Morgunblaðið - 14.04.1991, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMÁ SÚNNUDÁ'GUR 14. APRÍL 1991
25
ÍÞRÓTTA- OG
TÓMSTUNDARÁÐ
Lausar stöður
Leiðbeinendur óskast til starfa við vinnuhóp
unglinga, sem er vinnuþjálfun fyrir 16-20 ára
unglinga, frá 13. maí til loka ágúst.
Starfið er fólgið í verklegri leiðsögn og félags-
legum stuðningi við þátttakendur.
Leitað er að starfsmönnum með reynslu af
starfi með unglingum og með almenna verk-
lega kunnáttu á sem flestum sviðum. Æski-
legt er að umsækjendur séu ekki yngri en
25 ára. Laun skv. kjarasamningi starfsmanna
Reykjavíkurborgar.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
veitir skrifstofa ÍTR, Fríkirkjuvegi 11, sími
622215.
Ferðaþjónusta
Aðili í ferðaþjónustu vill ráða starfskraft til far-
miðasölu og almennra upplýsinga. Vaktavinna.
Einhver tungumálakunnátta nauðsynleg.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.,
merktar: „B - 6900“, fyrir þriðjudagskvöld.
Við auglýsum eftir starfsfólki
vant saumaskap
Við bjóðum nýtt fólk velkomið til starfa í
nýjum húsakynnum okkar í Faxafeni 12, (2.
hæð vestan) björtum og skemmtilegum, sem
bjóða upp á bestu aðstæður.
Klýtt launakerfi.
Uppiýsingar gefnar af verkstjóra á vinnu-
stað í sfmum 67-9485 og 67-9486.
SJÓKLÆÐAGERÐIN HF
66*N
SEXTÍU OG SEX NORÐUR
Faxafeni 12, 2. hæð (í sama húsi og Virka
verslun).
Tölvunarfræðingur
Verkfræðingur
Stórt deildaskipt fýrirtæki í borginni vill
ráða starfsmann til starfa í tölvudeild. Starf-
ið er laust samkvæmt nánara samkomulagi.
Leitað er að tölvunarfræðingi, verkfræðingi
eða einstaklingi með sambærilega mennt-
un. Starfið felst í umsjón og rekstri einmenn-
ingstölva fýrirtækisins og tekur m.a. til upp-
setningar tækja og forrita, þjónustu við not-
endur, námskeiðahalds og lausnar smærri
forritunarverkefna. Um er að ræða nokkur
staðarnet með fjölda tengdra einmenningst-
ölva og tveim VAX tölvum. Umsækjandi þarf
að hafa góða þekkingu á Novell NetWare,
Windows, Word og Excel og hafa reynslu
af forritun. Reynsla af VAX/VMS æskileg.
Viðkomandi þarf að vera lipur í mannlegum
samskiptum og eiga auðvelt með að tjá sig
á einfaldan hátt við notendur.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu okkar.
Umsóknarfrestur er til 24. aprfl nk.
(tIIPNT ÍÓNSSON
RÁÐCJÖF &RAÐNINGARÞJÓNL1STA
TIARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMl 62 13 22
... ...—
Afgreiðslu-
og sölustörf
Óskum eftir að ráða starfsmenn í eftirfar-
andi störf sem eru laus nú þegar:
1. Sölustarf í sérverslun með vörur fyrir
börn. Vinnutími 9-18. Kostur væri ef við-
komandi hefði einhverja reynslu af léttum
skrifstofustörfum.
2. Afgreiðslustarf í mjög skemmtilegri
gjafavöruverslun í austurborginni. Vinnu-
tími 14.30-19. Æskilegur aldur 25-35 ár.
3. Afgreiðslustarf hjá þjónustufyrirtæki í
Mosfellsbæ. Um vaktavinnu er að ræða.
Skilyrði er að viðkomandi sé búsettur í
Mosfellsbæ. Æskilegt að umsækjendur
séu eldri en 25 ára.
4. Afgreiðslustarf í sportvöruverslun í aust-
urborginni. Vinnutími 12.30-19 og annan
hvern laugardag (10-16). Aðeins koma til
greina umsækjendur sem eru eldri en 20
ára.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsinbgar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
AHeysmga- og radningaþionustíi
Liösauki hf.
Skolavordustig la - W1 Revkiavik S'ihvtjPKifií).
Sölumennska
- útkeyrsla
Fyrirtæki í matvælaiðnaði óskar að ráða
starfskraft í sölumennsku og útkeyrslu.
Fyrirtækið: Lítið vaxandi fyrirtæki á höfuð-
borgarsvæðinu.
Starfið: Krefjandi ábyrgðarstarf við útkeyrslu
og sölu á pakkaðri vöru í verslanir. Eftirlit
með gæðum framleiðslu og skipulagning.
