Morgunblaðið - 14.04.1991, Side 16

Morgunblaðið - 14.04.1991, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1991 VERÐA TIL eftir Súsönnu Svavarsdóttur myndir Einar Falur Ingólfsson Núna, í miðri ástríðukenndri loforðasíbylju þingkosning- anna, er eins og hvergi sé skjól að finna. Orðahríðin dynur á manni svo víða að það er eins og hún leiki lausum hala í loft- inu allt um kring — eins og á okkur hafi skollið styijöld. Sér- hver einstaklingur sem maður hittir er bein útsending frá bar- áttunni. Það þýðir ekkert að bera hönd fyrir höfuð sér. í henni er engin vörn og það þýðir ekkert að öskra á móti: „Já, en það hefst hér BARNA- LISTAHÁTÍÐ þennan sama dag.“ Svo fann ég skotvarnarby rgi — í Listasafni Islands. Nánar til- tekið í kjallaranum; annar furðuheimur, fullur af átökum milli góðs og ills, átökum milli þess létta og fijálsa og þess þunga og jarðbundna; hljóðlát- um og kyrrum átökum þess eina sem skiptir máli — barns- sálarinnar. Furðuveröld þessi er sýning á verkum nemenda Bústaðaskóla og ber hún heitið „Fiðrildi og furðudýr". Á sýningunni eru bæði myndir og skúlptúrar sem nemendur hafa unnið á marg- víslegan hátt, með dýr að fyrir- mynd, bæði hvað varðar hug- myndir og útfærslu. Megin- áherslan var þó lögð á sjálf- sprottna tjáningu nemenda og samvinnu þeirra innbyrðis. Bústaðaskóli er sérskóli í Fræðsluumdæmi Reykjavíkur. Skól- ann sækja börn sem af ýmsum ástæðum hafa átt erfitt upp- dráttar í heimaskóla. Nemendur hafa mjög mislanga viðdvöl í Bústaða- skóla, allt frá hálfu skólaári, upp í þijú ár. í skólanum er lögð mikil áhersla á skapandi starf. Með því að teikna, mála, smíða og leika', fá nemendur staðfestingu á eigin getu. Þeir finna og sjá að þeir geta búið til hluti, málað myndir, leikið ýmis hlutverk; skapað og tjáð sig. Veturinn 1988-1989 var unnið með langtímaverkefni í Bústaða- skóla. Hið ytra var verkefnið fólgið í því að nemendur byggju til dýr sem þeir hefðu sjálfír þróað. Hið innra var markmiðið að nemendur lærðu að vinna saman, taka tillit hver til hugmynda annars, og að þeir fengju þá tilfinningu að dýrið væri sameiginleg afurð þeirra en ekki séreign einhvers eins. Við vinn- una var gengið út frá náttúrufræði og landafræði. Nemendur kynntu sér beinabyggingu spendýra, hvar þau lifa og á hverju. Niðurstaðan varð eigi að síður sú að til urðu þijú dýr sem ekki eiga sér neina eina fyrirmynd í náttúrunni. Dýrin þrjú voru í vetrarlok afhent öðrum stofnunum að gjöf. Tvö þeirra eru á sýningunni; Húndýrið, sem er í eigu sambýlis fjölfatlaðra við Holta- veg — og Búlli, en hann er í eigu Bústaðabókasafns. í skólanum eru núna níu strák- ar, hver öðrum skemmtilegri, með ■ Listamenn í Bústaðaskól heimsóttir geislandi ímyndunarafl og ótrúlega hæfileika til að tjá það í myndum og ljóðum. Þeir sögðu mér að Búlli hefði verið friðargjöf til Bústaða- bókasafns, af því að ... og nú vildu allir segja frá: „Það var nefnilega svoleiðis að við höfðum alltaf verið með svo mikil læti og vesen þarna og þetta var orðið dálítið erfitt. Svo fór okkur að þykja það leiðinlegt og vildum friðmælast — og Búlli. var svona friðargjöf.“ Þriðja dýrið var í eigu dagheimilisins Víðivalla í Hafnarfirði, en naut þar svo mik- illa vinsælda að það heyrir nú sög- unni til. En finnst þeim það ekki leiðinlegt? „Nei síður en svo, við viljum ekk- ert endilega eiga dýrin,“ segir einn og annar bætir við: „Við viljum al- veg’gefa þau öll og myndirnar líka. Það er allt í lagi.“ Það er ekki nískan á þeim bæ. Og þeir flögi-a eins og fiðrildi í kringum mig, á meðan ég tala við þá, sýna mér gríðarlega miklar myndir, sem segja sögur af stríði; þar eru neðanjarðarbyrgi, skrið- drekar, flugvélar, eldflaugar og það er ljóst að hið illa og ógnvekjandi er þeim hugleikið. Myndirnar bera þess vott að þeir eru ekki hræddir, en ljóst að þær eru leið strákanna til að stjórna þessari eilífu styrjöld. Og þeir sýna mér ljóðin sín, stoltir — og hafa til þess fulla ástæðu: FIÐRILDI eru létt með stóra vængi og lítinn búk. Þau geta verið I appelsínugulum litum með svörtum doppum. Þau geta líka verið með gula vængi með svörtu í. Og þau geta verið lítil og stór og líka með hvíta vængi með röndum. Og svo koma þau úr púpu. Púpa er það sem fiðrildi er í áður en það fær vængi. Einar Bragi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.