVIÐ
ejtir Steingrím Sigurgeirsson