Umsækjandi þarf að vera reglusamur, dug-
legur, útsjónarsamur, líkamlega hraustur og
geta unnið sjálfstætt. Æskileg er menntun á
verslunar- og/eða matvælasviði. Nauðsynleg
er innsýn og reynsla í meðferð matvæla.
Góð laun í boði, þokkaleg vinnuaðstaða.
Umsókn sendist auglysingadeild Mbl. fyrir
20. aprfl, merkt: „P - 3903“.
Rafeindavirkjar
Óskum eftir að ráða rafeindavirkja til starfa
í tæknideild. Um er að ræða fjölbreytt fram-
tíðarstarf. Enskukunnátta nauðsynleg.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð veitt á
skrifstofunni, Síðumúla 23.
rm SECURITAS HF
SECURITAS
111
DAGVI8T BARNA
Fóstrur, þroska-
þjálfar eða annað
uppeldismenntað
starfsfólk
Dagvist barna, Reykjavík, óskar eftir starfs-
fólki í gefandi störf á góðum vinnustöðum.
Til greina koma hlutastörf bæði fyrir og eftir
hádegi.
Upplýsingar veita forstöðumenn eftirtalinna
dagvistarheimila og skrifstofa Dagvistar
barna, sími 27277.
BREIÐHOLT
Bakkaborg v/Blöndubakka s. 71240
BREIÐHOLT
Laufásborg v/Laufásveg s. 17219
VESTURBÆR
Skóladagh. Skáli v/Kaplaskjólsveg s. 17665
Starf
félagsmálastjóra
Laust er til umsóknar starf félagsmálastjóra
á ísafirði.
Um er að ræða fullt starf, sem er laust nú
þegar eða eftir samkomulagi. Undir félags-
málastjóra heyra m.a. dagvistarmál, öldr-
unarmál, fjölskyldumálefni, fjárhagsaðstoð
o.fl. Skilyrði er að umsækjandi sé félagsráð-
gjafi eða hafi aðra menntun og starfsreynslu
á sviði félags- eða sálfræða, sem nýst gætu
í starfi sem þessu. Félagsmálastjóri hefur
aðsetur í nýju Stjórnsýsluhúsi kaupstaðarins
og gert er ráð fyrir að hann muni ráða sér
til aðstoðar starfsmann í 50% starf.
Umsóknarfrestur er til 26. apríl 1991.
Nánari upplýsingar gefur undirritaður í síma
94-3722 eða á bæjarskrifstofunni á ísafirði.
Bæjarstjórinn á Isafirði.
Félagasamtökin
Vernd
óska að ráða matráðskonu til að sjá um
matseld á áfangaheimili samtakanna í
Reykjavík. Á heimilinu búa að meðaltali 17
menn. Vinnutími ca. 4 tímar á dag, 5-6 daga
vikunnar. Við leitum að konu á aldrinum
45-50 ára.
Allar upplýsingar veitir Birgir Þ. Kjartansson,
formaður, í síma 686330 milli kl. 8.30 og
11.00 frá 15.-19. apríl.
Skriflegum umsóknum sé skilað fyrir 1. maí
á skrifstofu félagasamtakanna Verndar, Skip-
holti 37, 105 Reykjavík.
Lausar stöður við
sérskóla
Lausar eru til umsóknar nokkrar stöður sér-
kennara við skólann við Kópavogsbraut í
Kópavogi. A.m.k. tveggja ára framhalds-
menntun í sérkennslu æskileg.
Fræðslustjóri Reykjanesumdæmis.
Ritstjóri
Bókmenntafræðistofnun Háskóla íslands
óskar eftir að ráða ritstjóra að nýrri orðabók
um íslenskar bókmenntir, þar sem gerð verð-
ur grein fyrir íslenskum rithöfundum, einstök-
um bókmenntaverkum, stefnum o.fl. Um er
að ræða hlutastarf í fyrstu, á meðan ritstjóri
vinnur að mótun verksins í samráði við stofn-
unina, en frá og með næsta ári getur orðið
um allt að fullt starf að ræða, auk þess sem
fleira fólk verður þá ráðið til starfa. Áætlað
er að verkið taki um þrjú ár. Nauðsynlegt
er að umsækjandi hafi í senn menntun í
íslenskum bókmenntum og nokkra reynslu
af tölvuvinnslu, auk skipulags- og stjórnunar-
hæfileika. Stofnunin hefur þegar útvegað
tölvukost og húsnæði fyrir þetta verk.
Frekari upplýsingar veitir forstöðumaður
Bókmenntafræðistofnunar (símar 21913-og
694357).
Umsóknarfrestur er til og með 31. maí 1991.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist Bókmenntafræðistofn-
un Háskóla íslands, Árnagarði við Suður-
götu, 101 Reykjavík.